Árangur, áskoranir og helstu aðgerðir 2012

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Horizon 2020 á Íslandi:

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Árangur, áskoranir og stórir áfangar árið 2014

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

CORINE-verkefniðog landgerðabreytingar á Íslandi milli 2000 og Ingvar Matthíasson Ásta Kr. Óladóttir

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

ECDC STJÓRNARSTOFNUN. Árleg skýrsla framkvæmdarstjóra Úrræði. Starf tengt sjúkdómum. Samantekt

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM. Schengen ráðstefna 6. október Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn -

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Ísland í evrópsku upplýsingasamfélagi 2006 The Icelandic Information Society in a European context 2006

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Tölvu- og netnotkun á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum 2014 Computer and Internet usage in Iceland and other European countries 2014

Stefnumótun. tun Rf. Hlutverk (Mission) Why we exist. Gildi (Core values) What we believe in. Framtíðarsýn (Vision) What we want to be

Félagsauður á Íslandi Þróun og skýringar á mun milli landa. Efnisyfirlit. Þátttaka í félögum og þjóðmálum. Þróun félagsauðs í grannríkjunum

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi -

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Ég vil læra íslensku

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

Félagsvísar: Skortur á efnislegum gæðum 2014 Social indicators: Material deprivation 2014

Áhrif lofthita á raforkunotkun

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Efni yfirlitsins að þessu sinni er: HAGTÖLUR VR

Félagsvísar: Ungt fólk í foreldrahúsum Social indicators: Young people living with their parents

October 2013 compared with September 2013 Industrial production down by 1.1% in euro area Down by 0.7% in EU28

Nr mars 2006 AUGLÝSING

Evrópskur samanburður á launum 2010 Structure of Earnings Survey 2010

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008.

Mislingar á Íslandi Faraldrar 19.aldar

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Upplýsingaleit á Internetinu Heilsa og lífsstíll. Dr. Ágústa Pálsdóttir dósent, bókasafns- og upplýsingafræði Háskóli Íslands

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Laun á almennum vinnumarkaði 2005 Earnings in the private sector 2005

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

HUGPRÓ Betw Be ar tw e ar QA & Agile

Health at a Glance: OECD Indicators 2005 Edition. Heilbrigðismál í hnotskurn: Rit OECD Samantekt. Summary in Icelandic. Útdráttur á íslensku

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Félagsvísar: Leigjendur á almennum leigumarkaði Social indicators: Tenants renting at market rates

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

KVER HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR

ANNUAL REPORT 2010 ÁRSSKÝRSLA 2010

Tekjur og menntun 2014 Income and education 2014

Samanburðarrannsókn á. kennslutíma. í fullu skyldunámi. í Evrópu 2013/14. Eurydice skýrslur. Education and Training

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Vímuefnaneysla íslenskra unglinga í alþjóðlegum samanburði

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

Segamyndun í djúpum bláæðum ganglima

sjálfsöryggi. Sj PIAAC Á NORÐURLÖNDUM INNGANGUR GRUNNLEIKNI FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ ATVINNULÍFSINS ANDERS ROSDAHL

Umfang og umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi 2006

Kennslutími fyrir skyldunám er mjög breytilegur milli Evrópulandanna

Félagsvísar: Lífskjör og lífsgæði barna Social indicators: The quality of children s lives

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar Frambjóðendur. Multicultural Council of Reykjavik Candidates

Vaasa Ostrobothnia nóv. 2012

Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar

Sameining tveggja háskóla í Svíþjóð

Greinargerð: Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og tengdra aðila

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

7. júní Landslag og ásýnd. Aðferðir grunngögn og gildismat. Ólafur Árnason. Fagstjóri skipulagsmála, EFLA

YFIRLIT ÁRSINS 2016 FLUGSVIÐ

Notkun merkis Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands Bústaðavegur Reykjavík

TRS II tekur við af TRS. Kynningarfundur, 30. maí 2017

!INNFLUTNINGUR!BÚVÖRU!OG!! HEILBRIGÐI!MANNA!OG!DÝRA!

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin

Saga fyrstu geimferða

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

Að störfum í Alþjóðabankanum

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

í lýðheilsu - þáttur Lýðheilsustöðvar

Nr desember 2014 REGLUGERÐ. um skjölun og milliverðlagningu í viðskiptum tengdra lögaðila.

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins Nr. 67/493 REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) 2017/839. frá 17.

Fóðurrannsóknir og hagnýting

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

Til að forritið vinni með Word þarf að hlaða niður á tölvuna forritsstubbnum Cite While You Write

Tölvu- og netnotkun á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum 2013 Computer and Internet usage in Iceland and other European countries 2013

Transcription:

Sóttvarnarstofnun Evrópu Árangur, áskoranir og helstu aðgerðir 2012 Hápunktar úr ársskýrslu framkvæmdastjórans www.ecdc.europa.eu

Þessi grein býður upp á yfirlit yfir lykilstarfsemi stofnunarinnar árið 2012 en lýsir alls ekki öllum afrekum ECDC á árinu 2012. Ítarlegar upplýsingar um starfsemi ECDC, uppbyggingu og stjórnsýslu og vinnuáætlun má finna í óstyttri útgáfu af ársskýrslunni. Dæmi um tilvísun: Árangur, áskoranir og helstu aðgerðir 2012 hápunktar úr ársskýrslu framkvæmdastjórans. Stokkhólmi: ECDC; 2013. Stokkhólmi, júní 2013 ISBN 978-92-9193-527-7 ISSN 1977-0081 doi 10.2900/96910 Flokkunarnúmer TQ-04-13-046-IS-N Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC), 2013 Allar ljósmyndir ECDC, nema Olga Palma, forsíðu (lengst til hægri); Valentin D, blaðsíðu 6; Oscar Fava, blaðsíðu 7; CDC/Ray Butler, Janice Haney Carr, blaðsíðu 12. Afritun er leyfð ef heimildar er getið. Ljósmyndir með höfundarrétti í þessu riti má ekki nota í öðrum tilgangi nema með leyfi höfundarréttarhafa.

Formáli stjórnarformanns Það var mér mikill heiður þegar framkvæmdastjórnin kaus mig formann í nóvember 2012. Ég vil byrja þennan formála á því að þakka öðrum stjórnarmönnum fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér. Ég vil líka óska varaformanni mínum, dr. Tiiu Aro, til hamingju með kjör hennar. Ég hlakka til að starfa með Tiiu Aro, Marc Sprenger og stjórnarmönnunum á komandi árum við að styrkja og byggja á afrekum hins virta forvera míns, prófessors dr. Huberts Hrabcik (stjórnarformaður 2008-12). Frakkland tilnefndi mig til stjórnarsetu hjá ECDC árið 2008 þegar miðstöðin var enn á upphafsmetrum sínum. Bæði sem stjórnarmaður og í starfi mínu sem framkvæmdastjóri frönsku stofnunarinnar fyrir lýðheilsueftirlit (InVS) þótti mér mikið til hlutverks ECDC koma í stuðningi stofnunarinnar við Evrópusambandið og aðildarríkin þegar kom að viðbrögðunum við fyrsta inflúensufaraldri 21. aldarinnar (2009-10) og fjölþjóðafaraldrinum af E. coli sem framleiða Árið 2012 sáum við þrjár nýjungar í sögu stofnunarinnar okkar. Í mars tók ECDC við formennskunni í samstarfsneti Evrópusambandsstofnana. Í september héldum við fyrsta sameiginlega stefnumótunarfundinn þar sem saman komu helstu samstarfsmenn stofnunarinnar í tæknimálum. Svo í nóvember hóf framkvæmdastjórnin starfstímabil sitt fyrir árin 2012-16 og kaus fyrsta kvenkyns stjórnarformanninn í sögu stofnunarinnar, dr. Françoise Weber. Í vinnuáætlun okkar fyrir árið 2012 skilgreindum við útrýmingu mislinga sem helsta forgangsmál okkar á árinu. Í kjölfar aukningar á mislingum í Evrópusambandinu árið 2011 þótti ECDC og samstarfsaðilum stofnunarinnar að mikilvægt væri að beina athyglinni að þessu lýðheilsuvandamáli. ECDC hefur frá haustinu 2011 gefið út mánaðarlegar eftirlitsskýrslur um stöðu mislinga í Evrópusambandinu. shiga eitur (STEC) O104 og fannst aðallega í Norður-Þýskalandi árið 2011. 2013 verður mikilvægt ár fyrir næstu skref í þróun ECDC. Stjórnin þarf að samþykkja stefnumörkun fyrir stofnunina fyrir árin 2013-20. Tímabilið er líklegt til að markast af takmörkuðu fjármagni í lýðheilsumál í öllum löndum Evrópusambandsins. Því er gríðarlega mikilvægt að skilgreina þá aðstoð og aukið gildi, sem ECDC hefur fram að færa, við innlendar forvarnir gegn sjúkdómum og eftirlitsáætlanir. Eftir að hafa lesið ársskýrsluna yfir og rennt í huganum yfir þær umræður, sem fóru fram í stjórninni 2012, er ég sannfærð um að við séum á réttri braut. Ég hlakka til enn árangursríkara árs 2013! Dr. Françoise Weber Stjórnarformaður 22. febrúar 2013 Inngangur framkvæmdastjórans fundur frjálsra hugsuða í apríl og fundur með þýðafulltrúum, sem erfitt er að ná til, í september. Niðurstaða starfs okkar var greining og valmöguleikar fyrir aðgerðir, sem kynntar voru á ráðstefnu Evrópusambandsins um bólusetningu barna, sem haldin var af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Lúxemborg í október. Með traustri greiningu á vandamálunum og nokkrum úthugsuðum kostum varðandi aðgerðir finnst mér að leiðin að útrýmingu mislinga í Evrópusambandinu hafi sannarlega orðið nokkuð skýrari. Meðal annarra hápunkta ársins 2012, að mínu mati, var sá árangur sem við náðum við að styrkja frekar samstarfið á milli lýðheilsurannsóknarstofa í Evrópusambandslöndum og gerð tóla til þess að aðstoða löndin, sem eru að ganga í Evrópusambandið, við að leggja mat á að hvaða marki þau séu reiðubúin til þess að taka þátt í kerfi Evrópusambandsins fyrir sjúkdómavarnir og eftirlit. Aðrir hápunktar voru hins vegar margir. Ég býð ykkur að skoða bæklinginn og lesa sjálf hápunkta margra þeirra málefna og sjúkdóma sem við störfum að. Árið 2012 varði ECDC talsverðum mannafla í að greina hindranir gegn aukningu á bólusetningu gegn mislingum í Evrópusambandinu og vann hörðum höndum að því að finna möguleika á því að sigrast á þessum hindrunum. Fyrsta verk okkar var hinn frumlegi Dr. Marc Sprenger Framkvæmdastjóri ECDC 20. febrúar 2013 3

Starfa að lýðheilsu: Starfsfólk ECDC fyrir utanhöfuðstöðvar ECDC í Tomteboda ECDC vegna þess að lýðheilsa skiptir máli Sóttvarnarstofnun Evrópu (ECDC), sem stofnuð var árið 2005 og er með höfuðstöðvar sínar í Stokkhólmi í Svíþjóð, er sú stofnun Evrópusambandsins sem ber ábyrgð á að styrkja varnir Evrópu gegn smitsjúkdómum. ECDC auðkennir, leggur mat á og miðlar núverandi og aðsteðjandi ógnunum gegn heilsu manna af völdum smitsjúkdóma og aðstoðar aðildarríki Evrópusambandsins í viðbúnaði og viðbrögðum þeirra. Stofnunin býður ESB/EEA aðildarríkjunum upp á vísindalega ráðgjöf og áreiðanlegar upplýsingar og úrræði á öllum sviðum er tengjast lýðheilsu. Árið 2012 var fjárhagsáætlun ECDC 58,2 milljónir, aukning upp á 2,8% frá árinu 2011. 31. desember 2011 var ECDC með 278 fasta starfsmenn við rannsóknir, sjúkdómaeftirlit, sjúkdómagreiningu, upplýsingatækni, samskipti og stjórnsýslu. Lýðheilsa er okkar mál Einn af helstu styrkleikum ECDC er geta stofnunarinnar til þess að bregðast með skjótvirkum hætti við breytilegri faraldsfræði smitsjúkdóma. Til þess að geta þetta starfrækir ECDC og viðheldur þremur kerfum sem hvert um sig er nauðsynlegt fyrir eitt tiltekið svið sjúkdómavarna: EPIS (faraldsfræðileg upplýsingaöflun), TESSy (sjúkdómaeftirlit) og EWRS (greining á ógnum). Faraldsfræðilega upplýsingaöflunarkerfið (e. Epidemic Intelligence Information System, EPIS), er öruggt vefbyggt samskiptakerfi til alþjóðlegrar miðlunar á tæknilegum upplýsingum og snemmbúnum viðvörum varðandi smitsjúkdóma). Faraldsfræðingar og örverufræðingar, sem vinna á mismunandi sjúkdómasviðum, nota EPIS til þess að gera samstarfsaðilum sínum í öðrum löndum viðvart 4

Hringborðsfundur í bráðaaðgerðamiðstöð ECDC um bráðatilvik og til þess að miðla vísindalegum greiningum þeirra á EPIS spjallborðinu á Netinu. Evrópska eftirlitskerfið (TESSy) er mjög sveigjanlegur gagnagrunnur til þess að safna saman gögnum um sjúkdóma. Þrjátíu ESB/EES lönd skrá gögn um smitsjúkdóma í kerfið. TESSy var hleypt af stokkunum árið 2008 og til viðbótar við kerfisbundið eftirlit hefur það komið í stað fjölda gagnasöfnunarkerfa sem þekkt eru sem sérhæfð eftirlitsnet og býður nú sérfræðingum upp á einn stað fyrir eftirlitsgögn úr Evrópusambandinu. Árveknis- og viðbragðskerfið (e. Early Warning and Response System, EWRS) er tölvukerfi fyrir trúnaðarupplýsingar, sem gerir aðildarríkjunum kleift að senda viðvaranir um uppákomur í heilbrigðismálum, sem kunna hugsanlega að hafa áhrif á ESB, miðla upplýsingum og samræma viðbrögð til þess að vernda lýðheilsu. Kerfið hefur þegar verið notað með árangursríkum hætti við fyrri SARS faraldra, heimsinflúensufaraldurinn A(H1N1) og öðrum smitsjúkdómum. Umfjöllun um árið Þessi grein býður upp á úrval af helstu starfsemi frá árinu 2012 en markar með engum hætti öll afrek ECDC á árinu 2012. Nákvæmar upplýsingar um starf ECDC, skipulag og stjórnskipulag og vinnuáætlun má finna í óstyttri útgáfu ársskýrslunnar 1. 1 Sóttvarnarstofnun Evrópu. Árleg skýrsla framkvæmdastjóra 2012. Stokkhólmi: ECDC; 2013. 5

Baráttan við sýklalyfjaþol Yfir 3000 sjúkrahús sendu inn göng fyrir fyrstu stóru könnun ECDC um smit tengd heilbrigðisþjónustu og sýklalyfjanotkun á bráðasjúkrahúsum í Evrópu. Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu maí 2011 og nóvember 2012 í öllum löndum Evrópusambandsins á Íslandi, í Noregi og í Króatíu. Bráðabirgðagreining á dæmigerðu úrtaki 905 sjúkrahúsa (226829 sjúklinga á 13601 deildum) sýndi að 5,9% sjúklinganna höfðu að minnsta kosti eina sýkingu, tengda heilsugæslunni, á könnunardeginum og 35% fengu að minnsta kosti eitt sýklalyf. Eftirlit með sýkingum tengdum heilsugæslu: slíkt aðstoðar við að greina og koma í veg fyrir frekari sýkingar og að veita veitendum heilbrigðisþjónustu upplýsingar um sjúkdómsmynstrin Þol gegn sýklalyfjum og sýkingar tengdar heilsugæslu eru meðal alvarlegustu vandamála gegn lýðheilsu, bæði í heiminum og í Evrópu. ECDC telur að á hverju enterobacteriaceae, og fjöllyfjaþolnar Pseudomonas ári fái um fjórar milljónir sjúklinga í aðildarríkjunum aeruginosa, en eins og er, er talið að bein dauðsföll 27 sýkingu tengda heilsugæslunni og að um af hans völdum séu um 25000. 37000 dauðsföll stafi beint af þessum sýkingum. Stórt hlutfall þessara dauðsfalla er vegna hinna langalgengustu fjöllyfjaþolnu baktería, t.d. metisilínþolnar Gullnar klasahnettlur (staphylococcus aureus) 3 000+ (MRSA), breiðvirkur betalaktamasi, sem framleiðir 6

1 357 Ágengar lífverur skapa ekki einungis stóra og hraðvaxandi ógn við líffræðilega fjölbreytni í Evrópu heldur geta þær einnig stefnt heilsu evrópskra borgara í voða. Hagnýtar leiðbeiningar við eftirlit á ágengum moskítóflugum í Evrópusambandslöndum voru birtar og notaðar með árangursríkum hætti í tilraunaverkefni í Belgíu 2. Suðið um moskítóflugurnar 11. nóvember 2012 tilkynntu lýðheilsuyfirvöld á Madeira um uppsafnaðan heildarfjölda 1357 tilvika af beinbrunavírus. Beinbrunavírusinn dreifist við bit sýktrar aedes moskítófluga. Árið 2012, líkt og árin á undan, veitti ECDC aðstoð á staðnum til þess að styðja aðildarríkin í viðbrögðum sínum við faröldrunum: sendinefnd var send til Madeira þremur vikum eftir viðvörunina um beinbrunavírusinn í október með það að markmiði að setja upp rafrænt eftirlitskerfi til að hafa eftirlit með beinbrunavírustilvikum. Malaría var annar sjúkdómur af völdum moskítófluga sem olli sérfræðingum ECDC áhyggjum: Í sameiginlegri sendinefnd ECDC-WHO til Grikklands í nóvember 2012 var lagt mat á eftirlit og ráðstafanir til að halda malaríu og Vesturnílarhita í skefjum. ECDC bjó einnig til vikulegt kort yfir staðbundna dreifingu á Vesturnílarhita í mönnum í Evrópusambandinu og nágrannaríkjunum (lok júní fram í miðjan nóvember). 1 2 Sóttvarnarstofnun Evrópu. Leiðbeiningar fyrir eftirlit með ágengum moskítóflugum í Evrópu. Stokkhólmi: ECDC; 2012. 7

Robert-Jan Smits, framkvæmdastjóri stjórnarsviðs rannsókna og dr. Marc Sprenger, framkvæmdastjóri ECDC, við upphaf viðburðarins fyrir evrópska vitundardaginn um sýklalyf 2012 í Brussel Nú fimmta árið í röð: Evrópskur vitundadagur um sýklalyf Nú fimmta árið í röð laðaði árlegi evrópski vitundardagurinn um sýklalyf að sér metfjölda 43 þátttökulanda. Evrópski vitundardagurinn um sýklalyf er evrópskt frumkvæði á sviði heilbrigðismála, sem ECDC skipuleggur, til þess að auka vitund um skynsamlega notkun sýklalyfja. Hann veitir Evrópulöndum stuðning með því að bjóða upp á verkfærakisur með helstu skilaboðum og sniðmáti fyrir samskipti sem aðlaga má og nota í innlendum herferðum, á viðburðum á vettvangi Evrópusambandsins og sem stefnumótunar- og fjölmiðlaefni. 5. evrópski vitundarvakningardagurinn um sýklalyf vakti mikinn áhuga fjölmiðla í Evrópu. Á tímabilinu 18. október til 28. desember 2012 vísuðu 446 greinar (á prenti eða á Netinu) til evrópska vitundarvakningardagsins um sýklalyf. Talið er að þessar greinar hafi náð til 60 milljón lesenda. Sjónvarpsauglýsing 43 ECDC í herferðinni um skynsamlega notkun sýklalyfja, sem sýnd var á Euronews, náði til að því talið er 9,4 milljóna Evrópubúa. 8

SURVEILLANCE REPORT 20Mikil gögn: 20 ára virði gagna um kynsjúkdóma Sexually transmitted infections in Europe 1990 2009 Mikið sjúkdómaálag: kynsjúkdómar www.ecdc.europa.eu ECDC birti ítarlega skýrslu um kynsjúkdóma þar sem farið var yfir gögn síðastliðin 20 ár. Skýrslan, undir heitinu Kynsjúkdómar í ESB/EES 1990-2010, sýnir verulega misleitni hvað umönnun kynsjúkdóma varðar og tilkynninga um tilvik en bendir einnig á líka þróun meðal áhættuhópa, til dæmis hjá karlmönnum, sem stunda kynlíf með karlmönnum, ungs fólks. Matið á forvarnaráætlun gegn kynsjúkdómum og eiðni meðal karlmanna, sem stunda kynlíf með karlmönnum, sýnir að litlar vísbendingar eru um áhrifaríkar íhlutanir til þess að draga úr álagi sjúkdómanna. Þetta undirstrikar einnig áskoranirnar þegar tekist er á við sýkingar á kynsjúkdómum/hiv meðal karlmanna sem stunda kynlíf með karlmönnum. Skýrsla evrópsku eftirlitsáætlunarinnar um sýklalyfjanotkun gegn lekanda (Euro-GASP) sýnir minnkandi næmi lekanda við fyrstu línu í meðferð. Viðbragðsáætlun var gerð til þess að styðja aðildarríkin við stjórnun, umsjón og meðferð á fjöllyfjaþolnum lekanda. 9

95 Tveir skammtar af bóluefni gegn mislingum Þetta er bara stunga... eða tvær hettusótt rauðum hundum veita nánast algjöra vernd gegn mislingum. Ef 95% fólk eru bólusett að fullu ætti það að koma í veg fyrir að veiran breiðist út. Evrópa er eftirbátur þegar kemur að því að útrýma mislingum og því vill ECDC breyta. Nýjungagjarn fundur frjálsra hugsuða í apríl færði saman sérfræðinga úr vísindum, samskiptamálum og lýðheilsu í því skyni að búa til nýja stefnumörkun til þess að hindra útbreiðslu sjúkdómsins. Mismunandi kostum velt fyrir sér á fundi frjálsra hugsuða um mislinga í apríl 2012 ECDC styrkti einnig heimildarþátt á vegum Euronews um mislinga, sem beindist að mögulegum 20 milljón áhorfendum. Á sviði sjúkdómaeftirlits, útvíkkaði evrópska mánaðarritið um eftirlit með mislingum (e. European Measles Monthly Monitoring bulletin) umfang sitt. Auk nýjustu upplýsinga úr eftirliti með mislingum fjallar það einnig um hettusótt. 10

Nýjum inflúensustofnum er miðlað í hnattrænum, samtengdum heimi40 Nýtt tímabil, annað bóluefni ECDC birti í heildina 40 tölublöð af inflúensuriti sínu, Vikulegt yfirlit yfir eftirlit með inflúensu (e. Weekly Influenza Surveillance Overview, WISO). Í hinum vestræna heimi er inflúensutímabilið að jafnaði frá október og fram í maí. Á, fyrir og eftir tímabilið gengur ECDC úr skugga um að starfsmenn við lýðheilsumál í Evrópu hafi allar tölur yfir flensuna: auk 40 WISO tölublaða, birti ECDC 20 tölublöð af Vikulegum greinum um inflúensu (e. Influenza Weekly Digest) svo og 10 stórar vísindalegar birtingar. Frekari upplýsingar má finna í árlegri skýrslu ECDC um eftirlit með inflúensu, undir heitinu Inflúensa í Evrópu. Árið 2012 gáfu aðildarríkin til kynna, með aðferðum ECDC, ófullnægjandi skilvirkni bóluefna gegn árstíðabundinni flensu. Mánaðarlegar einkennalýsingar á veirunni, sem gerðar eru sameiginlega með samstarfsneti bandalagsins fyrir viðmiðunarrannsóknarstofur fyrir inflúensu í mönnum (e. Community Network of Reference Laboratories for Human Influenza (CNRL), bjóða upp á nýjustu tiltækar upplýsingar um genasamsetningu veiranna á sveimi í Evrópu og í heiminum mikilvægar upplýsingar við gerð á áhrifaríku inflúensubóluefni. VAESCO verkefnið, sem ECDC fjármagnar að hluta, rannsakaði mögulegar tengingar á milli bóluefna gegn heimsfaröldrum og fjölda hugsanlegra aukaverkana eins og Guillain Barré heilkennisins. Engar slíkar tengingar komu í ljós. Hins vegar staðfesti ECDC innlendar uppgötvanir á tengingu á milli inflúensubóluefnisins Pandemrix og drómasýkingar með slekjukasti í börnum. 11

Berklar og borgin: unnið gegn berklum 2012 Á hverju ári er berkladagurinn haldinn 24. mars. ECDC lítur á daginn sem tækifæri til þess að beina sjónum sínum að einu mikilvægu berklamálefni. Árið 2012 valdi ECDC stjórn á berklum í borgum sem þema fyrir berklaheimsdaginn. Röð atburða var skipulögð og fjármögnuð: Viðburðir Berklavarnir í borgum voru haldnir í Barselóna, Mílan, Lundúnum og Rotterdam; twitterspjall var haldið í sameiningu af ECDC og héraðsskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fyrir Evrópu; fréttatilkynningu og fréttapakka var komið a framfæri; greinar um berklavarnir í borgum voru birtar í ritrýndum tímaritum; og sérfræðimyndband var búið til. Ítarleg eftirlitsskýrsla ECDC Berklaeftirlit og vöktun í Evrópu veitir í fyrsta skipti yfirlit yfir árangur berklavarna í ESB/EES. Að beiðni heilbrigðisráðuneyta, sendi ECDC og héraðsskrifstofa Alþjóðaheilbrigðismálaeftirlitsins í Evrópu teymi sérfræðinga til Ungverjalands og Lettlands til þess að fara yfir stöðu berklavarna í landinu og ásamt innlendum sérfræðingum kynna heilbrigðisyfirvöldum helstu ábendingar um aðgerðir til þess að bæta berklavarnir, eftirlit og umönnun. 24 Mycobacterium tuberculosis, eins og hún birtist við mikla stækkun 12

13 000 000 Miðlarar hjá ECDC Stóra myndin: ítarlegt sjúkdómaeftirlit 13 milljónir. Þetta er fjöldi einstakra skráa í TESSy gagnagrunni ECDC. TESSy evrópska eftirlitskerfið býður upp á beinan aðgang að gögnum um 49 smitsjúkdóma. Aðgangsheimildir voru útvíkkaðar til 1500 sérfræðinotenda frá 56 löndum. Viðhald á fullnægjandi gagnagæðastöðlum er ein helsta áskorunin þegar kemur að söfnun og greiningu á eftirlitsgögnum frá mörgum löndum og kerfum. Því hófust nokkur verkefni árið 2012 til þess að bæta gagnagæði á ýmsum stigum tilkynningar- og gagnagrunnsundirkerfanna. Hópur sérfræðinga á sviði eftirlitsmála bjó til leiðbeiningar fyrir eftirlit með gagnagæðum og til þess að leggja mat á innlend eftirlitskerfi. Sérfræðingar ECDC rannsökuðu líka hvernig innlend eftirlitskerfi miðla gögnum til TESSy til þess að reyna að útskýra hinn mikla mun sem er á tíðni tilkynninga á milli aðildarríkjanna. 13

240 ESCAIDE var árangurssaga frá upphafi Vísindaleg aðstoð: miðlun þekkingar Í hefðbundinni vinnuviku birtir ECDC að minnsta kosti fjögur vísindaskjöl. Árið 2012 voru þetta 240 vísindarit. Sum skjalanna eru tiltölulega stutt, svo sem hraðáhættumat ECDC eða inflúensuskýrslur en nærri 40% vísindarita okkar eru stórar vísindarannsóknir sem veita lesendum upplýsingar um allar hliðar lýðheilsumála. Evrópska vísindaráðstefnan 2012 um hagnýta farsóttarfræði smitsjúkdóma (ESCAIDE) var haldin í Stokkhólmi 24. 26. október og voru þátttakendur yfir 600. ESCAIDE er vettvangur fyrir vísindamenn á sviði lýðheilsumála, farsóttarfræðinga, örverufræðinga og aðra með faglegan áhuga á smitsjúkdómum og lýðheilsu. Ráðstefnan var einnig frábært tækifæri til þess að fræðast frekar um hvernig beita má farsóttarfræði, örverufræði og öðrum greinum við að draga úr áhrifum smitsjúkdóma. Eurosurveillance er vel metið vísindarit með 4,55 í fimm ára áhrifaþátt. 14

Bráðaaðgerðamiðstöð ECDC 57 Á varðbergi: greinir ógnir gegn heilbrigði 57 nýjar ógnir gegn heilbrigði voru auðkenndar og undir eftirliti árið 2012. Heildarfjöldi heilbrigðisógna undir eftirliti árið 2012 var 69 þar sem nokkrar ógnir gegn heilbrigði fluttust yfir frá fyrri árum: Ógnir til langs og meðallangs tíma eru meðal annars mislingar, malaría meðal innfæddra í Grikklandi, árstíðarbundin inflúensa, Schmallenbergveira, miltisbrandur meðal sprautufíkla, beinbrunasótt, inflúensa A(H5N1), mænuveiki og chikungunyahiti. Yfir þriðjungur (38%) ógnanna undireftirliti á árinu 2012 tengdust sjúkdómum sem berast með mat og drykk. Sjúkdómar, sem eiga uppruna sinn í umhverfinu og dýrum (19%), inflúensa (11%) og ágengir bakteríusjúkdómar, sem koma má í veg fyrir með bólusetningu, (9%) leiða listann. Færri ógnir gegn heilsu voru skráðar fyrir berkla (3%) og sýklalyfjaþol og sýkingar tengdar heilsugæslu (3%). Lifrarbólga, HIV, kynsjúkdómar og sýkingar, sem berast með blóði, voru 1%. ECDC hafði eftirlit með hættum af völdum smitsjúkdóma á þremur stærstu fjöldaviðburðum ársins 2012, þ.e. EURO 2012 knattspyrnumótinu í Póllandi og Úkraínu og Ólympíuleiknum og Ólympíuleikum fatlaðra í Lundúnum. Boðið var upp á aðstoð á staðnum á EURO 2012 heimsmeistaramótinu og Ólympíuleikunum. 15

Hinir snjöllu verða snjallari: kennsla og þjálfun Árið 2012 voru í heildina 219 ungir sérfræðingar annaðhvort skráðir í EPIET eða EUPHEM (Evrópuáætlun fyrir íhlutun farsóttarfræði/ lýðheilsuörverufræði) áætlanirnar eða tóku þátt í stuttum þjálfunarnámskeiðum á sviði farsóttarfræði. Yfir eitt hundrað stutt þjálfunarnámskeið, sem öll byggðu á hinum stöðluðu þjálfunareiningum EPIET/EUPHEM, voru haldin árið 2012. 16 1 219 Þátttakendur í inngangsnámskeiðinu EPIET komu saman fyrir hópmynd fyrir utan hið sögulega Lazaretto við Mahon höfnina á Menorca á Spáni. Í lok árs 2012 voru 105 EPEIT/EUPHEM einstaklingar í þjálfun: 27 frá árganginum 2010, 40 frá árganginum 2011 og 38 frá árganginum 2012.

Miðlun á vísindalegum staðreyndum með skilvirkum hætti: samskipti Getueining lýðheilsumála er staðurinn hjá ECDC þar sem allt samskiptastarf kemur saman. átta ritrýnd hraðboðskipti um nýju corona veiruna á þremur mánuðum. Árið 2012 stóð ECDC fyrir 240 vísindalegum útgáfum. Allt útgefið efni fer í gegnum ákveðinn ritstjórnarferil sem tryggir að upplýsingar, sem birtar eru af ECDC, sé vísindalega rétt og skiljanlegt fyrir helstu notendur. ECDC er með mikla viðveru á Netinu, en stofnunin tekur þátt á Twitter, Facebook og YouTube. Vefgátt ECDC þjónar sem aðgangur að fyrirtækjasíðu ECDC, ráðstefnusíðu og sérstökum ytranetum. Árið 2012 komu um 780 000 gestir á síðuna þökk sé úrbótum á hönnun, virkni og innihaldi vefsíðunnar. Sterk tengsl við fjölmiðla reyndust mjög mikilvæg á árinu en yfir 3000 greinar fjölluðu um ECDC í fjölmiðlum og náðu þeir til um 270 milljón einstaklinga. Almennar fyrirspurnir um fjölbreytt málefni er varða heilbrigði eru meðhöndlaðar með kerfisbundnum hætti í gegnum upplýsingatölvupóstfangið (info@ecdc.europa.eu) og var mörghundruð fyrirspurnum svarað árið 2012. Árið 2012 barst vísindaritinu Eurosurveillance fyrsti áhrifsþátturinn. Frábær árangur 6,15 fyrir árið 2011 kom Eurosurveillance í 6. sæti hinna 70 rita í flokknum fyrir smitsjúkdóma. Tímaritið birti 186 ritrýndar greinar og 14 ritstjórnargreinar. Höfnunartíðnin var 76% fyrir almennar greinar. Árið 2012 þegar ljóst varð að sjúklingar frá Sádí-Arabíu og Katar höfðu sýkst af nýrri coronaveiru, var Eurosurveillance eitt af fyrstu vísindatímaritunum til þess að bjóða upp á viðurkenndar upplýsingar. Í heildina birti tímaritið Eurosurveillance er velmetna vísindarit ECDC 17

Starfsnemar (5) Bráðabirgðastarfsmenn (22) SNEs (4) Ráðgjafar (51) Samningsbundnir starfsmenn (91) Tímabundnir starfsmenn (187) Ólögákveðnir (82) Lögákveðnir - samningsbundnir starfsmenn og tímabundnir starfsmenn (278) Hver erum við: mannauðsdeild Í lok árs 2012 hafði ECDC 278 starfsmenn í fullu starfi. Ásamt tímabundnum starfskröftum, starfsnemum og útsendum sérfræðingum jókst heildarfjöldi starfsfólks hjá ECDC í 309. Hjá stofnuninni vinna 60% konur og 40% karlmenn (samningsbundnir starfsmenn og tímabundnir starfsmenn). Samningsbundnir starfsmenn Tímabundnir starfsmenn AST AD5-AD7 AD8-AD15 75%:25% 53%:47% 69%:31% 51%:49% 40%:60% 18

Hlutfall og landfræðilegt jafnvægi á lögbundnu starfsfólki ECDC (samningsbundnir starfsmenn og tímabundnir starfsmenn) eftir upprunalandi, 31. desember 2012. FI AT BE BG CY CZ DK EE FI FR DE EL HU IE Austurríki Belgía Búlgaría Kýpur Tékkland Danmörk Eistland Finnland Frakkland Þýskaland Grikkland Ungverjaland Írland IT LV LT MT NL PL PT RO SK SI ES SE UK Ítalia Lettland Litháen Malta Holland Pólland Portúgal Rúmenía Slóvakía Slóvenía Spánn Svíþjóð Bretland PT IE ES UK NL BE FR IT SE DK DE CZ AT SI MT PL SK HU EE LV LT RO BG EL Hlutfall (%) 20 CY 10 5 2.5 Ráðningartölur 44 Heildarfjöldi starfa sem ráðið var í 32 Heildarfjöldi valferla 12 Fjöldi starfa sem starfsmenn innahúss voru ráðnir í 278 Heildarfjöldi lögboðins starfsfólks 61 Fjöldi núverandi starfsmanna sem áður hafa fengið stöðuhækkun 7,78% Laus störf að meðaltali 7,19% Starfsmannavelta 19

TQ-04-13-046-IS-N Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) Póstfang: ECDC, 171 83 Stokkhólmi, Svíþjóð Heimilisfang: Tomtebodavägen 11a, Solna, Svíþjóð Sími +46 (0)8 58 60 10 00 Símbréf +46 (0)8 58 60 10 01 www.ecdc.europa.eu Stofnun Evrópusambandsins www.europa.eu