Fréttabréf. Haustfundurinn 30. september 2006

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Fréttabréf. Aðalfundur Eftir fund verða kaffiveitingar og Ingi Guðjónsson mun sýna okkur hvað hann er að fást við í samlímingum.

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Fréttabréf. Hrafnagil 2009

Fréttabréf. Septemberfundurinn. Hjá góðu fólki. Sýningin Ráðhúsinu FÉLAG TRÉRENNISMIÐA Á ÍSLANDI

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Ég vil læra íslensku

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Könnunarverkefnið PÓSTUR

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Hugvísindasvið. Gömlu bíóin. Greinargerð um gerð sýningar

10. tbl nr Eymundur Runólfsson forstöðumaður áætlanaog umhverfisdeildar. Viktor Arnar Ingólfsson skrifar: Starfsmaður í nærmynd

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Greinargerð: Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og tengdra aðila

Saga fyrstu geimferða

MALAYSIA AIRLINES - MH 1 Monday, 17 th of MAY: LONDON - KUALA LUMPUR (lent í Kuala Lumpur kl 17:30 þriðjudaginn 18. maí að staðartíma)

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

WordPress viðbót fyrir Greiðslusíðu Borgunar

DALBJÖRG. Gleðilegt ár! FLUGELDAMARKA UR DALBJARGAR HRAFNAGILSSKÓLA. Hjálparsveitin

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

STARA. Rit Sambands íslenskra myndlistarmanna

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

FRÉTTABRÉF LAGNAFÉLAGS ÍSLANDS. Afmæliskveðja til Meistarafélags pípulagningameistara frá Lagnafélagi Íslands 1. TBL. 32. ÁRGANGUR MARS 2018 LÖGGILTUR

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

FRÉTTABRÉF. Harpa fékk LAGNAFÉLAGS ÍSLANDS. viðurkenningu fyrir Lofsvert lagnaverk FRÉTTABRÉF nr. 118

Æðarrækt í Höfnum á Skaga fær lífræna vottun. 19. tölublað 2008 Þriðjudagur 4. nóvember Blað nr. 292 Upplag

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Á VESTFJÖRÐUM. Nýir vegleiðarar á Hnífsdalsvegi og Óshlíð. Skapa mikið öryggi í umferð

Gögn um Kötlugosið 1918: Ljósmyndir Kjartans Guðmundssonar úr ferðum á Mýrdalsjökul í júní og september 1919

Sundráð ÍRB Fréttabréf Desember 2011

Um 220 manna vinnustaður í Mjóddina

Þegar tilveran hrynur

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

Deilt um vatnsréttindi í Jökuldal

Minjasafn Austurlands Ársskýrsla 2011

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

[fjou:lɪð] mitt er svo [fuŋkt]!

17. MARS 2006 I 11. VIKA UNG OG ÓHRÆDD

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Tíu nýsveinar útskrifast úr bókiðngreinum 2011 Tíu nýsveinar fengu afhent sveinsbréf

50 ára afmæli TFÍ. TFÍ er öflugur samstarfsvettvangur sem hefur það markmið að auka tæknivæðingu á Íslandi og efla skilning á fjölbreyttum

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

ANNUAL REPORT 2010 ÁRSSKÝRSLA 2010

Konur til forystu. blaðið. Vinnustreita Orlofshús um páska Tölvupóstur Ávísun á gott frí EITT MARGRA NÁMSKEIÐA Á VEGUM VR:

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Hugvísindasvið. Ljósmyndadagar. Ritgerð til M.A.- prófs. Svava Lóa Stefánsdóttir

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

föstudagur Hildur SKANNI OG PRENTARI VERÐ FJÖLNOTA- TÆKI Björk Yeoman Litrík og dramatísk Kr. r

Nr mars 2006 AUGLÝSING

20 ÁRA AFMÆLISRIT FLATAR 2013 / 1 FLATARMÁL

Fréttabréf. stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. 3. tbl. 22. árgangur Júlí 2011

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Haust Aðventuljóð. Félag kvenna í fræðslustörfum á Íslandi. Upplýst aðventan gengin í garð og borgin víðóma breiðmynd

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

hluthafar í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna af hlutabréfum sem stofnanafjárfestar hugðust kaupa. Lífeyrissjóður verslunarmanna

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Ársskýrsla 2013 HRAFNSEYRI

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Klakaströnglar á þorra

2. tölublað 9. árgangur Júní 2007

1. tölublað, 12. árgangur. Apríl 2016 FRÍMÚRARINN S U B S PE C I E Æ TE RN I TA TI S. Fréttablað Frímúrarareglunnar á Íslandi

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

KYNNINGARBLAÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ Helgin

Welcome to Reykjavík Gay Pride 2005 Velkomin á Hinsegin daga í Reykjavík

Horizon 2020 á Íslandi:

Ef athafnir fylgja ekki orðum!!!

Blöndulón Vöktun á strandrofi og áfoki

MÁLGAGN OG FRÉTTABRÉF HJARTAHEILLA 26. árg. 2. tbl. nóvember 2014

Brennisteinsvetni í Hveragerði

Stefnir í ófremdarástand

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

ALLTAF Í VEÐMÁLUM. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Transcription:

Haustfundurinn 30. september 2006 Þann 30. september n.k. kl. 10 byrjum við hauststarfið. Mætum hress og kát á fyrsta fund haustsins að Skipholti 37, 2. hæð. Efni fundarins hefur ekki verið gefið upp og því um óvissuferð fundarmanna að ræða. Ekki er þó að efa að fræðslunefndin hefur fundið upp á einhverju skemmtilegu fyrir félagsmenn á þessum fyrsta fundi haustsins. FÉLAG TRÉRENNISMIÐA Á ÍS- Fréttabréf 3. tbl. 12. árg. sept. 2006 Chris Stott: Turning Boxes Turning Bowls Finishing First Steps In Woodturning Cutting And Sharpening Inlaid & Novelty Boxes Focus On Woodturning Micael O Donnell: Hnífanámskeið Vegna fyrirspurna frá félagsmönnum hefur Valdór ákveðið að halda annað námskeið í vetur. Kennir hann þar að skepta hnífsblöð og gera leðurhulstur fyrir hnífinn. Áhugasamir hafi samband við Valdór í síma 896 9548 eða á netfang valdor@ismennt.is Myndböndin Tobias Key: Turning Wood For The Love Of It Stuart Mortimer: Wet Turning With A Difference Allan Battu: Hand Tread Chasing Richard Raffan: Hollowing Endgrain Fréttabréf FÉLAGS TRÉRENNISMIÐA Á ÍSLANDI. Ábm. Reynir Sveinsson Faxatúni 36, 210 Garðabæ. Sími 565 8588. Kt. félagsins 540395 2179. Banki 513 14 600515. Netfang: reyn@ mi.is. Veffang: trerennismidi.is. Fræðsluefni/myndbönd: Sigurjón 553 2367 og 869 6719 sigurjon.kristjansson@reykjavik.is. Endurprentun leyfð sé heimildar getið. Uppsetning RS. Fundarstaður Skipholt 37, 2. hæð. Ljósm. RS nema annars sé getið. Þeir stóðu vaktina á Hrafnagilshátíðinni 2006 og kynntu Félag trérennismiða á Íslandi. Frá vinstri: Úlfar, Reynir, Hrafnkell og Karl Helgi.

2 15 Félagsmálin Nú þegar vetrarstarfið er að hefjast er nauðsynlegt að þeir sem sjá um að skipuleggja félagsstarfið heyri frá félagsmönnum. Blómlegt starf gengur þá best ef félagsmenn leggja orð í belg, komi með hugmyndir um hvað þeir vilja sjá og heyra í vetur. Vilja menn halda uppi fræðslustarfi með námskeiðahaldi á hinum ýmsu sviðum. Vilja félagsmenn okkar á landsbyggðinni fá heimsóknir og námskeið, setja upp sýningar og svo framvegis. Menn mega ekki þegja þunnu hljóði og láta stjórn og nefndir um að halda félaginu lifandi. Komið með óskir og ábendingar. Félagsfundirnir og vorferðirnar sýna að menn hafa gaman af að hittast og kynna sér nýja hluti. Hér með er því skorað á ykkur félagar góðir að sýna í verki hverju þið getið áorkað með því að koma með góðar hugmyndir og einnig sýna í verki hvað þið getið lagt af mörkum fyrir félagið. Fræðslunefnd skipa: Vilmundur Þorsteinsson 862 9812 Björn Bergsson 581 2723 bbergs@mh.is Trausti B. Óskarsson 565 6924 tbo@mmedia.is Sumarsýning Handverks og Hönnunar Félagsmenn tóku þátt í sumarssýningu Handverks og Hönnunar. Þar komu við sögu Jón Guðmundsson, Trausti B. Óskarsson og Reynir Sveinsson. Þar sem ekki er gert ráð fyrir áframhaldandi starfsemi H og H mun starfsemin leggjast af um áramótin. Er sumarsýningin því síðasta sýning á þeirra vegum verði ekki breyting á ákvörðun forsætisráðuneytisins og fl. sem lagt hafa fé til rekstursins. Félagsmenn hafa alloft notið góðs af sýningaraðstöðunni hjá H og H. Það er því eftirsjá eftir þeirri starfsemi þótt umdeild hafi verið. Hnífanámskeið Aðalfundurinn var haldinn laugardaginn 25. mars í Skipholtinu að venju. Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf og var stjórnin endurkjörin. Í stjórn sitja: Kristján Heiðberg formaður. Jón Guðmundsson gjaldkeri. Reynir Sveinsson ritari. Meðstjórnendur Úlfar Sveinbjörnsson og Karl Helgi Gíslason. Varamenn: Guðmundur Magnússon og Antonía Sveinsdóttir. Skoðunarmenn: Stefán Ólafur Jónsson og Þorsteinn Gíslason. Fræðslunefnd: Vilmundur Þorsteinsson, Björn Bergsson og Trausti B. Óskarsson. Sýningarnefnd: Karl Helgi Gíslason og Lýður Sigurðsson. Ferðanefnd: Úlfar Sveinbjörnsson og Hrafnkell Gíslason. Veitingastjórar: Sigurður Már Helgason og Jónas Jóhannesson. Reynir Sveinsson sýndi nokkrar tálgaðar fígúrur. Tálgað í linditré og litað með akríl. Á myndinni er Sigurður Már að sýna tækið sem heldur bitstálinu og stillingar þess. Sjá grein á næstu síðu.

6 11 Handverkshátíðin Hrafnagili 2006 Vestfjarðasýningin í Perlunni Dórothea Jónsdóttir var framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Rennismiðir færðu Dóru forláta skál fyrir stuðninginn og fyrirgreiðslu við okkur á hátíðinni. Án hvatningar hennar og liðsinnis hefðum við ekki farið norður. Skálina renndi Valgeir Benediktsson Árnesi á Ströndum. Frá sýningarsvæðinu, Hrafnkell og Kristján renna Ferða og handverkssýning var í Perlunni í vor. Þar var Valgeir Benediktsson okkar maður á Ströndum við rennibekkinn. Valgeir sýndi nokkra rennda hluti og skálin með eggjunum var þar á meðal. Verlaunagripir á Handverkshátíðinni Úlfar Sveinbjörnsson og Reynir Sveinsson gerðu verlaunagripi fyrir Handverkshátíðina að Hrafnagili. Kyndill renndur úr birki, eldur úr litaðri ull og festur á birkiplatta. Ís í brauðformi renndur úr birki og útskorinn. Ragnar Arason Hornafirði á Handverkshátíðinni Ragnar Arason frá Hornafirði var á Handverkshátíðinni með sölubás ásamt konu sinni. Ljóst er að Ragnar situr ekki auðum höndum rennir ýmsa hluti samlímda og úr heilu. Ragnar litar einnig lokin á sumum boxunum, góð tilbreyting. Þessi rennismiður heitir Haukur og er frá Akureyri. Hann hafði rennibekkinn með sér á sýninguna.

14 Verkefni fyrir rennibekkinn Samlímt kökukefli og skemmtileg skreyting á loki Látinn félagi Páll Jónsson féll frá 30. maí s.l. Páll sem í okkar hópi var ávallt nefndur Páll á Hóli. Páll var húsasmiður og aflaði sér kennararéttinda í Kennaraháskóla Íslands og kenndi við Fjölbrautarskólann í Breiðholti í 18 ár. Þegar hann fór á eftirlaun byggði hann sér hús á æskuslóðum sínum á Bjarnastöðum Hvítársíðu sem hann nefndi Hól. Í einni af vorferðum félagsmanna um Borgarfjörðinn heimsóttum við Pál sem tók vel á móti okkur og áttum við þar ánægjulega samverustund sem við þökkum fyrir. 3 Frá aðalfundinum Sigurður Már Helgason sýndi félagsmönnum eftirhermutæki sem getur komið sér vel við fjöldaframleiðslu. Tækið er frá fyrirtækinu SmithShop í USA. Mátið má vera eins og myndin sýnir skapalón eða rennd súla, öxull og svo frv. Bitstálið er þríhyrningur og má snúa því þegar bitið fer að gefa sig. Nauðsynlegt er að bitstálið sé ávallt vel brýnt, passi fyrir verkefnið og stillt í rétta hæð. Snúningshraði er frá 950 sn./ m. Rennibekkur Sigurðar snýst í allt að 20 þús. snúninga og verður skurðurinn því hreinni en við lágan hraða. Eftirfarandi tafla er gefin upp fyrir hraðastillingar Þvermál rennistykkis Grófrennsli Lögun Slípun Að 2 950 1300 2050 2-4 850 1150 1900 4-6 750 1050 1600 Yfir 6 700 750 850 Til Sölu Kitty bandsög til sölu. Vélin er 2 3 ára og lítið notuð. Upplýsingar gefur Úlli í síma 863 3625. Til sölu rennibekkur af gerðinni Delta 12 variable speed, model 46 701 keyptur 1998. Rennijárn geta fylgt. Upplýsingar gefur Kjartan í síma 848 2677

12 5 Tréskurðarmenn með sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur Félag áhugamanna um tréskurð er 10 ára á þessu ári. Af því tilefni var sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 11. 19. mars s.l. Margir trérennismiðir eru áhugasamir um tréskurð og hafa vonandi heimsótt sýninguna og skoðað þá fögru gripi sem þar voru sýndir. Sjálfsagt eru rennismiðir meðal félagsmanna. Formaður félagsins er Friðgeir Guðmundsson. Handverkshátíðin að Hrafnagili 2006 Handverkshátíðin í Hrafnagili stóð yfir dagana 10. 13. ágúst. Félag Trérennismiða á Íslandi tók þátt í hátíðinni í fyrsta sinn og kynnti félagið og sýndi nokkra gripi. Allmargir félagsmenn heimsóttu sýninguna og var aðsóknin mjög góð. Þeir sem fóru norður gagngert vegna sýningarinnar voru: Hrafnkell Gíslason, Úlfar Sveinbjörnsson, Reynir Sveinsson, Karl Helgi Gíslason og Kristján Heiðberg var á svæðinu. Eiginkonur voru einnig með í för. Margt manna sótti sýninguna þá fjóra daga sem hún stóð yfir. Ótrúlega margir gestir voru frá suðurlandinu og hefur Fiskidagurinn á Dalvík ásamt Handverkshátíðinni vafalaust dregið marga að. Rennismiðir voru í 240m2 tjaldi ásamt allmörgum handverksmönnum. Steini í Handverkshúsinu lánaði okkur rennibekk og patrónu. Reyndum við að hafa bekkinn í gangi mestan þann tíma sem opið var. Margir gestir voru ávallt við rennibekkinn þegar hann var í gangi og skoðuðu í hillur þar sem sjá mátti unna hluti og hvernig nýta má trjáviðinn. Sýningin naut sín ágætlega í tjaldinu þar sem bjart var og opið yfir allt svæðið. Sýning trérennismiða 2007 Félagið hefur tryggt sér aðgang að Ráðhúsi Reykjavíkur í október 2007. Sýningaraðstaðan þar hefur reynst okkur vel og borgaryfirvöld sýnt okkur þann velvilja að úthluta okkur salnum á ofangreindum tíma. Þá reynir bara á að félagsmenn byrji snemma að undirbúa sig svo ekki þurfi að sýna hluti sem áður hafa komið fram. Félagsmenn þurfa nú að vera hæfilega frumlegir og láta sér detta í hug nýjar úrfærslur, helst sem ekki hafa verið sýndar hér áður.

4 13 Samtíningur af netinu Þeir sem vafra um netið geta fengið þar mjög gagnlegar upplýsingar og hugmyndir í trérennismíði. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru af handahófi. Víkingahátíðin í Hafnarfirði 2006 Okkar maður á víkingahátíðinni í Hafnarfirði var eins og oft áður Bjarni Þór Kristjánsson. Eins og margir vita er Bjarni mjög athafnasamur í handverkinu og kemur víða við sögu. Á myndinni til hægri stendur Bjarni Þór við styttuna af Bergþóri í Bláfeldi. Guðmundur Magnússon vann samkeppni um minjagrip sem hefði skírskotun í þjóðsögurnar. Efniviði var safnað í Haukadal og samlímdur og er hæð hans 2,5 metrar. Bjarni Þór, Guðmundur Magnússon og Jón Adólf Steinólfsson hafa unnið við verkið. Bjarni vann hörðum höndum með keðjusögina og fl. verkfæri við gerð hennar meðan á sýningunni stóð. Bergþór fær síðan samastað við Geysi í Haukadal. Minni myndin er tálguð og ætluð til minjagerðar. Þingfréttir Breyting var gerð á lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Upphæðin sem einstaklingar mega selja fyrir hækkar úr 220.000 í 500.000 frá og með 1. júlí 2006. Þetta merkir að handverksmenn mega selja afurðir sínar án virðisaukaskatts upp að kr. Fimmhundruðþúsund. Gott mál það.