VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Similar documents
Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Chaplin - Modern Times. 8. & 9. maí 2015

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Ég vil læra íslensku

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd verka: Forleikur: 10 Fimm söngvar: 22 Sinfónía: 28

Summer Concerts 2007

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Könnunarverkefnið PÓSTUR

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

Að störfum í Alþjóðabankanum

Aðventutónleikar. Nicholas Kraemer, hljómsveitarstjóri Katherine Watson, einsöngvari James Gilchrist, einsöngvari 2010/11

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Jólatónleikar 2009/ /10

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

VESTANPÓSTUR. Munið Sólarkaffið, 25. janúar á Broadway! sjá nánar á bls. 13. Janúar 2008 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 20. árg.

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Maðurinn í málverki. eftir Ragnar Þórisson. Listaháskóli Íslands Myndlistardeild B.A.-ritgerð (janúar 2010) Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Íslendingar hafa löngum litið á sig sem bókaþjóð. Oft er sagt að

Tónlistin í þögninni

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Menning í Múlakoti. Gróðrarstöð lista á fyrri hluta 20. aldar. Ásta Friðriksdóttir. Lokaverkefni til MA-gráðu Háskóli Íslands Hugvísindasvið

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

Fjölmenning á Íslandi Maí Greinagerð Esja Jeanne Jónsdóttir

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Dystópíur uppgangskynslóðarinnar

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Reykholt í Borgarfirði

Íslenzkar Gramóphón-plötur

KVER HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR

Ólafur Björnsson HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012

Snemma hafði jeg yndi af óð

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

Efni yfirlitsins að þessu sinni er: HAGTÖLUR VR

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

ALLTAF Í VEÐMÁLUM. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

STOÐKERFISVERKIR HJÁ HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRUM OG TENGSL VERKJA VIÐ STREITU

Áhrif upplýsingarinnar sem koma fram í völdum ritum um veraldleg efni eftir aðra Íslendinga en Magnús Stephensen frá tímabilinu

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

EKKI SIRKUS KLÁMSTJARNA KÖRFUBOLTAKONA EINHLEYPUR Á ÍSLANDI TINNA HRAFNS OPNAR KISTUNA LÁRA RÚNARS MEÐ AÐALHLUTVERK Í VEÐRAMÓTUM JOSÉ GONZALES

Transcription:

VELKOMIN Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á Rás 1 og eru aðgengilegir í Sarpinum á ruv.is. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka. Áætluð tímalengd verka: Sinfóníetta: 5 Fiðlukonsert: 34 Sinfónía: 32 Baiba Skride áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð. Uppto kur með Sinfóníuhljómsveit I slands má finna á YouTube- og Spotify-rásum hljómsveitarinnar. A Spotify má einnig finna lagalista með allri tónlist starfsársins. Aðalstyrktaraðili :

FIM 01 MAR 19:30 TÓNLEIKAR Í ELDBORG ÖRLAGASINFÓNÍA BEETHOVENS Eivind Aadland hljómsveitarstjóri Baiba Skride einleikari EFNISSKRÁ Jónas Tómasson Sinfóníetta II (2003) Robert Schumann Fiðlukonsert í d-moll (1853) In kräftigem, nicht zu schnellem Tempo Langsam Lebhaft, doch nicht schnell Hlé Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 5 í c-moll, op. 67 (1808) Allegro con brio Andante con moto Allegro Allegro - Presto For information in English about tonight s programme, please visit the Iceland Symphony Orchestra website: en.sinfonia.is 3

EIVIND AADLAND HLJÓMSVEITARSTJÓRI Eivind Aadland er einn af virtustu hljómsveitarstjórum Noregs. Hann var aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Þrándheims á árunum 2004 til 2010. Aadland hefur stjórnað öllum helstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlanda og kemur reglulega fram sem gesta stjórnandi með fílharmóníuhljómsveitunum í Bergen og Ósló, sinfóníuhljómsveitum Stafangurs og Gautaborgar og Sænsku kammersveitinni. Utan Norðurlandanna hefur Aadland unnið mikið með sinfóníuhljómsveitum í Ástralíu, Austurlöndum fjær og Evrópu. Meðal þessara hljómsveita eru Útvarpshljómsveitin í Berlín, Sinfóníuhljómsveitin í Barcelona, Belgíska þjóðarhljómsveitin og sinfóníuhljómsveitirnar í Melbourne og Tasmaníu. Eivind Aadland hóf feril sinn sem fiðluleikari og lærði hjá hinum heimsþekkta fiðluleikara Yehudi Menuhin. Léku þeir saman á tónleikum, m.a. í París og London. Síðar gegndi Aadland um árabil stöðu konsertmeistara Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Bergen en ákvað að venda kvæði sínu í kross og hóf nám í hljóm sveitar stjórn hjá Jorma Panula við Sibeliusarakademíuna í Helsinki. Aadland myndar sterk tengsl við hljóðfæraleikarana sem hann vinnur með enda hefur hann verið tíður gestur Sinfóníuhljómsveitar Íslands allt frá fyrstu heimsókninni fyrir 13 árum. Þá bar samstarf hans við Ungsveit hljómsveitarinnar glæsilegan árangur í flutningi á 10. sinfóníu Shostakovitsj í Eldborg haustið 2015 og 5. sinfóníu Tsjajkovskíjs ári síðar. Aadland hefur hljóðritað sem hljómsveitarstjóri og sem fiðluleikari fyrir Hyperion, EMI, BIS og Simax. Sem dæmi má nefna heildarsafn sinfónískra verka eftir Grieg með WDRsinfóníuhljómsveitinni sem og sinfónísk verk Eivinds Groven og öll verk Arne Nordheim fyrir fiðlu og hljómsveit með Sinfóníuhljómsveitinni í Stafangri. Nýlega stjórnaði Aadland Konunglegu fílharmóníuhljómsveitinni í Liverpool á diski þar sem landi hans, trompetleikarinn Tine Thing Helseth, leikur einleik í umritunum á verkum nokkurra þekktra tónskálda. Utan tónlistarstarfsins er Eivind Aadland mikill áhugamaður um nútímalist og hefur einkasafn hans að geyma fjölbreytt úrval listaverka af ýmsum toga. 4

BAIBA SKRIDE EINLEIKARI Lettneski fiðluleikarinn Baiba Skride kemur úr stórri tónlistarfjölskyldu. Hún hóf ung tónlistarnám í fæðingarborg sinni Riga og stundaði framhaldsnám við Tónlistar- og leikhúsháskólann í þýsku borginni Rostock. Ferill hennar hófst fyrir alvöru þegar hún vann til fyrstu verðlauna í Queen Elisabeth-keppninni árið 2001. Síðan þá hefur Baiba Skride aflað sér alþjóðlegrar frægðar og er hún reglulegur gestur helstu sinfóníuhljómsveita heimsbyggðarinnar. Meðal þeirra eru Berlínarfílharmónían, Sinfóníu hljómsveitin í Boston, Orchestre de Paris og New York fílharmónían auk fremstu hljóm sveita Japans, Ástralíu og Norðurlanda. Baiba Skride hefur hljóðritað ellefu geisladiska fyrir Orfeo- og Sony útgáfurnar. Meðal þeirra er einn diskur með einleiksverkum og tvær plötur með sónötum og öðrum verkum fyrir fiðlu og píanó þar sem systir hennar Lauma Skride leikur með henni. Á hinum skífunum er að finna fjölbreytt úrval af fiðlukonsertum og öðrum verkum með þekktum hljómsveitum og nafntoguðum hljómsveitarstjórum, m.a. Santtu-Matias Rouvali, John Storgårds, Sakari Oramo, Vasily Petrenko og Andris Nelsons. Á þessum diskum hljóma alls þrettán fiðlu konsertar, þar á meðal konsertar Brahms, Sibeliusar, Tsjajkovskíjs og Stravinskíjs en einnig sjaldheyrðari verk eftir Arthur Honegger, Frank Martin, Michael Haydn - og Schumann-fiðlukonsertinn. Nýliðinn mánuður var annasamur hjá Baibu Skride. Hann hófst með þrennum tónleikum með Berlínarfílharmóníunni og Dima Slobodeniouk þar sem hún lék 2. fiðlukonsert Shostakovitsj. Nokkrum dögum síðar var konsert Albans Berg í tvígang á dagskrá með finnsku hljómsveitinni Kymi Sinfonietta og um miðjan mánuðinn Nielsen-fiðlukonsertinn með Kaupmannahafnarfílharmóníunni í Hillerød og Kaupmanna höfn. Þá spilaði Baiba á kammertónleikum í Berlín ásamt systrum sínum Lindu og Laumu áður en hún hélt til Leipzig til að leika Berg-konsertinn þrisvar sinnum með Gewandhaushljómsveitinni og Andris Nelsons. Baiba Skride leikur á hina svonefndu Yfrah Neaman- Stradivariusfiðlu sem Neaman-fjölskyldan lánar henni í gegnum Beares International Violin Society. 5

JÓNAS TÓMASSON SINFÓNÍETTA II Jónas Tómasson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík, m.a. hjá þeim Jóni Þórarinssyni og Þorkatli Sigurbjörnssyni, en hélt síðan til framhaldsnáms í Amsterdam þar sem hann sótti tíma hjá Ton de Leeuw, Léon Orthel og Jos Kunst árin 1969 1972. Jónas fluttist til Íslands árið 1973 og settist að á Ísafirði, þar sem hann hefur að mestu dvalið síðan. Þar hefur hann látið að sér kveða á ýmsum sviðum tónlistarlífsins, m.a. sem kennari í tónfræðigreinum og flautuleik, sem flautuleikari og kórstjóri og um áratuga skeið hafði hann umsjón með tónleikahaldi fyrir Tónlistarfélag Ísafjarðar. Tónsmíðarnar hafa þó ævinlega átt hug hans allan og síðustu árin hefur hann helgað sig þeim eingöngu. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Önnur sinfóníetta Jónasar Tómassonar hefur ekki áður heyrst á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar I slands en hún var hljóðrituð fyrir allmo rgum árum. Sinfóníetta I hefur aftur á móti þrisvar sinnum verið leikin af hljómsveitinni. Verk Jónasar heyrðist fyrst á tónleikum Sinfóníunnar í nóvember 1973 en það var Leikleikur sem aftur var á dagskrá haustið 2013. A þessum ríflega fjo rutíu árum hefur Sinfóníuhljómsveit I slands leikið hartnær tuttugu verk Jónasar opinberlega. Jónas er afar mikilvirkt tónskáld og eftir hann liggur fjöldi verka af ólíkum toga. Hann hefur samið fjölmörg hljómsveitarverk og konserta - m.a. fyrir orgel, víólu, píanó, tvö píanó og sinfóníuhljómsveit. Kórverk skipa stóran sess í tónverkasafni Jónasar, einnig hefur hann samið fjöldann allan af kammerverkum fyrir ólíkar og oft frumlegar samsetningar hljóðfæra. Loks hefur Jónas samið fjölda einleiks- og einsöngsverka fyrir ýmis hljóðfæri, oft að beiðni einstakra tónlistarmanna. Verk Jónasar hafa verið flutt af mörgum fremstu tónlistarmönnum hér á landi, t.d. hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands margsinnis flutt sinfónísk verk hans og konserta. Kammersveit Reykjavíkur, Caput-tónlistarhópurinn, kammerhópurinn Ýmir, Mótettukór Hallgrímskirkju og fjölmargir aðrir minni tónlistarhópar hafa haft verk hans á efnisskránni og flutt þau víða um heim. Upptökur hafa verið gerðar af fjölda verka Jónasar og hafa mörg þeirra einnig komið út á geisladiskum. Um verkið sem flutt verður í kvöld segir Jónas: Á einni af mörgum ferðum mínum um Mývatnssveit og Laxárdal datt mér Sinfóníetta II í hug. Reyndar í miðjum Laxárdal, sumarið 2003. Verkið tileinkar Jónas eiginkonu sinni Sigríði Ragnarsdóttur og ber það undirtitilinn (Laxárdalur - til Siggu). 6

ROBERT SCHUMANN TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Fiðlukonsert Schumanns heyrist nú í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar I slands og er það skiljanlegt í ljósi so gunnar. Píanókonsertinn í a-moll hefur aftur á móti hljómað fjórtán sinnum á tónleikum hennar í gegnum tíðina og sellókonsertinn, so muleiðis í a-moll, í tíu skipti. Þá hefur Konzertstück Schumanns fyrir fjo gur horn og hljómsveit einu sinni heyrst en sinfóníur meistarans hafa frá stofnun hljómsveitarinnar verið nokkuð reglulega á dagskrá. FIÐLUKONSERT Ungverski fiðluleikarinn Joseph Joachim var aðeins 22ja ára gamall þegar hann bað vin sinn og læriföður, Robert Schumann (1810 1856), að semja fyrir sig fiðlukonsert. Þetta gerðist sumarið 1853 og var Joachim þá þegar orðinn þekkt nafn í tónlistarheiminum. Schumann brást snarlega við og samdi ekki aðeins konsertinn í d-moll, heldur einnig fantasíu í C-dúr fyrir fiðlu og hljómsveit stuttu síðar á tæpum þremur vikum. Joachim tók fantasíunni fagnandi og flutti hana margoft á ferli sínum en konsertinn spilaði hann aldrei. Ekki nóg með það, heldur kom hann í veg fyrir að verkið yrði gefið út með þeim rökum að - konsertinn stæðist ekki samanburð við svo mörg af dýrlegum sköpunarverkum meistarans. Var þessi ákvörðun studd af Clöru Schumann og Johannesi Brahms, og í heildarútgáfu á verkum Schumanns eftir lát hans, er konsertinn ekki skráður. Nú víkur sögunni til London. Þar bjuggu á fyrri hluta 20. aldar systurnar Adila og Jelly d Arányi sem báðar voru atvinnufiðluleikarar. Hæfileikana áttu þær ekki langt að sækja því Joseph Joachim var afabróðir þeirra. Skrifaði Béla Bartók fiðlusónötur sínar tvær fyrir Jelly og henni tileinkaði Ravel einnig glæsiverkið Tzigane. Jelly hafði mikinn áhuga á dulspeki (líkt og Schumann...) og á andaglasfundi árið 1933 fékk hún boð að handan um að finna og flytja óútgefið verk eftir Schumann. Í kjölfarið fannst konsertinn, en líka skilyrði Joachims um að ekki mætti flytja hann fyrr en að liðnum 100 árum frá dauða tónskáldsins. Nú kröfðust Þjóðverjar í krafti höfundarréttar að konsertinn yrði fluttur af heimamönnum. Var hann frumfluttur af fiðluleikaranum Georg Kulenkampff og Berlínarfílharmóníunni í nóvemberlok 1937, 19 árum áður en fyrrnefndur frestur rann út. Yehudi Menuhin spilaði konsertinn svo í New York mánuði síðar og Jelly d Arányi í London í febrúar árið eftir. Síðan þá hefur fiðlukonsert Schumanns æ oftar hljómað í tónleikasölum en best er að láta áheyrendum eftir að dæma um hughrifin sem konsertinn vekur hjá þeim. 7

LUDWIG VAN BEETHOVEN SINFÓNÍA NR. 5 Fimmta sinfónía Ludwigs van Beethoven (1770 1827) er líklega þekktasta tónverk sígildra tónbókmennta og eitt af þeim tónverkum sem oftast heyrast í tónleikasölum heimsbyggðarinnar. Upphafsmótífið, endurteknu nóturnar fjórar sem birtast í einhverri mynd í öllum köflum sinfóníunnar er sagt vera örlögin að knýja dyra. Sköpunarár sinfóníunnar voru vissulega mikill átakatími í lífi tónskáldsins sem hið innra horfðist í augu við þverrandi heyrn og umhverfis hann geisaði styrjaldarófriður. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Fimmta sinfónía Beethovens hljómaði fyrst í Þjóðleikhúsinu 19. nóvember 1950 í flutningi hinnar nýstofnuðu Sinfóníuhljómsveitar I slands undir stjórn Róberts Abrahams Ottóssonar. Síðan þá hefur hún prýtt tónleikaskrár hljómsveitarinnar ríflega 30 sinnum, bæði í Reykjavík, á landsbyggðinni, í Færeyjum og á Grænlandi. Þegar hætt var við tónleikaferð hljómsveitarinnar til Japans haustið 2008 fór hún í hringferð um landið með Petri Sakari og bauð landsmo nnum til ókeypis tónlistarveislu þar sem 5. sinfónía Beethovens var í aðalhlutverki. Beethoven hóf að semja fimmtu sinfóníuna árið 1804 en lagði hana til hliðar og einbeitti sér næstu tvö árin að fyrstu gerð óperunnar Fidelio, 23. píanósónötunni (Appassionata), Razumovsky strengjakvartettunum þremur op. 59, fiðlukonsertinum, fjórða píanókonsertinum, C-dúr messunni og fjórðu sinfóníunni. Því næst snéri hann sér aftur að þeirri fimmtu. Hann vann úr fyrirliggjandi uppkasti að þremur fyrstu köflunum en skipti niðurlagi í 6/8 takti út fyrir hið glæsilega og sigurreifa finale í C-dúr. Í bréfi til vinar síns og velgjörðarmanns Franz von Oppersdorf skrifar Beethoven: Ég lofa þér verki sem hæfir okkar stríðshrjáðu samtíð. Síðasti hluti sinfóníunnar er með 3 básúnum og lítilli flautu - að vísu ekki 3 pákum en sem gera meiri og betri hávaða en 6 pákur. Örlagasinfónían var frumflutt í Theater an der Wien 22. desember 1808 og stjórnaði tónskáldið flutningnum. Tónleikarnir voru sannkallaðir maraþontónleikar þar sem átta verk Beethovens voru flutt - þar af fjögur í fyrsta sinn opinberlega. Fyrsta atriðið var sjötta sinfónían - Sveitasinfónían, þá kom arían Ah, perfido op. 65, síðan Gloría úr C-dúr messunni en fyrri hlutanum lauk á fjórða píanókonsertinum sem Beethoven lék sjálfur. Síðari hlutinn hófst á fimmtu sinfóníunni, þá komu Sanctus og Benedictus kaflarnir úr C-dúr messunni. Næst lék Beethoven eitt atriði á píanóið af fingrum fram en lokaverkið var Kórfantasían. Litlar sögur fara af þessum tónleikum annað en að lengd þeirra losaði fjórar klukkustundir í hrollköldum tónleikasalnum og flutningurinn var frekar bágborinn eftir aðeins eitt æfingarennsli. Sigurður Ingvi Snorrason 8

Á DÖFINNI FIM TÓNLEIKAR Í ELDBORG RAVEL OG PROKOFÍEV SUN 08 18 MAR 19:30 Í talski fiðluleikarinn Nicola Lolli starfaði áður við Santa Cecilia-hljómsveitina í Róm en tók við stöðu konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2014. Nú kemur hann í fyrsta sinn fram sem einleikari með hljómsveitinni, í glæsilegum fiðlukonserti Prokofíevs. Sinfóníuhljómsveit Íslands hljóðritar á þessu starfsári tvær sinfóníur eftir Charles Gounod. Sú síðari þeirra, sem hljómar á tónleikunum, er mikilfengleg og með rómantísku ívafi, eins konar svar hins franska tónskálds við tónlist Schumanns. Tónleikunum lýkur á hinu kraftmikla La valse þar sem sinfóníuhljómsveitin nýtur sín til fulls enda var Ravel einn snjallasti hljómsveitarútsetjari sem sögur fara af. Hljómsveitarstjóri er Yan Pascal Tortelier. MAR 19:30 GESTAHLJÓMSVEIT GAUTABORGARSINFÓNÍAN Á ÍSLANDI Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í Gautaborg í apríl síðastliðnum við dágóðar undirtektir. Nú er komið að Gautaborgarsinfóníunni að endurgjalda greiðann og leika fyrir Íslendinga. Einleikari er hin franska Hélène Grimaud sem hefur um áratuga skeið verið í hópi fremstu píanista heims. Hún hefur hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og hlotið öll helstu verðlaun klassíska tónlistarheimsins. Á tónleikunum leikur Grimaud hinn undurfagra píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven en einnig hljóma tvö meistarverk frá því um aldamótin 1900, valsaskotin svíta úr óperunni Der Rosenkavalier eftir Strauss og glæsileg frumraun Sibeliusar í sinfóníusmíðum. Hljómsveitarstjóri er hinn finnski Santtu-Matias Rouvali, einn eftirsóttasti ungi stjórnandi heims um þessar mundir. Hann hefur tvívegis stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands með frábærum árangri en hann tók við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitarinnar í Gautaborg haustið 2017. Mat Hennek Áskrifendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands geta tryggt sér miða á tónleikana sem viðbót við áskriftarraðir sínar á hefðbundnu áskriftarverði. 9

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 1. MARS 2018 1. FIÐLA Vera Panitch Una Sveinbjarnardóttir Zbigniew Dubik Hildigunnur Halldórsdóttir Bryndís Pálsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Helga Þóra Bjo rgvinsdóttir Pascal La Rosa Rósa Hrund Guðmundsdóttir Lin Wei Margrét Kristjánsdóttir Andrzej Kleina Olga Bjo rk Ólafsdóttir Pálína A rnadóttir 2. FIÐLA Joaquín Páll Palomares Christian Diethard Kristján Matthíasson Margrét Þorsteinsdóttir Roland Hartwell Hlín Erlendsdóttir Ingrid Karlsdóttir Dóra Bjo rgvinsdóttir Ólo f Þorvarðsdóttir Kristín Bjo rg Ragnarsdóttir Sigurlaug Eðvaldsdóttir Þórdís Stross VÍÓLA Þórunn Ósk Marinósdóttir Svava Bernharðsdóttir Guðrún Hrund Harðardóttir Þórarinn Már Baldursson Kathryn Harrison Móeiður Anna Sigurðardóttir A sdís Hildur Runólfsdóttir Sarah Buckley Guðrún Þórarinsdóttir Eyjólfur Bjarni Alfreðsson SELLÓ Sigurgeir Agnarsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Margrét A rnadóttir Júlía Mogensen Ólo f Sesselja Óskarsdóttir Lovísa Fjeldsted Ólo f Sigursveinsdóttir BASSI Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Gunnlaugur Torfi Stefánsson Richard Korn Þórir Jóhannsson Timofey Matveev FLAUTA A shildur Haraldsdóttir Emilía Rós Sigfúsdóttir Martial Nardeau ÓBÓ Hernando Escobar Peter Tompkins KLARÍNETT Arngunnur A rnadóttir Grímur Helgason Helga Bjo rg Arnardóttir Baldvin Tryggvason FAGOTT Michael Kaulartz Brjánn Ingason Felix Schwamm HORN Emil Friðfinnsson Joseph Ognibene TROMPET Einar Jónsson Baldvin Oddsson BÁSÚNA Sigurður Þorbergsson Oddur Bjo rnsson David Bobroff, bassabásúna PÁKUR Eggert Pálsson Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri Vladimir Ashkenazy aðalheiðursstjórnandi Osmo Vänskä heiðursstjórnandi Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri A rni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Margrét Sigurðsson fjármálafulltrúi Grímur Grímsson sviðsstjóri Anna Sigurbjo rnsdóttir tónleikastjóri Hjo rdís A stráðsdóttir fræðslustjóri Kristbjo rg Clausen nótna- og skjalavörður Sigþór J. Guðmundsson sviðsstjóri Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Jo kull Torfason markaðsfulltrúi Una Eyþórsdóttir mannauðsstjóri Gísli Magnússon umsjónarmaður nótna 10

Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson hafa skapað víðförlustu mús Íslandssögunar. Hallfríður: Það að kynnast aðeins einfaldri tónlist er ekki ólíkt því að vera alinn upp bara á pylsum. Þórarinn: Já, sem eru auðvitað ágætar í hófi en maður þarf annað með. Hallfríður: Börn eru með galopinn huga og fordóma laus en mörg þeirra fá sjaldan tækifæri til þess að heyra annað en létt lög. Börn eru þakklátir og hrifnæmir áhorfendur enda má upplifa svo margt og læra um lífið og mannlegar tilfinningar með hjálp tónlistar. Unga fólkið er ávallt aufúsu gestir hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á undanförnum árum hefur hljómsveitinni borist öflugur liðsstyrkur í honum Maxímús Músíkús, tónlistarmús sem kynnir börnum á öllum aldri galdur tónlistarinnar. Þau Hallfríður Ólafsdóttir flautu leikari og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari hafa skapað þessa skemmtilegu og forvitnu mús sem er á góðri leið með að sigra heiminn því að sögurnar hans hafa verið þýddar á mörg tungumál og gefnar út ásamt geisladiskum. Maxímús hefur einnig heimsótt þó nokkrar sinfóníuhljómsveitir í öðrum löndum. Engin íslensk mús er því sigldari eða frægari, geri aðrar betur! gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. 11 www.gamma.is

Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa kvikmyndina Amadeus sem sýnd verður í Eldborg og stórfenglega tónlist Mozarts í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mótettukórs Hallgrímskirkju. Ekki missa af þessum stórbrotna viðburði! MIÐASALA HAFIN Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 12