Landbúnaður og losun gróðurhúsalofttegunda
|
|
- Ashlie Gilbert
- 5 years ago
- Views:
Transcription
1 Fræðaþing landbúnaðarins 2005 Landbúnaður og losun gróðurhúsalofttegunda Jón Guðmundsson, Hlynur Óskarsson, Landbúnaðarháskóla Íslands Keldnaholti. Landbúnaður, líkt og önnur starfsemi í samfélaginu, veldur losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna, brennslu eldsneytis á búunum og með óbeinum hætti í framleiðslu þeirra hluta sem landbúnaðurinn notar (t.d. framleiðslu vélbúnaðar). Fyrir utan þessi almennu áhrif hefur landbúnaður margvíslega sérstöðu hvað losun gróðurhúsalofttegunda varðar og verður hér gerð nánari grein fyrir þeirri sérstöðu. Í skýrslum þeirra þjóða, þar með talið íslendinga, sem undirritað hafa ramma-samning Sameinuðu Þjóðanna um verndun andrúmsloftsins (FCCC), er þeirri starfssemi sem veldur losun gróðurhúsalofttegunda skipt upp í sex undirflokka (Tafla 1). Uppgefin losun 2002 Uppruni losunar [Gg (10 9 g) CO 2 jafngildi.] Losun vegna brennslu eldsneytis 1915,49 Losun vegna iðnaðarferla 492,80 Losun vegna efnanotkunar 0 Losun vegna landbúnaðar 503,40 Losun vegna landnýtingar og breytinga á landnotkun -162,53 Losun vegna sorps. 269,48 Samtals 3018,64 Tafla 1 Skipting losunar gróðurhúsalofttegunda árið 2002 eftir uppruna losunar (Ministry of the Environment 2004) Landbúnaður hefur tengsl við alla þessa flokka en ber ábyrgð á tveimur af sex þessara flokka að öllu eða mestu leyti, þ.e. flokkunum: Losun vegna landbúnaðar og Losun vegna landnýtingar og breytingar á landnýtingu. Myndun og losun gróðurhúsalofttegunda. Þær lofttegundir sem eru helstu valdar gróðurhúsaáhrifanna eru koltvísýringur (CO 2 ), metan (CH 4 ) og hláturgas (N 2 O). Í grundvallaratriðum tengist myndun og losun þessara lofttegunda niðurbroti á lífrænu efni og myndun þeirra er hluti af hringrás kolefnis og niturs í náttúrunni. Myndun CO 2 úr ólífrænu efni á sér einnig stað, til að mynda úr kalki við sementsframleiðslu, eða þegar kalk er notað til að afsýra jarðveg. Koltvísýringur myndast annarsvegar við lífrænt niðurbrot á kolefnissamböndum, þ.e. öndun og hinsvegar við bruna. Öndun fer fram í hvatberunum heilkjörnunga og í örverum. Ef öndunin er ófullkomin, eins og til dæmis á sér stað þegar ekki er nægjanlegt framboð á súrefni, myndast oft metan. Metan (CH 4 ) myndast einungis við slíkar 32
2 loftfirrtar aðstæður þar sem lífrænt efni og nægur raki eru til staðar, t.d. í mýrum, mykjuhaugum og meltingarfærum grasbíta. Önnur myndefni ófullkominnar öndunar eru t.d. alkóhól og mjólkursýra en þau ferli eru utan þess viðfangsefnis sem hér er til umfjöllunar. Myndun bæði koltvísýrings og metans er hluti af hringrás kolefnis í náttúrunni og eru hvorugt efnið skaðleg í sjálfu sér. Að sama skapi er myndun N 2 O hluti af hringrás niturs í náttúrunni og ekki skaðlegt sem slíkt. Hins vegar hafa inngrip manna inn í hringrásir þessara efna (einkum með bruna olíu og kola en einnig með mikilli áburðarnotkun) valdið því að styrkur þessara lofttegunda hefur aukist í andrúmsloftinu. Hringrás kolefnis í náttúrunni byggist annars vegar upp af forðum (t.d. forða í gróðri og jarðvegi) og hins vegar af flæði milli þessara forða (t.d. flæði CO 2 milli gróðurs og andrúmslofts). Á mynd 1 eru sýndir helstu þættir þessarar hringrásar. Eldvirkni <0.1 Andrúmslofti (730) Jarðvegi (1500) Gróðri (500) Veðrun Forði á landi Veðrun 0.2 Gamalt Karbónöt lífrænt Í bergi kolefni Jarðfræðilegur forði Flutt með ám 0.8 sjó (38.000) 0.2 Set Mynd 1 Helstu þættir hringrásar kolefnis í náttúrunni. Tölur fyrir kolefnisforðana eru í Pg kolefnis og tölur fyrir flæði kolefnis milli forða eru í Pg kolefnis / ár. Yfirgnæfandi hluta alls kolefnis er að finna í jarðlögum eða í sjónum og setlögum hans. Tiltölulega lítinn hluta kolefnis er að finna í gróðri, jarðvegi og andrúmslofti. Mynd 2 sýnir helstu inngrip manna í hringrás kolefnis, en afleiðing þeirra inngripa er aukin styrkur CO 2 í andrúmslofti. Athygli vekur að bæði sjórinn og vistkerfi á landi hafa 33
3 Forði á landi Breytt landnýting 1.7 Aukin upptaka vistkerfa 1.9 Brennsla olíu og kola 5.3 Gamalt Karbónöt lífrænt Í bergi kolefni Jarðfræðilegur forði 5.4 Sementsframleiðsla 0.1 Andrúmslofti Upptaka sjávar 1.9 sjó Set Mynd 2.Myndin sýnir helstu breytingar á hringrás kolefnis sökum inngrips manna. Afleiðing breytinganna er aukinn styrkur CO 2 í andrúmslofti dempandi áhrif á aukningu CO 2 í andrúmslofti þannig að styrkur CO 2 hefur ekki vaxið í takt við aukna losun manna á lofttegundinni. Myndun N 2 O í náttúrunni er einkum í jarðvegi og er tengd tveimur efnaferlum í starfsemi jarðvegsörvera. Annarsvegar myndast N 2 O við tveggja þrepa ummyndun ammóníumjónar (NH + 4 ) yfir í nítrat (NO - 3 ) og hinsvegar verður N 2 O til við svo nefnda afnítrun (Mynd 3). Bæði þessi ferli eru hluti af hringrás niturs í náttúrunni en segja má að N 2 O sé einskonar leki úr þessum ferlum. Fyrra ferlið á sér stað við loftaðar aðstæður en það seinna við loftfirrtar og því má segja að bestu aðstæður til myndunar N 2 O séu þar sem nægt framboð er á nitri og breytileiki er til staðar í loftun jarðvegs, annaðhvort í tíma eða rúmi. Því má ætla að ræktun og notkun áburðar á rakadrægum lífrænum jarðvegi geti stuðlað að allnokkurri myndun á N 2 O. Losun gróðurhúsalofttegunda vegna landbúnaðar. Samkvæmt bókhaldi til rammasamningsins Sameinuðu Þjóðanna falla eftirfarandi þættir undir losun tengda landbúnaði: 1. Losun metans vegna gerjunar í meltingarfærum búfjár. 2. Losun metans og hláturgass við geymslu og meðhöndlun búfjáráburðar. 34
4 Nítratmyndun N 2 O NH + 4 NO - 2 NO ,5 O 2 + 0,5 O 2 N 2 O myndun í tveggja þrepa nítrat myndun Afnítrun NO - 3 NO - 2 N 2 O N 2 N 2 O myndast sem milliefni í afnítrun N 2 O myndun við afnítrun Mynd 3. Myndun N 2 O í jarðvegi er tengd tveimur efnaferlum, annarsvegar myndun nítrats og hinsvegar ferli afnítrunar 3. Losun metans við hrísgrjónarækt 4. Losun hláturgass úr ræktunarjarðvegi a. Bein losun i. Vegna tilbúins áburðar ii. Vegna búfjáráburðar iii. Vegna niturbindandi plantna (smári, lúpína) iv. Vegna ræktunar á lífrænum jarðvegi b. Losun vegna beitar (búfjáráburður) c. Óbein losun i. Vegna rokgjarnra N efna (NH 3 og NO x ) úr búfjáráburði og tilbúnum áburði. ii. Vegna N sem tapast úr áburði við útskolun og afrennsli. d. Aðrar orsakir i. T.d. jarðvinnsla. 5. Losun metans og hláturgass við brennslu gróðurs og sinu á beitarlöndum 6. Losun metans og hláturgass vegna brennslu gróðurleifa á ökrum. 35
5 Mat á ofangreindum hér á landi byggist í flestum tilfellum á notkun margföldunar-stuðla sem gefnir eru upp í leiðbeiningum fyrir skýrsluhaldið. Losun er þá umreiknuð út frá fjölda búfjár, áburðarnotkun eða hekturum lands. Heildarlosun sem talin var fram vegna landbúnaðar árið 2002 vegna þessara þátta var 12,27 Gg CH 4 og 0,79 Gg N 2 O og er þá vantalin losun N 2 O vegna ræktunar sem á sér stað á lífrænum jarðvegi (7500 ha) sem mundi, ef notaðir eru viðeigandi margföldunarstuðlar, hækka losun um 0.1 Gg N 2 O. Þessi losun er ígildi 503 Gg CO 2 eða 532 Gg ef vantalið N 2 O er talið með. Af þessari losun er 44% vegna gerjunar í meltingarfærum búfjár, 9 % vegna geymslu og meðhöndlunar búfjáráburðar og 47% vegna losunar úr ræktunarjarðvegi. Losun vegna landnýtingar. Allt frá því að fundur aðildarríkja rammasamnings Sameinuðu Þjóðanna var haldinn í Kyoto og Kyoto-bókunin var samþykkt hefur mikil umræða staðið um með hvaða hætti skuli framkvæma ákvæði bókunarinnar. Stór hluti þeirrar umræðu hefur snúist um þann hluta sem lýtur að landnotkun og breytingum á landnotkun. Ráðgjafastofnun loftslagssamningsins (IPCC) hefur útbúið leiðbeiningar um hvernig æskilegt sé að standa að skráningu og skýrslugjöf og hafa þessar leiðbeiningar tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu fyrir landnotkunarhluta skýrslugjafarinnar. Skýrslugerð til samningsins fyrir þennan þátt er miklu mun ítarlegri en hingað til hefur verið farið fram á. Þörfin á upplýsingum og skráningu þeirra hefur að sama skapi aukist verulega. Áhrif landnýtingarinnar á losun gróðurhúsalofttegunda eru metin í tvennu lagi. Í fyrsta lagi eru þau metin fyrir land sem er áfram í óbreyttri notkun og í öðru lagi fyrir breytingar á landnotkun. Landnotkunarflokkar eru að lágmarki sex samkvæmt leiðbeiningum IPCC; þ.e. skóglendi, graslendi, ræktarland, votlendi, búsetuland og annað land. Í flestum tilvikum þarf fyrir hvern flokk, árlega, að gera grein fyrir breytingum á kolefnisforða, losun metans og hláturgass og breytingum á þeirri losun við breytta landnotkun. Kolefnisforði hvers flokks er margþættur (t.d. ofanjarðar lífmassi, neðanjarðar lífmassi, sóp (litter), lífrænt efni í jarðvegi o.fl.) og þarf að meta hverja einingu út af fyrir sig. Breytt landnotkun getur haft áhrif á alla þessa þætti og áhrifin geta verið lengi að koma fram. Þessar auknu kröfur um upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda kalla á aukna skráningu á landnotkun og breytingar á henni en einnig verður nauðsynlegt fyrir okkur að afla ítarlegri gagna um áhrif landnotkunar hér á landi á losun gróðurhúsalofttegunda. Til að geta staðið við skuldbindingar okkar gagnvart rammasamningi SÞ þurfum við að koma á legg gagnagrunni um landnotkun. Sá grunnur þarf að ná yfir landið allt og geta haldið utan um þá landnýtingarflokka og breytingar á þeim sem nauðsynlegir eru vegna skýrsluhalds fyrir samninginn. Þessar auknu kröfur fela einnig í sér tækifæri því slíkur grunnur getur verið afar gagnlegur til að skipuleggja landnýtingu með þeim hætti sem gefur okkur hvað mestan arð án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að nýta landið né ganga á þær auðlindir sem í því felast. Með slíkum grunni fengist í fyrsta sinn heildstæð yfirsýn um landnotkun og öll skipulagsvinna og önnur ákvarðanataka um landnotkun ætti því að geta orðið markvissari en hún er í dag. Á Rannsóknastofnun landbúnaðarins (nú Landbúnaðarháskóla Íslands) hefur um nokkurra ára skeið verið unnið að gerð gangagrunns (Nytjaland) um ástand og gróðurfar lands. Sá grunnur hentar að mörgu leyti vel til að byggja ofan á grunn um landnýtingu og breytingar á henni. 36
6 Annað mikilvægt atriði er að afla gagna um breytingar á kolefnisforða og flæði gróðurhúsalofttegunda samhliða breyttri landnotkun. Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa sem bestar upplýsingar um áhrif viðkomandi landnýtingar. Í fyrsta lagi þá höfum við skuldbundið okkur til að gefa upp sem áreiðanlegastar tölur til loftslagssamningsins. Í öðru lagi þá telst uppgefin losun með þegar kemur að Kyotobókuninni. Í þriðja lagi skiptir það okkur miklu að hafa sem áreiðanlegastar upplýsingar til að geta nýtt þá möguleika sem felast í breyttri landnýtingu sem verkfæri til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í fjórða lagi hefur með undirritun Kyotobókunarinnar orðið til efnahagsleg tenging milli landnotkunar og annarrar starfsemi sem hefur áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda, svo sem fiskveiða, iðnaðar, samgangna og stóriðju. Til að geta með raunhæfum hætti metið gengi landnýtingar móti annarri starfsemi er mikilvægt að upplýsingarnar um losun ákveðinnar landnotkunar séu til staðar. Staðan í dag. Nú um nokkurra ára skeið hafa verið stundaðar á Rannsóknastofnun landbúnaðarins (nú LBHÍ) mælingar á flæði gróðurhúsalofttegunda úr ýmsum gerðum úthaga; allt frá lítt grónum svæðum yfir í frjósamt graslendi og frá blautum mýrum yfir í fullframræst svæði. Mælingar þessar hafa einkum beinst að CO 2 og CH 4, en einnig lítillega að N 2 O. Þau gögn sem fyrirliggja eru farin að gefa ágæta mynd af stöðu úthaga hvað losun gróðurhúsalofttegunda varðar; einkum fyrir Vesturland þar sem flestar mælingarnar hafa farið fram. Niðurstöður sýna að velgróin og lítt röskuð svæði eru í flestum tilvikum í jafnvægi hvað upptöku og losun gróðurhúsalofttegunda varðar og sýna jafnvel í sumum tilvikum nokkra upptöku. Aftur á móti gefa niðurstöðurnar einnig sterkt til kynna að á sumum svæðum eigi sér stað veruleg losun á CO 2 og á þetta einkum við tvennskonar svæði. Í fyrsta lagi svæði þar sem allnokkurt rof er í gróðurþekjunni en á slíkum svæðum hefur getan til upptöku á CO 2 verið skert verulega en losun vegna öndunar er enn til staðar þar sem allnokkur forði af kolefni í jarðvegi. Í öðru lagi er um að ræða framræst svæði en niðurstöður mælinga á slíkum svæðum sýna að við lækkun vatnsstöðu eykst jarðvegsöndun mikið en geta gróðursins til að binda CO 2 stendur í stað eða jafnvel minnkar og heildarútkoman því veruleg losun á CO 2. Við framræslu dregur aftur á móti úr metanlosun úr jarðveginum en eins og þekkt er þá losa mýrar frá sér nokkurt magn metans. Niðurstöður mælinga á flæði N 2 O gefa hinsvegar í skin að losun þess aukist við framræslu og má segja að sú aukning vegi að stórum hluta upp á móti lægri losun metans og því séu heildaráhrifin þau að losun CO 2 hafi aukist verulega. Heimildir Ministry of the Environment, I. (2004). The GHG Emission Inventory, Iceland Reykjavík, Ministry of the Environment, Iceland. 37
Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule
Part 66 Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule Part 66.A.20(b) privileges The holder og an aircraft maintenance licence may not exercise its privileges unless: 1. In compliance
More informationMöguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi
Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi Björn Traustason og Þorbergur Hjalti Jónsson, Mógilsá Fagráðstefna 25.mars 2010 Inngangur Landfræðileg greining til að meta útbreiðslu nokkurra
More informationGreining á losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum landbúnaði. Höfundur myndar: Áskell Þórisson
Greining á losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum landbúnaði Höfundur myndar: Áskell Þórisson Jón Guðmundsson Landbúnaðarháskóla Íslands Október 2016 Efnisyfirlit Listi yfir myndir... 3 Listi yfir töflur...
More informationSamanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011
Samanburður vindmæla Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011 Haustþing Veðurfræðifélagsins 2011 Tegundir vindmæla Til eru margar mismunandi gerðir vindmæla sem byggja á mismunandi
More informationOPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND
OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND INDEX I. Regional Partnerships Official Partners of the OPEN DAYS 2011 East Iceland... 3 Austurlands... 5 2 I. Regional
More informationRitstuldarvarnir. Sigurður Jónsson
Ritstuldarvarnir Sigurður Jónsson sigjons@hi.is Aðgangur að Turnitin 1. Beint í Turnitin á www.turnitin.com 2. Gegnum Moodle-námskeið Kennarar og nemendur halda sig í Moodleumhverfinu Fá frumleikaskýrslu
More informationNý tilskipun um persónuverndarlög
UT Messa SKÝ, 9. febrúar 2012 Hörður Helgi Helgason Um fyrirlesara 1999 2000-03 2003-06 2006- Héraðsdómslögmaður Persónuvernd Ráðgjafi, evrópsk persónuv.lög LM lögmenn -> Landslög munið #utmessan Boligen
More informationKolefnisbinding í jarðvegi
Kolefnisbinding í jarðvegi Þorsteinn Guðmundsson Landbúnaðarháskóla Íslands Inngangur Magn lífrænna efna í jarðvegi og þar með kolefnis er mælikvarði á gæði jarðvegsins og segir til um marga af mikilvægustu
More informationKoleefnisssporr Lan. Loftslaggsbókhald 2007 L 2008/19
Loftslagsbókhald 2007 Koleefnisssporr Lan ndsvvirkju unarr Loftslaggsbókhald 2007 L 2008/19 LV 93 Efnisyfirlit Kolefnisspor... 1 Hvað er kolefnisspor?... 2 Losun gróðurhúsalofttegunda... 3 Losun gróðurhúsalofttegunda
More informationLeiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós
Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós XML-þjónustan veitir aðgang að nýjum norðurljósagögnum Veðurstofunnar sem birt eru á www.vedur.is. Slóð XML-þjónustunnar er http://xmlweather.vedur.is/aurora?op=xml&type=index
More informationKolefnisspor Landsvirkjunar
Loftslagsbókhald2008 KolefnissporLandsvirkjunar Loftslagsbókhald2008 LV2009/065 Efnisyfirlit Kolefnisspor... 1 Hvað er kolefnisspor?... 2 Losun gróðurhúsalofttegunda... 3 Losun gróðurhúsalofttegunda í
More informationHringrás kolefnis. Freyr Pálsson
Hringrás kolefnis Freyr Pálsson Freyr Pálsson. 2005 (nóvember): Hringrás kolefnis á jörðunni. Ritgerð í jarðsögu 1 við Háskóla Íslands. Kolefni er fjórða algengasta frumefnið í heiminum. Á jörðinni flyst
More informationFRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012
Nr. 28/32 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012 2013/EES/28/07 frá 8. júní 2012 um framkvæmdarreglur vegna beitingar 16. gr.
More informationTilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu
Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu Ari Ólafsson dósent í tilraunaeðlisfræði Eðlisfræðiskor HÍ og Raunvísindastofnun Háskólans Tilraunahúsið p.1/18 Sýnishorn af markmiðum ríkisvalds í menntamálum
More informationCHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur
CHEMISTRY The Central 9th Edition Hlutfallareikningur: AðA reikna út frá formúlum og efnajöfnum fnum Lavoisier: Massi varðveitist í efnahvörfum. : lýsa efnahvörfum. Efnajafna : Hvarfefni og myndefni: 2H
More informationCORINE-verkefniðog landgerðabreytingar á Íslandi milli 2000 og Ingvar Matthíasson Ásta Kr. Óladóttir
CORINE-verkefniðog landgerðabreytingar á Íslandi milli 2000 og 2006. Kolbeinn Árnason Ingvar Matthíasson Ásta Kr. Óladóttir CORINE: Coordination of information on the environment eða: Samræming umhverfisupplýsinga
More informationLandbúnaður á Íslandi 2010 Hótel Selfoss 28. janúar Jarðvegur á Íslandi. Ólafur Arnalds
Landbúnaður á Íslandi 2010 Hótel Selfoss 28. janúar 2010 Jarðvegur á Íslandi Ólafur Arnalds Sérstakur jarðvegur á Íslandi: eldfjallajörð Geymir mikið vatn Skortir samloðun Mikil frjósemi (nema P) Bindur
More informationMikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins
Morgunverðarfundur Ferðamálastofu Grand hótel, Reykjavík 14. apríl 2011 Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins Dr. Edward H. Huijbens Forstöðumaður /
More informationInngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar
1 Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar Introduction to rotating machines 2 Grunnhugtök og meginþættir Klassískar gerðir véla Riðstraumsvélar Samfasavél (synchronous machine) Spanvél (induction machine
More informationÁhrif niðurbrots plöntuleifa á laust nítur í jarðvegi The influence of turnover of plant residues on mineral N in soil
Rit LbhÍ nr. 54 Áhrif niðurbrots plöntuleifa á laust nítur í jarðvegi The influence of turnover of plant residues on mineral N in soil Friðrik Pálmason og Jón Guðmundsson 2014 Rit LbhÍ nr. 54 ISSN 1670-5785
More informationSNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR
SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR Ingvar Örn Ingvarsson Verkefnisstjóri, ferðaþjónusta og skapandi greinar Samgöngufundur á Norðurlandi, 19. nóvember 2015 Meginstoðir stefnu og lykilárangursþættir
More informationUmhverfis- og auðlindaráðuneytið. Loftslagsbreytingar: Staða og hlutverk Íslands
Loftslagsbreytingar: Staða og hlutverk Íslands Hugi Ólafsson, maí 2013 Loftslagsbreytingar - vísindin Alþjóðlegar skuldbindingar Losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum Hvað
More informationFosfór og hringrás hans á Íslandi. Snjólaug Tinna Hansdóttir
Fosfór og hringrás hans á Íslandi Snjólaug Tinna Hansdóttir Jarðvísindadeild Háskóli Íslands 2014 Fosfór og hringrás hans á Íslandi Snjólaug Tinna Hansdóttir 10 eininga ritgerð sem er hluti af Baccalaureus
More information6 Súrnun sjávar. Samantekt. 6.1 Inngangur
6 Súrnun sjávar Samantekt 1. Súrnun hafsins er staðreynd, staðfest með beinum mælingum og fræðilegum reikningum. 2. Til að komast hjá stórfelldum breytingum á lífríki og vistkerfum í höfunum þarf að minnka
More informationKlettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin
Klettafjöllin og Grand Canyon 1 Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin Kristbjörg María Guðmundsdóttir Eitt af fallegustu handverkum náttúruaflanna er án efa að finna í vesturhluta Norður-Ameríku.
More informationNr mars 2006 AUGLÝSING
AUGLÝSING um gerð sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og Ísland og Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna. Hinn
More informationÉg vil læra íslensku
Ég vil læra íslensku 16 Föt Föt Évlí - 16 föt 1 hlusta Generated by Foxit PDF Creator Foxit Software benda lita teikna klippa líma strákur stelpa ekki stelpa/ekki strákur hugsa Évlí - 16 föt 2 hlusta íslenskur
More informationMánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ
/ 1004720-1004720-3-ABC 2.1.2018 09::16 Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær»»» Reykjavík/HÍ 06:42 06:44 06:45 06:47 06:51 06:52 06: 07:17 07:18 07:22 07:28 07:29 07:31 07:32 07:34 07:36 07:38
More informationViðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.
Viðhorf erlendra söluaðila Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila. Viðhorf erlendra söluaðila desember 2016 VIÐMIÐ TEGUND FYRIRTÆKIS
More informationStóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017
Stóra myndin Uppbygging þekkingarsamfélags Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017 Bakgrunnur Viðskiptaráð Íslands 1 Yfirlit 1. Hvað eru þekkingarkjarnar? 2. Hvað
More informationRannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa
Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum Raddir fjölbreyttra kennarahópa Sólveig Karvelsdóttir, lektor, HÍ Hafdís Guðjónsdóttir, dósent, HÍ Rannsóknin er hluti af tveimur rannsóknum Fjölbreyttir kennarahópar
More informationRannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.
í sálfræði 103 á vorönn 2008 um viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME. Rannsóknin á að gera grein fyrir afstöðu nemenda við Menntaskólanum á Egilsstöðum til nýgerða breytinga á stoðtímakerfi
More informationBörn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/ /10
Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/04-2009/10 Stefán Hrafn Jónsson Háskóli Íslands, Landlæknisembættið Margrét Héðinsdóttir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
More informationÁhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar
Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar Þórólfur Guðnason yfirlæknir Sóttvarnalæknir, Embætti landlæknis Nóvember 2014 Gastegundir frá eldgosum >95% H 2 O, CO 2 SO 2
More informationReykjavík-Rotterdam, rannsókn á vöruútflutningi til Niðurlands (Hollands) Reykjavík-Rotterdam, a study of exports of goods to the Netherlands
2. nóvember 2015 Reykjavík-Rotterdam, rannsókn á vöruútflutningi til Niðurlands (Hollands) Reykjavík-Rotterdam, a study of exports of goods to the Netherlands Samantekt Markmið þessarar rannsóknar er að
More informationGeislavarnir ríkisins
GR 96:05 Geislavarnir ríkisins Icelandic Radiation Protection Institute Geislaálag vegna notkunar sérhæfðra tannröntgentækja Guðlaugur Einarsson, yfirröntgentæknir Tord Walderhaug, eðlisfræðingur ReykjavRk,
More informationStakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003
Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003 Jón Viðar Jónmundsson 1 og Emma Eyþórsdóttir 2 1 Bændasamtökum Íslands 2 Rannsóknarstofnun landbúnaðarins/lbh á Hvanneyri Inngangur Fyrsta
More informationLíkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu
Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast? Stefán Hrafn Jónsson Lýðheilsustöð Margrét Héðinsdóttir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Mars 2010 Líkamsþyngd barna
More informationOKTÓBER 2006 SKÝRSLA 24-06 ITI 0612/EUT08 8HK3481 V IÐLOÐUN ÖRVERA VIÐ YFIRBORÐ Í VATNI - VARMAFRÆÐILEG NÁLGUN - Guðmundur Gunnarsson, Iðntæknistofnun Birna Guðbjörnsdóttir, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
More informationNMÍ Verknúmer 6EM Viðtakarannsóknir 2011: Setgildrur
NMÍ 15-03 Verknúmer 6EM08081 Viðtakarannsóknir 2011: Setgildrur Guðjón Atli Auðunsson Apríl 2015 Viðtakarannsóknir 2011: Setgildrur Efnisyfirlit Ágrip 2 1 Inngangur 3 1.1 Fyrri rannsóknir á seti á Sundunum
More informationÞungmálmar í mosa í nágrenni fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði árið 2000
Þungmálmar í mosa í nágrenni fyrirhugaðs álvers í Reyðarfirði árið 2000 Sigurður H. Magnússon Unnið fyrir Reyðarál hf. NÍ-02011 Reykjavík, júní 2002 NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ÍSLANDS ISSN 1670-0120 ENGLISH SUMMARY
More informationPower Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2
1 Examples 2 Sýnidæmi 2 2 Example 25-1 Gefið er 3 fasa, 3 teina raforkukerfi samkvæmt meðfylgjandi einlínumynd. Allar stærðir á myndinni eru í einingakerfinu ( per unit ). Seríuviðnám háspennulínanna er
More informationAkureyrarbær Starfsmannakönnun 2015
Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015 Q1. Ert þú karl eða kona? Karl 229 19.83% Kona 926 80.17% Fjöldi 1155 Q2. Á hvaða aldursbili ert þú? 30 ára eða yngri 190 16.42% 31-40 ára 257 22.21% 41-50 ára 312 26.97%
More informationEES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB
ÍSLENSK útgáfa EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB I EES-STOFNANIR 1. EES-ráðið 2. Sameiginlega EES-nefndin 3. Sameiginlega EES-þingmannanefndin 4. Ráðgjafarnefnd EES ISSN 1022-9337 Nr. 54 8. árgangur
More informationÁhrif lofthita á raforkunotkun
Áhrif lofthita á raforkunotkun Orkuspárnefnd Júlí 2017 Áhrif lofthita á raforkunotkun Orkuspárnefnd Orkustofnun Júlí 2017 Útgefandi: Orkustofnun, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík Sími: 569 6000, Fax, 568
More informationHelstu stærðir í loftslagsmálum á Íslandi. Gylfi Árnason PhD, aðjúnkt HR
Helstu stærðir í loftslagsmálum á Íslandi Gylfi Árnason PhD, aðjúnkt HR Í fréttunum Landsvirkjun:Vottar alla raforku til fyrirtækja með upprunaábyrgðum Plastmengun í hafinu Svifryk á Grensásvegi/Miklubraut
More informationMerking tákna í hagskýrslum
Merking tákna í hagskýrslum endurtekning núll, þ.e. ekkert 0 talan er minni en helmingur þeirrar einingar, sem notuð er tala á ekki að koma eðli málsins samkvæmt upplýsingar vantar eða niðurstaða ekki
More informationBlöndulón Vöktun á strandrofi og áfoki
NÍ-11001 Blöndulón Vöktun á strandrofi og áfoki Áfangaskýrsla 2010 Borgþór Magnússon Unnið fyrir Landsvirkjun Blöndulón Vöktun á strandrofi og áfoki Áfangaskýrsla 2010 Borgþór Magnússon Unnið fyrir Landsvirkjun
More informationSjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur
Power Point leiðbeiningar Sjónarhorn View Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur Outline view - Yfirlitshamur Hér er hægt að rita minnispunkta við hverja glæru fyrir þann sem
More informationLangtímaspá um kolefnisbindingu nýskógræktar
522 Fræðaþing landbúnaðarins 4, 2007 Langtímaspá um kolefnisbindingu nýskógræktar Arnór Snorrason Rannsóknastöð Skógræktar, Mógilsá Inngangur Samkvæmt Kyótóbókuninni við Rammasamning Sameinuðu þjóðanna
More informationBrú II Venture Capital Fund S.C.A., SICAR
Brú II Venture Capital Fund S.C.A., SICAR Niðurstöður sérstakrar skoðunar á einstökum þáttum í starfseminni 4. febrúar 2014 KPMG ehf. Borgartún 27 105 Reykjavík Tel 545 6000 Fax 545 6001 4. febrúar 2014
More informationOfbeit í sjó orsök landeyðingar Hugleiðingar um áhrif skollakopps á landrof í ljósi þróunar í Kollsvík
Valdimar Össurarson Ofbeit í sjó orsök landeyðingar Hugleiðingar um áhrif skollakopps á landrof í ljósi þróunar í Kollsvík VÖ/jan/2017 Efni Inngangur... 3 Viðfangsefni og tilgáta... 4 Offjölgun skollakopps...
More informationFyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna
Fyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna Samanburðarrannsókn nóvember 2012 Ari Klængur Jónsson www.mcc.is Árnagötu 2-4 400 Ísafjörður Sími: 450-3090 Fax: 456-0215 mcc@mcc.is 1 Velferðarráðuneytið
More informationForseti Íslands á. 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag
8 Félagsleg skylda að vinna að hagsmunum bænda 12 Forseti Íslands á afmæli í dag: Landbúnaður er náðargjöf 16-18 Fósturdauði í gemlingum og ám 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag 20.200
More informationENDURHEIMT VOTLENDIS
ENDURHEIMT VOTLENDIS 1996-2006 Endurheimt votlendis 1996-2006 Skýrsla Votlendisnefndar Landbúnaðarráðuneytið 2006 Vefsíða um endurheimt votlendis www.rala.is/votlendi Ljósmyndir BM: Borgþór Magnússon DB:
More informationSumargötur Vettvangsrannsókn á Laugavegi og Skólavörðustíg sumarið 2013
Sumargötur Vettvangsrannsókn á Laugavegi og Skólavörðustíg sumarið 213 Páll Jakob Líndal janúar 214 Sumargötur 213. Samantekt vettvangsrannsóknar Inngangur Í vettvangskönnun þeirri sem hér er kynnt voru
More informationÞungmálmar og brennisteinn í tildurmosa við iðnaðarsvæðið í Hellnahrauni í Hafnarfirði haustið 2013
NÍ-14001 Þungmálmar og brennisteinn í tildurmosa við iðnaðarsvæðið í Hellnahrauni í Hafnarfirði haustið 2013 Sigurður H. Magnússon Unnið fyrir Hafnarfjarðarbæ Þungmálmar og brennisteinn í tildurmosa við
More informationHelstu niðurstöður loftgæðamælinga við leikskólann Steinahlíð og tilraunir með rykbindingar, - tímabilið 16. febrúar - 20.
USR - 29 Helstu niðurstöður loftgæðamælinga við leikskólann Steinahlíð og tilraunir með rykbindingar, - tímabilið 16. febrúar - 2. apríl 29 - Anna Rósa Böðvarsdóttir Heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlit
More informationKVER HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR
KV 2018-3 KVER HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR Greining á mögulegum eldisuppruna 12 laxa sem veiddust í tveimur ám á Vestfjörðum árið 2017 Analysis of 12 salmon caught in two rivers in the Icelandic Westfjords 2017
More informationFRAMKVÆMDAÁÆTLUN UM VARNIR GEGN MENGUN SJÁVAR FRÁ LANDI
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN UM VARNIR GEGN MENGUN SJÁVAR FRÁ LANDI Umhverfisráðuneytið Prentun: Hjá GuðjónÓ 2001 FORMÁLI SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR UMHVERFISRÁÐHERRA Vernd hafsins er eitt mikilvægasta verkefni í umhverfismálum
More informationLoftmengun vegna jarðvarmavirkjanna
Loftmengun vegna jarðvarmavirkjanna Kynning fyrir verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar. 9.desember 2014 Þorsteinn Jóhannsson thorsteinnj@ust.is Nýting lághitasvæða og háhitasvæða Mun minni umhverfisáhrif
More informationSTAÐA MÁLA HVAÐ VARÐAR HREINSUN SKÓLPS Á ÍSLANDI. Skýrsla Umhverfisstofnunar sbr. 28. gr. reglugerðar nr. 798/1999, um fráveitur og skólp
STAÐA MÁLA HVAÐ VARÐAR HREINSUN SKÓLPS Á ÍSLANDI Skýrsla Umhverfisstofnunar sbr. 28. gr. reglugerðar nr. 798/1999, um fráveitur og skólp EFNISYFIRLIT 1. INNGANGUR... 3 2. AÐSTÆÐUR Á ÍSLANDI... 3 3. LÖGLEIÐING
More informationFélagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services
2011:1 27. maí 2011 Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services Samantekt Frá árinu 1987 hefur Hagstofa Íslands leitað upplýsinga frá sveitarfélögum árlega um fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónustu
More informationSkýrsla um starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
Skýrsla um starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 2000 2001 Efnisyfirlit Formáli 3 Starfsemi tilraunastöðvarinnar á Hesti 5 Binding kolefnis og kolefnisbúskapur landsins 11 Belgjurtir bjarga sér sjálfar
More informationLV Úttekt á kolefnisbindingu skógræktar á svæðum í eigu Landsvirkjunar
LV-2012-062 Úttekt á kolefnisbindingu skógræktar á svæðum í eigu Landsvirkjunar LV-2012-062 Úttekt á kolefnisbindingu skógræktar á svæðum í eigu Landsvirkjunar Maí 2012 Efnisyfirlit Samantekt... 3 Inngangur...
More informationTil að forritið vinni með Word þarf að hlaða niður á tölvuna forritsstubbnum Cite While You Write
Veflæga heimildaskráningarforritið EndNote Web er notað til að halda utan um tilvísanir og búa til heimildaskrár. Hægt er að flytja tilvísanir úr bókasafnsskrám og gagnasöfnum inn í forritið. EndNote Web
More informationNr. 63/1846 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR. (ESB) nr. 1035/2011.
Nr. 63/1846 EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1029/2014 2015/EES/63/72 frá 26. september 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr.
More informationEFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014
EFLA Verkfræðistofa STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin 2004-2013 Reykjavík, júní 2014 2014, hf - Vinnslu efnis og frágang texta annaðist Kolbrún Reinholdsdóttir fyrir Verkfræðistofuna EFLU hf. ISSN ISBN
More informationViðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018
Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu September 2018 Samantekt Íslandsstofa framkvæmdi viðhorfskönnun í júlí og ágúst 2018 meðal erlendra söluaðila sem selja ferðir til Íslands.
More informationSamspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi -
Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi - Rannveig Björnsdóttir Strandbúnaður 2017, Grand Hótel Reykjavík, 13.-14.mars YFIRLIT erindis Dæmi: doktorsverkefni RBj 2005-2010 BAKGRUNNUR VANDAMÁLIÐ
More informationHagreikningar landbúnaðarins Economic accounts of agriculture
2013:1 28. febrúar 2013 Hagreikningar landbúnaðarins 2007 2011 Economic accounts of agriculture 2007 2011 Samkvæmt niðurstöðum úr hagreikningum landbúnaðarins jókst framleiðsluverðmæti greinarinnar um
More informationNr desember 2014 REGLUGERÐ. um skjölun og milliverðlagningu í viðskiptum tengdra lögaðila.
REGLUGERÐ um skjölun og milliverðlagningu í viðskiptum tengdra lögaðila. 1. gr. Gildissvið. Reglugerð þessi gildir um tengda lögaðila sem eiga í viðskiptum skv. 3.-5. mgr. 57. gr. laga nr. 90/2003, um
More informationLV Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns
LV-2014-094 Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns Lykilsíða Skýrsla LV nr: LV-2014-094 Dags: október 2014 Fjöldi síðna: 26 Upplag: Rafræn Dreifing: Birt á vef LV Opin Takmörkuð til Titill: Úttekt
More informationLV Gróðurvöktun á Fljótsdalsheiði
LV-2017-054 Gróðurvöktun á Fljótsdalsheiði Samanburður á samsetningu og þekju gróðurs árin 2008 og 2016 Lykilsíða Skýrsla LV nr: LV-2017-054 Dags: Júní 2017 Fjöldi síðna: 43 Upplag: 20 Dreifing: Birt
More informationFóðurrannsóknir og hagnýting
Fóðurrannsóknir og hagnýting Uppskeruhátíð rannsókna Gunnar Örn Kristjánsson Strandbúnaður 2018, Grand Hótel Reykjavík, 19.-20. mars. Grundvöllur fóðurgerðar Þarfir hjá eldisfisk Efnaþarfir til vaxtar
More informationEd Frumvarp tillaga [143. mál]
Ed. 148. Frumvarp tillaga [143. mál] um lagagildi viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Swiss Aluminium Ltd. um álbræðslu við Straumsvík. (Lagt fyrir Alþingi á 107. löggjafarþingi, 1984.) 1. gr.
More informationGengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma
Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma Gylfi Magnússon Viðskiptafræðideild Ritstjóri Ingjaldur Hannibalsson Rannsóknir í félagsvísindum XIII. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2012 Reykjavík:
More informationTilraunir með áburð á kartöflur 2004 og yfirlit yfir niðurstöður tilrauna
Tilraunir með áburð á kartöflur 2004 og yfirlit yfir niðurstöður tilrauna 1950-2004 Fertilizer experiments with potatoes 2004 and compilation of results 1950-2004 Rit LbhÍ nr. 17 2008 Rit LbhÍ nr. 17
More informationHvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?
Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Hvernig getur málefni sem ekki er skilgreint sem námsgrein í grunnskóla eða námssvið
More informationSala á sjávarafurðum.l Bandaríkjanna 2016
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Sala á sjávarafurðum.l Bandaríkjanna 2016 Hlynur Guðjónsson Aðalræðismaður og viðskiptafulltrúi Markaðurinn ECONOMICS The U.S. economy underperformed vs forecasts the 1 st quarter of
More informationNýting járns á Íslandi Framtíðarhorfur fyrir takmarkaðan auðlindaforða
Nýting járns á Íslandi Framtíðarhorfur fyrir takmarkaðan auðlindaforða Guðrún Björg Gunnarsdóttir Jarðvísindadeild Háskóli Íslands 2014 Nýting járns á Íslandi Framtíðarhorfur fyrir takmarkaðan auðlindaforða
More informationHáskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild
Háskólabrú fjarnám Bókalisti vorönn 2019 2. önn Félagsvísinda- og lagadeild Upplýsingatækni og tölfræði: Kennslubók í Excel 2016. Höfundar: Hallur Örn Jónsson og Óli Njáll Ingólfsson Stærðfræði 3: Stærðfræði
More informationSláturúrgangur í nýju ljósi Samanburður á fjórum förgunar- og nýtingarleiðum
Sláturúrgangur í nýju ljósi Samanburður á fjórum förgunar- og nýtingarleiðum Sigrún Guðmundsdóttir Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóli Íslands 2011 Sláturúrgangur í nýju ljósi Samanburður á fjórum förgunar-
More informationHreinsun affallsvatns frá fiskeldi á landi
Háskólinn á Akureyri Viðskipta og raunvísindadeild LOK 1226 Hreinsun affallsvatns frá fiskeldi á landi Akureyri, vor 2014 Íris Gunnarsdóttir Háskólinn á Akureyri Viðskipta og raunvísindasvið Námskeið Heiti
More informationEftirspennt Brúargólf Klóríðinnihald í nokkrum steyptum brúargólfum
Eftirspennt Brúargólf Klóríðinnihald í nokkrum steyptum brúargólfum Útg. Dags. Höf. Rýnir Samþykkur Lýsing 3 11/01 2006 GG EH Lokaskýrsla II 2 21/12 2005 GG SvSv Lokaskýrsla I 1 15/12 2005 GG Uppkast 1
More informationFrumframleiðnimælingar á Hafrannsóknastofnuninni árin Umfang, aðferðir og úrvinnsla
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN. FJÖLRIT NR. 107 Frumframleiðnimælingar á Hafrannsóknastofnuninni árin 1958 1999 Umfang, aðferðir og úrvinnsla Kristinn Guðmundsson og Kristín J. Valsdóttir Hafrannsóknastofnunin
More informationHólmsárvirkjun - Atleyjarlón
LV-2011-108 ORK-1110 Hólmsárvirkjun - Atleyjarlón Úttekt á náttúrulegu birkilendi sem fer undir vatn við myndun Atleyjarlóns LV-2011-103 ORK-1110 Hólmsárvirkjun Atleyjarlón Úttekt á náttúrulegu birkilendi
More informationLagfæring vegamóta á hringveginum. Skoðun á hagvæmni úrbóta
Lagfæring vegamóta á hringveginum Skoðun á hagvæmni úrbóta Janúar 2005 Samantekt Flest vegamót á þjóðvegum á Íslandi eru óstefnugreind. Umferðaróhöpp eru þar nokkuð tíð og öryggi þarf að auka. Í þessari
More informationVIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ
Kennsluáætlun vor 2017 Enska 8. bekkur Kennsluáætlun þessi tekur mið af hæfniviðmiðum sem fram koma í Aðalnámskrá Grunnskóla og skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ
More informationTRS II tekur við af TRS. Kynningarfundur, 30. maí 2017
TRS II tekur við af TRS Kynningarfundur, 30. maí 2017 Dagskrá Almennt um TRS og breytingar í tengslum við innleiðingu MiFID II og MiFIR Yfirlit yfir TRS kerfið Helstu breytingar á kerfinu Mikilvægi þess
More informationEiga gerlar þátt í ummyndun basaltgjóskunnar í Surtsey?
BÚVÍSINDI ICEL. AGR. SCI. 1, 1996: 273 289 Eiga gerlar þátt í ummyndun basaltgjóskunnar í Surtsey? SVEINN P. JAKOBSSON Náttúrufræðistofnun Íslands, Hlemmi 3, 15 Reykjavík YFIRLIT Upphaf Surtseyjarelda
More informationÞolmörk ferðamennsku í þjóðgarðinum í Skaftafelli
Þolmörk ferðamennsku í þjóðgarðinum í Skaftafelli Anna Dóra Sæþórsdóttir Guðrún Gísladóttir Arnar Már Ólafsson Björn Margeir Sigurjónsson Bergþóra Aradóttir Ferðamálaráð Íslands Þolmörk ferðamennsku í
More informationVaxtarsaga Marel. Snjólfur Ólafsson og Auður Hermannsdóttir
Vaxtarsaga Marel Snjólfur Ólafsson og Auður Hermannsdóttir Alþjóðlegur vöxtur íslenskra fyrirtækja og erlendar fjárfestingar síðustu ára hafa vakið mikla athygli hér á landi og víðar. Grein þessi varpar
More informationKæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?
Upphaf mælinga í uppsjávarskipum Sigurjón Arason Yfirverkfræðingur Matís ohf. og Prófessor, Háskóli Íslands Dr. Magnea G. Karlsdóttir; Fagstjóri, Matís ohf. Ásbjörn Jónsson; Verkefnastjóri, Matís ohf Magnús
More informationBrennisteinsvetni í Hveragerði
Þróun 2014-022 Reykjavík, september 2014 Brennisteinsvetni í Hveragerði September 2012 mars 2014 Snjólaug Ólafsdóttir EBS-411-01 Útgefandi: Orkuveita Reykjavíkur Útgáfudagur: September 2014 Umsjón og ábyrgð:
More informationLV Breytingar á grunnvatns- og jarðvatnsborði á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar
LV-2014-021 Breytingar á grunnvatns- og jarðvatnsborði á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar Mælingar með samanburði á gervitunglamyndum frá 2002, 2010 og 2012 Lykilsíða Skýrsla LV nr: LV 2014 021 Dags: 19.02.2014
More informationRæktun götutrjáa í þéttbýli og val á tegundum
Rit LbhÍ nr. 64 Ræktun götutrjáa í þéttbýli og val á tegundum Samson Bjarnar Harðarson og Steinunn Garðarsdóttir 2016 1 Rit LbhÍ nr. 64 ISSN 1670-5785 Ræktun götutrjáa í þéttbýli og val á tegundum Samson
More informationINNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016
FLUGTÖLUR 216 INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 216 Flugvöllur 215 216 Br. 16/15 Hlutdeild Reykjavík 348.24 377.672 8,5% 5,4% Akureyri 17.897 183.31 7,3% 24,5% Egilsstaðir 89.79 93.474 4,9%
More informationStaðsetning landbúnaðar: áhrif spurnar eftir landi á framleiðslu svæða
Bifröst Journal of Social Science 2 (2008) 125 WORKING PAPER Staðsetning landbúnaðar: áhrif spurnar eftir landi á framleiðslu svæða Kolfinna Jóhannesdóttir Ágrip: Í kjölfar mikillar umræðu um hækkun landverðs
More informationEFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012
EFLA Verkfræðistofa STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin 2002-2011 Reykjavík, apríl 2012 2012, EFLA verkfræðistofa hf - Vinnslu efnis og frágang texta annaðist Kolbrún Reinholdsdóttir fyrir Verkfræðistofuna
More information