Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

Ég vil læra íslensku

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Könnunarverkefnið PÓSTUR

Að störfum í Alþjóðabankanum

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Aðventutónleikar. Nicholas Kraemer, hljómsveitarstjóri Katherine Watson, einsöngvari James Gilchrist, einsöngvari 2010/11

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Chaplin - Modern Times. 8. & 9. maí 2015

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Forseti Íslands á. 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Hugvísindasvið. Lesið í landið. Fyrirbærafræði, fornleifaskráning og menningarlandslag. Ritgerð til B.A.-prófs. Ásta Hermannsdóttir

Enginn maður hér á landi, annar en ég, hefur rétt til að lesa Der Tod in Venedig

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd verka: Forleikur: 10 Fimm söngvar: 22 Sinfónía: 28

Dystópíur uppgangskynslóðarinnar

Saga fyrstu geimferða

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

Áhrif upplýsingarinnar sem koma fram í völdum ritum um veraldleg efni eftir aðra Íslendinga en Magnús Stephensen frá tímabilinu

Summer Concerts 2007

Fjallkrækill Fyrsta fórnarlamb hlýnandi loftslags á Íslandi?

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Um 220 manna vinnustaður í Mjóddina

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Elítur á Íslandi einsleitni og innbyrðis tengsl

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

20 ÁRA AFMÆLISRIT FLATAR 2013 / 1 FLATARMÁL

KENNSLULEIÐBEININGAR

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

Tónlistin í þögninni

Íslenzkar Gramóphón-plötur

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

Hlið við hlið. Ástráður Eysteinsson. Tapað-fundið í framandi borgum. Borg ohoj!

Leitin að hinu sanna leikhúsi

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Mánudagur 21. desember tbl. 15. árg. Stofnað 14. nóvember 1984 Sími Fax Netfang: Verð kr.

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Transcription:

VELKOMIN Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á Rás 1 og eru aðgengilegir í Sarpinum á ruv.is. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka. Áætluð tímalengd verka: Töfraflautan, forleikur: 7 Píanókonsert: 40 Sinfónía: 30 Hlé er u.þ.b. 20 mínútur Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð. Upptökur með Sinfóníuhljómsveit Íslands má finna á YouTube- og Spotify-rásum hljómsveitarinnar. Á Spotify má einnig finna lagalista með allri tónlist starfsársins. @icelandsymphony / #sinfó Aðalstyrktaraðili :

FIM01 FEB 19:30 TÓNLEIKAR Í ELDBORG PÍANÓKONSERTAR BEETHOVENS III Matthew Halls hljómsveitarstjóri Paul Lewis einleikari EFNISSKRÁ Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan, forleikur (1791) Ludwig van Beethoven Píanókonsert nr. 5 í Es-dúr, op. 73 (1809) Allegro Adagio un poco mosso Rondo: Allegro Hlé Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 41 í C-dúr K. 551 (1788) Allegro vivace Andante cantabile Menuetto (Allegretto) Molto allegro For information in English about tonight s programme, please visit the Iceland Symphony Orchestra website: en/sinfonia.is 3

MATTHEW HALLS HLJÓMSVEITARSTJÓRI Breski stjórnandinn og semballeikarinn Matthew Halls er vinsæll gestur hljómsveita og óperuhúsa og nýtur virðingar sem kraftmikill og líflegur túlkandi tónlistar frá öllum skeiðum tónlistarsögunnar. Hann starfaði sem listrænn stjórnandi Bach-hátíðarinnar í Oregon frá 2013 2017 og hefur þar stjórnað m.a. Messu í h-moll eftir Bach, Sinfóníu nr. 2 eftir Mahler og heimsfrumflutningi á A European Requiem eftir Sir James Macmillan. Hann hefur nýverið komið fram í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar, og síðar á þessu starfsári mun hann stjórna Sinfóníuhljómsveitinni í Varsjá og Mozarteum-hljómsveitinni í Salzburg í Sköpuninni eftir Haydn. Norðuramerískar hljómsveitir sækjast í auknum mæli eftir kröftum hans og hefur hann m.a. stjórnað sinfóníuhljómsveitunum í Dallas, Houston, Seattle og Toronto, sem og hljómsveitunum í Cleveland og Fíladelfíu. Halls hefur einnig stjórnað hljómsveitinni Concentus Musicus í Vín, Konzerthaus-hljómsveitinni í Berlín, Konunglegu skosku þjóðarhljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveitinni í Melbourne svo dæmi séu tekin. Hljóðritanir hans hafa unnið til fjölmargra verðlauna, m.a. diskar með óperunni Parnasso in Festa eftir Händel ásamt The King s Consort fyrir Hyperion-plötuforlagið, og fjórir sembalkonsertar Bachs sem Halls lék og stjórnaði frá hljóðfærinu (Linn Records). Matthew Halls sótti framhaldsmenntun sína í Háskólann í Oxford og gegnir nú fastri stöðu sem kennari við stofnunina. Þá starfar hann reglulega með ungum tónlistarmönnum á námskeiðum og í sumarskólum. Matthew Halls stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn árið 2009 þegar hann stýrði Mozart-tónleikum með Martin Fröst í Háskólabíói. Þetta er í áttunda sinn sem hann stjórnar hljómsveitinni, en meðal verka sem hann hefur flutt hér á landi má nefna Messías Händels, píanókonserta og sinfóníur eftir Beethoven og Mozart, og Sinfóníu í þremur þáttum eftir Stravinskíj. 4

PAUL LEWIS EINLEIKARI @paullewispiano UM EINLEIKARANN Með tónleikunum í kvöld lýkur Beethoven-hring Lewis og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem hófst í mars 2017 með píanókonsertum nr. 2 og 3. Á sunnudaginn mun Lewis halda einleikstónleika í Norðurljósum þar sem hann flytur verk eftir Beethoven, Haydn og Brahms. Paul Lewis nýtur virðingar sem einn fremsti tónlistarmaður sinnar kynslóðar. Hljóðritanir hans á verkum Beethovens og Schuberts hafa hvarvetna hlotið einróma lof og staðfest stöðu hans sem yfirburðatúlkanda þegar tónlist klassíska skeiðsins á í hlut. Hann hefur verið útnefndur hljóðfæraleikari ársins af Royal Philharmonic Society og meðal annarra viðurkenninga sem honum hafa hlotnast eru tvenn Edison-verðlaun, þrenn Gramophone-verðlaun og bæði þýsku og frönsku (Diapason d Or de l Année) gagnrýnendaverðlaunin. Þá hefur Lewis verið heiðraður af nokkrum háskólum og opinberum stofnunum, auk þess sem hann hlaut heiðursorðu Elísabetar II Bretadrottningar (Commander of the Most Excellent Order of the British Empire). Paul Lewis er reglulegur gestur fremstu hljómsveita heims, og hefur meðal annars komið fram með Sinfóníuhljómsveitunum í Boston og Chicago, Lundúnasinfóníunni, Fílharmóníuhljómsveitunum í London, New York og Los Angeles, Bæversku útvarpshljómsveitinni, NHK-hljómsveitinni í Tókýó, Konunglegu Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam, Cleveland-hljómsveitinni, Tonhalle-hljómsveitinni í Zürich, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Mahler-kammersveitinni og hljómsveitinni Philharmonia í Lundúnum. Á þessu starfsári leikur Lewis m.a. píanókonserta Beethovens með Sinfóníuhljómsveitunum í Boston, San Francisco og Montreal, auk þess sem hann kemur fram í Elbphilharmonie í Hamborg og heldur einleikstónleika víða um heim með verkum eftir Beethoven, Haydn og Brahms. Paul Lewis er vinsæll gestur helstu tónlistarhátíða heims, þar á meðal BBC Proms þar sem hann varð fyrstur manna til að leika alla píanókonserta Beethovens á einni og sömu hátíðinni árið 2010. Paul Lewis lærði hjá Joan Havill í Guildhall School of Music and Drama í London og sótti síðar einkatíma hjá Alfred Brendel. Hann er listrænn stjórnandi Midsummer Music sem er árleg kammertónlistarhátíð í Buckingham-skíri á Englandi. Þá er hann stjórnandi alþjóðlegu píanókeppninnar í Leeds. 5

WOLFGANG AMADEUS MOZART TÖFRAFLAUTAN, FORLEIKUR Die Zauberflöte (Töfraflautan) var síðasta óperan sem Wolfgang Amadeus Mozart (1756 1791) lauk við, aðeins fáeinum mánuðum fyrir andlát sitt. Verkið var fyrsta ópera Mozarts við þýskan texta frá því að hann samdi Brottnámið úr kvennabúrinu níu árum fyrr; annars voru allar óperur hans samdar við ítalska texta. Þessar tvær óperur á þýsku eru þó ólíkar um margt. Brottnámið varð til samkvæmt pöntun fyrir hirðóperuhús keisarans en Töfraflautan er alþýðuópera, samin með það fyrir augum að skemmta almenningi af öllum stéttum. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Töfraflauta Mozarts var fyrst sett á svið hér á landi í Þjóðleikhúsinu árið 1956, þegar 200 ár voru liðin frá fæðingu tónskáldsins. Íslenska óperan hefur sýnt verkið fjórum sinnum (1982, 1991, 2001 og 2011). Forleikurinn að óperunni hljómaði þó löngu fyrr, því hann var leikinn á tónleikum Hljómsveitar Reykjavíkur í Nýja bíói í desember 1925 og aftur á tónleikum í Fríkirkjunni 1927, þá undir stjórn Páls Ísólfssonar. Í úthverfum Vínarborgar voru starfrækt nokkur gamanleikhús og eitt þeirra var Theater auf der Wieden. Þar sat við stjórnvölinn Emanuel Schikaneder, leikari og söngvari sem hafði um árabil ferðast um álfuna með leikflokk sinn. Þeim Mozart hafði orðið vel til vina þegar Schikaneder lék í Salzburg áratug fyrr, og samstarf þeirra í Vínarborg bar fljótt ávöxt. Mozart samdi til dæmis dúett fyrir óperuna Der Stein der Weisen (Viskusteinninn, 1790) og píanótilbrigði við aríu sem Schikaneder hafði gert vinsæla. Einnig voru góðir kunnleikar með Mozart og öðrum flytjendum við húsið. Nægir þar að nefna að ein aðalsöngkonan við leikhús Schikaneders sú sem fyrst söng Næturdrottninguna var Josepha Hofer, mágkona Mozarts. Því hlaut að koma að því að þeir félagar reyndu fyrir sér með heila óperu. Mozart samdi megnið af Töfraflautunni snemmsumars 1791 og eflaust hefur hann einnig haft hönd í bagga með að smíða ævintýralegan söguþráðinn. Engin önnur ópera Mozarts eða samtímamanna hans ef út í það er farið hefur að geyma jafn breitt litróf stíls og strauma. Persónurnar eru af ýmsum toga og tónlistin eftir því. Mozart semur ólgandi skrautaríur fyrir Næturdrottninguna, háleita sálma fyrir Sarastró, léttúðug alþýðulög fyrir Papagenó og blíða ástarsöngva fyrir Pamínu og Tamínó. Það er ekki aðeins persónusköpun óperunnar sem er víðfeðm, heldur fléttar Mozart saman í tónlist sinni nýjan og gamlan stíl af mikilli snilld. Áhrifa Bachs gætir meðal annars í forleiknum þar sem renna saman í eitt glaðværð Papagenós og ströng fúgulist sem tengja má við lærdóm og speki Sarastrós. 6

LUDWIG VAN BEETHOVEN PÍANÓKONSERT NR. 5 kkert nema trommusláttur, fallbyssudrunur og mann- eymd hvert sem litið er! Þannig lýsti Ludwig van Eleg Beethoven (1770 1827) ástandinu í Vínarborg vorið 1809 þegar herir Napóleons Bonaparte héldu uppi stöð ugum árásum á borgina. Það vildi svo óheppilega til að íbúð Beethovens stóð einmitt þar sem bardagarnir voru mestir. Hann dvaldi að minnsta kosti eina nótt í kjallara bróður síns í Rauhen steingasse, þar sem hann hélt um eyrun með koddum til að hlífa því sem eftir var af heyrninni. Meðal þeirra meðlima keisarafjölskyldunnar sem flýðu borgina var Rúdolf erkihertogi, sem var yngri bróðir keisarans og eini tónsmíðanemi Beethovens. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Alls hafa 18 píanóleikarar spreytt sig á Keisarakonsertinum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, m.a. nokkrir af helstu píanistum 20. aldarinnar. Árni Kristjánsson reið á vaðið í Þjóðleikhúsinu 1955 undir stjórn Olavs Kielland, en meðal annarra einleikara má nefna Vladimir Ashkenazy (1965 og 1970), Stephen Bishop- Kovacevich (1969 og 1978), Emil Gilels (1976), Pascal Rogé (1983), Freddy Kempf (2004), John Lill (2007) og Víking Heiðar Ólafsson (2012). Það var einmitt um þetta leyti á árunum 1809 1811 sem Beethoven samdi síðasta píanókonsert sinn. Fram til þessa hafði hann frumflutt alla píanókonserta sína sjálfur enda einn færasti píanisti álfunnar á sinni tíð. Nú var þó svo komið að Beethoven gat ekki frumflutt verkið sjálfur vegna heyrnarskorts, en hann beið eigi að síður í þrjú ár með að fela verkið öðrum, í þeirri veiku von að heyrnin kynni að batna. Að lokum var það nemandi Beethovens, Carl Czerny, sem frumflutti verkið í Vínarborg 1812 við fremur dræmar undirtekir. Það náði þó fljótt vinsældum og nokkru síðar hafði enska tónskáldið J.B. Cramer þau orð um verkið að það væri keisari konsertanna. Nafnið er enn notað, enda vart hægt að hugsa sér tignarlegri tónlist en þá sem Beethoven kreisti fram úr hljóðfæri sínu á tímum eymdar og stríðshörmunga. Fjórði píanókonsert Beethovens er innilegur og hefur oft á sér blæ kammertónlistar, en Keisarakonsertinn er allt annars konar verk, stórt í sniðum og einleikarinn fær hvert tækifærið á eftir öðru til að sýna listir sínar, allt frá upphafstöktunum. Yfirleitt kynnir hljómsveitin aðalstef fyrsta þáttarins áður en einleikarinn lætur til sín taka, en hér er eins og píanistinn geti ekki beðið, heldur steypir hann sér beint út í hafsjó af brotnum hljómum og tónstigum. Því næst kynnir hljómsveitin til sögunnar lagrænt meginstef kaflans, sem er uppsprettan að flestum þeim stefjabrotum sem Beethoven vinnur úr síðar. Fyrsti kafli konsertsins er geysilangur, lengri en hinir tveir til samans. Undir lok hans gerir Beethoven nokkuð sem hann hafði ekki gert í fyrri píanókonsertum sínum. Þegar hljómsveitin staðnæmist á tilteknum hljómi er það eins konar vísbending til einleikarans um að hann eigi að leika kadensu, sem fram til þessa var yfirleitt leikin af fingrum fram og gaf sólistanum færi á að sýna 7

bæði tækni sína og uppfinningasemi. En hér festi Beethoven eina tiltekna kadensu á blað og upp frá þessu tóku önnur tónskáld einnig að skrifa út kadensurnar í stað þess að treysta einleikurum fyrir þeim. Hægi kaflinn hefst á innilegu og hjartnæmu stefi í strengjum. Yfir laglínubrot hljómsveitarinnar spinnur einleikarinn fíngert skraut sem deyr út að lokum. Skyndilega sekkur tóntegundin um hálftón og píanistinn leikur nýtt stef, hikandi í fyrstu. Það reynist vera upphafsstefið að hinum fjöruga rondókafla. Rondóstefið snýr sífellt aftur á milli annarra millistefja, í ólíkum tóntegundum, og í hvert sinn er það upphafið að mikilli flugeldasýningu einleikarans. 8

WOLFGANG AMADEUS MOZART SINFÓNÍA NR. 41, JÚPÍTER Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvað varð til þess að Wolfang Amadeus Mozart samdi þrjár mestu sinfóníur sínar á innan við átta vikum sumarið 1788. Þetta voru erfiðir tímar í lífi tónskáldsins, tækifærin sem virtust á hverju strái nokkrum árum fyrr höfðu öll gufað upp og Mozart var kominn í töluverðar fjárhagskröggur. Um þetta leyti ríkti efnahagskreppa sem snerti alla íbúa austurríska keisaradæmisins. Jósef II keisari háði stríð við Tyrki í nafni Katrínar, keisaraynju Rússa, og tæmdi svo að segja ríkiskassann í því brölti öllu. Ekki fór þó betur en svo að herinn sneri heim árið 1790 eftir þriggja ára dýrkeypta niðurlægingu. Kreppan í Vínarborg hafði afleit áhrif á listalíf borgarinnar: aðalsfólk dvaldi heldur í Ungverjalandi, einkahljómsveitir lögðust af og tónleikum fækkaði. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Júpíter-sinfónía Mozarts heyrðist fyrst hér á landi í Iðnó sumarið 1926 þegar Fílharmóníuhljómsveit Hamborgar sótti Ísland heim undir stjórn Jóns Leifs. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék hana í Þjóðleikhúsinu árið 1954 undir stjórn Róberts A. Ottóssonar og aftur fimm árum síðar undir stjórn Hans Zanotelli. Síðan hefur hún hljómað alloft á tónleikum, en síðast lék hljómsveitin verkið í Hörpu árið 2012 undir stjórn Eivinds Aadland. Mozart varð fyrir barðinu á kreppunni; til dæmis var engin ópera pöntuð frá honum á stríðsárunum og áform um tónleikahald í Vínarborg urðu öll að engu. Í júlí 1788 mánuði áður en hann lauk við sinfóníu sína nr. 41 ritaði hann vini sínum og frímúrarabróður Michael Puchberg örvæntingarfull bréf þar sem hann biður um lán þar til eftirspurn eftir tónlist sinni taki að glæðast á nýjan leik. Líklegt þykir að Mozart hafi ætlað að láta flytja þrjár síðustu sinfóníur sínar (nr. 39 41) á tónleikaröð sem hann sjálfur stæði fyrir, en engar heimildir hafa varðveist um slíka tónleika og kannski hefur hann ekki treyst sér í slíkt fyrirtæki þegar til kom. Ekkert er vitað um það hvenær sinfónían nr. 41 var frumflutt, eða hvort hún var yfirleitt leikin meðan Mozart lifði. Sinfónían nr. 41 er síðasta sinfónía Mozarts og hefur lengi verið talin standa framar öðrum sinfóníum klassíska tímans. Strax um 1820 voru Englendingar farnir að gefa henni viðurnefnið Júpíter, sem vísar til yfirburða hennar: hin æðsta af öllum sinfóníum meistarans. Í henni gengur Mozart í flestum skilningi lengra en ætlast var til í sinfónísku formi árið 1788. Fyrsti þáttur er glæsilegur, með trompetum og pákum, en þótt tónlistin sé öryggið uppmálað er einnig slegið á blíðari strengi. Annar kaflinn, fagurlega syngjandi Andante cantabile, hefst á þokkafullu stefi sem víkur fljótt fyrir öðru, öllu órólegra, í moll. Að hæga kaflanum loknum tekur við menúett sem á það til að hljóma nokkuð dapurlega, til dæmis í smástígum strófum tréblásaranna, þótt yfirborðið sé annars glaðlegt. 9

En það er lokaþáttur Júpíter-sinfóníunnar sem hefur tryggt henni sess sem eitt mesta meistaraverk Mozarts og er þá mikið sagt. Um það leyti sem Mozart samdi sinfóníuna hafði hann kynnt sér tónlist Bachs af mikilli kostgæfni, ekki síst fyrir tilstuðlan vinar síns Gottfrieds van Swieten, sem var yfirmaður menntamála í Vínarborg. Swieten var mikill áhugamaður um barokktónlist og hjá honum átti Mozart þess kost að grandskoða nótur að verkum Bachs og Händels, sem lágu ekki á lausu á þessum tíma. Afraksturinn hljómar í lokaþætti Júpítersinfóníunnar. Kaflinn er ekkert minna en tour de force hvað varðar kontrapunkt: listina að geta látið ólík stef hljóma saman þannig að þau myndi fullkominn samhljóm. Öll helstu stef þáttarins fimm að tölu eru þeim eiginleikum gædd að þau geta hljómað bæði hvert fyrir sig sem og samtímis í niðurlagi verksins, í fimm radda kontrapunkti. Snilld af þeirri gerð sem Mozart sýnir í Júpíter-sinfóníunni er fágæt. Verkið markar þáttaskil í sögu hins sinfóníska forms: eftir ríflega hálfrar aldar þróun hafði sinfónían þróast úr skemmtimúsík í alvarlega og metnaðarfulla tónsmíð, og á þeim forsendum tók Ludwig van Beethoven upp þráðinn árið 1800. Allt hans sinfóníska framlag, sem og þeirra sem á eftir komu, byggði á þeim grunni sem Mozart lagði með síðustu sinfóníum sínum. Árni Heimir Ingólfsson 10

Á DÖFINNI SUN FIM 04 PAUL LEWIS EINLEIKSTÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM Paul Lewis er einn fremsti píanisti samtímans og það er sannkallað fagnaðarefni að hann haldi einleikstónleika í Norðurljósum í heimsókn sinni til Íslands. Á tónleikunum leikur hann verk eftir þrjá meistara tónlistarinnar í Vínarborg á 18. og 19. öld Haydn, Beethoven og Brahms og eru þeir liður í viðamiklu tónleikahaldi hans um allan heim á næsta ári þar sem hann leikur verk þessara þriggja meistara m.a. í Lundúnum, Brussel, Flórens, Tókýó, Melbourne og Vancouver. Um efnisskrána segir Lewis sjálfur: Píanósónötur Haydns hafa að geyma margt af því frumlegasta og skemmtilegasta í gjörvöllum píanóbókmenntunum. Það eru ekki mörg tónskáld sem geta fengið áheyrendur til að skella upp úr en Haydn er eitt þeirra, kemur sífellt á óvart í tónlist sinni. Brahms blandar í verkum sínum saman villtri ástríðu og fullkominni fagmennsku tónsmíðameistarans; honum tekst í tónlistinni að gefa jafnvel hamslausri tilfinningu yfirvegaðan blæ. Bagatellur Beethovens eru brú milli þessara tveggja heima; í sumum þeirra má greina kímnigáfu Haydns en í öðrum heyrist fyrirboði þeirrar rómantíkur sem einkennir Brahms. 15 FEB FEB 17:00 19:30 OSMO STJÓRNAR SHOSTAKOVITSJ T ónskáldin Shostakovitsj og Prokofíev urðu að þola margs konar mótlæti í Sovétríkjum Stalíns og er tónlist þeirra einmitt dæmi um það hvernig mikilfengleg list getur orðið til í mótbyr. Á þessum tónleikum hljóma tvö meistaraverk þeirra, bæði samin á fjórða áratug 20. aldar: Sjötta sinfónía Shostakovitsj og svíta Prokofíevs um Kijé liðsforingja. Áskell Másson samdi nýverið nýjan klarínettkonsert, Silfurfljót, fyrir Einar Jóhannesson sem frumfluttur verður á tónleikum. Stjórnandi tónleikanna er Osmo Vänskä, heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar. 11

Á DÖFINNI SUN18 19:30 MAR GESTAHLJÓMSVEIT GAUTABORGARSINFÓNÍAN Á ÍSLANDI Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í Gautaborg í apríl síðastliðnum við dágóðar undirtektir. Nú er komið að Gautaborgarsinfóníunni að endurgjalda greiðann og leika fyrir Íslendinga. Einleikari er hin franska Hélène Grimaud sem hefur um áratuga skeið verið í hópi fremstu píanista heims. Hún hefur hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og hlotið öll helstu verðlaun klassíska tónlistarheimsins. Á tónleikunum leikur Grimaud hinn undurfagra píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven en einnig hljóma tvö meistarverk frá því um aldamótin 1900, valsaskotin svíta úr óperunni Der Rosenkavalier eftir Strauss og glæsileg frumraun Sibeliusar í sinfóníusmíðum. Mat Hennek Hljómsveitarstjóri er hinn finnski Santtu-Matias Rouvali, einn eftirsóttasti ungi stjórnandi heims um þessar mundir. Hann hefur tvívegis stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands með frábærum árangri og tekur við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitarinnar í Gautaborg haustið 2017. Áskrifendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands geta tryggt sér miða á tónleikana sem viðbót við áskriftarraðir sínar á hefðbundnu áskriftarverði. 12

13

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 1. FEBRÚAR 2018 1. FIÐLA Sigrún Eðvaldsdóttir Vera Panitch Zbigniew Dubik Andrzej Kleina Lin Wei Pascal La Rosa Helga Þóra Björgvinsdóttir Margrét Kristjánsdóttir Rósa Hrund Guðmundsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir 2. FIÐLA Joaquín Páll Palomares Margrét Þorsteinsdóttir Ingrid Karlsdóttir Ísak Ríkharðsson Roland Hartwell Þórdís Stross Ólöf Þorvarðsdóttir Kristján Matthíasson VÍÓLA Þórunn Ósk Marinósdóttir Þórarinn Már Baldursson Guðrún Hrund Harðardóttir Sarah Buckley Móeiður Anna Sigurðardóttir Margrét Hjaltested SELLÓ Hrafnkell Orri Egilsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Margrét Árnadóttir Ólöf Sesselja Óskarsdóttir Júlía Mogensen BASSI Hávarður Tryggvason Richard Korn Þórir Jóhannsson Jacek Karwan FLAUTA Áshildur Haraldsdóttir Melkorka Ólafsdóttir ÓBÓ Daniel Bogorad Peter Tompkins KLARÍNETT Arngunnur Árnadóttir Baldvin Tryggvason FAGOTT Michael Kaulartz Bryndís Þórsdóttir HORN Stefán Jón Bernharðsson Frank Hammarin TROMPET Eiríkur Örn Pálsson Baldvin Oddsson BÁSÚNA Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff, bassabásúna PÁKUR Frank Aarnink Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri Vladimir Ashkenazy aðalheiðursstjórnandi Osmo Vänskä heiðursstjórnandi Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri Árni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Margrét Sigurðsson fjármálafulltrúi Grímur Grímsson sviðsstjóri Anna Sigurbjörnsdóttir tónleikastjóri Hjördís Ástráðsdóttir fræðslustjóri Kristbjörg Clausen nótna- og skjalavörður Sigþór J. Guðmundsson sviðsstjóri Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Jökull Torfason markaðsfulltrúi Una Eyþórsdóttir mannauðsstjóri Gísli Magnússon umsjónarmaður nótna 14

Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands Sigrún Eðvaldsdóttir, 1. konsertmeistari, og systir hennar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, eru hluti af fiðlusveitinni. Sigrún: Auðvitað þykir okkur rosalega vænt um fiðluna en þetta er líka stundum svolítið erfitt samband. Hljóðfærið er oft harður húsbóndi. Sigurlaug: Einmitt, en samt er gott samband við góða fiðlu eins og gott ástarsamband, það svarar allt svo vel. Við vitum öll hvað það merkir að stilla saman strengi, en í starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er orð takið notað í bókstaflegri merkingu og í raun er fátt nauðsynlegra. Fagmennska er leiðar stef í öllu starfi hljómsveitarinnar. Sigrún Eðvaldsdóttir er ástríðu fullur tónlistarmaður sem gefur allt í flutninginn á milli þess sem hún leikur angurvært á fiðluna. Sigrún hefur leikið víða um lönd og náð góðum árangri í alþjóð legum fiðlukeppnum. Eldri systir Sigrúnar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, hefur kennt þeirri yngri allt sem hún kann. Framhaldsnám í fiðlu leik stunduðu þær báðar fyrir vestan haf, Sigurlaug í New York við Manhattan School of Music en Sigrún við hinn sögufræga Curtis tónlistar háskóla í Philadelphiu. Fiðlan ber oftar en ekki uppi laglínur tónbókmenntanna, getur fengið hárin til að rísa og á hug þeirra systra allan. gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. 15 www.gamma.is

Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa kvikmyndina Amadeus sem sýnd verður í Eldborg og stórfenglega tónlist Mozarts í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mótettukórs Hallgrímskirkju. Ekki missa af þessum stórbrotna viðburði! MIÐASALA HAFIN Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 16