Ferðasaga. Skólaheimsókn til Berlinar 29/5 2/ Skólaheimsókn til Berlinar 29. maí 2. júní 2017

Similar documents
Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Rýni 2018 Singapúr - Bali. 22. september 07. október 2018 Dagskrá

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Ég vil læra íslensku

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Námsheimsókn til Delft í Hollandi. Study visit mars 2013

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Skóli Ísaks Jónssonar INNRAMAT Í SKÓLANUM. Skýrsla fyrir skólaárið

Leiðbeinandi á vinnustað

LEIÐARVÍSIR UM ÞÁTTTÖKUNÁM (Service Learning)

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

10. tbl nr Eymundur Runólfsson forstöðumaður áætlanaog umhverfisdeildar. Viktor Arnar Ingólfsson skrifar: Starfsmaður í nærmynd

Örnámskeið Ský Hagnýting Opins Hugbúnaðar. Ólafur Garðarsson ÍKON ehf 19. febrúar. 2009

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Lónsöræfi. Leyndarmál í ríki Vatnajökuls. Verkefni 10. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

HUGPRÓ Betw Be ar tw e ar QA & Agile

2. Stefnur og hugmyndafræði sem hafa haft áhrif á listkennslu

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012

Saga fyrstu geimferða

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Tengsl íþróttaiðkunar og námsárangurs

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Skóli án aðgreiningar

MALAYSIA AIRLINES - MH 1 Monday, 17 th of MAY: LONDON - KUALA LUMPUR (lent í Kuala Lumpur kl 17:30 þriðjudaginn 18. maí að staðartíma)

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Skóli án aðgreiningar og einstaklingsmiðað nám

Greinabundin kennsla greinabundið nám í Hvassaleitisskóla

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

20 ÁRA AFMÆLISRIT FLATAR 2013 / 1 FLATARMÁL

Sundráð ÍRB Fréttabréf Ágúst 2011

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Fjallkrækill Fyrsta fórnarlamb hlýnandi loftslags á Íslandi?

Könnunarverkefnið PÓSTUR

- Samvinna um tónlistarnám - Kennaralaun í alþjóðlegu samhengi - Something old, something new... Félagsfærni lærist ekki af sjálfu sér

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur IV. Illviðrabálkar

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar Frambjóðendur. Multicultural Council of Reykjavik Candidates

Milli steins og sleggju

Laun á almennum vinnumarkaði 2005 Earnings in the private sector 2005

Sameining tveggja háskóla í Svíþjóð

Framhaldsskólapúlsinn

Kennarasamband Íslands, 15. desember 2016

Ársskýrsla 2013 HRAFNSEYRI

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

BSc. ritgerð. Peningaeyðsla, netverslun og netnotkun unglinga

félagsins að á námstefnunni fáist svör við einhverjum þessara spurninga.

Rannsókn á Byrjendalæsi: Markmið, snið, gögn og úrvinnsla

KENNSLULEIÐBEININGAR

Eftirspennt Brúargólf Klóríðinnihald í nokkrum steyptum brúargólfum

Um 220 manna vinnustaður í Mjóddina

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Nám í skapandi greinum á framhaldsskólastigi Fýsileikagreining á listmenntaskóla. Rannsóknarmiðstöð Skapandi greina Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

ALLTAF Í VEÐMÁLUM. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur V. Hitabylgjur og hlýir dagar

Samantekt á atriðum sem framleiðendur snyrtivara þurfa að uppfylla

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2013 Municipal social services 2013

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

Efnahagshrunið og skólastarf í tveimur íslenskum sveitarfélögum

Reykholt í Borgarfirði

Horizon 2020 á Íslandi:

Viftur. Það borgar sig að nota það besta! Bíla- og vélavörur...sem þola álagið! Höfundar efnis í þessu blaði: Bogi Baldursson.

Ingvar Sigurgeirsson. Skólabragur sem geðrækt Heilsueflandi skólar Grand hótel, 2. september 2011

Transcription:

29. maí 2. júní 2017 Ferðasaga http://ww.vma.is https://www.august-sander-schule.de/schulportrait/ueber-uns/about-us August Sander skólinn hefur verið að senda nemendur sína til Akureyrar í vinnustaðanám á leikskólum. Kennari við skólann, Jeanette Reppe, hefur hjálpað okkur mikið varðandi þessa heimsókn til Berínar. http://www.ludwig-wolker-haus-berlin.de Ludvig Volker Haus er stofnun sem vinnur að menntasamskiptum í víðum skilningi. Renate Krekeler - Koch hefur séð um að ná í styrki fyrir August Sander skólann og hún hefur líka unnið að skipulagningu heimsóknar okkar til Berlínar. Sjá meiri upplýsingar um ferðina á vef VMA: https://www.vma.is/is/moya/page/ferdasogur Um Berlín: https://turisti.is/berlin http://www.visitberlin.de/en https://www.timeout.com/berlin/en/things-to-do/20-essential-things-to-do-in-berlin https://wowair.is/magazine/hvad-er-skemmtilegast-ad-gera-i-berlin/ https://www.airbnb.is/things-to-do/berlin https://is.wikipedia.org/wiki/berlín https://en.wikipedia.org/wiki/berlin Ferðaáætlun Sunnudagur 28. maí 2017 Rútuferð frá VMA lagði af stað sunnudagskvöld 21.30. Jóhannes við minnismerki um útrýmingu gyðinga. Mánudagur 29. maí 2017 Brottför frá Keflavikurflugvelli var 06:25 í stað 6.00 Flug Keflavík KEF Berlin SXF WW720 WOW air 29.5.2017 06:00 GMT 11:35 staðartíma. Rútur from Schonefeld flugvelli að hóteli. Gisting í fjórar nætur: Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz : Alexanderpl. 7, 10178 Berlin, Germany +49 30 23890 https://www.parkinn.com/hotel-berlin 1

Heimferð: Föstudagur 2. júní 2017 Hópurinn hittist í anddyri hótels 8.00. Rútur frá hóteli að flugelli. Flug Berlin SXF - Keflavík KEF WW 721 WOW air 2.6.2017 12:25 Berlínartími - 14:15 GMT Lending í Keflavík Föstudag 14.15. Rúta beint til Akureyrar. Vefur Schönefeld flugvallar. http://www.berlin-airport.de/en/travellers-sxf/index.php Dagskrá Skólaheimsóknir voru þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Hver þátttakandi fór í þrjá skóla og það þýddi nálægt 1 ½ - 2 vinnudagar. Hver þátttakandi valdi sér skólaheimsóknir. Þriðjudagur 30. maí Skólaheimsóknir fyrir og eftir hádegi. Morgun August Sander Schule 8.00-11.00 Skóli sem tekur nær eingöngu við nemendum sem eiga við erfiðleika að stríða í skóla. Margvíslegar námsbrautir, umönnun, iðnir og fl. Lette Verein FB Tech / Lab 10.00-12.00 Þjálfar aðstoðarmenn á rannsóknarstofum, næringarfræði, margmiðlun og í heilbrigðisgeiranum. Carl Legien Schule FB Wood 11.30-14.00 Iðngreinar: matvælagreinar, byggingagreinar, málmiðnir. Skilti um August Sander Skólann. Þar eru meðal annars kenndar aðferðir við Graffiti. Eftir hádegi August Sander Schule. 14.00-16.00 Um 40 þátttakendur fengu fræðslu um þýskt starfsnámskerfi. Stjórnendur halda sér fund með stjórnendum skólans. Edith Stein Schule Nursery School/ elderly care 13.15-15.00 Skóli sem þjálfar aðstoðarfólk í umönnun og uppeldi. 2

Miðvikudagur 31 maí Ferðasaga Morgun August Sander Schule 8.00-11.00 Skóli sem tekur nær eingöngu við nemendum sem eiga við erfiðleika að stríða í skóla. Margvíslegar námsbrautir, umönnun, iðnir og fl. BWK Kreuzberg 9.00-11.00 Veitir þeim sem ekki hafa fótað sig í skóla tækifæri til að mennta sig og þjálfa. m.a. í tungumálum og öðru til að fá meiri færni. Þjálfun með stuðningi BWK Kreuzberg 11.00-13.00 Veitir þeim sem ekki hafa fótað sig í skóla tækifæri til að mennta sig og þjálfa. m.a. í tungumálum og öðru til að fá meiri færni. Þjálfun með stuðningi Bildungsmarkt FB Food/ Catering 09.30-11.00 Þjálfunarmiðstöð fyrir ýmsar iðnir. Miðvikudagur 31 maí Eftir hádegi Hans Bökler OSZ FB Metall work 12.00-14.00 Véltækniskóli, bílar og vélar, Dual kerfi. August Sander Schule 13.35-16.00 Skóli sem tekur nær eingöngu við nemendum Ein heimsóknin var til Gegenbauer fyrirtækisins sem sér meðal annars um rekstur Max Schmeling Halle sem tekur rúmlega 10.000 manns í sæti t.d. við handboltaleiki Fuchse Berlin. sem eiga við erfiðleika að stríða í skóla. Margvíslegar námsbrautir, umönnun, iðnir og fl. Gegenbauer Holding SE & Co. KG 14.00-16.00 Fyrirtæki sem vinnur mikið að því að sjá um húsnæði og slíkt en tekur virkan þátt í þjálfun og menntun fólks sem ekki finnur fjölina sína. Gengið var frá skrifstofunni að íþróttahöll sem fyrirtækið sér um og hún skoðuð. 3

Fimmtudagur 1. júní Morgun Loschmidt Oberschule 9.00 11.00 Fagskóli fyrir ýmsa þá sem munu verða aðstoðarmenn í umönnun, aðal áherslan er að styrkja nemendur persónulega Ennfremur heimsótti hársnyrtideildin ICONO Academie Þátttakendur, starfsmenn VMA. Til viðbótar (bóta, mikilla bóta) 28 makar. Þátttakendur 101 talsins Starfaskilgreiningar - aðeins fljótandi. Stjórnendur 4 Alls starfsmenn 73 Námsráðgjafi 1 Þjónustuliðar - umsj bygg 9 Bókaverðir 2 Skrifstofufólk 4 Kennarar kennarar textíl list 2 kennarar byggingagreinar 2 kennarar viðskiptagreinar 1 kennarar matvælagreinar 3 kennarar rafiðngreinar 2 kennarar hársnyrtigreinar 3 kennarar málm - véltækni 6 kennarar sjúkraliðagreinar 2 kennarar íþróttagreinar 3 kennarar og stuðn fulltr starfsbraut 9 kennari sálfræði - stærðfræði 1 kennari saga- heimspeki 1 kennari Þýska 1 kennarar Enska 2 kennari Danska 1 kennari Spænska 1 kennarar Íslenska 6 kennarar náttúrufr - stærðfr 8 Ferðasaga. Það sem er skrifað hér er fyrst og fremst til minnis fyrir þann sem skrifar. Þessu skjali ásamt öðrum upplýsingum um ferðina verður komið til endurmenntunarsjóða stéttarfélaganna sem starfsmenn VMA eru í. Checkpoint Charlie. Líklega Bandarískir ferðamenn sem erfitt var að losna við af myndinni. 4

Allar leiðréttingar athugasemdir og ábendingar eru vel þegnar á netfangið jarn@vma.is Sunnudagur 28. maí 2017 Nokkur hluti hópsins kom saman í rútu sem lagði af stað frá VMA um kl. 21.30 og ók um nóttina til Keflavíkurflugvallar. Aðrir ferðalangar höfðu ýmist verið um helgina á suðvestur horninu eða notuðu sunnudag til að koma sér suður. Einhverjir flugu frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar. Mánudagur 29. maí 2017 Við gátum ekki notað innritunarvélarnar í flugstöðinni vegna þess að svo margir voru um hvert bókunarnúmer. Þar með stóðum við í röð í dálítinn tíma til að innrita okkur í stað þess að geta bara skilað töskunum. Hefðbundin vopnaleit, fríhöfn og morgunverður. Flugið fór af stað um kl. 6.25 og áætlaður flugtími var 3 klst og 8 mínútur. Farkosturinn var Airbus 321 þota með sætum fyrir ca 220 manns. Lent í Berlín um það bil 11.30. Þá tók við að fá farangurinn en um helmingur hópsins þurfti að bíða talsvert eftir honum. Við komum út í Terminal D en rúturnar biðu við A þannig að það var smá labb með töskur í eftirdragi í sólskini og 25 30 stiga hita. Fundum rúturnar en annar bílstjórinn var mjög stressaður og virðist ekki hafa vitað nákvæmlega hvenær við áttum að koma því hann virtist vera bókaður annað um kl.13. Sú rúta fór fyrr af stað en sú seinni kom að hótelinu uppúr kl.13. Hótel Radisson Park Inn Alexanderplatz er stórt, ca 40 hæðir og rúmlega 1000 herbergi. Byggt ca 1969 í Austur Berlín rétt við hlðina á sjónvarpsturninum og líklega hafa þessar byggingar átt að sýna hvers megnugt Austur Þýskaland var. Flest herbergin vor í minna lagi og fyrirkomulag á snyrtingum sérstakt en oftast óvenjulega góðar sturtur á herbergjunum.. Engin dagskrá það sem eftir var dagsins og fólk fór í allar áttir. Veðrið var gott, reyndar vel heitt, sólskin enn víða vel heitt inni. Einhverjir úr hópnum nýttu þjónustu Berlínanna sem bjóða íslenska leiðsögn um borgina í göngu og hjólaferðum. http://www.berlinur.de/ Útsýni úr sjónvarpsturninum úr rúmlega 200 metra hæð. Horft niður á 40 hæða hótelið Park Inn við Alexanderplatz. 5

Þriðjudagur 30. maí 2017 Þennan dag var mjög heitt framan af degi. Sólskin, og hitinn hefur örugglega farið hátt í 30 C. Svo í hádeginu þegar nokkuð stór hópur var að fara af stað í August Sander Schule til að kynnast menntakerfi Þýskalands kom þrumuveður. Það hellirigndi og satt að segja varð mjög hvasst í stutta stund, sannkallaður stormur. eldingar blossuðu og talverður hávaði af þrumum. Eftir þetta var ekki eins heitt en samt vel hlýtt. Heimsóknir í skólanna fóru fram í 12 20 manna hópum. Við nýttum oftast almenningssamgöngur, neðanjarðarlestir, S bahn = venjulegar lestir, sporvagna og strætóa. Til að nota þetta keyptu flestir sér dagskort og þá dugar að stimpla það einu sinni og þar með gildir það út daginn, líka er hægt að fá tveggja og fleiri daga kort, aðalatriðið er að vera með stimplað kort í gildi og ef það er ekki í gildi kostar það talsverða sekt. (Einhverjir misskildu gildistímann og greiddu sekt.) Dagskrá heimsókna þennan daginn var þessi: August Sander Schule 8.00-11.00 Skóli sem tekur nær eingöngu við nemendum sem eiga við erfiðleika að stríða í skóla. Margvíslegar námsbrautir, umönnun, iðnir og fl. Þetta er skólinn sem hefur verið að senda nemendur í vinnustaðaþjálfun á leikskólum á Akureyri. Við skynjuðum að þarna er það aðalatriði að sinna nemendum sem ekki gengur vel í skóla. Það má Í eldhúsi August Sander Schule. hugsanlega spyrja að því hvort framhaldsskólar á Íslandi skilgreini sig með þeim hætti að þeir segi að þessi hópur nemenda sé í forgangi eða sem eitt af forgangsatriðunum. VMA hefur fleiri en einn nemendahóp sem fókus: starfsnámið, stúdentsnám og starfsbraut en er þessi hópur sem stundum er kenndur við brautarbrú / almenna braut áhersluatriði í VMA eða einhverjum öðrum framhaldsskóla á Íslandi? Við heyrðum að ýmsir þeirra eiga erfitt með að mæta, það eru margir lesblindir og það sem við könnumst mæta vel við sem hindrar nemendur í skólanum. Markmið skólans er fyrst og fremst að efla nemendur og þeir geta unnið í verklegum greinum sem nokkurskonar kynningu á eða á fyrsta þrepi. Þarna er ekki verið að kenna iðngreinar heldur að koma nemendum af stað í einhverju sem þeir gætu haft áhuga á eða hæfileika til þótt eitthvað annað hindri þau í skólanum. 6

Agust Sander Schule býður uppá kynningu á vinnu í trésmíði, málmsmíði, meðferð málningar og lita (t.d. til að mála merkingar) matreiðslu og garðyrkju. Eftir svona nám veltur það á almennum fögum og almennri hæfni nemans hvort hann kemst inn á námsbrautir í iðngreinunum í öðrum skólum. Ef ekki gæti þetta inngangsnám samt skipt máli við að fá störf sem aðstoðarmenn eða verkamenn í þessum starfsgreinum. Skólinn er líka með nám til starfsréttinda sem Social Assistant, (hugsanlega sambærilegt vð félagsliðanám). Það eru nemendur úr þessu námi sem hafa komið til Akureyrar til að fá starfsþjálfun á leikskólum. Þessir nemar fara svo í störf á leikskólum og öldrunarheimilum. Einhverjir þeirra halda áfram í námi t.d. til að verða leikskólakennarar en það er ekki á háskólastigi með sama hætti og á Íslandi. August Sander Schule er í þrem byggingum í hverfi sem áður var rétt austan múrsins nálægt ánni Spree. Stutt frá skólanum er hægt að sjá einn lengsta hlutann af múrnum sem enn stendur. August Sander Schule rekur kynningarnám í garðyrkju. Við skoðuðum meðal annars rósirnar í garðinum þeirra. Við heimsóttum þennan skóla í þrjú skipti til að skoða skólann og í fjórða skiptið hélt Jeanette reppe kynningu á menntakerfinu í Þýskalandi og sérstaklega um verknámskerfið sem er nokkuð flókið. Hæfilekar unglinga eru metnir um 13 ára aldur og í samráði við foreldra er þeim ráðlagt um nám á unglingastigi og framhaldsskólastigi. Sumir halda því fram að þarna sé verið að flokka fólk í góða og slæma nema en aðrir segja að ætlunin sé að veita nemunum nám við hæfi og þroska hæfileika þeirra þannig að það nýtist þeim sjálfum og þjóðfélaginu sem best. Það er líklegt að margir Íslendingar myndu halda því fram að þarna sé verið að viðhalda stéttaskiptingu sem byggist á örfáum afmörkð um hæfileikum svo sem því að lesa, skrifa og reikna en aðrir hæfileikar njóti ekki sannmælis. Það er greinilegt að nemendur þurfa að uppfylla bóknámskröfur til að komast í menntaskóla eða iðnnnám. Lette Verein FB Tech / Lab 10.00-12.00 Þjálfar aðstoðarmenn á rannsóknarstofum, næringarfræði, margmiðlun og í heilbrigðisgeiranum. 7

Carl Legien Schule FB Wood 11.30-14.00 Iðngreinar: matvælagreinar, byggingagreinar, málmiðnir. Eftir hádegi August Sander Schule. 14.00-16.00 Um 40 þátttakendur fengu fræðslu um þýskt starfsnámskerfi. Stjórnendur halda sér fund með stjórnendum skólans. Sjá umfjöllun að ofan. Ferðasaga Edith Stein Schule Nursery School/ elderly care 13.15-15.00 Skóli sem þjálfar aðstoðarfólk í umönnun og uppeldi. Miðvikudagur 31. maí 2017 Morgun August Sander Schule 8.00-11.00 Skóli sem tekur nær eingöngu við nemendum sem eiga við erfiðleika að stríða í skóla. Margvíslegar námsbrautir, umönnun, iðnir og fl. BWK Kreuzberg 9.00-11.00 Veitir þeim sem ekki hafa fótað sig í skóla tækifæri til að mennta sig og þjálfa. m.a. í tungumálum og öðru til að fá meiri færni. Þjálfun með stuðningi Gegenbauer tekur talsverðan þátt í að þjálfa nemendur á ýmsum námsbrautum. Glæra um þann hluta starfseminnar hjá Gegenbauer. BWK Kreuzberg 11.00-13.00 Veitir þeim sem ekki hafa fótað sig í skóla tækifæri til að mennta sig og þjálfa. m.a. í tungumálum og öðru til að fá meiri færni. Þjálfun með stuðningi Bildungsmarkt FB Food/ Catering 09.30-11.00 Þjálfunarmiðstöð fyrir ýmsar iðnir. Miðvikudagur 31 maí Eftir hádegi Hans Bökler OSZ FB Metall work 12.00-14.00 Véltækniskóli, bílar og vélar, Dual kerfi. 8

August Sander Schule 13.35-16.00 Sjá umfjöllun að ofan. Gegenbauer Holding SE & Co. KG 14.00-16.00 Fyrirtæki sem vinnur mikið að því að sjá um húsnæði og slíkt en tekur virkan þátt í þjálfun og menntun fólks sem ekki finnur fjölina sína. Hópurinn sem fór í þessa heimsókn byrjaði að skoða íþróttahöll sem kalllast Max Schmeling Halle. Þar var búið að undirbúa handboltaleik í Þsku Bundesligunni milli Fuchse Berlin og Gummersbach um kvöldið. Höllin tekur milli 7 og 12 þúsund manns í sæti eftir því hvernig sætunum er raðað upp. Við vorum sem sagt í heimsókn hjá fyrirtæki sem heitir Gegenbauer og er sérhæft í að sjá um ræstingu og rekstur á húsnæði af öllu tagi, allt frá íþróttahöllum að skrifstofuhúsnæði. Eftir að hafa fengið að skoða höllina gengum við í 15 20 mínútur meðal annars um svo Við fengum kaffi og með því hjá Gegenbauer. kallaðan Mauerpark en þar var Berlínarmúrinn áður. Við komum svo á skrifstofu Gegenbauer og fengum kynningu á fyrirækinu og hvernig það vinnur að því að mennta fólk. Fyrirtækið á 90 ára sögu í að ræsta og sjá um að reka húsnæði. Það krefst þess að hafa starfsmenn með allskyns sérhæfða þjálfun. Fyrirtækið er með ca 200 nema í um það bil 10 mismunandi starfsgreinum sem eru í Dual kerfinu, að hluta í skóla og að hluta í starfsþjálfun hjá fyrirtækinu. Ennfremur eru ýmis önnur menntunar og þjálfunarprógrömm í gangi hjá Gegenbauer. Meðal annars veitir það ýmsum störf sem fá ekki störf annarsstaðar meðal annars innflytjendum. Gegenbauer setti af stað stöðu stjórnanda til að sinna málum flóttamanna og við fengum útskýringar á því hvernig hann vinnur. Í heildina fengum við þá mynd af Gegenbauer að fyrirtækið vilji vinna með yfirvöldum að því að innflytjendur og hreinlega ýmsir aðrir nái því að aðlagast samfélaginu og finna sér farveg í starfi. Við fengum t.d. útskýringar á því að hreingerningar þurfa sérhæfða starfsmenn sem búa yfir hæfni til að vinna verkin hratt og vel. Þannig er Gegenbauer með nema í hreingerningum undir leiðsögn sérhæfðra starfsmann. 9

Fimmtudagur 1. júní 2017 Tvær heimsóknir þennan daginn. Loschmidt Oberschule fyrir hádegið og tveir hársnyrtimeistarar fóru í heimsókn í Icono Hair Academy. Ferðasaga Að öðru leyti var ekki dagskrá nema það sem fólk hafði ákveðið sjálft, hjólatúr hjá Berlínunum, sigling eða bara að kynnast Berlín á margvíslegan hátt. Veðrið hentaði okkur vel, mátulegt gott sumarveður, sólskin (smá bruni) og mjög ánægjulegur dagur í borg sem bara fáir í hopnum höfðu kynnst áður. Föstudagur 2. júní 2017 Veðrið á brottfarardegi var afar gott, sólskin og það leit út fyrir hlýjan dag í Berlín. Við vorum komin í lobbíið um kl. 9.00, þá koma fyrri rútan og sú seinni fór svo rétt um kl. 10.30 samkvæmt áætlun. Hópurinn tvístraðist dálítið vegna þess að 14 manns úr hópnum urðu eftir, taka flug annað eða verða lengur og koma seinna heim. Á flugvellinum kom vel í ljós að hann er gamall og lítill, það var nokkuð þröngt víða enda er búið að byggja nýja flugstöð við Margar nýjar byggingar eru í Berlín. Hér er aðalbrautarstöðin. Einn eftirminnilegasti staðurinn var minnismerkið um útrýmingu gyðinganna. þennan flugvöll fyrir einhverjum árum en ekki búið að taka hana í notkun. Hér verður ekki reynt að skýra það út. WOW flugið fór af stað á hárréttum tíma kl. 12.25 og við lentum í Keflavík kl. 16 eftir þægilega ferð. Við fórum með afa þessa leið, TF-GPA, sem er Airbus 321 þota með ca 220 sætum Fríhöfn, töskur og sumir fóru í rútu til Akureyrar en aðrir urðu lengur fyrir sunnan eða hver veit. Svona ferðir eru mjög mikilvægar fyrir starfsmannahópinn og fyrir þær hugmyndir sem unnið er að í skólanum. Jóhannes Árnason jarn@vma.is 10