Verkefnatengt nám. Hentar lögfræði þér? Starfsvettvangur lögfræðinga

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

VIÐSKIPTAFRÆÐI Grunnnám og framhaldsnám BSc MSc PhD

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK. Lagadeild HR. Grunnnám. BA í lögfræði BA í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein

Námskrá grunnnáms til BA gráðu í félagsvísindum og til BS gráðu í viðskipalögfræði

Horizon 2020 á Íslandi:

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Hlökkum til að sjá þig í háskólabænum Akureyri. unak.is

Háskólinn á Akureyri unak.is

Stefnumótun. tun Rf. Hlutverk (Mission) Why we exist. Gildi (Core values) What we believe in. Framtíðarsýn (Vision) What we want to be

Háskólinn á Akureyri

Lagadeild HR. Grunnnám BA

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

LAGADEILD Meistaranám

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Er verkfræði fyrir þig? Af hverju verkfræði við HR? Að námi loknu

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Lagadeild HR. Grunnnám BA

Grunnnám í viðskiptafræði. Námsskrá fyrir nám til BS gráðu

MBA TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA.

1. ár Haust. í félagsvísindum. Félagsvísindatorg. Iðnbylting og hnattvæðing. Saga sálfræðinnar. Vinnulag í hug- og félagsvísindum

HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Viðauki með þjónustusamningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og Háskólans í Reykjavík (HR)

Grunnnám í viðskiptafræði -Staðnám og fjarnám- Námskrá fyrir nám til BS gráðu

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Heimspeki, Hagfræði og Stjórnmálafræði (HHS) (Staðnám og fjarnám) Námskrá fyrir nám til BA gráðu

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

FORMÁLI REKTORS. Stjórn

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Miðlun og Almannatengsl. Námskrá fyrir nám til BA gráðu

2. Stefnur og hugmyndafræði sem hafa haft áhrif á listkennslu

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Fóðurrannsóknir og hagnýting

Hönnunarstefna Hönnun sem drifkraftur til framtíðar

Ég vil læra íslensku

Þróun kennslu læknanema á síðustu áratugum

Aðalnámskrá grunnskóla, hæfni og hæfnimiðað námsmat

FRAMHALDSNÁM Í STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD

FRAMHALDSNÁM Í STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD

ENDURMENNTUN. FYRIR SÉRFRÆÐINGA OG STJÓRNENDUR Námskeiðsframboð haustið 2013 STUTT NÁMSKEIÐ 1

Íþróttakennara- og íþróttafræðinám á Laugarvatni fyrr og nú

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar Frambjóðendur. Multicultural Council of Reykjavik Candidates

Efnisyfirlit. Stjórn bls. 6 Skipurit bls. 6 Reglur og stefnumál bls. 7 Formáli rektors bls. 9 Nemendafjöldi bls. 10 Starfsmenn bls.

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Skóli Ísaks Jónssonar INNRAMAT Í SKÓLANUM. Skýrsla fyrir skólaárið

Tengsl íþróttaiðkunar og námsárangurs

Valgreinar í 6. bekk

SKÓLAR &NÁMSKEIÐ. Kynningarblað Kindle eykur námsáhuga, skólaganga kvenna, faglegt

Efnisyfirlit. Stjórn bls. 4 Skipurit bls. 4 Reglur og stefnumál bls. 5 Formáli rektors bls. 7 Nemendafjöldi bls. 8 Starfsmenn bls.

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

LEIÐARVÍSIR UM ÞÁTTTÖKUNÁM (Service Learning)

Útgefandi: Háskólinn á Akureyri. Ritstjórn: Guðrún M. Kristinsdóttir. Prófarkalestur: Finnur Friðriksson. Ljósmyndarar: Auðunn Níelsson, Daníel

Valgreinar og samvalsgreinar

Upplýsingaleit á Internetinu Heilsa og lífsstíll. Dr. Ágústa Pálsdóttir dósent, bókasafns- og upplýsingafræði Háskóli Íslands

Háskólinn á Akureyri. ársskýrsla

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Nemendur og foreldrar af erlendum uppruna í íslenskum grunnskólum: Áskoranir og tækifæri.

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Erasmus+ Stefnumiðuð samstarfsverkefni (strategic partnerships) VEFSTOFA UMSÓKNIR SKÓLA / SKÓLASKRIFSTOFA

Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi

Greinabundin kennsla greinabundið nám í Hvassaleitisskóla

Aðalnámskrár grunnskóla og samræmd könnunarpróf í íslensku

Samspil menntunar og þróunar strandbúnaðar - dæmi -

Reykjavík, 30. apríl 2015

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Starfsþróun eflir nemendamiðaða faglega forystu. (Professional Development for Student Centered Leadership) Lokaskýrsla Erasmus+ verkefnis

Skóli án aðgreiningar

Sameining tveggja háskóla í Svíþjóð

Efnisyfirlit. Ársskýrsla Tækniskólans

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

Fréttabréf Háskóla Íslands 2. tölublað 27. árgangur desember 2005

Valgreinar fyrir 8. bekk skólaárið

LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM. Schengen ráðstefna 6. október Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn -

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Borgarráð. MARK - endurnýjun samstarfssamnings

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

Signý Jóna Hreinsdóttir Verkefnastjóri virðisþróunar hjá Mílu Straumlínustjórnun

Valgreinar

Yfirlit. Námskrá Vorönn Dalvík - Fjallabyggð. Akureyri. Fjölmennt. Útgefandi: SÍMEY - Þórsstíg Akurery

Þróun kennaramenntunar við Menntavísindavið Háskóla Íslands

SMIÐJUR Í NORÐLINGASKÓLA Samþætt nám í list- og verkgreinum, náttúrufræði og samfélagsgreinum í bekk

GÆÐASTARF Í GRUNNSKÓLUM. Viðmið og framkvæmd ytra mats grunnskóla

Námsmat í þágu hvers? Skýrsla um þróunarverkefni um einstaklingsmiðað námsmat í Ingunnarskóla og Norðlingaskóla

- Samvinna um tónlistarnám - Kennaralaun í alþjóðlegu samhengi - Something old, something new... Félagsfærni lærist ekki af sjálfu sér

HUGPRÓ Betw Be ar tw e ar QA & Agile

Val í bekk Sjálandsskóla

Transcription:

Lögfræði

Verkefnatengt nám Innan Háskólans í Reykjavík hefur verið lögð áhersla á verkefnatengt laganám sem miðar að því að auka virkni nemenda í námi og gera þá betur í stakk búna til að takast á við störf að námi loknu. Áhersla á verkefnatengt laganám kemur ekki aðeins fram með þeim hætti að úrlausn raunhæfra álitaefna sé hluti af námsmati í öllum námskeiðum við deildina, heldur einnig með þjálfun nemenda í lögfræðilegri aðferðafræði í einstökum námsgreinum án þess að það sé hluti námsmats. Grunnhugsunin með þessari námsaðferð er að gera nemendur hæfari til að beita lögfræðilegri aðferðafræði á viðfangsefnin sem þeir mæta í náminu og síðan í starfi að námi loknu. Þá hvetja kennarar lagadeildar til umræðu og þjálfa nemendur með því að láta þá fást við raunhæf verkefni í tímum sem líkja má við dæmatíma í öðrum fögum. Lagadeild HR lítur á þróun verkefnatengds náms sem viðvarandi viðfangsefni og eitt af mikilvægustu verkefnum deildarinnar. Kennsla fer fram í smærri hópum, dregið er úr áherslu á fyrirlestra og virkni nemenda aukin þess í stað. Kennarar jafnt sem nemendur kappkosta að lögfræðinám við Háskólann í Reykjavík haldi áfram að skara fram úr. Hentar lögfræði þér? Viltu geta leyst úr álitaefnum með rökstuddum hætti? Hefur þú áhuga á að starfa sem lögfræðingur á alþjóðavettvangi? Ertu góður greinandi? Viltu geta greint lögfræðileg álitaefni? Viltu fá yfirgripsmikla þekkingu á helstu sviðum lögfræðinnar? Viltu vita hvert samfélagslegt hlutverk lögfræðinnar er? Hefur þú áhuga á siðferðilegum álitamálum? Viltu tileinka þér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð? Viltu auka víðsýni þína og frumleika í hugsun? Viltu starfa í umhverfi sem byggir brýr milli fræðasviða? Starfsvettvangur lögfræðinga Lögmanna- og dómarastörf, störf í stjórnsýslu þ.á m. ráðuneytum, embættum ríkislögreglustjóra, tollstjóra og skattstjóra, fjármálafyrirtækum, við stjórnun, stjórnmál, alþjóðastofnanir og margt fleira.

Grunnnám Lögfræði Gráða: BA Lengd náms: 3 ár Fjöldi eininga: 180 Kennsla fer að hluta til fram í fyrirlestrum og með raunhæfum verkefnum en einnig í formi vinnu- og umræðutíma. Með verkefnatengdu námi er leitast við að þjálfa nemendur í að vinna með námsefnið og beita því á raunhæf verkefni. 1. ár Haustönn Aðferðafræði I Réttarheimildir og lögskýringar Fjármunaréttur I Samningaréttur og inngangur að skaðabótarétti og almennum hluta kröfuréttar Stjórnskipunarréttur Félagaréttur Vorönn Fjármunaréttur II Kröfuréttur síðari hluti Stjórnsýsluréttur Nýsköpun og stofnun fyrirtækja Raunhæf verkefni Á haustönn á fyrsta ári taka laganemar þátt í námskeiði þar sem grunnfög haustannar; aðferðafræði, fjármunaréttur I og stjórnskipunarréttur eru tengd saman í raunhæfu þriggja vikna verkefni í lok annar. Á vorönn á fyrsta ári taka nemendur þátt í námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. 2.ár Raunhæft verkefni Haustönn Einkamálaréttarfar Fjármunaréttur III Bótaréttur Fjármunaréttur IV Eignaréttur Refsiréttur Vorönn Á vorönn á öðru ári er málflutningsnámskeið sem miðar að því að þjálfa nemendur í skjalagerð, ræðumennsku og málflutningi. Á vorönn á þriðja ári er nemendum gefinn kostur á aukinni sérhæfingu innan lögfræðinnar með fjölda valnámskeiða úr meistaranámi deildarinnar. Enn fremur geta þeir valið námskeið á öðrum fræðasviðum innan HR eða annarra háskóladeilda hér á landi. Háskólinn í Reykjavík leggur mikla áherslu á úrlausn raunhæfra verkefna. Í grunnnáminu fékk ég til að mynda mál í hendurnar sem þá var fyrir héraðsdómi. Það var reglulega gaman að fá slíka innsýn í raunverulegt dómsmál og meðferð þess en ég flutti málið í dómsalnum í HR eins og ég væri að flytja það í héraðsdómi. Laganámið hefur á heildina litið verið mjög góður undirbúningur og ég finn strax að sú þekking og reynsla sem ég hef fengið í HR nýtist mér mjög vel í vinnunni. Árni Þórólfur Árnason Meistaranemi í lögfræði 3.ár Evrópuréttur Fjölskyldu- og erfðaréttur Viðskipti með fjármálagerninga Skattaréttur Þjóðaréttur Hugverkaréttur Haustönn Samkeppnisréttur Fjármunaréttur V Raunhæft málflutningsverkefni Aðferðafræði II Lagakenningar 7.5 einingar Vorönn Sakamálaréttarfar 7.5 einingar BA ritgerð og/eða valgreinar Nemendum gefst kostur á að velja tvær kjörgreinar úr meistaranámi við lagadeild. Hver valgrein úr meistaranámi vegur að jafnaði 7.5 einingar. BA ritgerð vegur 15 einingar. Einnig er nemendum heimilt að velja námsgreinar innan annarra deilda HR eða annarra háskóla, í stað valgreina. *Námskeið kennd í þriggja vikna lotu í síðasta hluta annar

Grunnnám Lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein Gráða: BA Lengd náms: 3 ár Fjöldi eininga: 120 í aðalgrein og 60 í aukagrein Þverfagleiki er einn af áhersluþáttum Háskólans í Reykjavík. Að sama skapi hefur atvinnulífið í auknum mæli kallað eftir þverfaglegri þekkingu og þjálfun. Í samvinnu við viðskiptadeild HR býður lagadeild upp á þriggja ára grunnnám til BA-gráðu í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein. Með því að ljúka BA-gráðu í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein hefur nemandinn aflað sér fullnægjandi grunnþekkingar í lögfræði til að halda áfram sérhæfingu í meistaranámi (ljúka fullnaðarprófi í lögfræði). Hann hefur jafnframt aflað sér haldgóðrar þekkingar sem í ákveðnum tilvikum fullnægir skilyrðum fyrir meistaranámi í viðskiptafræði. Ég hafði mikinn áhuga á bæði lögfræði og viðskiptafræði og þegar ég sá að HR var að bjóða upp á þessa nýju braut þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um, þetta vildi ég læra. Brautin sameinar áhuga minn á þessum greinum og hún opnar marga möguleika bæði í námi og atvinnulífi. Ég get bætt við mig einu aukaári í viðskiptafræði eftir útskrift og lokið þá tveimur námsgráðum á fjórum árum. Mikil áhersla er lögð á verkefnavinnu, hópverkefni og raunhæf verkefni sem ég tel að eigi eftir að nýtast mér að námi loknu. Júlíana Mujiatin Sigurgeirsdóttir Nemi í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein 1. ár 2.ár Haustönn (lögfræði) Aðferðafræði I Réttarheimildir og lögskýringar Fjármunaréttur I Samningaréttur og inngangur að skaðabótarétti og almennum hluta kröfuréttar Stjórnskipunarréttur Raunhæft verkefni Haustönn (lögfræði) Einkamálaréttarfar Fjármunaréttur III Bótaréttur Félagaréttur Fjármunaréttur II Kröfuréttur síðari hluti Stjórnsýsluréttur Nýsköpun og stofnun fyrirtækja Fjármunaréttur IV Eignaréttur Refsiréttur Vorönn (lögfræði) Vorönn (lögfræði) BA í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein og BSc í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein Nemandi sem lokið hefur BA-gráðu í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein getur sótt um að bæta við sig einu ári í viðskiptafræði og útskrifast að því loknu einnig með BSc-gráðu í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein. Á þessu fjórða ári tekur nemandinn námskeið af 2. og 3. ári í viðskiptafræði, þar á meðal BSc-verkefni. Nemanda sem lokið hefur BSc-gráðu í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein stendur sambærilegur möguleiki til boða. Skipulag náms Nemandi byrjar á að taka námskeið sem kennd eru á 1. og 2. ári í lagadeild. Síðasta árið tekur hann að uppistöðu fög af fyrsta ári í viðskiptafræði auk námskeiðsins Aðferðafræði II - Lagakenningar sem er skyldunámskeið í lögfræði og kemur í stað námskeiðsins Nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem nemendur í viðskiptafræði og lögfræði taka á fyrsta ári. 3.ár Evrópuréttur Fjölskyldu- og erfðaréttur Haustönn (viðskiptafræði) Fjármál fyrirtækja Hagnýt stærðfræði Reikningshald Þjóðhagfræði Alþjóðaviðskipti Samkeppnisréttur Fjármunaréttur V Raunhæft málflutningsverkefni Aðferðafræði II Lagakenningar (LD) Hagnýt tölfræði I Rekstrarhagfræði I Stjórnun Vorönn (viðskiptafræði) Stefnumótun *Námskeið kennd í þriggja vikna lotu í síðasta hluta annar

Meistaranám Lögfræði Gráða: ML Lengd náms: 2 ár Fjöldi eininga: 120 Að grunnnámi loknu gefst nemendum kostur á framhaldsnámi til meistaraprófs í lögfræði. Skilyrði fyrir inntöku er BA-próf eða sambærileg háskólagráða í lögfræði, eða BA, BSc eða sambærileg gráða í annarri námsgrein en lögfræði. Þeir sem ljúka meistaranámi við lagadeild að undangengnu grunnnámi í lögfræði og a.m.k. 240 einingum í lögfræðigreinum hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda. Rannsóknartengt meistaranám Í rannsóknartengdu námi er lykilatriði að njóta leiðsagnar kennara sem sjálfir hafa lokið vísindalegu rannsóknarnámi. Í hópi þeirra kennara sem veita leiðsögn í meistaranáminu eru doktorsmenntaðir lögfræðingar sem nú starfa við kennslu og rannsóknir innan lagadeildar HR. Almennt er gert ráð fyrir að námið taki tvö ár, þ.e. fjórar annir, en því ber að ljúka innan fjögurra ára. Fjölþætt val Eitt af megineinkennum meistaranámsins er fjölþætt val um áherslur og námsleiðir, sem veitir mikla möguleika á sérhæfingu innan lögfræðinnar og samþættingu við aðrar háskólagreinar. Námskeið eru almennt 7.5 einingar eða 3.75 einingar og skrá nemendur sig í 30 einingar á önn en auk þess verða þeir að skrifa 30 eininga meistaraprófsritgerð. Að öðru leyti ákveður nemandi sjálfur inntak og samsetningu námsins. Áherslur Í meistaranáminu er sérstök áhersla lögð á að bjóða kjörgreinar á sviðum: Alþjóðalaga og alþjóðaviðskipta Dómstóla og málflutnings Fjármunaréttar Hluti náms við erlenda háskóla Lagadeild HR er í samstarfi við fjölda erlendra háskóla og stendur nemendum til boða að ljúka allt að 60 einingum í meistaranámi við erlenda háskóla, á grundvelli nemendaskiptasamninga eða á öðrum forsendum og þá að fengnu samþykki lagadeildar. Fjölbreytt námsmat Eftirtaldir þættir geta skilað nemendum einingum í meistaranámi: Þátttaka í hefðbundnum námskeiðum Sjálfstæð rannsóknarverkefni sem tengjast rannsóknum kennara Nám við erlenda háskóla Starfsnám sem er skipulagt í samvinnu deildarinnar annars vegar og stofnana og fyrirtækja hins vegar Meistaraprófsritgerð Starfsnám Hluti meistaranámsins getur farið fram í starfsnámi sem lagadeild Háskólans í Reykjavík skipuleggur í samvinnu við fjölda stofnana og fyrirtækja. Nemandi í meistaranámi við lagadeild HR getur fengið allt að 7.5 einingar metnar á grundvelli starfsnáms. Meistarapróf af alþjóðasviði Lagadeild HR býður nemendum að ljúka meistaraprófi af alþjóðasviði. Nemandi þarf að ljúka að lágmarki 45 einingum í kjörgreinum á alþjóðasviði og skrifa meistaraprófsritgerð á því sviði. Eva Hrönn Jónsdóttir hrl. er fyrsti lögfræðingurinn frá HR sem öðlast hæstaréttarlögmannsréttindi en hún útskrifaðist fyrir rúmum sjö árum. Eva Hrönn fékk héraðsdómslögmannsréttindi strax í desember 2007, nokkrum mánuðum eftir að hún útskrifaðist. Hún segir aldrei neitt annað hafa komið til greina en að verða lögfræðingur. Eva Hrönn Jónsdóttir hrl. ML í lögfræði frá HR 2007 - Starfar hjá Opus lögmönnum

Meistaranám Dæmi um námskeið sem falla að áherslusviðum og Evrópurétti Alþjóðalög og alþjóðaviðskipti The International Law of the Sea The Law of the World Trade Organization International Sales International Institutions International Tax Law I and II International Protection of Human Rights Seminar on Intellectual Property Rights in International Commerce; IP Agreements Dómstólar og málflutningur Auðgunar- og efnahagsbrot Fullnusturéttarfar Gagnaöflun og málflutningur í einkamálum Ofbeldis- og fíkniefnabrot Sókn og vörn í sakamálum Skuldaskilaréttur Úrlausn ágreiningsmála Kjörgreinar á sviði Evrópuréttar European Law - Internal Market European Law - Financial Services European Law - State Aid and Competition EU Constitutional Law European Company Law International and European Energy Law Common European Sales Law Fjármunaréttur Alþjóðlegir og innlendir fjármögnunarsamningar Hagnýtur samningaréttur Kaup á fyrirtækjum, samruni - áreiðanleikakannanir Fasteignakauparéttur Bótaréttur Sjó- og flutningaréttur Verktaka- og útboðsréttur Námið við lagadeild Háskólans í Reykjavík var bæði fjölbreytt og hagnýtt. Eftir að hafa stundað bæði skiptiog framhaldsnám erlendis get ég fullyrt að gæði námsins og kennslunnar standast fyllilega alþjóðlegan samanburð. Eftir útskrift hef ég búið að þeirri þekkingu sem ég aflaði mér meðan á náminu stóð og það hefur reynst mér góður undirbúningur bæði við öflun málflutningsréttinda og fyrir þátttöku í atvinnulífinu. Garðar Víðir Gunnarsson, hdl. Starfar hjá LEX lögmannsstofu Meistaranám án grunnnáms í lögum Meistaranám við lagadeild HR er ekki einskorðað við nemendur sem lokið hafa grunnnámi í lögfræði, heldur geta nemendur með háskólapróf í öðrum greinum lokið ML-prófi. Meðal þeirra sem hafa lokið meistaranámi með aðra grunngráðu eru viðskiptafræðingar, læknar, stjórnmálafræðingar, arkitektar, hagfræðingar, endurskoðendur, ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, kennarar og fleiri. Nemendur sem fá inngöngu skulu ljúka BAnámskeiðinu Aðferðafræði I-réttarheimildir og lögskýringar, með meðaleinkunnina 6,0 eða hærri sem hluta af ML-námi. Þeir skulu skrá sig í námskeiðið á fyrstu haustönn eftir að þeir hefja nám. Að ljúka meistaranámi í lögfræði var einstök lífsreynsla fyrir mig. Námið er bæði krefjandi og fjölbreytt en um leið sérstaklega áhugavert fyrir þá sem ekki hafa lokið grunnnámi í lögfræði. Þannig er nemendum gefið færi á að sníða skipulag námsins eftir eigin áhugasviði og ólíkur bakgrunnur þeirra leiðir til þess að unnt er að fjalla á skýran hátt um flókin viðfangsefni bæði í hópvinnu og umræðum í kennslu. Þá er lögð mikil áhersla á samhengi raunhæfra verkefna og fræðilegrar umfjöllunar sem veitir nemendum innblástur og hvatningu til að takast á við ný og krefjandi verkefni. Auður Hrefna Guðmundsdóttir B.Ed. próf í kennslufræðum frá KHÍ árið 2004 ML í lögfræði frá HR 2013 Sérfræðingur í fræðsludeild Landsbankans

Lögfræði Gráða: PhD Lengd náms: 3 ár Fjöldi eininga: 180 Doktorsnám Lagadeild Háskólans í Reykjavík býður upp á doktorsnám í lögum. Það er fullt nám í þrjú ár en gert er ráð fyrir að námstíminn sé fjögur ár ef nemandi sinnir kennslu eða öðrum störfum með náminu. Doktorsnám við lagadeild HR miðar að því að þjálfa doktorsnema til rannsókna og kennslustarfa og annarra starfa sem krefjast víðtækrar vísindalegrar þjálfunar og þekkingar. Náminu er ætlað að dýpka fræðilega og aðferðafræðilega þekkingu doktorsnema í því skyni að gera þá hæfa til að vinna sjálfstætt og af vandvirkni á fræðasviðinu. Við deildina eru nú tveir doktorsnemar. Með doktorsnámi við lagadeild Háskólans í Reykjavík gefst dýrmætt tækifæri til þess að fjölga rannsóknum í lögfræði. Samningur við Oslóarháskóla veitir aðgang að doktorsnámskeiðum í fremstu röð í heiminum. Það eykur gæði námsins og er staðfesting þess að kröfur um faglega vinnu og árangur standist kröfur annarra háskóla sem njóta alþjóðlegrar virðingar. Doktorsnemi við deildina öðlast þau forréttindi að fá að dýpka þekkingu og færni á áhugasviði sínu og hafa til þess stuðning og hvatningu allra þeirra færu sérfræðinga sem þar starfa. Námið er skipulagt þannig að hver og einn hefur frelsi til þess að haga uppbyggingu og fyrirkomulagi eftir því sem honum hentar. Samtímis því eru gerðar ríkar kröfur til nemandans, bæði um framvindu í námi og vandaða og vísindalegu vinnu. Það skiptir samfélagið miklu að þekking á einstökum sviðum lögfræðinnar verði aukin og dýpkuð og ánægjan af doktorsnáminu við Háskólann í Reykjavík og tilheyrandi rannsóknum sé ekki einungis bundin því að efla og bæta eigin þekkingu heldur að þessi vinna gagnist jafnframt samfélaginu í heild. Heiða Björg Pálmadóttir Doktorsnemi í lögfræði Sérstaða laganáms í HR Metnaðarfullt og nútímalegt nám sem byggir á endurskilgreiningu á grunnmenntun lögfræðinga, m.a. til að mæta þörfum atvinnulífsins. Mikil áhersla á gæði kennslu, fjölbreyttar kennsluaðferðir, fjölbreytt námsmat og vandaða endurgjöf til nemenda. Námið, kennslan og námsmatið er verkefnatengt og nemendur fá markvissa þjálfun í að beita lögfræðilegri aðferðafræði. Námsefni og kennsla miðar að því að nemendur öðlist traustan fræðilegan grunn. Nemendum á 1. ári í grunnnámi stendur til boða að taka þátt í leshópum þar sem meistaranemar aðstoða nýnema í að þjálfa og efla skilning og fræðilega þekkingu á efninu. Nemendum á 3. ári í grunnámi gefst kostur á að velja tvær valgreinar úr meistaranámi. Miðanna- og lokapróf í grunnnnámi mega að hámarki gilda 70% af heildarnámsmati í einstökum námskeiðum og 50% í meistaranámi. Einstaklingsbundin námsáætlun í meistaranámi. Fjölbreytt val um áherslur og námsleiðir í meistaranámi. Nemendur með háskólapróf í öðrum greinum en lögfræði geta stundað meistaranám. Nemendafjöldi er takmarkaður sem tryggir góða þjónustu og góð tengsl nemenda og kennara. Fullbúinn dómsalur sem nemendur hafa til afnota í raunhæfum málflutningsæfingum. Hægt er að taka BA í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein og einnig er hægt að ljúka BA í lögfræði og BSc í viðskiptafræði á fjórum árum.

Lögrétta Félag laganema við HR Markmið félagsins er einkum að efla fræðastarf á sviði lögfræði, jafnt innan lagadeildar sem utan. Lögrétta stendur vörð um hagsmunamál félagsmanna og er tengiliður milli nemenda og stjórnenda deildarinnar en formaður Lögréttu situr m.a. deildarfundi lagadeildar fyrir hönd laganema og gætir hagsmuna þeirra. Á vegum Lögréttu starfar málfundafélag sem stendur fyrir málfundum um lagaleg málefni sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Þá gefur félagið út Tímarit Lögréttu sem er ritrýnt fræðatímarit á sviði lögfræði. Félagið sér laganemum einnig fyrir fjörugu skemmtanalífi en fastir liðir í félagslífi laganema eru Humarhátíð, Þingvallaferð og árshátíð, auk nær vikulegra vísindaferða. Nánari upplýsingar um félagið, myndir og fleira má finna á vefnum logretta.is. Alumni Ferð laganema til Brussel Evrópuréttur er eitt af þeim námskeiðum sem kennt er í BA-námi við lagadeild. Nemendum í Evrópurétti stendur til boða að fara í námsferð til Brussel með heimsóknum m.a. til EFTA, Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), framkvæmdastjórnar ESB, ráðherraráðsins og á lögfræðistofur. Ferðin til Brussel var frábær. Við heimsóttum helstu stofnanir Evrópusambandsins, EFTA og ESA og alls staðar var tekið á móti okkur með upplýsandi fyrirlestrum og umræðum. Þarna gafst okkur einstakt tækifæri til að fá innsýn í samspil stofnananna - en ekki var síður áhugavert að spjalla og leita svara við spurningum sem óneitanlega koma upp þegar ólíkir þættir Evrópuréttar eru settir í samhengi við daglegt líf. Félag lagadeildar HR Tilgangur með félagi útskrifaðra nemenda er margþættur: Að stuðla að uppbyggingu og þróun laganáms við lagadeild HR. Að standa vörð um hagsmuni útskrifaðra nemenda lagadeildar HR í hvívetna. Að efla tengsl og samstarf nemenda sem útskrifast hafa með meistarapróf í lögum frá lagadeild HR. Að efla og hvetja félagsmenn til þátttöku í faglegri umræðu um lögfræðileg málefni og hvetja félagsmenn til að taka þátt í rannsóknum í lögfræði. Frekari upplýsingar má finna á vef lagadeildar á hr.is/ld. Einnig heimsóttum við virta lögmannsstofu og áttum þar tal við unga lögfræðinga sem bæði útskýrðu fyrir okkur verkefni líðandi stundar í samhengi við Evrópurétt og upplýstu um spennandi starfsmöguleika í alþjóðlegu umhverfi. Þetta var alvöru námsferð, skemmtileg og hvetjandi í alla staði! Lárus Páll Ólafsson Nemi í lögfræði Ókeypis lögfræðiþjónusta Laganemar við Háskólann í Reykjavík veita einstaklingum endurgjaldslausa lögfræðilega ráðgjöf. Ráðgjöfin er alla miðvikudaga frá kl. 17-20 í Sólinni, miðrými Háskólans í Reykjavík. Einnig er hægt að hafa samband á símatíma á miðvikudögum í síma 777 8409 eða senda fyrirspurn á netfangið logfrodur@hr.is.

Að hefja nám við HR Hægt er að sækja um skólavist rafrænt á www.hr.is/umsoknir. Upplýsingar um umsóknarfrest eru uppfærðar reglulega á vef háskólans, hr.is. Inntökuskilyrði BA Umsækjandi um grunnnám við lagadeild Háskólans í Reykjavík skal hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi samanber 19. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Í undantekningartilvikum er heimilt að innrita nemendur sem að mati inntökunefndar lagadeildar búa yfir jafngildum þroska og þekkingu og þeir sem hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi. Við val á umsækjanda er einkunn á stúdentsprófi eða jafngildu prófi höfð til hliðsjónar. Sérstaklega er litið til einkunna í íslensku, ensku, norrænu tungumáli og stærðfræði. Annars konar þekking og reynsla, svo sem úr atvinnulífinu, þátttaka í félagsstörfum, íþróttum, tónlistarnámi og öðru sem talið er að reynst geti umsækjanda vel í námi, getur einnig haft áhrif á mat umsókna. Umsækjendur skulu gera grein fyrir þeim atriðum sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar í sérstakri greinargerð sem er hluti umsóknar. Umsækjandi getur óskað eftir viðtali við fulltrúa deildarinnar vilji hann kynna sig, leita upplýsinga og leggja fram viðbótargögn. Inntökuskilyrði BA með viðskiptafræði sem aukagrein Gerðar eru sömu kröfur og um BA í lögfræði en auk þess þarf umsækjandi að uppfylla inntökuskilyrði í viðskiptadeild. Inntökuskilyrði ML Umsækjandi um meistaranám við lagadeild HR skal hafa lokið BA- eða BSc-prófi, eða sambærilegu prófi frá viðurkenndum háskóla. Inntökunefnd lagadeildar metur umsóknir og tekur ákvörðun um hverjir fái inngöngu í meistaranám. Inntökunefndin getur sett sér starfsreglur um framangreint mat. Sjá frekari upplýsingar í 3. gr. reglna um meistaranám við lagadeild HR. Skólagjöld og námslán Upplýsingar um skólagjöld má nálgast á vef skólans, hr.is/skolagjold. Upplýsingar um námslán fyrir skólagjöldum og/ eða framfærslu má finna á lin.is. Styrkir til náms við HR Nýnemastyrkir: Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrk sem nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR. Þeir sem eru að hefja þriggja eða þriggja og hálfs árs BA- eða BSc-nám geta sótt um styrkinn. Nýnemastyrkurinn er veittur á haustönn og vorönn. Forsetalisti HR: Styrkir fyrir afburðanemendur sem þegar eru í námi í HR. Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverri önn eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar skv. námsskipulagi niðurfelld. Aðrir styrkir: Fleiri styrkir standa nemendum til boða og er hægt að fá upplýsingar um þá á vef háskólans, hr.is/styrkir. Nánari upplýsingar: Jóna K. Kristinsdóttir, skrifstofustjóri jonak@hr.is Sími 599 6407 Háskólinn í Reykjavík Menntavegi 1 101 Reykjavík Sími 599 6200 hr@hr.is www.hr.is