Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi

Similar documents
Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Horizon 2020 á Íslandi:

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Verkefnatengt nám. Hentar lögfræði þér? Starfsvettvangur lögfræðinga

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Leiðbeinandi á vinnustað

VIÐSKIPTAFRÆÐI Grunnnám og framhaldsnám BSc MSc PhD

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Stefnumótun. tun Rf. Hlutverk (Mission) Why we exist. Gildi (Core values) What we believe in. Framtíðarsýn (Vision) What we want to be

Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyri unak.is

PMTO - MEÐFERÐARMENNTUN

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Hlökkum til að sjá þig í háskólabænum Akureyri. unak.is

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

1. ár Haust. í félagsvísindum. Félagsvísindatorg. Iðnbylting og hnattvæðing. Saga sálfræðinnar. Vinnulag í hug- og félagsvísindum

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Heimspeki, Hagfræði og Stjórnmálafræði (HHS) (Staðnám og fjarnám) Námskrá fyrir nám til BA gráðu

Upplýsingaleit á Internetinu Heilsa og lífsstíll. Dr. Ágústa Pálsdóttir dósent, bókasafns- og upplýsingafræði Háskóli Íslands

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

Námskrá grunnnáms til BA gráðu í félagsvísindum og til BS gráðu í viðskipalögfræði

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Miðlun og Almannatengsl. Námskrá fyrir nám til BA gráðu

Yfirlit. Námskrá Vorönn Dalvík - Fjallabyggð. Akureyri. Fjölmennt. Útgefandi: SÍMEY - Þórsstíg Akurery

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

Nr desember 2014 REGLUGERÐ. um skjölun og milliverðlagningu í viðskiptum tengdra lögaðila.

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

Skóli án aðgreiningar

Rannsókn á Byrjendalæsi: Markmið, snið, gögn og úrvinnsla

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Dagskrá Menntakviku 2018 Menntavísindasvið Háskóla Íslands v/stakkahlíð, 105 Reykjavík

Reykjavík, 30. apríl 2015

Tillaga til þingsályktunar

MBA TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA.

Valgreinar fyrir 8. bekk skólaárið

Réttur til verndar, virkni og velferðar.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Erindi. Skriða 9:.00 til 9:15 Setning ráðstefnu Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands

Grunnnám í viðskiptafræði -Staðnám og fjarnám- Námskrá fyrir nám til BS gráðu

Tengsl íþróttaiðkunar og námsárangurs

LEIÐARVÍSIR UM ÞÁTTTÖKUNÁM (Service Learning)

2. Stefnur og hugmyndafræði sem hafa haft áhrif á listkennslu

Hlutverk skólastjóra í menntun til sjálfbærni

Skólanámskrá og Starfsáætlun Dalvíkurskóla

Val í bekk Sjálandsskóla

FRAMHALDSNÁM Í STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Grunnnám í viðskiptafræði. Námsskrá fyrir nám til BS gráðu

Útgefandi: Háskólinn á Akureyri. Ritstjórn: Guðrún M. Kristinsdóttir. Prófarkalestur: Finnur Friðriksson. Ljósmyndarar: Auðunn Níelsson, Daníel

Ég vil læra íslensku

Valgreinar í 6. bekk

Hafnarfjörður Grunnskólar Hafnarfjarðar Skólanámskrá. 8. bekkjarnámskrá skólanámskrá Hraunvallaskóla

Hafnarfjörður Grunnskólar Hafnarfjarðar Skólanámskrá. 3. bekkjarnámskrá. Skólanámskrá Hraunvallaskóla

ENDURMENNTUN. FYRIR SÉRFRÆÐINGA OG STJÓRNENDUR Námskeiðsframboð haustið 2013 STUTT NÁMSKEIÐ 1

Valgreinar

STOÐKERFISVERKIR HJÁ HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRUM OG TENGSL VERKJA VIÐ STREITU

Námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogs

Erasmus+ Stefnumiðuð samstarfsverkefni (strategic partnerships) VEFSTOFA fyrir umsækjendur í starfsmenntun, fullorðinsfræðslu og á háskólastigi

Málþroski, nám og sjálfsmynd

Umfang og umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi 2006

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Fóðurrannsóknir og hagnýting

UNGT FÓLK BEKKUR

Nr mars 2006 AUGLÝSING

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Aðalnámskrár grunnskóla og samræmd könnunarpróf í íslensku

MENNTAVÍSINDASVIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS

Þróun kennslu læknanema á síðustu áratugum

Menntun til sjálfbærni og samstarf skóla og samfélags

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar 1

Valgreinar og samvalsgreinar

Skóli Ísaks Jónssonar INNRAMAT Í SKÓLANUM. Skýrsla fyrir skólaárið

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

SEPTEMBER 2010 RÁÐSMIÐJA UM FRÆÐANDI FERÐAÞJÓNUSTU - KIÐAGIL

HUGPRÓ Betw Be ar tw e ar QA & Agile

FAGMENNT FLUTNINGAFRÆÐI

Fyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna

Vímuefnafíkn, samskipti og fjölskylduánægja

Ég vil vera ég. Upplifun fullorðinna innflytjenda í íslenskunámi sínu hérlendis. Selma Kristjánsdóttir

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar Frambjóðendur. Multicultural Council of Reykjavik Candidates

INNFORM rannsóknin: Árangur, stefna og alþjóðavæðing!

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar

Börn sem ekki borða Hvað er til bragðs að taka? Brynja Jónsdóttir, talmeinafræðingur Steinunn Hafsteinsdóttir, atferlisfræðingur

Transcription:

Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi Í samstarfi við Félagsráðgjafardeild HÍ, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð september 2018 júní 2020

Efnisyfirlit ALMENNAR UPPLÝSINGAR UM NÁM Í FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ Á MEISTARASTIGI... 3 HVAÐ ER FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ?... 3 MARKMIÐ NÁMSINS... 4 FYRIR HVERJA?... 4 HÆFNISVIÐMIÐ OG ÁVINNINGUR... 4 EININGAR - NÁMSVINNA... 5 KENNARAR... 5 UMSJÓNARMENN NÁMSINS... 5 FAGRÁÐ... 5 KENNSLUTILHÖGUN... 6 NÁMSKEIÐ... 6 NÁMSRÁÐGJÖF... 7 VERÐ... 7 1. MISSERI HAUST 2018... 8 ÞEKKINGARFRÆÐILEG ÞRÓUN FJÖLSKYLDUMEÐFERÐAR... 8 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA... 9 2. MISSERI VOR 2019... 10 MEÐFERÐARNÁLGUN OG SIÐFRÆÐI... 10 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA... 11 3. MISSERI HAUST 2019... 12 AÐFERÐAÞRÓUN OG MEÐFERÐARÁHERSLUR... 12 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA... 13 4. MISSERI VOR 2020... 14 FJÖLSKYLDUSTEFNA, RANNSÓKNIR OG ÞRÓUNARSTARF... 14 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA... 15

Almennar upplýsingar um nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi Hvað er fjölskyldumeðferð? Fjölskyldumeðferð er meðferð þar sem tekið er mið af áhrifamætti fjölskylduheildarinnar og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Þessi skilgreining byggist á hugmyndinni um fjölskyldu sem kerfi og vitund um að þegar einstaklingur breytist hefur það áhrif í fjölskyldutengslunum og öfugt, að hver einstaklingur verður fyrir áhrifum af því sem gerist í lífi annarra í sömu fjölskyldu eða tengslaneti. Það er metið eftir aðstæðum og í samráði hvenær og hverjir taka beinan þátt í meðferðinni. Fjölskyldukenningar og meðferðafræði hefur verið kennd í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands frá því að námið hófst 1980. Þannig hefur byggst upp reynsla og grunnþekking á sviðinu. Einnig hefur Endurmenntun HÍ áður staðið fyrir tveggja ára námi í samvinnu við sérfræðinga á vettvangi, Meðferðarþjónustuna Tengsl. Í flestum Evrópulöndum er nám í fjölskyldumeðferð nú sérhæft nám að loknu starfsréttindanámi á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda og hafa Evrópusamtökin EFTA (European Family Therapy Association) samþykkt gæðastaðla fyrir það nám. Þetta er í samræmi við vaxandi áherslu á fræðilega þekkingu og samræmdar færnikröfur fyrir þá sem veita meðferðarþjónustu. Frá árinu 2009 hefur sérhæft nám á MA stigi í Fjölskyldumeðferð verið í boði hjá Endurmenntun HÍ í samstarfi við Félagsráðgjafardeild HÍ. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2018 Umsókn um námið má finna á www.endurmenntun.is Nánari upplýsingar veitir Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri í síma 525-4924, netfang hulda@hi.is Upplýsingar um faglegt innihald námsins veitir Helga Þórðardóttir, kennslustjóri námsins, netfang: helga@familia.is

námsins námsins er að koma til móts við þörfina fyrir sérhæfða þekkingu á sviði fjölskyldumeðferðar og að efla fjölskyldunálgun í félags- og heilbrigðisþjónustu. Fyrir hverja? Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarrar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur: Hafa að lágmarki tveggja ára starfsreynslu á heilbrigðis- eða félagsvísindasviði Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð. Ef umsækjandi hefur orðið fyrir áfalli og hefur ekki leitað sér faglegrar aðstoðar eða er að kljást við andlegaeða samskiptaerfiðleika, er gerð krafa um að viðkomandi sæki að lágmarki sex meðferðartíma á fyrra ári námsins, hjá sérfræðingi Vera í starfi sem lýtur að heilbrigðis- eða félagsvísindasviði á meðan á námi stendur Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal Hæfnisviðmið og ávinningur Í náminu öðlast nemendur fræðilega og hagnýta þekkingu í fjölskyldufræðum ásamt klínískri færni. Að loknu námi munu nemendur meðal annars hafa: Þekkingu á fræðilegri þróun fjölskyldumeðferðar og kenningagrunni Persónulega og faglega færni til að veita fjölskyldumeðferð Getu til að beita faglegri þekkingu í gagnvirkri (e. reflective) greiningar- og meðferðarvinnu Færni til að finna lausnamunstur í samskiptakerfum Þekkingu á þróun íslenskra fjölskyldna og aðstæðum þeirra í dag Innsýn í rannsóknaniðurstöður um lýðheilsu (e. health statistics) og fjölskylduheilbrigði (e. family health)

Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja um inngöngu í MA nám í fjölskyldumeðferð við Félagsráðgjafardeild HÍ, að því gefnu að viðkomandi uppfylli inntökuskilyrði deildar. Hægt er að sækja um að fá námskeið úr diplómanáminu metin til eininga í MA námi í fjölskyldumeðferð. Frekari upplýsingar um MA nám í fjölskyldumeðferð er að finna í Kennsluskrá HÍ. Kennarar Kennarar verða bæði innlendir og erlendir háskólakennarar og starfandi fjölskyldufræðingar (fjölskylduþerapistar). Meðal kennarar eru: Anna María Jónsdóttir, geðlæknir Bjarney Kristjánsdóttir, MSW félagsráðgjafi/fjölskylduþerapisti Freydís Jóna Freysteinsdóttir, MSW, PhD félagsráðgjafi, dósent HÍ Helga Þórðardóttir, MA félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti, kennslustjóri Hervör Alma Árnadóttir, MA félagsráðgjafi, lektor HÍ Jaakko Seikkula, sálfræðingur og fjölskylduþerapisti Scott Miller, sálfræðingur og fjölskylduþerapisti Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, MA félagsráðgjafi, Félagsþjónustunni í Reykjavík Umsjónarmenn námsins Helga Þórðardóttir, faglegur umsjónarmaður, MA, félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti. Helga rekur LAUSN fjölskyldumeðferð og ráðgjöf. Hún starfar einnig í átröskunarteymi Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri EHÍ. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent, tengiliður Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands við námið. Fagráð Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við Félagsráðgjafardeild Erna Guðrún Agnarsdóttir, námstjóri EHÍ Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild Helga Þórðardóttir, MA félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti, stundakennari HÍ Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri EHÍ

Kennslutilhögun Námið er skipulagt í reglulegum námslotum og unnið með fræðileg og klínisk verkefni á milli lota. Á hverju misseri eru þrjár lotur. Hver lota er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og kennt frá klukkan 9:00-16:00. Kennslulotur eru í september, október, nóvember, janúar, febrúar og apríl. Nemendur verða í samfelldri hóphandleiðslu í litlum hópum á meðan á náminu stendur, þar sem unnið er með efnivið úr starfi á vettvangi. Ekki verður um val milli námskeiða að ræða og allir nemendur fylgja sama skipulagi. Nemendur fá tækifæri til að æfa sig í raunverulegum viðtölum undir faglegri handleiðslu, þar sem viðtöl eru tekin upp og unnið með í handleiðsluhópum. Námskeið Námskeiðin eru unnin með hliðsjón af sambærilegum námsleiðum við erlenda háskóla. Námskeiðin eru eftirfarandi og verða þau kennd á fjórum misserum: 1. Þekkingarfræðileg þróun fjölskyldumeðferðar (17e) 2. Meðferðarnálgun og siðfræði (18e) 3. Aðferðaþróun og meðferðaráherslur (18e) 4. Fjölskyldustefna, rannsóknir og þróunarstarf (17e) 5. Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla (20e sem dreifast yfir námstímann) Vettvangsþjálfun þar sem nemendur fylgjast með reyndum meðferðaraðila að lágmarki tvisvar sinnum á misseri Þjálfun sértækra aðferða í handleiðsluhópi sem telur 27 handleiðslutíma á hverju skólaári Beiting sértækra aðferða í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur á eigin vinnustað sem efniviður í handleiðsluhópa Nemasetur þar sem nemendur æfa sig í raunverulegum viðtölum undir faglegri handleiðslu, þar sem viðtöl eru tekin upp og unnið með þau í handleiðsluhópum

Námsráðgjöf Öllum nemendum Endurmenntunar Háskóla Íslands er velkomið að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa Endurmenntunar. Hlutverk námsráðgjafa er að veita nemendum stuðning meðan á námi stendur. Hjá námsráðgjafa er hægt að fá endurgjöf á vangaveltur sínar og upplýsingar um námsmöguleika. Námsval sem byggir á áhuga, réttum upplýsingum og skilningi getur margfaldað ávinning nemandans af námi sínu. Þjónusta námsráðgjafa: Ráðgjöf vegna námsvals Námstækninámskeið Fyrirlestur um próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða Aðstoð við nemendur með sértæka námserfiðleika Ráðgjöf um tímastjórnun og skipulagningu Áhugasviðsgreining Verð Heildarverð námsins er 1.590.000 kr. Greiðslufyrirkomulag Vinsamlega athugið að eftir að nám er hafið hefur nemandi skuldbundið sig til að greiða allt námsgjaldið og ekki er hægt að fá það fellt niður. Hægt er að semja um greiðslufyrirkomulag með kortaláni til allt að 36 mánaða. Ef þess er óskað þarf að hafa samband við gjaldkera um það leyti sem inntökubréf berst. Athugið að ef greiðandi er annar en umsækjandi er mikilvægt að þær upplýsingar komi fram í umsókn. Ef engar óskir berast um breytingar á greiðanda eða greiðslufyrirkomulagi birtast greiðsluseðlar í heimabanka þínum með eindaga við upphaf hvers misseris. Ganga þarf frá greiðslutilhögun áður en nám hefst. Allar nánari upplýsingar varðandi greiðslufyrirkomulag gefur Helga S. Ormsdóttir, gjaldkeri í síma 525-5295 eða á netfangið: helgaso@hi.is Lánamöguleikar Handleiðsla er innifalin í námsgjaldinu. Námið er lánshæft fyrir skólagjöldum hjá LÍN allt að 70%, sjá www.lin.is Við viljum vekja athygli á að námið er einnig lánshæft hjá Framtíðinni námslánasjóði. Styrkir Vakin er athygli á að ýmis stéttarfélög og margir vinnuveitendur veita góða styrki til náms.

1. misseri haust 2018 Þekkingarfræðileg þróun fjölskyldumeðferðar 17 einingar námskeiðsins er að auka þekkingu á uppruna og þróun fjölskyldumeðferðar í gegnum tíðina og hvernig ólíkar áherslur og ólíkir menningarheimar mótuðu þróun kenninga og aðferðafræði. Kynnt verður saga fjölskylduhugtaksins, þekkingarfræðilegur grunnur og kenningaþróun í fjölskyldumeðferð. Skoðað verður hvernig samtíma hugmyndir um lýðræðislega nálgun og notenda samráð tengjast valdahugtakinu og kenningum hugsmíðahyggju og frásagnarnálgun. Kennsluáætlun Kennt verður í þremur lotum á haustönn sem hér segir: Lota 1 3.-7. september 2018 Kynning hópsins Farið yfir innihald og námstilhögun Hópefli Saga fjölskylduhugtaksins Þróun kenninga í fjölskyldumeðferð PFÞ, persónuleg og fagleg þróun Röðun í handleiðsluhópa Handleiðarar hitta hópana Lota 2 1.-5. október 2018 Saga fjölskylduhugtaksins. Þekkingarfræðilegur grunnur og kenningaþróun í fjölskyldumeðferð. Áhersla verður meðal annars lögð á: Tjáskiptakenningar (e. Communication theory), Virginia Satir o.fl. Formgerðarkenningar (e. Structural family Therapy), Salvador Minuchin, Bowen og Bateson, o.fl. Kerfiskenningar (e. Systemisk Family Therapy), MRI- hópurinn; Watzlawic, Haley og Milanoteymið Selvini, Palazzoli o.fl. Lausnamiðaða skammtímameðferð (e. Solution Focused Family Therapy), Insoo Kim Berg og Steve de Shazer og Milwaukeehópurinn.

Lota 3 5.-9. nóvember 2018 Samtímahugmyndir Lýðræðisleg samráðsnálgun Hugsmíðahyggja Frásagnarkenningar (e. Narrative Family Therapy), Michael White, David Epston, Harold Goolishian og Harlene Anderson, en einnig Tom Andersson- teymið Námsmat Próf gildir Próf 7. desember 2018 Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla 5 einingar Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

2. misseri vor 2019 Meðferðarnálgun og siðfræði 18 einingar námskeiðsins er að auka persónulega færni í meðferðarvinnu og efla þannig og þróa aukinn meðferðarstyrk þátttakenda. Þátttakendur vinna með upprunafjölskylduna í þeim tilgangi að auka meðvitund og þekkingu á eigin mótun, fordómum og samfélagslegum gildum. Kennsluáætlun Þátttakendur vinna með eigin reynslu, fjölskyldustöðu og skoðanir um siðferðileg áitamál. Persónuleg og fagleg tenging. Kennt verður í þremur lotum á vorönn. Lota 1 7. -11. janúar Upprunafjölskyldan Vinna með eigin fjölskyldu Þriggja kynslóða fjölskyldutréð, Bowen Líffræðileg tengsl og tilfinningatengsl Ýmis fjölskylduform Nýja fjölskyldan Lota 2 4.-8. febrúar Persónuleg aðgreining Siðir og hefðir í fjölskyldum Tungumálið og samskipti í fjölskyldum Leyndarmál í fjölskyldum Trúarleg viðhorf fjölskyldu Menningarleg aðgreining Lota 3 25.-29. mars Persónuleg tenging Siðfræðileg álitamál, viðhorf, virðing og fordómar Tungumál og líkamstjáning Þekkingargrunnurinn og framtíðarsýnin

Námsmat Verkefni Upprunafjölskyldan Ígrundunarverkefni Fyrirlestrar, verkefni og hópavinna Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla 5 einingar Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

3. misseri haust 2019 Aðferðaþróun og meðferðaráherslur 18 einingar námskeiðsins er að dýpka þekkingu á aðferðaþróun í fjölskyldumeðferð. Tengja saman hugmyndafræðilega þekkingu við eigin persónu, bakgrunn, viðhorf og skoðanir. Fjallað verður um mismunandi líkön, hugmyndafræði þeirra og sérkenni. Áhersla er lögð á persónulega færni til að tengja ólíkar aðferðir eigin þekkinga- og reynslugrunni. Efla færni í gagnvirkri greiningarvinnu og færni til að koma auga á lausnamynstur eins og þau birtast í samskiptakerfum fjölskyldna. Kennsluáætlun Kennt verður í þremur kennslulotum á haustönn. Lota 1 Lota 2 Lota 3 2. - 6. september 14. - 18. október 11. - 15. nóvember Námsmat Próf Einstaklingsverkefni Persónuleg fagleg þróun Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar.

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla 5 einingar Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

4. misseri vor 2020 Fjölskyldustefna, rannsóknir og þróunarstarf 17 einingar Að varpa ljósi á þróun og aðstæður íslenskra fjölskyldna í dag með samanburði á íslenskum og erlendum rannsóknum. Tengja tölfræðilegar niðurstöður um lýðheilsu (e. health statistics) við áherslur í fjölskyldumeðferð. Fjallað verður um þróun og aðstæður íslenskra fjölskyldna í sögulegu ljósi. Athyglinni er beint að samfélagsáhrifum, þróun nýrra fjölskyldugerða og breyttum uppeldisaðstæðum þ.m.t. skilnað, stjúpatengsl og kynfræði. Fjallað er um líðan, starfshæfni og aðstæður fjölskyldna í ljósi tölfræðilegra upplýsinga um lýðheilsu, löggjöf og þjónustu. Efnið er tengt íslenskum og erlendum fjölskyldurannsóknum. Kynntar eru leiðir til að samþætta rannsóknir og meðferðarstarf, mat og þróun aðferða og úrræða. Námsmat Hópverkefni og opin kynning Seminar 100% Lota 1 Lota 2 Lota 3 6. 10. janúar 3. 7. febrúar 6. 10. apríl Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla 5 einingar Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.