ÁRSSKÝRSLA 2016 Formannafundur á Selfossi 12. nóvember

Similar documents
SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Horizon 2020 á Íslandi:

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Félagsauður á Íslandi Þróun og skýringar á mun milli landa. Efnisyfirlit. Þátttaka í félögum og þjóðmálum. Þróun félagsauðs í grannríkjunum

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM. Schengen ráðstefna 6. október Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn -

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2013 Municipal social services 2013

STÝRING OG GJALDTAKA Á FERÐAMANNASTÖÐUM HÁMARKA UPPLIFUN, VERNDA NÁTTÚRU OG TRYGGJA ÖRYGGI

Stefnumótun. tun Rf. Hlutverk (Mission) Why we exist. Gildi (Core values) What we believe in. Framtíðarsýn (Vision) What we want to be

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

ÁRSRIT 2015 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Sími:

Ég vil læra íslensku

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

CORINE-verkefniðog landgerðabreytingar á Íslandi milli 2000 og Ingvar Matthíasson Ásta Kr. Óladóttir

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

ÆGIR til 2017

Febrúar Íslensk ferðaþjónusta

Laun á almennum vinnumarkaði 2005 Earnings in the private sector 2005

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS. Hagstærðir Verzlunarmannafélags Reykjavíkur

JANÚAR 2016 Karl Sigurðsson

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Fóðurrannsóknir og hagnýting

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Efni yfirlitsins að þessu sinni er: HAGTÖLUR VR

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Sveiflur og breyttar göngur deilistofna. norðaustanverðu Atlantshafi

Nr mars 2006 AUGLÝSING

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

Mannfjöldaspá Population projections

Þátttaka Íslands í Norðurslóðaáætlun hefur tekist vel í flestu tilliti. Mikill áhugi hefur verið á þátttöku í samstarfsverkefnum innan áætlunarinnar

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

Mannfjöldaspá Population projections

Ísland í evrópsku upplýsingasamfélagi 2006 The Icelandic Information Society in a European context 2006

Verkfræðingafélag Íslands

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Tölvu- og netnotkun einstaklinga 2011 Computer and Internet usage by individuals 2011

Hagvísir Vesturlands. Börn í sveitum á Vesturlandi

Erlendir vetrarferðamenn vegir og þjónusta

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Evrópskur samanburður á launum 2010 Structure of Earnings Survey 2010

ÁRSRIT Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Sími:

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Rekstur og efnahagur fyrirtækja 2015 Financial statements of Icelandic companies 2015

Félagsvísar: Ungt fólk í foreldrahúsum Social indicators: Young people living with their parents

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Lagfæring vegamóta á hringveginum. Skoðun á hagvæmni úrbóta

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

Stjórn HSK og framkvæmdastjóri á fundi stjórnar fyrir jól. Efnisyfirlit

Vaasa Ostrobothnia nóv. 2012

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

Fyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna

Ársskýrsla UNIFEM á Íslandi 2009

Tengsl fæðingardags á brottfall úr knattspyrnu Hjá 4. flokki karla og kvenna

Skóli Ísaks Jónssonar INNRAMAT Í SKÓLANUM. Skýrsla fyrir skólaárið

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

H Á L E N D I L Á G L E N D I

Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008.

Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/ /10

Félagsvísar: Skortur á efnislegum gæðum 2014 Social indicators: Material deprivation 2014

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu

Ársskýrsla 2013 HRAFNSEYRI

SKYNMYNDAÞJÁLFUN Í GOLFI

ÁRSSKÝRSLA KÖRFUKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLAND

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Health at a Glance: OECD Indicators 2005 Edition. Heilbrigðismál í hnotskurn: Rit OECD Samantekt. Summary in Icelandic. Útdráttur á íslensku

Heimsóknum umdæmisstjóra í klúbbana lokið

GOLF. Bónorð á 9. holu Björn Steinar Stefánsson bað Huldu Alfreðsdóttur á níundu holu golfvallar á Spáni. SÍÐA 6

Sala á sjávarafurðum.l Bandaríkjanna 2016

Stefnir í ófremdarástand

Samsvörun milli heildarmagns tannátu meðal 12 og 15 ára barna (DMFT/DMFS) og tannátu í lykiltönnum

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

UNGT FÓLK BEKKUR

Forseti Íslands á. 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Transcription:

ÁRSSKÝRSLA 2016 Formannafundur á Selfossi 12. nóvember

Ársskýrsla 2016 Fjöldi kylfinga í klúbbum Nr. Klúbbur 15 ára og yngri 16 ára og eldri 2016 Aukafélagar 2015 Breyting % 1. Golfklúbbur Reykjavíkur 125 2.852 2.977 163 2.820 157 6% 2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 528 1.572 2.100 93 2.035 65 3% 3. Golfklúbburinn Keilir 147 1.185 1.332 42 1.321 11 1% 4. Golfklúbburinn Oddur 62 1.141 1.203 84 1.169 34 3% 5. Golfklúbbur Mosfellsbæjar 106 975 1.081 76 1.051 30 3% 6. Nesklúbburinn 33 645 678 63 651 27 4% 7. Golfklúbbur Akureyrar 56 620 676 63 708-32 -5% 8. Golfklúbbur Suðurnesja 63 480 543 20 459 84 18% 9. Golfklúbburinn Setberg 1 440 441 41 466-25 -5% 10. Golfklúbbur Vestmannaeyja 70 366 436 9 409 27 7% 11. Golfklúbburinn Leynir 77 342 419 9 407 12 3% 12. Golfklúbbur Selfoss 31 354 385 92 374 11 3% 13. Golfklúbbur Öndverðarness 19 317 336 154 310 26 8% 14. Golfklúbbur Þorlákshafnar 19 272 291 23 295-4 -1% 15. Golfklúbbur Ásatúns 252 252 11 274-22 -8% 16. Golfklúbbur Grindavíkur 24 183 207 7 185 22 12% 17. Golfklúbburinn Kiðjaberg 16 191 207 118 222-15 -7% 18. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 26 161 187 8 149 38 26% 19. Golfklúbbur Álftaness 10 168 178 22 143 35 24% 20. Golfklúbburinn Flúðir 6 172 178 80 170 8 5% 21. Golfklúbbur Hveragerðis 2 173 175 15 189-14 -7% 22. Golfklúbbur Ísafjarðar 15 137 152 3 173-21 -12% 23. Golfklúbbur Borgarness 10 141 151 14 146 5 3% 24. Golfklúbbur Sauðárkróks 23 110 133 2 123 10 8% 25. Golfklúbburinn Vestarr 1 130 131 4 128 3 2% 26. Golfklúbburinn Úthlíð 118 118 35 106 12 11% 27. Golfklúbbur Húsavíkur 3 107 110 1 105 5 5% 28. Golfklúbbur Sandgerðis 2 102 104 18 120-16 -13% 29. Golfklúbburinn Mostri 18 85 103 14 103 0 0% 30. Golfklúbbur Hellu 12 88 100 16 90 10 11% 31. Golfklúbbur Fjallabyggðar 16 83 99 7 93 6 6% 32. Golfklúbbur Hornafjarðar 2 89 91 3 88 3 3% 33. Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 23 60 83 26 86-3 -3% 34. Golfklúbburinn Hamar 22 61 83 5 98-15 -15% 35. Golfklúbburinn Dalbúi 1 80 81 73 78 3 4% 36. Golfklúbbur Bolungarvíkur 29 47 76 5 80-4 -5% 37. Golfklúbbur Fjarðarbyggðar 18 57 75 1 62 13 21% 38. Golfklúbbur Norðfjarðar 7 63 70 2 85-15 -18% 39. Golfklúbbur Seyðisfjarðar 1 62 63 19 60 3 5% 40. Golfklúbburinn Gláma 1 49 50 4 50 0 0% 41. Golfklúbburinn Geysir 12 33 45 5 39 6 15% 42. Golfklúbburinn Glanni 1 43 44 18 39 5 13% 43. Golfklúbburinn Þverá Hellishólum 44 44 8 48-4 -8% 44. Golfklúbbur Siglufjarðar 1 41 42 6 61-19 -31% 45. Golfklúbbur Skagastrandar 41 41 8 40 1 3% 46. Golfklúbburinn Jökull 41 41 2 76-35 -46% 47. Golfklúbbur Bíldudals 36 36 3 35 1 3% 48. Golfklúbburinn Tuddi 17 18 35 6 36-1 -3% 49. Golfklúbburinn Ós 33 33 0 35-2 -6% 50. Golfklúbbur Byggðarholts 32 32 35-3 -9% 51. Golfklúbburinn Vík 31 31 12 33-2 -6% 52. Golfklúbburinn Hvammur Grenivík 4 26 30 2 30 0 0% 53. Golfklúbbur Patreksfjarðar 1 28 29 1 29 0 0% 54. Golfklúbbur Vopnafjarðar 27 27 5 27 0 0% 55. Golfklúbburinn Lundur 27 27 17 56-29 -52% 56. Golfklúbbur Brautarholts 1 24 25 17 30-5 -17% 57. Golfklúbbur Hólmavíkur 24 24 2 22 2 9% 58. Golfklúbburinn Skrifla 22 22 6 19 3 16% 59. Golfklúbbur Mývatnssveitar 1 19 20 3 20 0 0% 60. Golfklúbburinn Gljúfri 14 14 3 13 1 8% 61. Golfklúbbur Staðarsveitar 13 13 1 21-8 -38% 62. Golfklúbburinn Húsafelli 13 13 8 12 1 8% Samtals 1.663 15.160 16.823 1.578 16.437 386 2% 2

ÁRSSKÝRSLA 2016 Nokkrar lykiltölur golfhreyfingarinnar á Íslandi Karlkylfingar eru 69% af heildinni þar sem meðalaldur er 47 ár og meðalforgjöf 24.4 Kvenkylfingar eru 31% af heildinni þar sem meðalaldur er 52 ár og meðalforgjöf 34.5 Börn og unglingar 18 ára og yngri eru 13% af heildinni Fjöldi kylfinga í klúbbum er tæplega 17.000 en samkvæmt skoðannakönnun er áætlað að 58.000 Íslendingar slái golfbolta á ári hverju 70% allra kylfinga á landinu er með forgjöf 18.5 eða hærri. Um 1.550 golfmót eru haldin af 62 golfklúbbbum á hverju ári Hlutverk Golfsambandsins er að......vinna að framgangi golfíþróttarinnar og útbreiðslu hennar á Íslandi....reka öfluga afreksstefnu og styðja klúbbana við þjálfun og uppbyggingu afrekskylfinga....gefa út tímaritið Golf á Íslandi og annað fræðsluefni....reka og halda utan um tölvukerfi hreyfingarinnar, www.golf.is....kynna golf í skólum, fjölmiðlum og annars staðar þar sem því verður við komið....vera ráðgefandi þegar stofnaður er golfklúbbur eða byggður er golfvöllur....veita allar helstu uplýsingar um tölfræði golfsins....þýða og staðfæra forgjafar,- móta- og keppendareglur ásamt golfreglum í samræmi við reglur R&A og EGA....sjá um að allir golfvellir landsins séu metnir samkvæmt vallarmatskerfi USGA og EGA....halda héraðs- og landsdómaranámskeið....bjóða upp á miðlægt tölvukerfi fyrir golfklúbba og hinn almenna kylfing....stuðla að mótahaldi um land allt og bjóða upp á mótaröð fyrir alla aldurshópa....halda Íslandsmót í höggleik, holukeppni og golfklúbba fyrir alla aldursflokka....vera ráðgefandi þegar kemur að uppsetningu valla fyrir mót og almenna golfvallarumhirðu og styðja SÍGÍ sem eru samtök golfvallastarfsmanna....annast erlend samskipti og styðja við afreksmenn og senda þá á alþjóðleg mót....styðja áhugamenn á leið þeirra til atvinnumennsku....skipuleggja alþjóðlega viðburði sem haldnir eru hér á landi....styðja samtökin "Golf Iceland" sem leggja áherslu á fjölgun ferðamanna í golfi....berjast gegn notkun hvers kyns lyfja, efna og aðferða sem bönnuð eru af IOC eða alþjóðlegum sérsamböndum....tryggja drengilega keppni og berjast gegn hvers kyns mismunun í golfíþróttinni....annast samstarf um málefni golfklúbba við sveitarfélög og aðra innlenda hagsmunaaðila....bæta ímynd golfíþróttarinnar gagnvart almenningi og efla samstarf við klúbbana....samræma leikreglur og reglur um forgjöf. 3

Ársskýrsla 2016 Stjórn Golfsambands Íslands 2015-2017 Stjórn golfsambandsins er skipuð sjö einstaklingum í sjálfboðaliðastarfi. Stjórn og forseti eru kosin til tveggja ára í senn á golfþingi. Einnig eru þrír einstaklingar kosnir í varastjórn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skipar í nefndir. Haukur Örn Birgisson Forseti Eggert Ágúst Sverrisson Varaforseti Kristín Guðmundsdóttir Gjaldkeri Hansína Þorkelsdóttir Ritari Bergsteinn Hjörleifsson Meðstjórnandi Jón Júlíus Karlsson Meðstjórnandi Helgi Anton Eiríksson Meðstjórnandi Gunnar Gunnarsson Meðstjórnandi Theódór Kristjánsson Meðstjórnandi Rósa Jónsdóttir Meðstjórnandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Meðstjórnandi Starfsmenn Golfsambands Íslands Brynjar Eldon Geirsson Framkvæmdarstjóri GSM sími: 620-3000 brynjar@golf.is Stefán Garðarsson Markaðsstjóri GSM sími: 663-4656 stebbi@golf.is Sigurður Elvar Þórólfsson Útbreiðslustjóri GSM sími: 864-1865 seth@golf.is Arnar Geirsson Skrifstofustjóri GSM sími: 894-0933 arnar@golf.is Andrea Ásgrímsdóttir Mótastjóri GSM sími: 615-9515 andrea@golf.is Úlfar Jónsson Landsliðsþjálfari GSM sími: 862-9204 ulfar@golf.is Birgir Leifur Hafþórsson Aðstoðarþjálfari GSM sími: 663-3500 biggigolf@gmail.com 4

ÁRSSKÝRSLA 2016 Skýrsla stjórnar Kæru félagar. Þar sem einu besta golfsumri í nokkur ár er nú að ljúka er rétt að líta yfir farinn veg og rifja upp það helsta í starfi Golfsambands Íslands. Stjórn og starfsfólk Stjórn Golfsambands Íslands var þannig skipuð starfsárin 2015-2016: Forseti: Haukur Örn Birgisson GO Aðalstjórn: Eggert Á. Sverrisson GR, varaforseti og formaður fræðslunefndar. Kristín Guðmundsdóttir GÖ, gjaldkeri og formaður fjárhagsnefndar Hansína Þorkelsdóttir GKG, ritari Bergsteinn Hjörleifsson GK, formaður útgáfunefndar Jón Júlíus Karlsson GG, formaður mótanefndar Helgi Anton Eiríksson GSE, formaður afreksnefndar Gunnar Gunnarsson GV, formaður laganefndar Theódór Kristjánsson GM Rósa Jónsdóttir GFB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir GK Þær breytingar voru gerðar á lögum sambandsins á síðasta golfþingi að stjórnarmönnum var fjölgað um einn og nú eru allir stjórnarmenn aðalmenn í stjórn, í stað þriggja varamanna áður. Stjórnin hefur haldið 12 fundi á árinu og hafa þeir allir verið vel sóttir af stjórnarmönnum, sem allir hafa tekið virkan þátt í stjórnarstörfum á árinu. Stjórn hefur haldið áfram uppteknum hætti og birtir allar fundargerðir stjórnarfunda á heimasíðu sambandsins, www.golf. is. Það er m.a. gert í þeirri viðleitni að opna betur sambandið og gera öllum kleift að fylgjast með störfum þess. Tvær megin breytingar voru gerðar á skrifstofu sambandsins á árinu. Í fyrsta lagi þá lét Hörður Þorsteinsson af starfi framkvæmdastjóra í upphafi árs eftir 16 ára starf. Starf framkvæmdastjóra var auglýst og voru umsækjendur tæplega 60 talsins. Að loknu ráðningarferli, sem var í umsjón Hagvangs, var stjórn sambandsins einróma í afstöðu sinni til að ráða Brynjar Geirsson í starfið og hóf hann störf þann 1. mars. Í öðru lagi réði golfsambandið sérstakan mótsstjóra sambandsins og varð Andrea Ásgrímsdóttir PGA kennari fyrir valinu en hún hóf störf í maí. Andrea starfar jafnframt sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi, ásamt því að vera skólastjóri PGA golfkennaraskólans. Aðrir starfsmenn sambandsins voru þeir Arnar Geirsson, kerfis- og skrifstofustjóri, Stefán Garðarsson, markaðs- og kynningarstjóri og Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri. Úlfar Jónsson gegndi starfi landsliðsþjálfara líkt og undanfarin ár og naut liðsinnis Birgis Leifs Hafþórssonar, aðstoðarlandsliðsþjálfara. Þá voru ýmsir aðrir sem komu að landsliðsverkefnum á tímabilinu. Úlfar Jónsson sagði starfi sínu lausu á haustmánuðum og stendur nú yfir leit að nýjum landsliðsþjálfara en áætlað er að viðkomandi hefji störf í upphafi næsta árs. Afreksstarf golfsambandsins hefur tekið miklum framförum í starfstíð Úlfars og eru Úlfari þökkuð frábær störf á undanförnum árum. Samhliða komu nýrra starfsmanna voru gerðar þó nokkrar breytingar á skrifstofurými sambandsins í íþróttamiðstöðinni Laugardal. Markmiðið með breytingunum er að búa til heimili fyrir golfhreyfinguna á Íslandi en PGA samtökin, LEK, Golf Iceland ásamt golfvallahönnuðinum Edwin Rögnvaldssyni hafa nú aðstöðu á skrifstofu sambandsins. Þá býðst öðrum aðilum innan hreyfingarinnar að nýta sér aðstöðuna til fundarhalda. Samskipti innan hreyfingarinnar Stjórn sambandsins hélt uppteknum hætti og heimsótti golfklúbba víðsvegar um landið á árinu. Þessir samráðsfundir með forsvarsmönnum klúbbanna hafa tekist vel og eru mikilvægur liður í góðum samskiptum innan hreyfingarinnar. Þá setti nýr framkvæmdastjóri það einnig á oddinn að heimsækja kollega sína í golfklúbbum landsins. Á vormánuðum stóð golfsambandið fyrir opinni fundarröð með forsvarsmönnum golfklúbba og fóru aðallega fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á fundunum héldu starfsmenn sambandsins erindi fyrir fundarmenn auk þess sem góðar umræður sköpuðust í lok hvers fundar. Til samræmis við breytingar innan EGA á aldursmörkum eldri kylfinga var reglugerðum GSÍ varðandi eldri kylfinga breytt. Nú teljast allir kylfingar 50 ára og eldi til eldri kylfinga og hafa þátttökurétt í slíkum mótum á vegum sambandsins. Samhliða þessum breytingum gerðu Landsamtök eldri kylfinga (LEK) viðeigandi breytingar. Ánægjulegt er að segja frá því að samstarf milli LEK og GSÍ hefur aukist jafnt og þétt undanfarin misseri en bæði samtök stefna að enn meira samstarfi á komandi ári. Kylfingar eldri en 50 ára eru orðnir meirihluti hreyfingarinnar og því mikilvægt að hlúa vel að þessum iðkendum. Stórafmæli Á þessu ári fögnuðu nokkrir golfklúbbar stórafmælum og eru hamingjuóskir til eftirfarandi klúbba áréttaðar. Golfklúbbur Hornafjarðar 45 ára Golfklúbbur Selfoss 45 ára Golfklúbbur Grindavíkur 35 ára Golfklúbbur Sandgerðis 30 ára Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 25 ára Golfklúbburinn Gláma 25 ára Golfklúbbur Húsafells 20 ára Golfklúbburinn Glanni 10 ára Golfklúbburinn Geysi 10 ára 5

Ársskýrsla 2015 Skýrsla stjórnar Útgáfu- og fræðslumál Tímaritið Golf á Íslandi kom út sex sinnum á árinu. Tvær nýjungar voru gerðar á útgáfunni í ár. Í fyrsta lagi var tölublaðið, sem kom út fyrir Íslandsmótið, gefið út á dagblaðsformi og því dreift á 90 þúsund heimili í landinu. Var það gert í þeirri viðleitni að stækka verulega lesendahópinn og ná þannig til fólks sem ekki er skráð í golfklúbba. Blaðið hlaut mikla athygli og var útgáfunefnd ánægð með afraksturinn. Samkvæmt könnunum eru lestur blaðsins mikill en um 45 þúsund lesendur lesa blaðið reglulega. Ritstjórn blaðsins hefur meðvitað fært meiri fókus á hinn almenna kylfing og hafa efnistök í blaðinu tekið breytingum í þá veru, vonandi flestum til ánægju. Í öðru lagi þá hóf sambandið rafræna útgáfu á nýju fréttabréfi sambandsins. Í stefnu golfhreyfingarinnar, sem samþykkt var á Golfþingi árið 2013, var ákveðið að róa á ný mið rafrænnar útgáfu fyrir miðla sambandsins. Upphaflega hugmyndin var að gefa út nokkur rafræn fréttabréf með fréttum úr starfi sambandsins, ætluðum hinum almenna kylfingi, en útgáfan þótti takast vel að fréttabréfin verða um 32 talsins á árinu. Allir félagsmenn með skráð netfang fá fréttabréfið sent til sín. Samhliða rafrænni útgáfu var heimasíðu sambandsins, golf.is, breytt á þann veg að nú þjónar hún auknu fréttahlutverki, ásamt því að allt það helsta úr starfi hreyfingarinnar er sett inn á Facebook síðu sambandsins. Golfsambandið stendur því fyrir lifandi fréttaflutningi í mun meiri mæli en áður sem nær til fleiri lesenda en þess má geta að heimsóknir á golf.is voru samtals 1,7 milljónir á liðnu ári. Golfsambandið hefur látið hanna sérstakt rástíma- og skorkortaforrit fyrir snjallsíma (app). Forritið er að mestu tilbúið og verður prufukeyrt í vetur með það fyrir augum að vera sett í loftið fyrir næsta golftímabil. Á síðasta Golfþingi var samþykkt að skipa sérstaka starfsnefnd sem hefði það hlutverk að fara yfir tölvukerfi sambandsins og skila skýrslu um heildarendurskoðun á tölvukerfum sambandsins. Nefndina skipa þeir Bergsteinn Hjörleifsson, Arnar Geirsson, Guðmundur Óskarsson og Guðmundur Daníelsson. Nefndin hefur starfað allt árið og mun skila skýrslu sinni á þessum formannafundi. Líkt og undanfarin ár gerði golfsambandið samning við RÚV um beina útsendingu frá Íslandsmótinu í golfi auk framleiðslu og sýningu vikulegra þátta um golf. Samningur var gerður til tveggja ára og gildir því út árið 2017. Var þetta gert til að tryggja ákveðinn stöðugleika fyrir samstarfsaðila sambandsins og auka möguleika á því að semja við þá til lengri tíma eins árs í senn. Býður það upp á meiri stöðugleika í fjáröflun sambandsins. Golfþættir RÚV voru í umsjón Hlyns Sigurðssonar þar sem spjótum var fyrst og fremst beint að hinum almenna kylfingi. Íslensku afreksgolfi voru svo gerð skil í íþróttafréttaþáttum sjónvarpsins. Beina útsendingin frá Íslandsmótinu þótti heppnast afar vel og voru flestir sammála um að útsendingin hafi orðið betri með hverju árinu. Samkvæmt mælingum horfa 35 þúsund manns á beinu útsendinguna eða 56% allra sjónvarpsáhorfenda þessa helgi. Það er því óhætt að fullyrða að íslensku afreksgolfi hafi verið komið vel til skila með útsendingunni og að það hafi falið í sér góða auglýsingu fyrir íþróttina. Gripið var til þeirrar nýbreytni árið 2015 að sýna beint frá leik á lokaholu Íslandsmóts unglinga sem þá fór fram á Korpúlfsstaðarvelli. Þótti það takast einstaklega vel og því var ákveðið að halda verkefninu áfram í sumar. Sýnt var beint frá 17. holu lokahringsins á sjónvarpsstöðinni sporttv.is undir lýsingu þula. Er rétt í þessu sambandi að þakka Íslandsbanka fyrir stuðninginn við þetta verkefni og mótahald barna og unglinga. Í samstarfi við Vita ferðir gaf golfsambandið út bækling um leikhraða sem dreift var með golfreglubókinni í upphafi árs. Golfhreyfinginn þarf stöðugt að vera vakandi fyrir bættum leikhraða á golfvöllum landsins og var útgáfa bæklingsins viðleitni í þá veru. Í kjölfar umræðna á formannafundi árið 2014 um breytingu á teigmerkingum valla, stukku nokkrir golfklúbbar á hugmyndina og hrintu henni í framkvæmt. Markmiðið var að hvetja kylfinga til þess að leika af fremri teigum en áður og hafa þannig meiri ánægju af golfleik sínum. Tilraunin hefur gefið góða raun og hafa nú fleiri golfklúbbar tekið upp þessa hugmyndafræði. Ljóst er að enn fleiri munu bætast í hópinn á næsta ári og vill golfsambandið hvetja alla klúbba til þess að kynna sér þessar hugmyndir fyrir næsta ár. Umræðunni um svokölluð GSÍ kort hefur skotist upp reglulega á Golfþingum og formannafundum undanfarin ár og sitt sýnist hverjum um útgáfu þeirra. Á síðasta Golfþingi var samþykkt veruleg breyting á útgáfu kortanna. Hið nýja fyrirkomulag, þar sem allir handhafar greiða kr. 1.500 fyrir hvern leikinn hring hefur reynst vel og vonandi hefur skapast sátt um málið til framtíðar. Karl Ómar Karlsson golfkennari hefur, í samstarfi við golfsambandið, lokið við kennslurit fyrir golfklúbba og leiðbeinendur í barna- og unglingastarfi. Í ritinu er sjónum beint að því hvað klúbbum ber að hafa í huga ef þeir vilja byggja upp öflugt barna- og unglingastarf og hvernig leiðbeinendur og golfkennarar geta staðið að golfkennslu fyrir yngstu kylfingana. Hægt er að nálgast kennsluritið á golf.is og er það öllum aðgengilegt. 6

ÁRSSKÝRSLA 2016 Skýrsla stjórnar Engin mál komu á borð aganefndar eða dómstóla golfsambandsins þetta árið. Nokkur umræða skapaðist á síðasta Golfþingi um hugsanlegar breytingar á forgjafarkerfi EGA í tengslum við mismunandi holufjölda golfvalla. Foseti GSÍ, sem jafnframt á sæti í framkvæmdastjórn EGA, hefur rætt málið á vettvangi EGA og forgjafarnefndar EGA undanfarin misseri. Eins og flestir vita þá hefur staðið yfir vinna undanfarin ár í tengslum við alþjóðlegt forgjafarkerfi (World Handicap System) sem miðar að því að sameina öll forgjafarkerfi heimsins undir einum hatti. Til stendur að ljúka vinnunni á næstu árum og taka í notkun nýtt samræmt kerfi í ársbyrjun 2020. Því miður verður ekki gert ráð fyrir möguleikanum á að leika mismargar holur til forgjafar í hinu nýja kerfi þótt slíkir möguleikar hafi verið ræddir. Er því, eins og sakir standa, ekki líklegt að hægt verði að leika annað en 9 eða 18 holur til forgjafar fyrr en kerfið verður uppfært árið 2024. Golfsamband Íslands mun hins vegar halda áfram að sækja að slíkar breytingar verði gerðar á kerfinu fyrr. Samstarf golfsambandsins við alla helstu fjölmiðla landsins gekk prýðilega á árinu og þegar litið er yfir árið í heild er óhætt að fullyrða að íslensku golfi hafi aldrei verið gerð jafn góð skil í fjölmiðlum. Golfdagar í Kringlunni fóru fram 12.-14. maí og er þetta í fjórða skipti frá árinu 2013 sem golfhreyfingin og Kringlan standa saman að þessum viðburði. Aðsókn hefur verið góð en fjöldi manns lögðu leið sína um Kringluna og gátu þar með kynnt sér það sem íslenskt golf hefur upp á að bjóða. Er hér um að ræða einstakt tækifæri fyrir golfklúbba landsins til að kynna félagsstarf sitt og aðstöðu fyrir nýjum upprennandi kylfingum, sér að kostnaðarlausu. Stelpugolfið var á sínum stað en undanfarin þrjú ár hafa PGA kennaraskólinn og GSÍ staðið fyrir Stelpugolfi á Leirdalsvelli. Árið 2014 mættu yfir 400 stelpur á öllum aldri til að kynnast golfíþróttinni og fá leiðbeiningar frá nemendum PGA kennaraskólans og í fyrra mættu yfir 700 stelpur á viðburðinn. Í ár voru um 500 iðkendur sem mættu til leiks og hefur Stelpugolfið öðlast slíkar vinsældir að aðrir klúbbar á landinu hafa ákveðið að bætast í hópinn. Á þessu ári voru, auk GKG, Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbbur Fjarðarbyggðar sem héldu Stelpugolfdaginn hátíðlegan. Við blasir að fleiri klúbbar munu bætast í hópinn á næstu árum. Nýtt forgjafarkerfi tók gildi 1. janúar með ýmsum breytingum. Ein sú helsta var sú að nú fá nýliðar 54 í forgjöf í stað 36 áður. Þessi nýbreytni er liður í því að fá nýja kylfinga til að smita nýja kylfinga af golf bakteríunni fyrr. Með því að sjá mælanlegar árangur strax frá upphafi aukast líkurnar á því að kylfingurinn haldi áfram iðkun sinni og gerist meðlimur til lengri tíma. Nýbreytnin hefur þó sætt þeirri gagnrýni að hún komi til með að hægja á leikhraða þar sem kylfingar munu síður hætta leik á hverri holu, þar sem þeir fá punkta fyrir að leika holuna á fleiri höggum en áður. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á þessu en ljóst er að þessi breyting hefur mælst vel fyrir hjá nýliðum í golfi. Afreksmál Íslendingar hafa aldrei átt betri eða fleiri afrekskylfinga en nú og það er bjart framundan í íslensku afreksgolfi. Golfsambandið stóð fyrir og styrkti að þessu sinni 93 kylfinga til keppni í alþjóðlegum mótum, samanborið við 118 árið 2015. Árið 2014 voru ferðirnar 86 talsins. Til einföldunar og skýringar má segja að afrekskylfingar hafi farið í 93 keppnisferðir erlendis. Árangur keppenda var góður, sérstaklega í einstaklingsmótum. Vísast til skýrslu landsliðsþjálfara um árangur okkar landsliðsfólks og atvinnukylfinga á árinu. Þó ber sérstaklega að nefna frábæran árangur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, sem stóð upp úr á þessu ári. Í lok síðasta árs, á sínu fyrsta ári sem atvinnukylfingur, tókst Ólafíu að tryggja sér fullan þátttökurétt á Ladies European Tour og lék hún á þeirri mótaröð í ár. Hún hefur staðið sig einstaklega vel í þeim mótum sem hún hefur haft þátttökurétt í en frammistaða hennar í Abu Dhabi á dögunum fór ekki framhjá neinum. Forskot, afrekssjóður kylfinga, hélt áfram göngu sinni á þessu ári en öll fyrirtækin sem stofnuðu sjóðinn ákváðu í lok síðasta árs að halda samstarfinu áfram. Í Forskotsfjölskylduna bættist síðan tryggingafélagið Vörður. Golfsamband Íslands ásamt Íslandsbanka, Eimskip, Valitor, Icelandair Group og Verði standa því nú að sjóðnum og leggur hver aðili sjóðnum til 3,5 milljónir króna á hverju ári. Sjóðurinn hefur reynst okkar fremsta afreksfólki gríðarlega mikilvægur í viðleitni þeirra að komast á erlendar atvinnumannaraðir en á hverju ári er 21 milljón úthlutað úr sjóðnum til okkar fremstu kylfinga. Mennta- og menningarmálaráðurneytið undirritaði á árinu nýjan samning við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem felur í sér stóraukin framlög til íslenskra afreksíþróttamanna. Samningurinn felur í sér að framlög ríkisins til afreksíþrótta munu hækka úr 100 milljónum í 400 milljónir króna á næstu þremur árum. Golfsamband Íslands hefur, undanfarin ár, fengið um 5,3 milljónir (5,3%) úr sjóðnum þrátt fyrir að vera 17% af íþróttahreyfingunni, miðað við félagafjölda. Það er því ljóst að mikil tækifæri eru til staðar í framtíðinni fyrir golfhreyfinguna að sækja aukið fé til ÍSÍ fyrir íslenska afrekskylfinga. Mótahald Á síðasta Golfþingi var samþykkt ný og endurbætt stefna fyrir Eimskipsmótaröðina. Stefnan var afrakstur mikillar vinnu sem fjölmargir komu að en til stendur að koma hugmyndum stefnunnar í framkvæmd á 7

Ársskýrsla 2016 Skýrsla stjórnar næstu árum. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til og voru keppendur ánægðir með breytingarnar. Á þessu ári tóku 192 keppendur þátt í Eimskipsmótaröðinni á árinu en þátttakendur voru 206 í fyrra, sem var mesta þátttaka frá því Eimskip varð aðalsamstarfsaðili golfsambandsins. Þessa lítilsháttar fækkun má hugsanlegra rekja til þess að markmið mótaraðarinnar var að fá sterkari kylfinga til leiks með því að lækka forgjafarviðmiðin og takmarka þátttökufjölda í tveimur af síðustu mótum tímabilsins. Mótum á mótaröðinni var fjölgað úr sex í átta talsins. Eflaust er margt á mótaröðinni sem enn má bæta en mikilvægt er að halda áfram vinnunni og trúa á hugmyndirnar. Þær eru margar nýstárlegar og þurfa að fá að þróast og festa sig í sessi. Hugmyndin um final four þóttist heppnast vel en hún gerði það jafnframt að verkum að áhugi samstarfsaðila vaknaði við að koma að mótahaldinu með sterkari hætti en áður. Í fyrsta sinn í sögunni var boðið upp á peningaverðlaun á mótaröðinni, að því gefnu að stigameistararnir væru atvinnukylfingar. Í karlaflokki var það atvinnukylfingurinn Axel Bóasson sem safnaði flestum stigum og fór hann heim með hálfa milljón króna í verðlaunafé. Þá voru nokkrir erlendir atvinnukylfingar sem tóku þátt í lokamóti mótaraðarinnar í Grafarholtinu en sigurvegari í flokki atvinnukylfinga fékk kr. 250.000 kr. í sinn hlut en það var Axel Bóasson sem einnig hreppti þá ávísun. Þá er það sérstakt gleðiefni að golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að koma með ríkari hætti að mótahaldinu en þeir hafa ekki verið nógu iðnir við mótahald á Eimskipsmótaröðinni undanfarin ár. Allt horfið það hins vegar til betri vegar og því ber að fagna, enda koma langflestir keppendur á mótaröðinni frá þessum klúbbum. Íslandsmeistarar í höggleik 2016: Birgir Leifur Hafþórsson GKG og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR Ákveðið var að breyta hinni hefðbundnu sveitakeppni og var hún færð framar á tímabilinu. Þá var nafni keppninnar einnig breytt í Íslandsmót golfklúbba, að lokinni nafnasamkeppni þar sem tæplega 200 tillögur bárust. Íslandsmeistari í kvennaflokki varð sveit GR en í karlaflokki var þar GK sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum. Var þetta í 17. sinn sem GR sigrar í kvennaflokki og í 14. sinn sem GK sigrar í karlaflokki. Hápunktur Eimskipsmótaraðarinnar var sjálft Íslandsmótið í golfi sem haldið var á Akureyri eftir 16 ára hlé. Akureyringar sýndu það og sönnuðu að þeir kunna að halda golfmót en félagsmenn í Golfklúbbi Akureyrar tóku á móti öllum bestu kylfingum landsins þegar Íslandsmótið í golfi fór fram á Jarðarsvelli. Framkvæmd mótsins var frábær og kunnu kylfingar virkilega að meta gestrisni norðanmanna. Íslandsmeistarar urðu Birgir Leifur Hafþórsson GKG og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR. Golfsambandið færir félagsmönnum í Golfklúbbi Akureyrar bestu þakkir fyrir vinnu þeirra og framlag til mótsins. Íslandsbankamótaröðin var að sjálfsögðu á sínum stað en keppt var í 12 mótum vítt og breitt um landið, að Áskorendamótaröðinni meðtalinni. Afar skemmtilegt og fjölmennt lokahóf var haldið hjá GKG að loknu Íslandsmótinu þar sem einnig mættu keppendur úr Áskorendamótaröðinni. Á árinu hafa átt sér stað viðræður um breytingar á Íslandsbankamótaröðinni en til stendur að ljúka þeirri vinnu í vetur í samstarfi við PGA. Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í opna sænska meistaramóti fatlaðra. Þau Sveinbörn Guðmundsson, Elín Ólafsdóttir, Þóra María Fransdóttir, öll kylfingar úr GK, stóðu sig einstaklega vel í mótinu Sveinbjörn og Elín gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í sínum flokki á meðan Þóra hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki. Kylfingarnir fengu allir styrk úr minningarsjóði Harðar Barðdal vegna þátttöku sinnar í mótinu. Á síðustu tveimur árum hafa farið fram tvö stór alþjóðleg mót hér á landi. Í fyrra var leikið á Smáþjóðaleikunum, hvar Íslendingar nánast einokuðu verðlaunapallana. Í sumar mættu allir bestu kvenkylfingar álfunnar til landsins til að keppa á Evrópumóti kvennalandsliða. Mótið er liður í mótahaldi EGA og mættu 20 lið til leiks. Þetta er stærsta golfmót sem haldið hefur verið hér á landi en skemmst er frá því að segja að mótið heppnaðist einstaklega vel. Kylfingar léku Urriðavöll í einstöku veðri og við frábærar aðstæður. Félagsmenn í Golfklúbbnum Oddi önnuðust framkvæmd mótsins. Við höfum sýnt það og sannað að Íslendingar kunna að halda golfmót í hæsta gæðaflokki og því einungis spurning um vilja okkar, hvenær við kjósum að taka á móti næsta móti. En talandi um alþjóðleg stórmót. Einn íslenskur kylfingur fékk þann einstaka heiður fyrr á þessu ári að vera boðin þátttaka á einu frægasta golfmóti heims. Hörður Geirsson alþjóðadómari úr GK var boðið að dæma á Opna breska meistaramótinu sem fram fór á Royal Troon vellinum í júlí. Hörður er fyrsti Íslendingur sem dæmir í mótinu og óskar sambandið 8

ÁRSSKÝRSLA 2016 Skýrsla stjórnar honum innilega til hamingju með þennan heiður og þá dýrmætu reynslu sem hann öðlaðist með þátttöku sinni. Rekstur sambandsins er góður Rekstraráætlun golfsambandsins gerði ráð fyrir smávægilegum hagnaði á árinu en árangurinn fór fram úr væntingum. Hagnaður sambandsins á árinu var 3,7 milljónir króna og heildarvelta 182 milljónir króna, samanborið við 151 milljónir króna á síðasta ári. Það felur í sér 21% veltuaukningu milli ára. Stjórn sambandsins er afar stolt af þessum árangri, sem vissulega má rekja til fjölgunar félagsmanna í hreyfingunni en ekki síður mikillar vinnu við öflunar nýrra samstarfsaðila. Tveir nýir aðalsamstarfsaðilar bættust í hópinn á þessu ári; Borgun og Bílaumboðið Bernhard. Þá bættst KPMG í hóp samstarfsaðila á Eimskipsmótaröðinni auk þess sem fjöldi annarra samstarfsaðila bættist í hópinn með öðrum hætti. Stjórnarmenn sambandsins tóku virkari þátt í fjáröflun sambandsins en áður hefur þekkst og bar það mikinn ávöxt. Þá er gaman að segja frá því að 12 milljónir króna hafa safnast til hreyfingarinnar frá opinberum aðilum á síðustu tveimur árum, bæði í tengslum við Íslandsmótið í golfi og Evrópumót kvennalandsliða. Þetta eru fjármunir sem ekki hafa áður verið sóttir af golfhreyfingunni til opinberra aðila en þeir hafa komið sér virkilega vel í metnaðarfullu starfi hreyfingarinnar. Stjórn golfsambandsins reynir ávallt að sýna varkárni og aðhald í rekstri og er það stefna stjórnar að eigið fé sambandsins verði ekki lægra en 15-20% af heildargjöldum þess á hverjum tíma til að tryggja að hægt sé að taka við óvæntum áföllum og er ánægjulegt að sjá að við nálgumst það markmið. Þá er það jafnframt langtímamarkmið sambandsins að auka sértekjur sambandsins þannig að hlutfall tekna af félagagjöldum lækki niður í þriðjung. Eins og undanfarin ár var Eimskipafélag Íslands okkar helsti bakhjarl í tengslum við mótahald þeirra bestu og er það mikilvægt fyrir okkur í íþróttahreyfingunni að hafa svo öfluga bakhjarla, því án þeirra væri erfitt að koma íþróttinni á framfæri. Aðrir megin samstarfsaðilar sambandsins eru Ölgerðin, Síminn, KPMG, Icelandair, Borgun, Securitas, Bernhard, Nýherji, Íslandsbanki, Vörður og Zo On. Frábært ár að baki Eitt besta ár golfhreyfingarinnar í langan tíma er nú að líða undir lok. Eftir stöðnun í fjölgun kylfinga undanfarin tvö ár, er íslenskum kylfingum aftur farið að fjölga og nemur fjölgunin 2%. Í dag eru skráðir kylfingar 16.823 talsins og hafa þeir aldrei verið fleiri. Til samanburðar eru skráðir iðkendur innan knattspyrnuhreyfingarinnar 22.000 talsins. það er vissulega áhyggjuefni og við því verður öll golfhreyfingin að bregðast í sameiningu. Íslenskir kylfingar eru að eldast en nú eru 55% allra kylfinga 50 ára eða eldri. Meðalaldur karlkylfinga er 46 ár á meðan meðalaldur kvenkylfinga er 52 ár. Árið 2008 voru börn undir 16 ára aldri 1.372 talsins en þeim hafði fjölgað í 1.727 árið 2015 eða um 26% á aðeins sjö árum. Börnin eru kylfingar framtíðarinnar og því er mikilvægt fyrir golfklúbba landsins að taka vel á móti þeim og fjárfesta af krafti í barna- og unglingastarfi. Íslensk golfhreyfing stendur frammi fyrir fjölmörgum sóknartækifærum á næstu árum og þau tækifæri þarf að nýta vel. Eitt tækifærið felst í komu erlendra ferðamanna á íslenska golfvelli. Íslandi þarf að koma á kortið sem raunverulegum áfangastað erlendra kylfinga. Unnið hefur verið markvisst að þessu undanfarin ár og hafa samtökin Golf Iceland staðið sig vel í markaðssetningu erlendis. Í dag eru 16 golfklúbbar í samtökunum og þar af hafa fjórir þeirra haldið vel utan um tölfræði í tengslum við heimsóknir erlendra kylfinga. Í fyrra voru leiknir 875 hringir á þessum völlum en í ár voru þeir orðnir 1.443. Þetta er 65% aukning á milli ára. Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þessara kylfinga fyrir rekstrarafkomu íslenskra golfklúbba. Ísland er einstök golfparadís og hreyfingin má, með markvissari hætti, sækja á ný mið hvað þetta varðar. Með þátttöku golfíþróttarinnar í Ólympíuleikunum felast einnig tækifæri, fyrst og fremst í aukinni útbreiðslu íþróttarinnar og kynningu. Í dæmaskyni má nefna að frá því ákveðið var að golf yrði Ólympíuíþrótt þá fjölgaði aðildarþjóðum að Alþjóða golfsambandinu (IGF) úr 104 í 147. Golfið verður á sínum stað á Ólympíuleikunum í Japan að fjórum árum liðnum og mikilvægt er að nýta til fulls þau tækifæri sem bjóðast vegna þess, t.a.m. með þátttöku íslenskra kylfinga á leikunum. Golfíþróttin hefur rækilega fest sig í sessi hér á landi og er næst fjölmennasta íþrótt landsins. Á næsta ári fagnar Golfsamband Íslands 75 ára afmæli sínu og í tilefni þess vill golfsambandið efna til markaðsátaks fyrir golfhreyfinguna. Til þessa hefur sambandið ekki farið í sameiginlegt markaðsátak en ljóst er að íslenskir golfvellir og golfklúbbar hafa upp á mikið að bjóða fyrir vætanlega kylfinga á öllum aldri. Að lokum vill stjórn Golfsambands Íslands þakka öllum forsvarsmönnum golfklúbba og sjálfboðaliðum þeirra fyrir samstarfið á árinu. Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands. En þrátt fyrir fjölgun þá eru engu að síður hættumerki á lofti. Þótt kylfingum yfir 50 ára hafi fjölgað um 13% þá fækkaði kylfingum undir 22 ára um 7% - 9

Golfsamband Íslands Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Reykjavík Ársreikningur fyrir starfsárið 2016

12

ÁRSSKÝRSLA 2016 Áritun stjórnar og framkvæmdarstjóra Stjórn og framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands staðfesta hér með ársreikning sambandsins fyrir starfsárið 1. október 2015 til 30. september 2016 með undirritun sinni. Áritun endurskoðenda Við höfum kannað meðfylgjandi ársreikning Golfsambands Íslands fyrir starfsárið 1. október 2015 til 30. september 2016. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sundurliðanir nr. 1-11. Við könnun okkar kom ekkert það fram sem bendir til annars en að reikningsskilin séu áreiðanleg og samin í samræmi við lög og reglur sem um starfsemina gilda. 13

Ársskýrsla 2016 Rekstrarreikningur 1. október 2015-30. september 2016 Rekstrartekjur Árið Áætlun Árið Skýr. 2016 2016 2015 Útgáfusvið... 46.200.714 39.500.000 37.612.009 Samstarfsaðilar... 27.272.139 23.000.000 21.813.728 Styrkir og framlög... 1 33.076.492 31.000.000 27.668.607 Styrkir vegna EM kvenna... 3.000.000 5.000.000 Árgjöld félaga... 72.916.800 68.232.000 64.147.600 Rekstrartekjur 182.466.145 166.732.000 151.241.944 Rekstrargjöld Útgáfusvið... 2 42.124.324 35.700.000 34.819.598 Afrekssvið... 3 36.954.076 35.800.000 39.346.356 Mótasvið... 4 33.248.979 32.310.000 23.895.222 Fræðslusvið... 4.562.392 7.000.000 4.234.765 Alþjóðasvið... 5.750.060 5.000.000 4.607.669 Þjónustusvið... 5 24.305.092 24.380.000 22.085.981 Stjórnunarsvið... 6 32.259.020 25.080.000 23.808.641 Rekstrargjöld 179.203.943 165.270.000 152.798.232 Vextir Rekstrarhagnaður/(tap) 3.262.202 1.462.000 (1.556.288) Vaxtagjöld og gengismunur... (186.754) (200.000) (88.788) Vaxtatekjur... 289.636 400.000 311.692 Vextir 102.882 200.000 222.904 Aðrar tekjur og gjöld Gjöld umfram tekjur 3.365.084 1.662.000 (1.333.384) Grasvallarsjóður... 1.519.100 1.421.500 1.459.700 Árgjald í STERF... (1.133.425) (1.400.000) (1.635.843) Aðrar tekjur og gjöld 385.675 21.500 (176.143) Heildarafkoma 3.750.759 1.683.500 (1.509.527) Samanburðartölum fyrra árs og í áætlun hefur verið breytt til samræmis við uppgjörsaðferðir þessa árs. 14

ÁRSSKÝRSLA 2016 Efnahagsreikningur 30. september 2016 Eignir: Skýr. 30.09.2016 30.09.2015 Veltufjármunir Skammtímakröfur... 7 10.963.101 19.460.607 Handbært fé... 29.894.943 16.364.040 Veltufjármunir 40.858.044 35.824.647 Skuldir og eigið fé: Eigið fé Eignir alls 40.858.044 35.824.647 Óráðstafað eigið fé... 8 24.933.193 21.568.109 Eigið fé grasvallarsjóðs... 8 61.669 (324.006) Eigið fé 24.994.862 21.244.103 Skammtímaskuldir Viðskiptaskuldir... 9 9.126.459 9.057.963 Ýmsar skuldir... 10 6.736.723 5.522.581 Skammtímaskuldir 15.863.182 14.580.544 Skuldir og eigið fé alls 40.858.044 35.824.647 15

Ársskýrsla 2016 Sundurliðanir 1. Styrkir og framlög Sundurliðanir Árið Áætlun Árið 2016 2016 2015 ÍSÍ, lottó... 15.347.683 14.000.000 12.849.260 Útbreiðslustyrkur ÍSÍ... 3.238.824 4.000.000 3.550.729 Afreksmannasjóður ÍSÍ... 6.300.000 5.000.000 4.400.000 Opinberir styrkir... 3.895.000 5.000.000 4.095.000 R&A... 4.294.985 3.000.000 2.773.618 Styrkir og framlög 33.076.492 31.000.000 27.668.607 2. Útgáfusvið Framleiðslukostnaður... 16.438.521 12.000.000 15.767.650 Dreifing... 8.233.576 6.100.000 5.845.597 Launakostnaður... 16.185.518 16.350.000 11.978.238 Annar kostnaður... 1.266.709 1.250.000 1.228.113 Útgáfusvið 42.124.324 35.700.000 34.819.598 3. Afrekssvið Stjórnunarkostnaður... 12.546.162 9.700.000 10.627.168 Keppnis-og æfingaferðir... 14.080.510 15.400.000 17.767.538 Forskot... 3.500.000 3.500.000 3.500.000 Annar kostnaður... 6.827.404 7.200.000 7.451.650 Afrekssvið 36.954.076 35.800.000 39.346.356 4. Mótasvið Mótahald, greitt til klúbba... 5.000.000 5.000.000 4.000.000 Launakostnaður... 7.308.606 7.610.000 5.523.345 Annar mótakostnaður... 11.427.348 9.700.000 8.371.877 Evrópumót kvenna... 3.000.000 5.000.000 Framleiðsla og útsendingar... 6.513.025 5.000.000 6.000.000 Mótasvið 33.248.979 32.310.000 23.895.222 5. Þjónustusvið Rekstur tölvukerfis... 13.945.280 12.200.000 10.807.633 Launakostnaður... 7.852.238 7.680.000 7.178.299 Vallarmat... 267.698 1.000.000 1.030.039 Framlög til samtaka o.fl... 2.239.876 3.500.000 3.070.010 Þjónustusvið 24.305.092 24.380.000 22.085.981 6. Stjórnunarsvið Laun og launatengd gjöld... 18.952.749 14.480.000 14.205.827 Skrifstofukostnaður... 6.389.807 5.250.000 4.179.631 Fundir og ráðstefnur... 3.969.087 2.750.000 2.679.385 Markaðskostnaður... 2.183.240 2.600.000 2.548.303 Hækkun niðurfærsla viðskiptak... 764.137 0 195.495 Stjórnunarsvið 32.259.020 25.080.000 23.808.641 16

ÁRSSKÝRSLA 2016 Sundurliðanir 7. Viðskiptakröfur Árið Árið 2016 2015 Félagsgjöld... 1.102.356 1.082.300 Auglýsingar... 6.604.206 12.700.511 ÍSÍ viðskiptareikningur... 3.545.679 6.366.936 Fyrirfram greiddur kostnaður... 400.000 Niðurfærsla viðsk.krafna... (689.140) (689.140) Viðsk.kröfur 10.963.101 19.460.607 8. Óráðstafað eigið fé Staða 1. október... 21.568.109 22.901.493 Rekstrarafgangur ársins... 3.365.084 (1.333.384) Óráðstafað eigið fé 24.933.193 21.568.109 Grasvallarsjóður frá fyrra ári... (324.006) (147.863) Óráðstafað umfram framl. ársins... 385.675 (176.143) Eigið fé grasvallarsjóðs 61.669 (324.006) 9. Viðskiptaskuldir Visa... 1.727.986 325.043 Aðrir lánardrottnar... 7.398.473 8.732.920 Viðskiptaskuldir 9.126.459 9.057.963 10. Ýmsar skuldir Virðisaukaskattur... 3.043.020 3.704.154 Ógr.kostnaður... 963.092 Staðgr og launatengd gjöld... 2.730.611 1.818.427 Ýmsar skuldir 6.736.723 5.522.581 11. Launagreiðslur Heildarlaunagreiðslur... 57.028.547 45.267.943 Fært á afrekssvið... (6.729.436) (6.382.234) Fært á mótasvið... (7.308.606) (5.523.345) Fært á útgáfusvið... (16.185.518) (11.978.238) Fært á þjónustusvið... (7.852.238) (7.178.299) Fært á stjórnunarsvið 18.952.749 14.205.827 Samanburðartölum fyrra árs og í áætlun hefur verið breytt til samræmis við uppgjörsaðferðir þessa árs 17

Ársskýrsla 2016 18

Golfsamband Íslands Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Reykjavík Rekstraráætlun 2017

20

ÁRSSKÝRSLA 2016 Rekstraráætlun 2017 Áætlun Árið Árið Skýr. 2017 2016 2015 Rekstrartekjur Útgáfusvið... 40.545.000 46.200.714 37.612.009 Samstarfsaðilar... 32.255.000 27.272.139 21.813.728 Styrkir og framlög... 1 34.295.000 33.076.492 27.668.607 Styrkir vegna EM kvenna... 3.000.000 Árgjöld félaga... 72.573.900 72.916.800 64.147.600 Rekstrartekjur 179.668.900 182.466.145 151.241.944 Rekstrargjöld Útgáfusvið... 2 37.461.073 42.124.324 34.819.598 Afrekssvið... 3 40.175.000 36.954.076 39.346.356 Mótasvið... 4 31.600.000 33.248.979 23.895.222 Fræðslusvið... 5 7.875.000 4.562.392 4.234.765 Alþjóðasvið... 5 6.200.000 5.750.060 4.607.669 Þjónustusvið... 6 25.420.000 24.305.092 22.085.981 Stjórnunarsvið... 7 29.441.711 32.259.020 23.808.641 Rekstrargjöld 178.172.784 179.203.943 152.798.232 Vextir Rekstrarhagnaður/(tap) 1.496.116 3.262.202 (1.556.288) Vaxtagjöld... (100.000) (186.754) (88.788) Vaxtatekjur... 300.000 289.636 311.692 200.000 102.882 222.904 Aðrar tekjur og gjöld Tekjur umfram gjöld 1.696.116 3.365.084 (1.333.384) Grasvallarsjóður... 1.481.123 1.519.100 1.459.700 Útgjöld grasvallarsjóðs... (1.200.000) (1.133.425) (1.635.843) 281.123 385.675 (176.143) Heildarafkoma 1.977.239 3.750.759 (1.509.527) Samanburðartölum 2015 hefur verið breytt til samræmis við uppgjörsaðferðir þessa árs og áætlun 2017. 21

22

ÁRSSKÝRSLA 2016 Sundurliðanir Áætlun Árið Árið 2017 2016 2015 1. Styrkir og framlög ÍSÍ, lottó... 15.000.000 15.347.683 12.849.260 Útbreiðslustyrkur ÍSÍ... 3.500.000 3.238.824 3.550.729 Afreksmannasjóður ÍSÍ... 10.000.000 6.300.000 4.400.000 Opinberir styrkir... 3.895.000 3.895.000 4.095.000 R&A... 1.900.000 4.294.985 2.773.618 Styrkir og framlög 34.295.000 33.076.492 27.668.607 2. Útgáfusvið Framleiðslukostnaður... 13.639.473 16.438.521 15.767.650 Dreifing... 6.260.000 8.233.576 5.845.597 Launakostnaður... 16.961.600 16.185.518 11.978.238 Annar kostnaður... 600.000 1.266.709 1.228.113 Útgáfusvið 37.461.073 42.124.324 34.819.598 3. Afrekssvið Stjórnunarkostnaður... 15.250.000 12.546.162 10.627.168 Keppnis-og æfingaferðir... 14.800.000 14.080.510 17.767.538 Forskot - Afrekssjóður... 3.500.000 3.500.000 3.500.000 Annað kostnaður... 6.625.000 6.827.404 7.451.650 Afrekssvið 40.175.000 36.954.076 39.346.356 4. Mótasvið Mótahald, greiðslur til klúbba... 5.000.000 5.000.000 4.000.000 Launakostnaður... 9.800.000 7.308.606 5.523.345 Annar mótakostnaður... 10.800.000 11.427.348 8.371.877 Evrópumót kvenna... 3.000.000 Framleiðsla og útsendingar... 6.000.000 6.513.025 6.000.000 Mótasvið 31.600.000 33.248.979 23.895.222 5. Þjónustusvið Rekstur tölvukerfis... 14.100.000 13.945.280 10.807.633 Launakostnaður... 8.220.000 7.852.238 7.178.299 Vallarmat... 1.000.000 267.698 1.030.039 Framlög til samtaka ofl... 2.100.000 2.239.876 3.070.010 Þjónustusvið 25.420.000 24.305.092 22.085.981 6. Stjórnunarsvið Laun og launatengd gjöld... 14.951.711 18.952.749 14.205.827 Skrifstofukostnaður... 6.840.000 6.389.807 4.179.631 Fundir og ráðstefnur... 4.600.000 3.969.087 2.679.385 Markaðskostnaður... 3.050.000 2.183.240 2.548.303 Niðurfærsla viðsk.krafna... 0 764.137 195.495 Stjórnunarsvið 29.441.711 32.259.020 23.808.641 Samanburðartölum 2015 hefur verið breytt til samræmis við uppgjörsaðferðir þessa árs og áætlun 2017. 23

Ársskýrsla 2016 Staða og þróun golfhreyfingarinnar Í nokkur ár hefur Golfsambandið tekið saman tölfræði og lykiltölur fyrir klúbba, samstarfsaðila og aðra hagsmunaaðila. Þessar tölur hjálpa hagsmunaaðilum að átta sig betur á umhverfinu sem þeir búa við. Eftirspurnin í golf á síðustu árum hefur verið mikil. Kylfingar hafa aldrei verið fleiri en nú og eru 16.820 skráðir í golfklúbba víð svegar um landið. Þetta er aukning um tæplega 400 kylfinga frá í fyrra. Fjölgunin er hvað mest í golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesinu. Gott veðurfar, aukin markaðssetning og fjölbreyttara framboð á félagaaðild gætu verið líklegar skýringar á fjölguninni. Capacent framkvæmir árlega neyslu- og lífstílskönnun þar sem fram kemur að um 58.000 Íslendingar fara í golf a.m.k. einu sinni á ári. Það má því segja að áætlaður fjöldi kylfinga sé þrefalt meiri en þeir sem eru skráðir í klúbba. Þegar rýnt er í tölurnar þá kemur í ljós að aukningin er mest hjá fólki sem er 50 ára og eldra en sá hópur stækkar um heil 13% milli ára. Á móti er fækkun í hópi fólks 22-49 ára og nemur fækkunin um 7%. Einnig fækkar börnum og unglingum yngri en 14 ára um 12%. Forgjafarkerfið er þannig uppbyggt að forgjöf kylfinga á að endurspegla mögulega besta árangur viðkomandi. Með öðrum orðum að á þeim degi detta púttin loksins niður og allt gengur upp. Samkvæmt þessu er litið á að ná 36 punktum sem óvenjulega gott skor. Einn af hverjum 10 kylfingum er með forgjöf í forgjafarflokkum 1 og 2 (til 11,4). Kylfingar með forgjöf frá 18.5 til 54 eru 70% allra kylfinga á landinu. Forgjöf Samtals % undir 4,4 312 2% 4,5 til 11,4 1.513 9% 11,5 til 18,4 3.209 19% 18,5 til 26,4 4.048 24% 26,5 til 36,0 4.161 25% 36,1 til 54 3.580 21% Aldur Karlar Konur Samtals 9 ára og yngri 300 171 471 4.500 10 til 19 ára 1.347 436 1.783 4.000 20 til 29 ára 930 118 1.048 3.500 30 til 39 ára 1.221 213 1.434 3.000 40 til 49 ára 2.063 759 2.822 2.500 50 til 59 ára 2.547 1.589 4.136 2.000 60 ára og eldri 3.243 1.886 5.129 1.500 Samtals 11.651 5.172 16.823 1.000 Í dag eru 55% allra kylfinga eldri en 50 ára og í þeim aldurshópi eru flestir nýliðarnir. Þar sem færri nýliðar undir 50 ára byrja í golfi má segja að meðalaldur kylfinga sé að hækka verulega hér á landi. 500 0 36,1 til 54 26,5 til 36,0 18,5 til 26,4 Konur 11,5 til 18,4 Karlar 4,5 til 11,4 undir 4,4 24

ÁRSSKÝRSLA 2016 Staða og þróun golfhreyfingarinnar Eftirspurnin í golf á síðustu 16 árum hefur verið gríðarleg. Í samanburði við árið 2000 þá hefur kylfingum fjölgað um rúmlega átta þúsund og því nær tvöfaldast á þessu tímabili. Á árunum 2000 til 2005 má segja að árlega hafi fjölgun kylfinga verið um 12%, en síðustu fimm ár hefur aukningin verið að meðaltali um 1%. Ár 15 ára og yngri 16 ára og eldri Samtals % 2000 1.000 7.500 8.500 19% 2001 1.546 8.366 9.912 17% 2002 1.505 9.430 10.935 10% 2003 1.559 10.050 11.609 6% 2004 1.455 10.810 12.265 6% 2005 1.674 12.259 13.927 14% 2006 1.405 12.794 14.199 2% 2007 1.124 12.913 14.037-1% 2008 1.452 13.289 14.741 5% 2009 1.534 13.995 15.529 5% 2010 1.696 14.089 15.785 2% 2011 1.697 14.357 16.054 2% 2012 1.644 14.997 16.641 4% 2013 1.510 15.092 16.602 0 Í hvað fer félagagjaldið? Allir kylfingar 16 ára og eldri, sem skráðir eru í golfklúbb innan GSÍ, greiða 4.800 krónur í félagagjald til Golfsambandsins og 100 kr. í grasvallarsjóð. Þótt kylfingur sé skráður í fleiri en einn klúbb þá greiðir hann einungis eitt gjald til Golfsambandsins og sér aðalklúbbur hans um að innheimta gjaldið. Kylfingar 15 ára og yngri greiða ekkert félagagjald til golfsambandsins. Árið 2016 skilaði félagagjaldið Golfsambandinu rúmlega 74 milljónum í tekjur. Að auki komu styrkir frá ÍSÍ og opinberum aðilum upp á 36 milljónir og fyrirtækjum upp á 73 milljónir. Tekjur sambandsins voru því tæplega 184 milljónir árið 2016. Tekjur sambandsins af félagagjöldum jukust um 4.5 milljónir umfram það sem gert var ráð fyrir í rekstraráætlun fyrir 2016. Að auki jukust tekjur af samstarfsaðilum um 11 milljónir. Hér að neðan er einföldun og sundurliðun tekna og gjalda úr ársreikningi GSÍ fyrir árið 2016. Tekjur Upphæð % Félagagjöld 74.435.900 40% Samstarfsaðilar 73.472.853 40% Styrkir 36.076.492 20% 2014 1.360 15.011 16.371-1% 2015 1.873 14.564 16.437 0% 2016 1.663 15.160 16.823 2% 18.000 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 15 ára og yngri 16 ára og eldri Gjöld Upphæð % Miðlar GSÍ 42.124.324 23% Stjórnunarkostnaður 28.289.933 16% Mótahald 26.735.954 15% Afrekskylfingar 24.407.914 14% Tölvukerfi 21.797.518 12% Þjálfun afrekssviðs 12.546.162 7% Sjónvarpskostun 6.513.025 4% Alþjóðaþátttaka 5.750.060 3% Fræðsla og golfreglur 4.562.392 3% Fundir og ráðstefnur 3.969.087 2% Framlög til samtaka 2.507.574 1% Grasvallarsjóður 1.133.425 1% 25

Ársskýrsla 2016 Golf Iceland - samtök golfklúbba og ferðaþjónustuaðila Golf Iceland eru samtök golfklúbba og ferðaþjónustuaðila, sem hafa það að markmiði að kynna möguleika til golfs á Íslandi fyrir erlendum söluaðilum golfferða, almennum kylfingum og fjölmiðlum. Í samtökunum eru nú 16 golfklúbbar og 10 ferðaþjónustufyrirtæki (flugfélög, hótel, ferðaskrifstofur og bílalaeiga) auk GSÍ og Ferðamálastofu. Samtökin vinna hefðbundið að kynningarstarfinu með bæklingaútgáfu, rekstri vefsíðu, auk þátttöku í ferðasýningum, með beinum auglýsingum auk fjölmiðlatengsla. Golf Iceland vinnur eðlilega fyrst og fremst að kynningu sinna meðlima gagnvart þessum aðilum og eru t.d. eingöngu meðlimir kynntir í öllu kynningarefni, á vefnum svo og á ferðasýningum og víðar. Þá eru samtökin og golfvellir innan samtakanna meðlimir í alþjóðasamstökunum IAGTO, þar sem þau hafa aðgang að hundruðum söluaðila golfferða og koma sér þar á framfæri gagnvart þeim. Samtökin eru fjármögnuð með félagsgjöldum meðlima auk opinberra styrkja. Þó verulega skorti á að tölfræðin varðandi heimsóknir erlendra kylfinga á velli innan samtakanna sé áreiðanleg þá er ljóst að verulegur og stöðugur vöxtur hefur verið í spili erlendra kylfinga á Íslandi á undanförnum árum. Af þeim 16 golfvöllum,sem eru meðlimir í Golf Iceland eru fjórir, sem hafa haldið nákvæma talningu á milli ára þannig að þar er hægt að sjá breytingarnar vel. Þeir fjórir klúbbar eru einnig ákveðinn þverskurður af meðlimunum: Einn 9 holu völlur og þrír 18 holu vellir. Tveir þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu og tveir á landsbyggðinni Alls hafa þessir fjórir klúbbar selt erlendum kylfingum 1581 hring nú í lok tímabils miðað við 979 í fyrra. Um er að ræða 61% aukningu milli ára. Erfitt er að yfirfæra þessar tölur á þá 16 velli sem eru í samtökunum eða aðra velli utan samtakanna, en upplýsingar úr könnunum Ferðamálastofu meðal erlendra kylfinga sýndu sumarið 2015 að um 3.000 erlendir gestir sögðust hafa keypt golfhring og um þriðjungur þeirra sagðist hafa keypt fleiri en 5 hringi og um 20 % 2-3 hringi. Miðað við þessar tölur úr könnuninni er ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir að erlendir gestir hafi keypt 8.000 golfhringi sumarið 2015. Ekki eru komnar niðurstöður úr könnun Ferðamálastofu fyrir sumarið 2016, en miðað við tölurnar frá okkar fjórum viðmiðunarvöllum ætti að vera hægt að gera ráð fyrir verulegri aukningu frá 8000 hringum í fyrra. Ljóst er að erlendu gestirnir skipta klúbbana verulegu máli tekjulega enda kaupa þessir erlendu kylfingar yfirleitt mikla þjónustu. Þó vallargjöld séu misjöfn þá er ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir að 10.000 hringir erlendra kylfinga skili golfklúbbum á Íslandi allt að 100 milljónum í auknar tekjur í sinn rekstur. Það er eftir miklu að slægjast.. Erlendir kylfingar á Íslandi: The only thing I wasn t really prepared for was how friendly and welcoming everyone was, it was really nice! And that s why we came that far, otherwise I could have played golf anywhere in the world. But playing golf in Iceland had to be something like that, different I mean we had horizontal rain on occasion. It was cold but it was fun. There wasn t a moment I did not enjoy it! 3.000 erlendir gestir keyptu golfhring 2015 33% keyptu 5 eða fleiri hringi Tekjur klúbba af erlendum gestum árið 2015 voru áætlaðar um 80 milljónir Meðalverð þjónustu 10.000 kr. Um 8.000 golfhringir voru keyptir af ferðamönnum 2015. Aukning erlendra kylfinga 2016 áætluð 60% 26

ÁRSSKÝRSLA 2016 Golfhreyfingin sett í samhengi Golf er íþrótt, lífsstíl og iðnaður. Golfið eykur jákvætt á heilbrigði, hagkerfið og umhverfið. Yfir 60 milljónir manns leika golf í heiminum. Í Evrópu eru rúmlega 4 milljónir kylfinga skráðir í klúbba. Íþróttin er ein af fáum þar sem áhugamenn jafnt og atvinnumenn eru sjálfir ábyrgir fyrir að fylgja reglum. Samkvæmt árlegri skýrslu KPMG eiga fjögur helstu áherlsuatriðin fyrir almennan vöxt golfíþróttarinnar í Evrópu að vera. 1. Meiri hvatar til golfleiks fyrir háforgjafarkylfinga. 2. Frekari umbreytingar eða aðlögun golfvallanna. 3. Bætt félagsleg upplifun í golfklúbbum. 4. Þróunarverkefni fyrir yngri kylfinga Ef við berum saman 20 stærstu golfsambönd Evrópu þá endum við í 18. sæti ef horft er á fjölda kylfinga. Land Sæti Fjöldi kylfinga Hlutfall af þjóð England 1. 661.805 1,2% Þýskaland 2. 640.181 0,8% Svíþjóð 3. 455.770 4,7% Frakkland 4. 407.569 0,8% Holland 5. 382.232 2,3% Spánn 6. 277.782 0,6% Skotland 7. 199.244 3,8% Írland 8. 192.507 4,1% Danmörk 9. 150.916 2,7% Finnland 10. 143.182 2,6% Austurríki 11. 101.480 1,2% Noregur 12. 101.349 2,0% Ítalía 13. 90.027 0,2% Sviss 14. 89.579 1,1% Tékkland 15. 63.401 0,6% Belgía 16. 62.606 0,6% Wales 17. 46.980 1,5% Ísland 18. 16.823 5,0% Portúgal 19. 13.848 0,1% Slóvakía 20. 8.461 0,2% En eins og sést á þessum tölum þá hefur þróun og staða í löndum allt í kring verið mjög mismunandi. Og ef við myndum deila fjölda skráðra kylfinga á íbúafjölda þá fáum við út að 5% íslendinga er í golfklúbbum sem er 1. sæti í Evrópu. Og ef við myndum deila fjölda íbúa á hvern golfvöll í landinu þá endar Ísland aftur í 1. sæti með rúmlega 5.200 íbúa á hvern völl. Hins vegar endum við neðarlega í Evrópu ef við reiknum út nýtingu á golfvöllum, þ.e.a.s. deilum heildarfjölda kylfinga niður á 63 velli sem gefur okkur um 260 kylfinga á hvern völl. Í allri Evrópu eru karlkylfingar 19 ára og eldri 66% af öllum skráðum félögum á móti 25% konum. Austurríki, Slóvenía og Þýskaland eru með hæsta hlutfall kvennkylfinga 19 ára og eldri eða um 35%. Hér á landi er hlutfallið um 25% Börn og unglingar sem eru 18 ára og yngri eru að meðaltali 9% af öllum skráðum kylfingum í Evrópu. Tyrkland, Rússland og Grikkland eru með hæsta hlutfall barna- og unglinga í Evrópu. Við erum í 5. sæti í Evrópu með 14% af öllum skráðum kylfingum hér á landi sem börn og unglingar. Stærð íþróttasambanda innan ÍSÍ, eftir fjölda iðkenda. Knattspyrnusambandið er stærst með tæplega 23.000 félaga, en næst kemur Golfsambandið með um tæplega 17.000 félaga og Fimleikasambandið koma þar næst. Nr. Íþróttagrein 2015 Breyting frá 2009 Breyting í (%) 1. Knattspyrna 23.189 3.106 15,5% 2. Golf 16.437 908 5,8% 3. Fimleikar 12.670 5.175 69,0% 4. Hestaíþróttir 11.239-260 -2,3% 5. Handknattleikur 8.482 1.513 21,7% 6. Almenningsíþróttir 7.399 3.163 74,7% 7. Körfuknattleikur 7.050 421 6,4% 8. Badminton 4.855-54 -1,1% 9. Skotfimi 4.573 2.161 89,6% 10. Frjálsar íþróttir 4.377-971 -18,2% 11. Blak 3.317 605 22,3% 12. Dans 2.825-454 -13,8% 13. Sund 2.660-54 -2,0% 27

Ársskýrsla 2016 Tekjur golfklúbba úr starfsskýrslum ÍSÍ 2015 Höfuðborgarsvæðið Tekjur Norðvesturland Tekjur Golfklúbbur Reykjavíkur 347.385.988,00 Golfklúbbur Sauðárkróks 23.479.351,00 Golfklúbbur Mosfellsbæjar 193.621.283,00 Golfklúbbur Skagastrandar 5.173.168,00 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 191.239.884,00 Golfklúbburinn Ós 4.166.683,00 Golfklúbburinn Keilir 188.416.650,00 Golfklúbbur Siglufjarðar 3.887.570,00 Golfklúbburinn Oddur 159.809.755,00 Samtals 36.706.772,00 Nesklúbburinn 70.838.149,00 Golfklúbburinn Setberg 33.367.894,00 Golfklúbbur Brautarholts 13.381.665,00 Golfklúbbur Álftaness 8.483.987,00 Vestfirðir Tekjur Samtals 1.206.545.255,00 Golfklúbbur Ísafjarðar 13.134.948,00 Golfklúbbur Bolungarvíkur 4.870.598,00 Golfklúbbur Bíldudals 2.784.920,00 Golfklúbbur Patreksfjarðar 2.192.904,00 Vesturland Tekjur Golfklúbbur Hólmavíkur 1.140.571,00 Golfklúbburinn Leynir 89.653.310,00 Samtals 24.123.941,00 Golfklúbbur Borgarness 77.933.638,00 Golfklúbburinn Mostri 23.433.144,00 Golfklúbburinn Vestarr 10.095.733,00 Golfklúbburinn Glanni 5.762.809,00 Suðurland Tekjur Golfklúbbur Húsafells 3.811.833,00 Golfklúbbur Vestmannaeyja 78.242.048,00 Golfklúbburinn Jökull 2.612.726,00 Golfklúbbur Selfoss 57.862.663,00 Golfklúbbur Staðarsveitar 2.022.012,00 Golfklúbburinn Kiðjaberg 53.998.269,00 Golfklúbburinn Skrifla 563.933,00 Golfklúbburinn Öndverðarnesi 41.018.832,00 Samtals 215.889.138,00 Golfklúbburinn Hveragerði 31.724.676,00 Golfklúbburinn Þorlákshöfn 23.826.890,00 Golfklúbburinn Flúðir 14.466.393,00 Golfklúbbur Hornafjarðar 9.137.809,00 Norðausturland Tekjur Golfklúbburinn Þverá 7.312.298,00 Golfklúbbur Akureyrar 117.969.724,00 Golfklúbburinn Úthlíð 6.518.604,00 Golfklúbburinn Hamar 18.677.398,00 Golfklúbburinn Dalbúi 4.504.563,00 Golfklúbbur Húsavíkur 11.567.210,00 Golfklúbburinn Vík 3.362.735,00 Golfklúbbur Fjallabyggðar 9.315.347,00 Golfklúbburinn Tuddi 3.012.210,00 Golfklúbburinn Hvammur 3.713.500,00 Golfklúbbur Ásatúns 2.943.396,00 Golfklúbbur Mývatnssveitar 857.689,00 Golfklúbburinn Hellu 2.550.381,00 Golfklúbburinn Lundur 145.000,00 Golfklúbburinn Geysir 458.436,00 Samtals 162.245.868,00 Samtals 340.940.203,00 Austurland Tekjur Reykjanes Tekjur Golfklúbbur Byggðarholts 9.416.807,00 Golfklúbbur Suðurnesja 72.444.548,00 Golfklúbbur Norðfjarðar 8.643.412,00 Golfklúbbur Grindavíkur 44.745.279,00 Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 7.857.786,00 Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 20.246.733,00 Golfklúbbur Seyðisfjarðar 7.392.801,00 Golfklúbbur Sandgerðis 15.985.545,00 Golfklúbbur Fjarðarbyggðar 6.781.601,00 Samtals 153.422.105,00 Golfklúbbur Vopnafjarðar 2.690.552,00 Samtals 42.782.959,00 28

ÁRSSKÝRSLA 2016 Fjöldi kylfinga eftir landssvæðum og póstnúmerum Landsvæði 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Breyting Höfuðborgarsvæðið 9.017 9.233 9.574 9.670 9.525 9.686 10.015 329 Suðurland 2.569 2.520 2.861 2.885 2.815 2.673 2.805 132 Norðausturland 1.137 1.169 1.135 1.125 1.099 1.150 1.059-91 Vesturland 959 1.037 998 932 962 951 937-14 Reykjanes 1.115 1.096 1.066 1.022 1.020 913 1.041 128 Austurland 344 330 358 352 368 416 350-66 Vestfirðir 348 388 366 341 308 389 367-22 Norðvesturland 296 281 283 275 274 259 249-10 Samtals 15.785 16.054 16.641 16.602 16.371 16.437 16.823 386 12,000 10,000 10,015 8,000 6,000 4,000 2,000 0 2,805 1,059 937 1,041 350 367 249 Höfuðborgarsvæðið Suðurland Norðausturland Vesturland Reykjanes Austurland VestÞrðir Norðvesturland Póstnúmer Konur Karlar Samtals 210 Garðabær 462 854 1.316 112 Reykjavík (Grafarvogur) 332 737 1.069 220 Hafnarfjörður 287 643 930 200 Kópavogur (Kársnes, Austurbær) 297 575 872 221 Hafnarfjörður (Ásland, Setberg) 257 570 827 201 Kópavogur (Smárinn, Lindir, Salir) 280 535 815 108 Reykjavík (Fossvogur, Háaleiti, Skeifan) 261 473 734 110 Reykjavík (Árbær, Bryggjuhverfi, Norðlingaholt) 199 404 603 270 Mosfellsbær 166 426 592 203 Kópavogur 175 397 572 105 Reykjavík (Hlíðar, Laugardalur) 161 376 537 170 Seltjarnarnes 182 313 495 109 Reykjavík (Neðra-Breiðholt) 159 320 479 29

Ársskýrsla 2016 30

ÁRSSKÝRSLA 2016 Skýrsla landsliðsþjálfara Eins og segir í afreksstefnu sambandsins. Innan tíu ára verði íslenskur kylfingur kominn á sterkustu mótaraðir atvinnumanna í Evrópu og/eða Bandaríkjunum. Þessu markmiði náði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í lok seinasta árs, þegar hún fékk keppnisrétt á Ladies European Tour. Þessum stórkostlega árangri hefur hún fylgt eftir með stöðugum framförum og á tíðum frábærri spilamennsku sem sýnir að hún á svo sannarlega heima meðal þeirra bestu. Hún hefur þegar tryggt sér þátttökurétt á lokastig úrtökumótsins fyrir bandarísku LPGA mótaröðina, en úrslitin þar ráðast í byrjun desember. Afreksstefna GSÍ er lifandi stefna, og er um þessar mundir í endurskoðun með hliðsjón af góðum árangri og breyttum forsendum. Afrekshópur var valinn samkvæmt viðmiðum afreksstefnunnar, þar sem tekið er annars vegar mið af árangri okkar kylfinga, og hins vegar að kylfingar mæti nýjum lægri forgjafarviðmiðum afreksstefnunnar. Alls skipuðu 52 kylfingar hópinn, þau yngstu 13 ára til okkar fremstu Forskots atvinnukylfinga. Forgjafarviðmiðin eru byggð á árangri kylfinga í afrekshópum undanfarinna ára, það er því mjög jákvætt að sjá að forgjöf okkar bestu kylfinga fari lækkandi. Æfingar afrekshóps GSÍ á undirbúningstímabili Vetraræfingar afrekshóps GSÍ voru í formi mánaðarlegra æfingabúða, þar sem kylfingar fengu fræðslufyrirlestra frá fagaðilum um málefni eins og líkamsþjálfun, hugarþjálfun, mataræði og fleira, auk verklegra líkams- og golfæfinga. Minni, sérvalinn hópur, æfði oftar undir stjórn Birgis Leifs, aðstoðarlandsliðsþjálfara. Æfingar til undirbúnings landsliðsverkefna Úrtakshópur stúlkna og kvenna var valinn í maí til undirbúnings fyrir Evrópumót kvennalandsliða sem fór fram hjá GO. Úrtakshópur var valinn fyrir karlalandsliðið og voru leiknar 72 holur í úrtökumóti sem gaf eitt öruggt sæti í karlalandsliðinu á GR- Korpu. Eftir að landsliðið sjálft var valið voru undirbúningsæfingar haldnar til að þétta hópinn. Þessar undirbúningsæfingar gáfu góða raun fyrir landsliðshópana og þjálfara. Föst landsliðsverkefni GSÍ Í fyrsta sinn síðan 2012 voru öll fjögur landslið sent á Evrópumót landsliða, en árangurinn var eftirfarandi: EM kvenna 16. sæti af 20 liðum. EM stúlkna U18 18. sæti af 18 liðum. EM karla 2. deild 1. sæti af 9 liðum. EM pilta U18 2. deild 3. sæti af 9 liðum. Annað hvert ár eru heimsmeistaramót áhugamanna karla og kvenna og sendum við öfluga kylfinga til Mexíkó í september s.l. Karlaliðið hafnaði í 25. sæti af 71 liði og karlaliðið í 43. sæti af 55 liðum. Árangur karlalandsliðanna sem kepptu í EM karla 2. deild var glæsilegur, og endurheimti liðið sæti í 1. deild á næsta ári. Karlalandsliðið stóð sig ágætlega á HM karla, en árangur stúlkna- og kvennalandsliða var frekar slakur. Við eigum vissulega efnilega kylfinga, en okkur vantar tilfinnanlega meiri breidd þegar kemur að stúlkna- og kvennalandsliðum. Framtíðin er björt, en sólgleraugun kosta pening! Fjórir kylfingar komust í haust á annað stig úrtökumóta fyrir European Tour, sem er frábær árangur. Valdís Þóra Jónsdóttir hefur sýnt að hún á fullt erindi á Ladies European Tour, og verður spennandi að fylgjast með henni á úrtökumótunum í desember. Árangur Ólafíu hefur verið frábær og sýnir að kylfingar frá Íslandi geta náð inn á mótaraðir þeirra allra bestu. Ólafía er frábær fyrirmynd og góður árangur hennar og annara afrekskylfinga dregur kylfinga að íþróttinni, unga sem eldri. Okkar fremstu afrekskylfingar komast ekki langt án góðs baklands, því afreksíþróttamennska, sér í lagi atvinnumennska kostar sitt, á leið kylfingsins til sjálfbærni. Forskot, afrekssjóður kylfinga, sem GSÍ er aðili að, hefur sannað gildi sitt með faglegri nálgun á styrkveitingum til okkar fremstu kylfinga, og ber að þakka fyrir það. Við fölnum hinsvegar í samanburði við önnur lönd þegar kemur að fé til afreksmála almennt, og eftir niðurskurð seinasta golfþings til afrekssviðs, þá þurfti að sleppa nokkrum föstum verkefnum og almennt skera niður hvað varðar umgjörð o.þ.h. Nú er tækifæri til að blása til nýrrar sóknar og fylgja góðum árangri eftir með enn öflugri hætti. Hlutverk og markmið GSÍ eru margþætt, en kjarninn, sem aðili að íþrótta- og afreksstefnu ÍSÍ, er að reka öflugt afreksstarf, sem leiðir vagninn í annari starfsemi. Þessu megum við ekki gleyma, og eigum ávallt að hafa að leiðarljósi, þegar kemur að markmiðasetningu og fjárúthlutun. Að lokum Eftir fimm ára starf sem landsliðsþjálfari læt ég af störfum um áramótin. Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt frá upphafi til enda. Hjá GSÍ starfar að heilindum metnaðarfullt og hæft starfsfólk, sem vinnur mikið þrekvirki yfir aðal tímabilið. Þeim vil ég þakka sérstaklega sem og aðstoðarþjálfurum, stjórnar- og nefndarfólki. Þó ég skilji við þetta starf á þessum tímapunkti þá verð ég reiðubúinn áfram til aðstoðar enda vil ég leggja mitt af mörkum til að halda áfram að þróa það góða starf sem á sér stað í golfhreyfingunni. Með kveðju, Úlfar Jónsson, Landsliðsþjálfari GSÍ 31

Golfsamband Íslands Engjavegi 6, 104 Reykjavík Sími: 514 4050 Fax: 514 4051 Vefpóstur: info@golf.is golf.is