SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 ml inniheldur 100 míkróg desmópressínasetat sem samsvarar 89 míkróg af desmópressíni.

Size: px
Start display at page:

Download "SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 ml inniheldur 100 míkróg desmópressínasetat sem samsvarar 89 míkróg af desmópressíni."

Transcription

1 SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Minirin 0,1 mg/ml nefúði, lausn 2. INNIHALDSLÝSING Desmópressínasetat 10 míkróg/úðaskammt. 1 ml inniheldur 100 míkróg desmópressínasetat sem samsvarar 89 míkróg af desmópressíni. Hjálparefni með þekkta verkun: 1 ml af Minirin 10 míkróg/úðaskammt inniheldur 0,1 mg af benzalkónklóríði. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla LYFJAFORM Nefúði, lausn 4. KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR 4.1 Ábendingar Flóðmiga (diabetes insipidus). Rannsókn á hæfni nýrna til að þétta þvag. 4.2 Skammtar og lyfjagjöf Einn skammtur af nefúðanum gefur 0,1 ml sem samsvarar 10 míkróg af desmópressínasetat. Eingöngu skal nota Minirin nefúða fyrir sjúklinga þegar ekki er hægt að gefa lyfið á formi til inntöku og alltaf á að byrja með minnsta skammti (sjá kafla 4.4). Fylgjast skal með vökvaneyslu (sjá leiðbeiningar vegna einstakra ábendinga í kafla 4.4). Ef merki um vökvasöfnun koma fram og/eða blóðnatríumlækkun (höfuðverkur, ógleði/uppköst, þyngdaraukning og í alvarlegum tilvikum krampar) á að hætta meðferðinni. Þegar sjúklingurinn hefur náð sér að fullu má hefja meðferðina að nýju og takmarka skal vökvaneyslu verulega (sjá kafla 4.4). Flóðmiga: Fullorðnir: Skammtar eru einstaklingsbundnir, en venjulegur skammtur er á bilinu míkróg einu sinni til tvisvar sinnum á sólarhring. Börn: Skammtar eru einstaklingsbundnir, en venjulegur skammtur er á bilinu 5-10 míkróg einu sinni til tvisvar sinnum á sólarhring. Rannsókn á hæfni nýrna til að þétta þvag: Fullorðnir: 40 míkróg Börn eldri en 1 árs: 20 míkróg Börn yngri en 1 árs: 10 míkróg Eftir Minirin gjöf á að fleygja því þvagi sem skilst út innan fyrstu klst. eftir lyfjagjöf. Á næstu 8 klst. skal safna 2 sýnum af þvagi til að nota í mælingar á osmósuþéttni. 1

2 Aldraðir: Aldraðir sjúklingar með sermisþéttni natríums nálægt neðri mörkum eðlilegra gilda geta haft aukna hættu á blóðnatríumlækkun, sjá kafla 4.4. Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi: Ekki má nota Minirin nefúða hjá sjúklingum með meðalmikið eða verulega skerta nýrnastarfsemi, sjá kafla 4.3. Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi: Skammtaaðlögun er ekki nauðsynleg, sjá kafla 4.5. Börn: Sjá ábendingar og skammta hér að ofan. Minirin nefúða skal gefa börnum undir eftirliti fullorðinna til að tryggja réttan skammt. Áður en nefúðalyfið er notað í fyrsta sinn, þarf að hlaða dæluna með því að þrýsta um það bil 4 sinnum niður á hana eða þar til fínn úði fæst. Þetta á einnig að gera, ef lyfið hefur ekki verið notað síðustu vikuna. Til að ná jafnri skömmtun er mikilvægt að plastslangan í flöskunni sé ofan í vökvanum. Þegar skömmtun er meiri en svarar til eins úðaskammts í hvora nös, skal gera u.þ.b. einnar mínútu hlé áður en úðað er á ný í sömu nös. Flöskuna skal geyma standandi. Ef vafi leikur á hvort réttur skammtur hafi verið gefinn á ekki að gefa nýjan úðaskammt fyrr en komið er að næstu lyfjagjöf. Lyfjagjöf hjá börnum á að vera í höndum fullorðinna til að tryggja að réttur skammtur sé gefinn. Notkunarleiðbeiningar: Snýttu þér og taktu hlífðarhettuna af. Hallaðu höfðinu lítið eitt aftur. Settu stútinn í aðra nösina. Haltu andanum niðri í þér og úðaðu einu sinni. Endurtaktu úðunina í hina nösina. Settu hlífðarhettuna á eftir notkun. 4.3 Frábendingar - Þrálátt vanabundið vatnsþamb og vatnsþamb af geðrænum toga (með þvagframleiðslu yfir 40 ml/kg/sólarhring). - Hjartasjúkdómar eða aðrir sjúkdómar sem þarf að meðhöndla með þvagræsilyfjum. - Meðalmikil eða veruleg nýrnabilun (kreatínín úthreinsun minni en 50 ml/mín.) - Blóðnatríumlækkun. - Truflun á seytingu þvagstemmuvaka (SIADH). - Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna sem talin eru upp í kafla Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun Sérstök varnaðarorð: Eingöngu skal nota Minirin nefúða þegar ekki er hægt að gefa lyfið á formi til inntöku. Klínísk reynsla hefur sýnt fram á hættu á alvarlegri blóðnatríumlækkun í tengslum við notkun desmópressín nefúða við meðferð á flóðmigu sem stafar af skemmdum í undirstúku eða heiladingli (central diabetes insipidus). 2

3 Meðferð án samhliða takmörkunar á vökvaneyslu getur leitt til vökvasöfnunar og/eða blóðnatríumlækkunar með eða án samhliða viðvörunareinkenna (höfuðverkur, ógleði/uppköst, þyngdaraukning og í alvarlegum tilvikum krampar). Öllum sjúklingum og/eða aðstandendum, á að leiðbeina vandlega um að takmarka vökvaneyslu. Viðbótarupplýsingar vegna rannsóknar á hæfni nýrna til að þétta þvag: Þegar lyfið er notað til sjúkdómsgreiningar skal takmarka vökvaneyslu við mest 0,5 lítra til að slökkva þorsta á tímabilinu frá 1 klukkustund fyrir og 8 klukkustundum eftir gjöf. Einungis læknar með sérþekkingu á sviðinu eiga að gera rannsóknir á nýrum hjá börnum yngri en 1 árs. Varúðarreglur: Hafa skal í huga alvarlega vanstarfsemi blöðru og þrengingu í þvagrás áður en meðferð hefst. Aukin hætta getur verið á blóðnatríumlækkun hjá ungbörnum, öldruðum og sjúklingum með sermisþéttni natríums nálægt neðri mörkum eðlilegra gilda. Hjá sjúklingum með sjúkdóma sem einkennast af truflunum í vökva- og/eða blóðsaltabúskap skal stöðva meðferð með desmópressíni eða aðlaga skammta ef nauðsyn krefur (t.d. við altækar sýkingar, hita eða maga- og garnabólgu). Gæta skal varúðar við meðferð sjúklinga sem eru í aukinni hættu á að fá aukinn þrýsting innan höfuðkúpu. Gera þarf varúðarráðstafanir til þess að koma í veg fyrir blóðnatríumlækkun ef sjúklingur fær samtímis lyf sem geta valdið SIADH (syndrome of inappropriate secretion of antidiuretic hormone), t.d. þríhringlaga geðdeyfðarlyf, sérhæfða serótónín endurupptökuhemla, klórprómazín, karbamazepín og nokkur sykursýkilyf af súlfonýlúreaflokki, sérstaklega chlorpropamidum, eða bólgueyðandi lyf (NSAID). Varúðarráðstafanir geta t.d. verið takmörkun á vökvaneyslu og tíðar mælingar á natríum í sermi. Þar sem Minirin 10 míkróg/úðaskammt nefúði inniheldur benzalkónklóríð getur það valdið öndunarerfiðleikum ef það berst í neðri öndunarfæri. 4.5 Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir Lyf sem vitað er að örva SIADH, t.d. þríhringlaga geðdeyfðarlyf, sérhæfir serótónín endurupptökuhemlar, klórprómazín og karbamazepín og jafnframt nokkur sykursýkilyf af súlfonýlúreaflokki, sérstaklega chlorpropamid, geta valdið auknum þvagstoppandi áhrifum og þar með aukið hættu á vökvasöfnun/blóðnatríumlækkun (sjá kafla 4.4). Bólgueyðandi lyf (NSAID) geta aukið vökvasöfnun/blóðnatríumlækkun (sjá kafla 4.4). In vitro rannsóknir með míkrósómum úr mönnum hafa sýnt að desmópressín umbrotnar ekki mikið í lifur og því er ólíklegt að desmópressín milliverki með lyfjum sem umbrotna í lifur. Rannsóknir á milliverkunum in vivo hafa þó ekki verið gerðar. 4.6 Frjósemi, meðganga og brjóstagjöf Meðganga: Upplýsingar frá takmörkuðum fjölda (n = 53) kvenna á meðgöngu með flóðmigu og upplýsingar frá þunguðum konum með blæðingaóreglu (n = 216), hafa ekki sýnt fram á aukaverkanir frá desmópressín á meðgöngu eða heilsu fósturs/nýbura. Engar frekari faraldsfræðilegar rannsóknir sem skipta máli eru fyrir hendi eins og er. Dýrarannsóknir sýna hvorki bein né óbein skaðvænleg áhrif á meðgöngu, fósturmyndun og fósturþroska, fæðingu eða þroska eftir fæðingu. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins á meðgöngu. 3

4 Æxlunarrannsóknir hjá dýrum hafa ekki sýnt áhrif á móðurdýr eða afkvæmi sem teljast hafa klíníska þýðingu hjá mönnum. In vitro greiningar á kímblöðrulíkani (cotyledon model) úr mönnum hafa sýnt að desmópressín fer ekki í fylgju þegar lyfið er gefið í skömmtum sem samsvara ráðlögðum skömmtum. Brjóstagjöf: Niðurstöður úr greiningu á mjólk frá mjólkandi mæðrum sem fengu stóran skammt af desmópressín (300 míkróg í nef) sýna að það magn desmópressíns sem nær til barnsins er talsvert minna en það magn sem þarf til að hafa áhrif á þvagræsingu. Desmópressín gefið í nef má nota þegar kona er með barn á brjósti. 4.7 Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla Engin ákvæði um varúðarmerkingar. Engar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna áhrif lyfsins á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Desmópressín hefur engin þekkt áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. 4.8 Aukaverkanir Yfirlit yfir öryggi: Alvarlegasta aukaverkun desmópressíns er blóðnatríumlækkun. Hún getur valdið höfuðverk, ógleði, uppköstum, þyngdaraukningu, vanlíðan, kviðverkjum, vöðvakrömpum, sundli, ringlun, skertri meðvitund og í alvarlegum tilvikum krömpum og dái. Flest önnur tilvik eru flokkuð sem ekki alvarleg. Algengustu aukaverkanirnar sem tilkynnt hefur verið um eru nefstífla (27%), hækkaður líkamshiti (15%) og nefslímubólga (12%). Aðrar algengar aukaverkanir eru höfuðverkur (9%), öndunarfærasýkingar (9%), maga- og garnabólga (7%) og kviðverkir (5%). Ekki hefur orðið vart við bráðaofnæmisviðbrögð í klínískum rannsóknum, en tilkynnt hefur verið um alvarleg almenn ofnæmisviðbrögð eftir markaðssetningu. Samantekt aukaverkana í töflu: Meðfylgjandi tafla er byggð á tíðni tilkynntra aukaverkana í klínískum rannsóknum á MINIRIN gefið í nef hjá börnum og fullorðnum í meðferð við flóðmigu, ósjálfráðum þvaglátum að nóttu og rannsóknum á hæfni nýrna til að þétta þvag (N = 745), ásamt reynslu eftir markaðssetningu fyrir allar ábendingar. Aukaverkanir sem aðeins hafa komið fram eftir markaðssetningu eru flokkuð í dálkinn Tíðni ekki þekkt. MeDRA flokkun eftir líffærum Mjög algengar (>10%) Algengar (1-10%) Sjaldgæfar (0,1-1%) Tíðni ekki þekkt Ónæmiskerfi Ofnæmisviðbrögð Efnaskipti og næring Blóðnatríumlækkun Ofþornun*** Ringlun* Geðræn vandamál Svefnleysi, Tilfinningalegt ójafnvægi**, Martraðir**, Taugaóstyrkur**, Árásarhneigð** 4

5 Taugakerfi Æðar Öndunarfæri, brjósthol og miðmæti Meltingarfæri Húð og undirhúð Stoðkerfi og stoðvefur Nefstífla, Nefslímubólga Höfuðverkur* Blóðnasir, Sýking í efri hluta öndunarvegar** Garna- og magabólga, Ógleði*, Kviðverkir* Uppköst* Krampar*, Dá*, Sundl*, Svefnhöfgi Háþrýstingur Mæði Niðurgangur Kláði, Útbrot, Ofsakláði Vöðvakrampar* Almennar aukaverkanir og aukaverkanir á íkomustað Rannsóknaniðurstöður Hækkun líkamshita Þreyta*, Útlægur bjúgur*, Brjóstverkur, Kuldahrollur Þyngdaraukning* *Tilkynnt í tengslun við blóðnatríumlækkun. **Aðallega tilkynnt hjá börnum og unglingum. ***Tilkynnt í tengslum við ábendinguna flóðmiga. Lýsing á völdum aukaverkunum: Börn: Blóðnatríumlækkun er afturkræf. Hjá börnum kemur blóðnatríumlækkun oft fram í tengslum við breytingar á daglegum venjum sem hafa áhrif á neyslu vökva og/eða aukna svitamyndun. Sérstakrar aðgátar er krafist í aðstæðum sem lýst er í kafla 4.4. Tilkynning aukaverkana sem grunur er um að tengist lyfinu Eftir að lyf hefur fengið markaðsleyfi er mikilvægt að tilkynna aukaverkanir sem grunur er um að tengist því. Þannig er hægt að fylgjast stöðugt með sambandinu milli ávinnings og áhættu af notkun lyfsins. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu samkvæmt fyrirkomulagi sem gildir í hverju landi fyrir sig, sjá Appendix V. 4.9 Ofskömmtun Ofskömmtun leiðir til lengri verkunar og eykur hættu á vökvasöfnun og blóðnatríumlækkun. 5. LYFJAFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR 5.1 Lyfhrif Flokkun eftir verkun: ATC flokkur H 01 BA 02 - vasópressín og hliðstæður Desmópressín er samtengd hliðstæða hins náttúrlega hormóns arginínvasópressíns. Desmópressín er efnafræðilega frábrugðið hinu náttúrulega hormóni í tveimur stöðum. Eina 1-cýsteín amínu vantar og 5

6 8-D-arginíni er bætt við í stað 8-L-arginíns. Með þessari breytingu fæst umtalsvert lengri hindrun á þvagmyndun og nær engin blóðþrýstingshækkun verður við lækningalega skammta. 5.2 Lyfjahvörf Aðgengi lyfsins eftir gjöf í nef er um 3-5%. Hámarksþéttni í blóði næst innan 1 klst. Dreifing: Dreifingu desmópressíns er best lýst með tveggja hólfa líkani, þar sem dreifingarrúmmál í brotthvarfsfasanum er 0,3 0,5 l/kg. Umbrot: In vitro rannsóknir á efnaskiptum desmópressíns í lifrarmíkrósómum úr mönnum hafa sýnt að desmópressín umbrotnar ekki í umtalsverðu magni í lifur fyrir tilstilli cýtókróm P450-ensímkerfisins. Þess vegna er ólíklegt að desmópressín umbrotni in vivo fyrir tilstilli cýtókróm P450-kerfisins í lifur hjá mönnum. Áhrif desmópressíns á lyfjahvörf annarra lyfja eru líklega lítil þar sem desmópressín hefur ekki hamlandi áhrif á lyfjaumbrot fyrir tilstilli cýtókróm P450 kerfisins. Brotthvarf: Heildarúthreinsun desmópressíns er 7,6 l/klst. samkvæmt útreikningum. Áætlaður lokahelmingunartími desmópressíns er 2,8 klukkustundir. Hjá heilbrigðum sjálfboðaliðum er útskilnaður óbreytts desmópressíns 52% (44-60%). 5.3 Forklínískar upplýsingar Forklínískar upplýsingar benda ekki til neinnar sérstakrar hættu fyrir menn, á grundvelli hefðbundinna rannsókna á lyfjafræðilegu öryggi, eiturverkunum eftir endurtekna skammta, eiturverkunum á erfðaefni og eiturverkunum á æxlun og þroska. Rannsóknir á krabbameinsvaldandi áhrifum desmópressíns hafa ekki verið gerðar. 6. LYFJAGERÐARFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR 6.1 Hjálparefni Natríumklóríð, sítrónusýrumónóhýdrat, tvínatríumfosfattvíhýdrat, benzalkóníumklóríð, hreinsað vatn. 6.2 Ósamrýmanleiki Á ekki við. 6.3 Geymsluþol 3 ár. 6.4 Sérstakar varúðarreglur við geymslu Engin sérstök fyrirmæli eru um geymsluaðstæður lyfsins. 6.5 Gerð íláts og innihald Úðapumpa. Pakkningastærð: 10 míkróg/úðaskammt: 1 x 5 ml, 3 x 5 ml. 6

7 Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar. 6.6 Sérstakar varúðarráðstafanir við förgun og önnur meðhöndlun Sjá kafla 4.2 um meðhöndlun. Farga skal öllum lyfjaleifum og/eða úrgangi í samræmi við gildandi reglur. 7. MARKAÐSLEYFISHAFI Ferring Lægemidler A/S, Kay Fiskers Plads 11, 2300 Köbenhavn S, Danmörk 8. MARKAÐSLEYFISNÚMER 10 míkróg/úðaskammt: MTnr (IS) 9. DAGSETNING FYRSTU ÚTGÁFU MARKAÐSLEYFIS/ENDURNÝJUNAR MARKAÐSLEYFIS Dagsetning fyrstu útgáfu markaðsleyfis: 1. júlí Nýjasta dagsetning endurnýjunar markaðsleyfis: 9. febrúar DAGSETNING ENDURSKOÐUNAR TEXTANS 26. febrúar

Meðferð með GnRH-hliðstæðum er aðeins við einkennum; þessi meðferð eyðir ekki undirliggjandi orsökum frjósemisvandamáls.

Meðferð með GnRH-hliðstæðum er aðeins við einkennum; þessi meðferð eyðir ekki undirliggjandi orsökum frjósemisvandamáls. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI DÝRALYFS Busol 0,004 mg/ml stungulyf, lausn, handa nautgripum, hestum, kanínum 2. INNIHALDSLÝSING Hver ml inniheldur : Virkt innihaldsefni: Buserelin (sem buserelinasetat)

More information

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule Part 66 Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule Part 66.A.20(b) privileges The holder og an aircraft maintenance licence may not exercise its privileges unless: 1. In compliance

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS INSPRA 25 mg filmuhúðaðar töflur. INSPRA 50 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 25 mg eða 50 mg af eplerenóni. Hjálparefni

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Oftaquix 5 mg/ml augndropar, lausn stakskammtaílát 2. INNIHALDSLÝSING Einn ml af augndropum, lausn, inniheldur 5,12 mg af levofloxacín hemihýdrati samsvarandi

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 10 mg benzýlalkóhól, 40 mg cetýlalkóhól, 40 mg sterýlalkóhól og 50 mg própýlenglýkól (E1520) í hverju 1 g af kremi.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 10 mg benzýlalkóhól, 40 mg cetýlalkóhól, 40 mg sterýlalkóhól og 50 mg própýlenglýkól (E1520) í hverju 1 g af kremi. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Elidel 10 mg/g krem 2. INNIHALDSLÝSING 1 g af kremi inniheldur pimecrolimus 10 mg. Hjálparefni með þekkta verkun 10 mg benzýlalkóhól, 40 mg cetýlalkóhól, 40 mg

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Virk innihaldsefni: lósartankalíum 50 mg/hýdróklórtíazíð 12,5 mg eða lósartankalíum 100 mg/hýdróklórtíazíð 25 mg.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Virk innihaldsefni: lósartankalíum 50 mg/hýdróklórtíazíð 12,5 mg eða lósartankalíum 100 mg/hýdróklórtíazíð 25 mg. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Presmin Combo 50 mg/12,5 mg og 100 mg/25 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Virk innihaldsefni: lósartankalíum 50 mg/hýdróklórtíazíð 12,5 mg eða lósartankalíum

More information

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar Þórólfur Guðnason yfirlæknir Sóttvarnalæknir, Embætti landlæknis Nóvember 2014 Gastegundir frá eldgosum >95% H 2 O, CO 2 SO 2

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 ml af dreifu inniheldur cíprófloxacín hýdróklóríð sem samsvarar 2 mg af cíprófloxacíni og 10 mg af hýdrókortisóni.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. 1 ml af dreifu inniheldur cíprófloxacín hýdróklóríð sem samsvarar 2 mg af cíprófloxacíni og 10 mg af hýdrókortisóni. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Ciproxin-Hydrocortison 2 mg/ml + 10 mg/ml, eyrnadropar, dreifa. 2. INNIHALDSLÝSING 1 ml af dreifu inniheldur cíprófloxacín hýdróklóríð sem samsvarar 2 mg af cíprófloxacíni

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Feraccru 30 mg hörð hylki 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hylki inniheldur 30 mg af járni (sem ferrímaltól). Hjálparefni með þekkta verkun: Hvert hylki inniheldur

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Lyfið er ekki lengur með markaðsleyfi

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Lyfið er ekki lengur með markaðsleyfi VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

More information

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson Ritstuldarvarnir Sigurður Jónsson sigjons@hi.is Aðgangur að Turnitin 1. Beint í Turnitin á www.turnitin.com 2. Gegnum Moodle-námskeið Kennarar og nemendur halda sig í Moodleumhverfinu Fá frumleikaskýrslu

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 100 mg af lósartankalíum og 25 mg af hýdróklórtíazíði.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 100 mg af lósartankalíum og 25 mg af hýdróklórtíazíði. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Cozaar Comp 50 mg/12,5 mg filmuhúðaðar töflur Cozaar Comp 100 mg/12,5 mg filmuhúðaðar töflur Cozaar Comp Forte 100 mg/25 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Pamidronatdinatrium Pfizer 3 mg/ml, innrennslisþykkni, lausn. Pamidronatdinatrium Pfizer 6 mg/ml, innrennslisþykkni, lausn. Pamidronatdinatrium Pfizer 9 mg/ml,

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Presmin 50 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Presmin inniheldur 50 mg af virka efninu lósartankalíum. Hjálparefni með þekkta verkun: Hver tafla inniheldur

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Azyter 15 mg/g augndropar, lausn í stakskammtaíláti. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert g lausnar inniheldur 15 mg af azitrómýsíntvíhýdrati sem jafngildir 14,3 mg af azitrómýsíni.

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Úr hverjum plástri losna 25 míkróg af fentanýli á klukkustund. Hver 7,5 cm 2 plástur inniheldur 4,125 mg af fentanýli.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Úr hverjum plástri losna 25 míkróg af fentanýli á klukkustund. Hver 7,5 cm 2 plástur inniheldur 4,125 mg af fentanýli. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Fentanyl Actavis 25 míkróg/klst. forðaplástur Fentanyl Actavis 50 míkróg/klst. forðaplástur Fentanyl Actavis 75 míkróg/klst. forðaplástur Fentanyl Actavis 100

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Diamox 250 mg töflur 2. VIRK INNIHALDSEFNI OG STYRKLEIKAR Hver tafla inniheldur 250 mg acetazólamíð. Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1. 3. LYFJAFORM

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYF

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYF SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYF 1. HEITI LYFS Losartan Medical Valley 12,5 mg filmuhúðaðar töflur Losartan Medical Valley 50 mg filmuhúðaðar töflur Losartan Medical Valley 100 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Omeprazol Medical Valley 10 mg magasýruþolin hörð hylki Omeprazol Medical Valley 20 mg magasýruþolin hörð hylki Omeprazol Medical Valley 40 mg magasýruþolin hörð

More information

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling. Sandimmun 50 mg/ml innrennslisþykkni, lausn. ciclosporin

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling. Sandimmun 50 mg/ml innrennslisþykkni, lausn. ciclosporin Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling Sandimmun 50 mg/ml innrennslisþykkni, lausn ciclosporin Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. -

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Bonviva 150 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 150 mg af íbandrónsýru (sem natríum einhýdrat). Hjálparefni

More information

Hugsanlega er ekki hægt að gefa nákvæmlega þá skammta í mg/kg sem gefa á börnum ef hylki eru notuð.

Hugsanlega er ekki hægt að gefa nákvæmlega þá skammta í mg/kg sem gefa á börnum ef hylki eru notuð. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Dalacin 150 mg og 300 mg hörð hylki. 2. INNIHALDSLÝSING Klindamýsín 150 mg og 300 mg sem klindamýsínklóríð. Hjálparefni með þekkta verkun: Dalacin 150 mg inniheldur

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hjálparefni með þekkta verkun: Lyfið inniheldur mjólkursykur. Í hverri töflu eru 42 mg af mjólkursykurmonohýdrati.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hjálparefni með þekkta verkun: Lyfið inniheldur mjólkursykur. Í hverri töflu eru 42 mg af mjólkursykurmonohýdrati. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Kóvar 2 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur warfarínnatríum 2 mg. Hjálparefni með þekkta verkun: Lyfið inniheldur mjólkursykur. Í hverri töflu

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Omnipaque stungulyf, lausn 2. INNIHALDSLÝSING Virk innihaldsefni Styrkur Innihald/ml Iohexól (INN) 140 mg J/ml 302 mg jafngildir 140 mg joðs Iohexól (INN) 180

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Hepsera 10 mg töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 10 mg adefóvír tvípívoxíl. Hjálparefni með þekkta verkun: Hver tafla inniheldur 113

More information

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Panodil Brus 500 mg freyðitöflur Parasetamól

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Panodil Brus 500 mg freyðitöflur Parasetamól Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Panodil Brus 500 mg freyðitöflur Parasetamól Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. Alltaf

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Risperidón Alvogen 0,5 mg og 1 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur risperidón 0,5 mg eða 1 mg. Hjálparefni með þekkta

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Lopress 12,5 mg eða 50 mg filmuhúðaðar töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 12,5 mg eða 50 mg af lósartankalíum. Sjá lista yfir öll hjálparefni

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Enalapril Krka 5 mg töflur. Enalapril Krka 10 mg töflur. Enalapril Krka 20 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING 5 mg tafla: Hver tafla inniheldur 5 mg af enalapril maleati.

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 20 mg af enalaprilmaleati og 12,5 mg af hydrochloriohiazidi.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Hver tafla inniheldur 20 mg af enalaprilmaleati og 12,5 mg af hydrochloriohiazidi. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Enalapril comp ratiopharm 20 mg/12,5 mg töflur. 2. INNIHALDSLÝSING Hver tafla inniheldur 20 mg af enalaprilmaleati og 12,5 mg af hydrochloriohiazidi. Hjálparefni

More information

VIÐAUKI I LISTI YFIR HEITI LYFS, LYFJAFORM, STYRKLEIKA LYFJA, ÍKOMULEIÐIR OG MARKAÐSLEYFISHAFA AÐILDARRÍKJA OG Á ÍSLANDI

VIÐAUKI I LISTI YFIR HEITI LYFS, LYFJAFORM, STYRKLEIKA LYFJA, ÍKOMULEIÐIR OG MARKAÐSLEYFISHAFA AÐILDARRÍKJA OG Á ÍSLANDI VIÐAUKI I LISTI YFIR HEITI LYFS, LYFJAFORM, STYRKLEIKA LYFJA, ÍKOMULEIÐIR OG MARKAÐSLEYFISHAFA AÐILDARRÍKJA OG Á ÍSLANDI 1 Aðildarríki Markaðsleyfishafi Umsækjandi Heiti lyfs Styrkleiki Lyfjaform Íkomuleið

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Xylocain Dental adrenalin 20 mg/ml + 12,5 míkróg/ml stungulyf, lausn í rörlykjum.

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS. Xylocain Dental adrenalin 20 mg/ml + 12,5 míkróg/ml stungulyf, lausn í rörlykjum. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Xylocain Dental adrenalin 20 mg/ml + 12, míkróg/ml stungulyf, lausn í rörlykjum. 2. INNIHALDSLÝSING Lídókaínhýdróklóríð 20 mg/ml og adrenalín 12, míkróg/ml (sem

More information

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011 Samanburður vindmæla Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011 Haustþing Veðurfræðifélagsins 2011 Tegundir vindmæla Til eru margar mismunandi gerðir vindmæla sem byggja á mismunandi

More information

Nýr texti fyrir lyfjaupplýsingar Útdráttur úr ráðleggingum PRAC vegna ræsimerkja

Nýr texti fyrir lyfjaupplýsingar Útdráttur úr ráðleggingum PRAC vegna ræsimerkja 25 February 2016 EMA/PRAC/166050/2016 Corr 1 Pharmacovigilance Risk Assessment Committee (PRAC) Nýr texti fyrir lyfjaupplýsingar Útdráttur úr ráðleggingum PRAC vegna ræsimerkja Samþykkt á fundi PRAC 8.-11.

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS ZULVAC 8 Bovis stungulyf, dreifa, fyrir nautgripi. 2. INNIHALDSLÝSING Hver 2 ml skammtur af bóluefni inniheldur: Virk innihaldsefni: Óvirkjuð

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Cayston 75 mg stofn og leysir fyrir eimgjafa, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Hvert hettuglas inniheldur aztreonam lýsín sem samsvarar 75 mg aztreonam.

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Amyvid 800 MBq/ml stungulyf, lausn Amyvid 1900 MBq/ml stungulyf, lausn 2. INNIHALDSLÝSING Amyvid 800 MBq/ml stungulyf, lausn Hver ml af stungulyfi,

More information

30 mg hylki: Hvert hylki inniheldur 30 mg lísdexamfetamíntvímesýlat, sem jafngildir 8,9 mg af dexamfetamíni.

30 mg hylki: Hvert hylki inniheldur 30 mg lísdexamfetamíntvímesýlat, sem jafngildir 8,9 mg af dexamfetamíni. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar

More information

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Ný tilskipun um persónuverndarlög UT Messa SKÝ, 9. febrúar 2012 Hörður Helgi Helgason Um fyrirlesara 1999 2000-03 2003-06 2006- Héraðsdómslögmaður Persónuvernd Ráðgjafi, evrópsk persónuv.lög LM lögmenn -> Landslög munið #utmessan Boligen

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

More information

Klínískar leiðbeiningar um velgjuvörn og meðferð ógleði og uppkasta vegna krabbameinslyfja- og/eða geislameðferðar

Klínískar leiðbeiningar um velgjuvörn og meðferð ógleði og uppkasta vegna krabbameinslyfja- og/eða geislameðferðar Klínískar leiðbeiningar um velgjuvörn og meðferð ógleði og uppkasta vegna krabbameinslyfja- og/eða geislameðferðar Landspítali - Klínískar leiðbeiningar um velgjuvörn og meðferð ógleði og uppkasta vegna

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS balance 1,5% glúkósi,, kviðskilunarlausn, kviðskilunarlausn, kviðskilunarlausn 2. INNIHALDSLÝSING balance 1,5%/2,3%/4,25% glúkósi, fæst í tvíhólfa poka. Annað

More information

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1. HEITI LYFS Quetiapin Actavis 25 mg filmuhúðaðar töflur Quetiapin Actavis 100 mg filmuhúðaðar töflur Quetiapin Actavis 200 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

More information

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi Björn Traustason og Þorbergur Hjalti Jónsson, Mógilsá Fagráðstefna 25.mars 2010 Inngangur Landfræðileg greining til að meta útbreiðslu nokkurra

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Grepid 75 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 75 mg af klópidógreli (sem besílat). Hjálparefni með þekkta verkun:

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Bortezomib Accord 1 mg stungulyfsstofn, lausn. Bortezomib Accord 3,5 mg stungulyfsstofn, lausn. 2. INNIHALDSLÝSING Bortezomib Accord 1 mg stungulyfsstofn,

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að

More information

Tímarit um lyfjafræði

Tímarit um lyfjafræði Tímarit um lyfjafræði 1 tbl. 2008 Efnisyfirlit: Formannsþankar Námskeiðið CellCourse 2008 Útskriftarárgangur 2008 Ferðasaga - Ferð lyfjafræðinema til Rúmeníu Lyfjafræðingarnir í brúnni hjá Actavis bls.

More information

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI DÝRALYFS Pirsue 5 mg/ml spenalyf,lausn fyrir nautgripi 2. INNIHALDSLÝSING Virk innihaldsefni: Pirlimycin hydrochloride sem samsvarar 50 mg af pirlimycini

More information

Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á Landspítala og á hjúkrunarheimilum

Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á Landspítala og á hjúkrunarheimilum Tíðni einkenna og meðferð þeirra á síðasta sólarhring lífs hjá deyjandi sjúklingum á Landspítala og á hjúkrunarheimilum Svandís Íris Hálfdánardóttir 1 hjúkrunarfræðingur, Kristín Lára Ólafsdóttir 2 hjúkrunarfræðingur,

More information

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ / 1004720-1004720-3-ABC 2.1.2018 09::16 Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær»»» Reykjavík/HÍ 06:42 06:44 06:45 06:47 06:51 06:52 06: 07:17 07:18 07:22 07:28 07:29 07:31 07:32 07:34 07:36 07:38

More information

Hjálparefni og upplýsingar í fylgiseðli

Hjálparefni og upplýsingar í fylgiseðli Hjálparefni og upplýsingar í Heiti Uppfært Íkomuleið lyfs Mörk Upplýsingar sem eiga að koma fram í Aprótínín Útvortis Getur valdið ofnæmi eða alvarlegum ofnæmisviðbrögðum. Jarðhnetuolía Allar inniheldur

More information

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015 Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015 Q1. Ert þú karl eða kona? Karl 229 19.83% Kona 926 80.17% Fjöldi 1155 Q2. Á hvaða aldursbili ert þú? 30 ára eða yngri 190 16.42% 31-40 ára 257 22.21% 41-50 ára 312 26.97%

More information

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu Ari Ólafsson dósent í tilraunaeðlisfræði Eðlisfræðiskor HÍ og Raunvísindastofnun Háskólans Tilraunahúsið p.1/18 Sýnishorn af markmiðum ríkisvalds í menntamálum

More information

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Toradol 30 mg/ml stungulyf, lausn ketórolaktrómetamól

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Toradol 30 mg/ml stungulyf, lausn ketórolaktrómetamól Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Toradol 30 mg/ml stungulyf, lausn ketórolaktrómetamól Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar.

More information

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós XML-þjónustan veitir aðgang að nýjum norðurljósagögnum Veðurstofunnar sem birt eru á www.vedur.is. Slóð XML-þjónustunnar er http://xmlweather.vedur.is/aurora?op=xml&type=index

More information

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND INDEX I. Regional Partnerships Official Partners of the OPEN DAYS 2011 East Iceland... 3 Austurlands... 5 2 I. Regional

More information

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Áhrif lofthita á raforkunotkun Áhrif lofthita á raforkunotkun Orkuspárnefnd Júlí 2017 Áhrif lofthita á raforkunotkun Orkuspárnefnd Orkustofnun Júlí 2017 Útgefandi: Orkustofnun, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík Sími: 569 6000, Fax, 568

More information

Notkun merkis Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands Bústaðavegur Reykjavík

Notkun merkis Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands Bústaðavegur Reykjavík Notkun merkis Veðurstofu Íslands Veðurstofa Íslands Bústaðavegur 9 150 Reykjavík +354 522 60 00 +354 522 60 01 vedur@vedur.is Maí 2009 2 Efnisyfirlit Merki 3 Litanotkun 5 Merki í fleti 6 Stærð merkisins

More information

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar 1 Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar Introduction to rotating machines 2 Grunnhugtök og meginþættir Klassískar gerðir véla Riðstraumsvélar Samfasavél (synchronous machine) Spanvél (induction machine

More information

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012 Nr. 28/32 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012 2013/EES/28/07 frá 8. júní 2012 um framkvæmdarreglur vegna beitingar 16. gr.

More information

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins Morgunverðarfundur Ferðamálastofu Grand hótel, Reykjavík 14. apríl 2011 Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins Dr. Edward H. Huijbens Forstöðumaður /

More information

Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008.

Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008. GR 10:03 Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008. Guðlaugur Einarsson, geislafræðingur Ágúst 2010 Geislavarnir ríkisins Icelandic Radiation Safety Authority Rauðarárstíg 10 150 Reykjavík s. 5528200

More information

Botnlangabólga og botnlangataka hjá börnum á sjúkrahúsum í Reykjavík 1996 og 2006

Botnlangabólga og botnlangataka hjá börnum á sjúkrahúsum í Reykjavík 1996 og 2006 Hjörtur Haraldsson 1 læknanemi Þráinn Rósmundsson 1,2 barnaskurðlæknir Kristján Óskarsson 1,2 barnaskurðlæknir Jón Gunnlaugur Jónasson 1,3 meinafræðingur Ásgeir Haraldsson 1,2 barnalæknir Botnlangabólga

More information

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur CHEMISTRY The Central 9th Edition Hlutfallareikningur: AðA reikna út frá formúlum og efnajöfnum fnum Lavoisier: Massi varðveitist í efnahvörfum. : lýsa efnahvörfum. Efnajafna : Hvarfefni og myndefni: 2H

More information

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME. í sálfræði 103 á vorönn 2008 um viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME. Rannsóknin á að gera grein fyrir afstöðu nemenda við Menntaskólanum á Egilsstöðum til nýgerða breytinga á stoðtímakerfi

More information

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2 1 Examples 2 Sýnidæmi 2 2 Example 25-1 Gefið er 3 fasa, 3 teina raforkukerfi samkvæmt meðfylgjandi einlínumynd. Allar stærðir á myndinni eru í einingakerfinu ( per unit ). Seríuviðnám háspennulínanna er

More information

Hæðarveiki - yfirlitsgrein

Hæðarveiki - yfirlitsgrein Hæðarveiki - yfirlitsgrein Gunnar Guðmundsson 1,3 lungnalæknir Tómas Guðbjartsson 2,3 hjarta- og lungnaskurðlæknir *Hér er hæðarveiki notuð fyrir enska orðið high altitude sickness, en háfjallaveiki fyrir

More information

Klínískar leiðbeiningar um sýklalyfjameðferð hjá sjúklingum með hita og kyrningafæð

Klínískar leiðbeiningar um sýklalyfjameðferð hjá sjúklingum með hita og kyrningafæð Desember 2008 Klínískar leiðbeiningar um sýklalyfjameðferð hjá sjúklingum með hita og kyrningafæð Inngangur Þessar klínísku leiðbeiningar eru unnar úr leiðbeiningum Infectious Disease Society of America

More information

Öryggi barna skiptir miklu máli, börnin eru

Öryggi barna skiptir miklu máli, börnin eru Sálfræðiritið Tímarit Sálfræðingafélags Íslands 16. árg. 2011, bls. 73 79 Öryggi barna í innkaupakerrum: Áhrifarík leið til að forðast slys Háskóli Íslands Öryggi barna ætti að skipta foreldra miklu máli.

More information

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014 EFLA Verkfræðistofa STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin 2004-2013 Reykjavík, júní 2014 2014, hf - Vinnslu efnis og frágang texta annaðist Kolbrún Reinholdsdóttir fyrir Verkfræðistofuna EFLU hf. ISSN ISBN

More information

1. LIÐUR: Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins

1. LIÐUR: Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins Öryggisblað Síða: 1/15 1. LIÐUR: Auðkenning efnisins eða blöndunnar og félagsins eða fyrirtækisins 1.1. Vörukenni Sicoflush L Red 2817 1.2. Viðeigandi og tilgreind notkun efnis eða blöndu og notkun sem

More information

Ég vil læra íslensku

Ég vil læra íslensku Ég vil læra íslensku 16 Föt Föt Évlí - 16 föt 1 hlusta Generated by Foxit PDF Creator Foxit Software benda lita teikna klippa líma strákur stelpa ekki stelpa/ekki strákur hugsa Évlí - 16 föt 2 hlusta íslenskur

More information

Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/ /10

Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/ /10 Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/04-2009/10 Stefán Hrafn Jónsson Háskóli Íslands, Landlæknisembættið Margrét Héðinsdóttir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

More information

Segamyndun í djúpum bláæðum ganglima

Segamyndun í djúpum bláæðum ganglima FRÆÐIGREINAR / HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMAR Geir Karlsson 1 Pedro Riba 2 Ingvar Þóroddsson 3 Björn Guðbjörnsson 1 Frá 1 lyflækninga- og 2 röntgendeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, 3 Heilsugæslustöð Akureyrar.

More information

TRS II tekur við af TRS. Kynningarfundur, 30. maí 2017

TRS II tekur við af TRS. Kynningarfundur, 30. maí 2017 TRS II tekur við af TRS Kynningarfundur, 30. maí 2017 Dagskrá Almennt um TRS og breytingar í tengslum við innleiðingu MiFID II og MiFIR Yfirlit yfir TRS kerfið Helstu breytingar á kerfinu Mikilvægi þess

More information

Geymsluþol reyktra síldarflaka í lofttæmdum umbúðum

Geymsluþol reyktra síldarflaka í lofttæmdum umbúðum Geymsluþol reyktra síldarflaka í lofttæmdum umbúðum Franklín Georgsson Margeir Gissurarson Mælingar og miðlun Skýrsla Matís 23-10 Júní 2010 ISSN 1670-7192 Titill / Title Höfundar / Authors Geymsluþol reyktra

More information

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur Power Point leiðbeiningar Sjónarhorn View Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur Outline view - Yfirlitshamur Hér er hægt að rita minnispunkta við hverja glæru fyrir þann sem

More information

SVEPPASÝKINGAR MEÐAL SUNDGESTA

SVEPPASÝKINGAR MEÐAL SUNDGESTA Læknadeild Háskóla Íslands 4. árs rannsóknarverkefni Vorið 1997 SVEPPASÝKINGAR MEÐAL SUNDGESTA Gunnhildur Guðnadóttir, Bárður Sigurgeirsson, Ingibjörg Hilmarsdóttir Ágrip Inngangur: Sveppasýkingar í tánöglum

More information

Samantekt á atriðum sem framleiðendur snyrtivara þurfa að uppfylla

Samantekt á atriðum sem framleiðendur snyrtivara þurfa að uppfylla Öruggar snyrtivörur Samantekt á atriðum sem framleiðendur snyrtivara þurfa að uppfylla Snyrtivara sem er boðin fram á markaði á evrópska efnahagssvæðinu skal vera örugg fyrir heilbrigði manna og uppfylla

More information

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis ANNUAL SAFETY REVIEW 2012 Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis Flugmálastjórn Íslands: Annual Safety Review 2012 Útgefandi: Flugmálastjórn Íslands Skógarhlíð 12 105 Reykjavík

More information

Mat á járnbúskap með mælingu á transferrínviðtökum

Mat á járnbúskap með mælingu á transferrínviðtökum Mat á járnbúskap með mælingu á transferrínviðtökum Ágrip Vigfús Þorsteinsson 1 sérfræðingur í blóðmeinafræði og meinefnafræði Friðrik E. Yngvason 2 sérfræðingur í lyf- og lungnalækningum Lykilorð: járnskortur,

More information

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila. Viðhorf erlendra söluaðila Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila. Viðhorf erlendra söluaðila desember 2016 VIÐMIÐ TEGUND FYRIRTÆKIS

More information

Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös

Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös Næringarvörur Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30-17.00 Síðumúli 16 108 Reykjavík Sími 580 3900 www.fastus.is Grunndrykkir RESOURCE Senior Active RESOURCE Senior Active Fyrir

More information

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB ÍSLENSK útgáfa EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB I EES-STOFNANIR 1. EES-ráðið 2. Sameiginlega EES-nefndin 3. Sameiginlega EES-þingmannanefndin 4. Ráðgjafarnefnd EES ISSN 1022-9337 Nr. 54 8. árgangur

More information

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin 1996-1 Brynja Ármannsdóttir 1 læknanemi Laufey Tryggvadóttir 2 faraldsfræðingur Jón Gunnlaugur Jónasson 1,2,4 sérfræðingur í meinafræði Elínborg J. Ólafsdóttir

More information

Öryggisleiðbeiningar

Öryggisleiðbeiningar Blaðsíða 1 á/ frá / af/ eftir / úr / í sambandi við / fyrir 13 Öryggisleiðbeiningar Kafli 1 AUÐKENNI EFNIS / EFNABLÖNDU OG FYRIRTÆKISINS Þessar öryggisleiðbeiningar uppfylla lög og reglugerðir á Íslandi

More information

Notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu meðal íslenskra kvenna

Notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu meðal íslenskra kvenna Fyrirspurnir Margrét Unnur Sigtryggsdóttir margretunnur@9manundir.is RANNSÓKN RITRÝND GREIN Notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu meðal íslenskra kvenna Margrét Unnur Sigtryggsdóttir, MsC Nuddari hjá 9 mánuðum

More information

Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi -

Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi - Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi - Rannveig Björnsdóttir Strandbúnaður 2017, Grand Hótel Reykjavík, 13.-14.mars YFIRLIT erindis Dæmi: doktorsverkefni RBj 2005-2010 BAKGRUNNUR VANDAMÁLIÐ

More information

Klínískar leiðbeiningar um blóðþynningu og blóðflöguhemjandi meðferð einstaklinga með gáttatif án lokusjúkdóma

Klínískar leiðbeiningar um blóðþynningu og blóðflöguhemjandi meðferð einstaklinga með gáttatif án lokusjúkdóma FRÆÐIGREINR / FÓLSÍNNOTKUN Á MEÐGÖNGU / KLÍNÍSKR LEIÐBEININGR skyddar mot neuralrörsdefekter. Lakartidningen 1999; 96: 1961-3. 9. Cornel MC, Erickson JD. Comparison of National Policies on Periconceptional

More information

OKTÓBER 2006 SKÝRSLA 24-06 ITI 0612/EUT08 8HK3481 V IÐLOÐUN ÖRVERA VIÐ YFIRBORÐ Í VATNI - VARMAFRÆÐILEG NÁLGUN - Guðmundur Gunnarsson, Iðntæknistofnun Birna Guðbjörnsdóttir, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins

More information

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR Ingvar Örn Ingvarsson Verkefnisstjóri, ferðaþjónusta og skapandi greinar Samgöngufundur á Norðurlandi, 19. nóvember 2015 Meginstoðir stefnu og lykilárangursþættir

More information

Öryggisleiðbeiningar

Öryggisleiðbeiningar Blaðsíða 1 af 12 Öryggisleiðbeiningar Kafli 1 AUÐKENNI EFNIS / EFNABLÖNDU OG FYRIRTÆKISINS Þessar öryggisleiðbeiningar uppfylla lög og reglugerðir á Íslandi frá og með dagsetningu skjalsins. 1.1. AUÐKENNI

More information

Fljótlegar mæliaðferðir með NIR (Nær innrauð litrófsgreining) tæki. Gyða Ósk Bergsdóttir

Fljótlegar mæliaðferðir með NIR (Nær innrauð litrófsgreining) tæki. Gyða Ósk Bergsdóttir Fljótlegar mæliaðferðir með NIR (Nær innrauð litrófsgreining) tæki Gyða Ósk Bergsdóttir Raunvísindadeild Háskóli Íslands 2011 Fljótlegar mæliaðferðir með NIR (Nær innrauð litrófsgreining) tæki Gyða Ósk

More information

Nýjar leiðbeiningar um notkun AED tækja. Gísli E. Haraldsson, læknir Slysa- og bráðasvið Landpítala Háskólasjúkrahúss

Nýjar leiðbeiningar um notkun AED tækja. Gísli E. Haraldsson, læknir Slysa- og bráðasvið Landpítala Háskólasjúkrahúss Nýjar leiðbeiningar um notkun AED tækja Gísli E. Haraldsson, læknir Slysa- og bráðasvið Landpítala Háskólasjúkrahúss Markmið Kynna ástæður fyrir breytingum Útskýra mikilvægi grunnendurlífgunar Kynna nýjar

More information

MEÐ TILVÍSUN Í LÖG OG REGLUR ES: Lög (ES) nr. 2015/ hluti Innihalds upplýsingar vöru sem/og fyrirtækið hefur gengist við

MEÐ TILVÍSUN Í LÖG OG REGLUR ES: Lög (ES) nr. 2015/ hluti Innihalds upplýsingar vöru sem/og fyrirtækið hefur gengist við Öryggis upplýsingar blað CONTRAC BLOX MEÐ TILVÍSUN Í LÖG OG REGLUR ES: Lög (ES) nr. 2015/830 Útgáfudagur: júlí 2017 Undirbúið af: Bíll 1. hluti Innihalds upplýsingar vöru sem/og fyrirtækið hefur gengist

More information

Meinvaldandi bakteríur í þvagi íslenskra barna

Meinvaldandi bakteríur í þvagi íslenskra barna Meinvaldandi bakteríur í þvagi íslenskra barna Sýklalyfjanæmi þeirra og tengsl baktería við meðfædda galla í nýrum eða þvagfærum Sara Magnea Arnarsdóttir 1 Leiðbeinendur: Þórólfur Guðnason 1,2,3, Hörður

More information

Bráð briskirtilsbólga. Framskyggn rannsókn á nýgengi, orsökum, alvarleika og dánartíðni á Íslandi

Bráð briskirtilsbólga. Framskyggn rannsókn á nýgengi, orsökum, alvarleika og dánartíðni á Íslandi Bráð briskirtilsbólga. Framskyggn rannsókn á nýgengi, orsökum, alvarleika og dánartíðni á Íslandi Helgi Birgisson 1 Páll Helgi Möller 1 Sigurbjörn Birgisson 2 UM LYFLÆKNINGUM Ásgeir Thoroddsen 1 LÆKNIR

More information