Mannfjöldaspá Population projections

Similar documents
Mannfjöldaspá Population projections

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

JANÚAR 2016 Karl Sigurðsson

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2013 Municipal social services 2013

Þjóðhagsspá að vetri endurskoðun Economic forecast, winter revision

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Efni yfirlitsins að þessu sinni er: HAGTÖLUR VR

Félagsauður á Íslandi Þróun og skýringar á mun milli landa. Efnisyfirlit. Þátttaka í félögum og þjóðmálum. Þróun félagsauðs í grannríkjunum

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Ungir innflytjendur og aðrir einstaklingar með erlendan bakgrunn í íslensku samfélagi og íslenskum skólum

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Laun á almennum vinnumarkaði 2005 Earnings in the private sector 2005

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS. Hagstærðir Verzlunarmannafélags Reykjavíkur

Þjóðhagsspá á vetri 2017 Economic forecast, winter 2017

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Þjóðhagsspá að sumri 2017 Economic forecast, summer 2017

Þjóðhagsspá að vetri 2018 Economic forecast, winter 2018

Lagfæring vegamóta á hringveginum. Skoðun á hagvæmni úrbóta

Þjóðhagsspá að sumri 2018 Economic forecast, summer 2018

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Samsvörun milli heildarmagns tannátu meðal 12 og 15 ára barna (DMFT/DMFS) og tannátu í lykiltönnum

Þjóðhagsspá á vetri 2016 Economic forecast, winter 2016

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Ég vil læra íslensku

Félagsvísar: Ungt fólk í foreldrahúsum Social indicators: Young people living with their parents

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin

Þjóðhagsspá að vetri endurskoðun Economic forecast, winter revision

Hagvísir Vesturlands. Börn í sveitum á Vesturlandi

Þjóðhagsspá, vetur 2011 Economic forecast, winter 2011

Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008.

HVERNIG Á AÐ META ÁHÆTTU?

Fyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna

Félagsvísar: Skortur á efnislegum gæðum 2014 Social indicators: Material deprivation 2014

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Health at a Glance: OECD Indicators 2005 Edition. Heilbrigðismál í hnotskurn: Rit OECD Samantekt. Summary in Icelandic. Útdráttur á íslensku

CORINE-verkefniðog landgerðabreytingar á Íslandi milli 2000 og Ingvar Matthíasson Ásta Kr. Óladóttir

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Áhrif brennisteins díoxíðs (SO 2 ) á heilsufar

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

Áfengi og önnur vímuefni Ýmsar tölulegar upplýsingar

Efni yfirlitsins að þessu sinni er:

Langtímaspá um kolefnisbindingu nýskógræktar

Barnaslys í Reykjavík alvarleiki og orsakir

Tengsl fæðingardags á brottfall úr knattspyrnu Hjá 4. flokki karla og kvenna

Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður Niðurstöður úr Ískrá á þyngdarmælingum barna frá 2003/ /10

Reykjavík-Rotterdam, rannsókn á vöruútflutningi til Niðurlands (Hollands) Reykjavík-Rotterdam, a study of exports of goods to the Netherlands

Reykingar, holdafar og menntun kvenna í borg og bæ

Landsframleiðslan 2017 Gross Domestic Product 2017

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012

Evrópskur samanburður á launum 2010 Structure of Earnings Survey 2010

Umfang og umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi 2006

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Félagsvísar: Leigjendur á almennum leigumarkaði Social indicators: Tenants renting at market rates

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Eru tengsl á milli tíðni keisaraskurða og burðarmálsdauða á Íslandi undanfarin 15 ár?

Verðbólga við markmið í lok árs

LV Önnur úttekt á kolefnisbindingu skógræktar á vegum Landsvirkjunar

Lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja Viðhorf og væntingar

sjálfsöryggi. Sj PIAAC Á NORÐURLÖNDUM INNGANGUR GRUNNLEIKNI FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ ATVINNULÍFSINS ANDERS ROSDAHL

Erlendir vetrarferðamenn vegir og þjónusta

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS

Hagsveiflur, umferð og umferðarslysaþróun á Íslandi

Rekstur einkavæddra fyrirtækja á Íslandi

Sumargötur Vettvangsrannsókn á Laugavegi og Skólavörðustíg sumarið 2013

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur V. Hitabylgjur og hlýir dagar

Fljótlegar mæliaðferðir með NIR (Nær innrauð litrófsgreining) tæki. Gyða Ósk Bergsdóttir

BS ritgerð í viðskiptafræði. Viðskipti Kína og Afríku

Febrúar Íslensk ferðaþjónusta

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Áhrif niðurbrots plöntuleifa á laust nítur í jarðvegi The influence of turnover of plant residues on mineral N in soil

Alþingiskosningar 29. október 2016 General elections to the Althingi 29 October 2016

Nýgengi sarkmeina á Íslandi

Íslendingar hafa löngum litið á sig sem bókaþjóð. Oft er sagt að

Sveiflur og breyttar göngur deilistofna. norðaustanverðu Atlantshafi

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Brennisteinsvetni í Hveragerði

Fæðuvenjur á unglingsárum og miðjum aldri og tengsl við áhættu á brjóstakrabbameini

Risarnir eru vaknaðir: Indland og Kína

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

ÓHAPPATÍÐNI Í BEYGJUM OG LANGHALLA. Staða rannsóknarverkefnis

Transcription:

29. júní 216 Mannfjöldaspá 216 265 Population projections 216 265 Samantekt Í miðspá mannfjöldaspár Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir að íbúar gætu orðið 442 þúsund árið 265. Þeim hefði þá fjölgað úr 332 þúsund á árinu 216, bæði vegna fólksflutninga og náttúrlegrar fjölgunar. Í háspánni er gert ráð fyrir að íbúar verði 523 þúsund í lok spátímabilsins en 369 þúsund í lágspánni. Hagstofa Íslands hefur undanfarin ár birt árlega nýja útgáfu af spá um mannfjöldaþróun til næstu 5 ára. Birt eru þrjú afbrigði af spánni, miðspá, lágspá og háspá, sem byggðar eru á mismunandi forsendum um hagvöxt, frjósemishlutfall og búferlaflutninga. Fæddir verða fleiri en dánir á hverju ári allt spátímabilið í miðspánni og háspánni, en færri frá og með 244 samkvæmt lágspánni. Meðalævilengd karla og kvenna (við fæðingu) fer hækkandi: frá 83,6 árum, árið 216 til 88,6 ára, árið 265 fyrir konur og frá 79,6 árum til 84,3 ára fyrir karla. Fjöldi aðfluttra verður meiri en brottfluttra á hverju ári, fyrst og fremst vegna erlendra innflytjenda. Íslenskir ríkisborgarar sem flytja frá landinu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til landsins. Helstu breytingar á samsetningu mannfjöldans eru eftirfarandi ef spáin gengur eftir: a) árið 235 verða 65 ára og eldri yfir 2% mannfjöldans og árið 261 yfir 25%, b) frá árinu 249 verða 65 ára og eldri fleiri en þeir sem eru 19 ára og yngri, öfugt við það sem nú er. Þótt þjóðin sé að eldast og fólksfjölgun verði fremur hæg þá eru Íslendingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evrópuþjóðir. Árið 26 verður meira en þriðjungur Evrópubúa eldri en 65 ára en einungis um fjórðungur Íslendinga. Afbrigði af spá Yfirlit Í þessum Hagtíðindum er lýst þróun og samsetningu mannfjöldans næstu 5 árin. Lýðfræðilegar breytingar þróast hægt en varanleg áhrif eru merkjanleg þegar litið er til nokkurra áratuga. Það útskýrir lengd spátímabilsins. Settar eru fram þrjár spár (lág-, mið- og háspá) sem eru útskýrðar nánar í viðauka 1. Afbrigðin er sett fram til þess að greina áhrif mismunandi efnahagslegra og lýðfræðilegra forsendna á mannfjöldaþróun framtíðarinnar. Þær eru ekki mælikvarði á óvissu í framreikningi og ekki er reynt að áætla hversu líklegt er að ein spáin rætist umfram aðra.

2 Almennri aðferðafræði er stuttlega lýst í viðauka 2. Öryggisbil eru gefin upp þegar gildin eru byggð á reiknilíkönum fyrir tímaraðir. Þau sýna þó aðeins tölfræðileg vikmörk en ekki eiginlega óvissu um framtíðarþróun mannfjöldans. Niðurstöður spánna byggja á þróun í fjölda fæddra, látinna, aðfluttra og brottfluttra á hverju ári næstu fimm áratugi. Upplýsingarnar eru greindar í smáatriðum í næsta hluta. Samsetning mannfjöldans og þróun hans á spátímabilinu er lýst í síðasta kafla Hagtíðindanna. Mynd 1. Mannfjöldinn 196 265 Figure 1. Population development 196 265 6. Fjöldi Number 5. 4. 3. 2. 1. 196 198 2 22 24 26 Lágspá Low Miðspá Medium Háspá High Yfir hálf milljón íbúa Samkvæmt mið- og háspánni mun mannfjöldinn halda áfram að vaxa á næstu 5 árum. Í lágspá, sem miðast við lágt frjósemishlutfall og minni búferlaflutninga, er gert ráð fyrir að íbúatalan byrji að lækka nokkrum árum fyrir lok spátímabilsins. Mannfjöldinn á Íslandi var 332.529 hinn 1. janúar 216. Í miðspánni er gert ráð fyrir að mannfjöldinn verði 442.228 árið 265. Samkvæmt lágspánni verður hann þá 369.12 en 522.794 samkvæmt háspánni (sjá mynd 1). Það nemur um 33%, 11% og 57% vexti samkvæmt mið-, lág- og háspá. Mannfjöldinn fer yfir hálfa milljón íbúa í kringum árið 258 samkvæmt háspánni en í lágspánni verður hins vegar mannfækkun eftir árið 253. Þessi munur stafar af mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga. Skammtímaspá Frjósemisþróun Í spánni til skemmri tíma (216-22) er gert ráð fyrir 351.759 íbúum (miðspáin), 342.767 (lágspáin) eða 362.63 (háspáin) árið 22. Munurinn er í þessu tilviki fyrst og fremst vegna ólíkra forsendna um árlegan hagvöxt og atvinnuleysi sem verka á aðflutning og brottflutning frá landinu. Aldursbundin frjósemi er mæld út frá tíðni barneigna í hverjum einstökum aldursárgangi kvenna á tilteknu ári. Uppsafnað frjósemishlutfall, þ.e. samtala allra hlutfallanna í hverjum árgangi, gefur vísbendingu um hversu mörg börn konur geta vænst að eignast um ævina. Breytingar á þessu hlutfalli á undanförnum árum eru nýttar til að framreikna frjósemishlutfallið til næstu 5 ára (sjá mynd 2).

3 Frjósemisspá byggir á aðferð sem felur í sér sléttað, þverstætt niðurbrot (e. smoothing, orthogonal function decomposition) og reiknilíkön tímaraða. Öryggisbil á spágildum eru í samræmi við forsendur há- og lágspár. Mynd 2. Uppsafnað frjósemishlutfall 197 265 Figure 2. Total fertility rate, per year, 197 265 3,1 2,9 2,7 2,5 2,3 2,1 1,9 1,7 % 1,5 197 198 199 2 21 22 23 24 25 26 Miðspá Medium Lágspá Low Háspá High Í öllum afbrigðum er gert ráð fyrir að uppsafnaða frjósemishlutfallið muni hækka til skamms tíma séð en fari minnkandi frá 22 til um 245 en eftir það verði aftur smávægileg aukning. Aukningin skýrist af miklum fjölda fæðinga árin 28 til 21 (sjá mynd 3) og meðalaldri mæðra sem er látinn vera 32 ár allt tímabilið. Spáin um uppsafnað aldursbundið frjósemishlutfall er notuð til að framreikna fjölda fæðinga og fæðingartíðni (fæðingar á hverja 1. einstaklinga á ári) eins og einnig er sýnt á mynd 3. Samkvæmt framreikningnum þróast frjósemi frá 1,9 (miðspá) árið 216 yfir í 2,1 (miðspá), 1,87 (lágspá) og 2,13 (háspá) árið 22 og yfir í 1,92 (miðspá), 1,77 (lágspá) og 2,5 (háspá) árið 265. Aukning ævilengdar Spá um dánarlíkur er byggð á framreikningi tímaraðalíkana sem taka tillit til aldurs, kyns og tíma. Líkanið felur í sér forsendur eins og að meðalævin lengist fyrir eldra fólk líkt og fyrir yngra fólk. Sömu forsendur um dánartíðni liggja að baki öllum afbrigðum mannfjöldaspárinnar. Mynd 3 sýnir langtímaþróun dánartíðni (dánir af 1. íbúum á ári) sem er notuð til að reikna ævilengd. Hækkunin á dánartíðni má rekja til hækkandi meðalaldurs (sjá næsta kafla). Meðalævi Íslendinga mun lengjast þannig að meðalævilengd karla við fæðingu hækki úr 79,6 árum árið 216 í 84,3 ár árið 265, en kvenna úr 83,6 árum árið 216 í 88,6 ár árið 265.

4 Mynd 3. Fæddir og dánir af 1. íbúum 196 265 Figure 3. Crude birth rate and death rate, 196 265 25, % 2, Fæddir Born 15, 1, Dánir Dead 5,, 197 198 199 2 21 22 23 24 25 26 Miðspá Miðspá Lágspá Háspá Lágspá Háspá Medium Medium Low High Low High Náttúruleg fækkun í lágspánni eftir 244 Búferlaflutningar Eins og álykta má af mynd 3 mun náttúrleg fólksfjölgun (mismunur á fjölda fæddra og dáinna á ári) verða jákvæð allt 5 ára tímabilið í mið- og háspánni, enda skerast ferlarnir fyrir fæðingar- og dánartíðni ekki á tímabilinu. Þessu er ólíkt farið í lágspánni sem byggir á lágum flutningsjöfnuði og lágu frjósemihlutfalli. Samkvæmt henni verða dánir fleiri en fæddir frá og með árinu 244. Búferlaflutningar hafa mikil áhrif á mannfjöldabreytingar. Spá um búferlaflutninga til næstu 5 ára (skammtímaspá) byggir á reiknilíkönum tímaraða sem taka tillit til marktækra efnahagslegra (verg landsframleiðsla (VLF) og atvinnuleysi) og félagslegra (fjölda útskriftarnema) þátta. Settar eru fram þrjár spár (lág-, mið- og háspá) til að gefa möguleika á að greina áhrif mismunandi forsendna um mannfjöldaþróun á næstu árum. Öryggisbil eru birt fyrir öll spáafbrigði. Samkvæmt öllum afbrigðum skammtímaspárinnar mun flutningsjöfnuður (mismunur á fjölda aðfluttra og brottfluttra á ári) verða jákvæður þó svo að 8% öryggisbil spánna fari niður fyrir núllið (sjá mynd 4).

5 Mynd 4. Flutningsjöfnuður 2 22 Figure 4. Migration rates, per year, 2 22 Fjöldi Number 4.5 2.5 5-1.5-3.5-5.5 2 22 24 26 28 21 212 214 216 218 22 Miðspá Háspa/Lágspá 8% vikmörk miðspá Medium High/Low 8% Cl of medium variant Í langtímaspánni eru gert ráð fyrir að flutningsjöfnuður verði óbreyttur að raungildi út tímabilið, þannig dregur úr hlutfallslegum flutningsjöfnuði eftir því sem íbúunum fjölgar. Öll afbrigði í langtímaspánni sýna jákvæðan flutningsjöfnuð. Það er sérstaklega vegna erlendra innflytjenda, en gert er ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum flutningsjöfnuði íslenskra ríkisborgara (sjá mynd 5). Mynd 5. Flutningsjöfnuður íslenskra og erlendra ríkisborgara 197 265, miðspá Figure 5. Net migration rates of Icelandic and foreign citizens 197 265, medium variant 7. 6. 5. 4. 3. 2. 1. -1. -2. Fjöldi Number -3. 197 198 199 2 21 22 23 24 25 26 Íslenskir ríkisborgarar Icelandic citizens Erlendir ríkisborgarar Foreign citizens

6 Fólksfjölgun er árleg hlutfallstala sem mælir breytingar á fjölda íbúa frá einu ári til annars (sjá mynd 6). Hlutfallstalan getur verið neikvæð, sem þá jafngildir fólksfækkun. Breytingar eru bæði vegna náttúrulegrar fjölgunar og búferlaflutninga. Þegar ofangreindar breytingar á mannfjöldanum, fæðingar, andlát og búferlaflutningar eru settar saman má sjá hvernig mannfjöldaþróunin verður til næstu framtíðar. Mynd 6. Árleg fjölgun mannfjöldans 197 265 Figure 6. Yearly population increase 197 265 3, % 2,5 2, 1,5 1,,5, -,5-1, 197 198 199 2 21 22 23 24 25 26 Miðspá Lágspá Háspá Medium Low High Undanfarin 5 ár hefur fólksfjölgunin sveiflast í kringum 1%, en gert er ráð fyrir að dragi smám saman úr henni næstu 5 árin. Ekki er gert ráð fyrir fólksfækkun nema í lágspánni, en samkvæmt henni byrjar fólki að fækka frá og með árinu 253.

7 Mannfjöldapíramídinn Breytingar á samsetningu mannfjöldans Breytingum á kyn- og aldurssamsetningu mannfjöldans er gjarnan lýst með mannfjöldapíramídanum. Hann sýnir á myndrænan hátt fjölda karla og kvenna eftir aldri á hverju ári. Á mynd 7 má sjá að fjölgun verður í nær öllum aldurshópum, en þó einkum í þeim elstu. Mynd 7. Aldurspíramídarnir 216 og 265 miðspá Figure 7. Population age pyramids 216 and 265 medium variant 19 Aldur Age 1 91 82 73 64 55 46 37 28 19 1 Karlar Males Konur Females 1 3 2 1 1 2 3 265 miðspá 265 medium variant 216 Kynjahlutfall Búast má við áhugaverðri þróun kynjahlutfalls (fjöldi karla á hverja 1. konur á ári) í framtíðinni. Mynd 8. Kynjahlutfall 195 265 Figure 8. Population sex ratio 195 265 1.4 Fjöldi karla á hverjar 1. konur á ári Number of males per 1, females a year 1.3 1.2 1.1 1. 99 195 197 199 21 23 25 195 214 Miðspá Lágspá Háspá Medium Low High

8 Eins og mynd 8 sýnir lækkar kynjahlutfallið samkvæmt miðspánni fram til ársins 253 og verður þá lægra en það hefur áður verið frá árinu 214 en karlar verða fleiri en konur á hverju ári næstu 5 árin. Þróun kynjahlutfalls er um margt athyglisverð. Hún er samspil af mörgum þáttum: Fleiri drengir fæðast á hverju ári en stúlkur, fjölda fæðinga, mismunandi dánartíðni kynjanna, ólíkum lífslíkum kynjanna og ólíkri hegðun kynjanna hvað varðar búferlaflutninga. Á mynd 8 sést hvernig mikill innflutningur karlkyns verkafólks umfram kvenkyns breytti skyndilega kynjasamsetningu þjóðarinnar, en fram að því hafði hún þróast í átt til jöfnuðar. Kynjahlutfallið var lægst 188 þegar það var um 9 karlar á hverjar 1. konur, en hækkaði jafnt og þétt fram yfir miðja síðustu öld. Sú hækkun stafaði aðallega af náttúrulegum orsökum, enda létust litlu fleiri karlar en konur á hverju ári fram undir 196, meðan fæðingar bættu við mun fleiri drengjum en stúlkum á hverju ári. Eftir 196 dró í sundur milli karla og kvenna og dauðsföll karla jukust umfram kvenna, fyrst og fremst vegna hjartasjúkdóma. Það hafði áhrif á kynjahlutfallið til lækkunar fram undir 1. áratuginn. Frá lokum síðustu aldar hafa búferlaflutningar haft mest áhrif á kynjahlutfallið. Í flestum Evrópuríkjum eru færri karlar en konur. Sama gildir um önnur lönd með hækkandi meðalaldur. Breytingar á framfærsluhlutfalli Aldurssamsetning þjóðarinnar mun taka breytingum á spátímabilinu. Til einföldunar er gert ráð fyrir að fólk á vinnualdri (skilgreint á aldursbilinu 2 til 65 ára) standi undir framfærslu þeirra sem yngri eru og þeirra sem eldri eru. Framfærsluhlutfallið er því fjöldi yngra fólks og aldraðra í hlutfalli við fólk á vinnualdri. Hingað til hefur framfærsluhlutfall ungs fólks verið hærra en samsvarandi hlutfall þeirra sem eldri eru. Þetta mun snúast við gangi lág- eða miðspáin eftir. Samkvæmt miðspánni snýst þetta við árin 248 en árið 237 samkvæmt lágspánni og árið 262 samkvæmt háspánni. Þá verður í fyrsta sinn fleira eldra fólki en yngra. Yngra fólk verður hins vegar fleira í háspá en það eldra allt spátímabilið (sjá mynd 9). Mynd 9. Framfærsluhlutfall ungs fólks og aldraðra 197 265 Figure 9. Old and young dependency ratios (% per year) 197 265 1 % 9 8 7 Ungir Young 6 5 4 3 2 1 Aldraðir Old 197 198 199 2 21 22 23 24 25 26 Miðspá Lágspá Háspá Miðspá Medium Low High Medium

9 65 ára og eldri fjölgar en 85 ára og eldri fjölgar seinna Fólki yfir 65 ára mun fjölga verulega samkvæmt öllum spá afbrigðum. Árið 236, verður hlutfall 65 ára og eldri yfir 2% mannfjöldans og árið 259 yfir 25%. Það er nú 14,2%. Hlutfall þeirra sem eru 85 ára og eldri byrjar hins vegar ekki að aukast fyrr en árið 228, en fram að því verður það innan við 2%. Fram til ársins 245 mun það hlutfall tvöfaldast og fara í um 5% undir lok spátímabilsins (mynd 1). Mynd 1. Hlutfall fólks eldra en 65 ára hvert ár 216 265, miðspá Figure 1. Proportion of people over 65, per year, 216 265, medium variant 3 % % 6 25 5 2 4 15 3 1 2 5 1 216 221 226 231 236 241 246 251 256 261 65+ (vinstri ás) 65+ (left axis) 85+ (hægri ás) 85+ (right axis) Öldungar Með vaxandi ævilengd mun þeim sem ná 1 ára aldri fjölga verulega næstu fimm áratugi. Eins og mynd 11 sýnir mun þessum hópi fjölga jafnt og þétt til ársins 24, en fjölga hratt eftir það, en þá fara fjölmennir árgangar á stríðsárunum og eftir það að ná þessum aldri. Um fimmfalt fleiri konur en karlar munu ná þessum aldri. Mynd 11. Fjöldi 1 ára gamalla karla og kvenna hvert ár 196 265 Figure 11. Number of men and women over 1 years old, per year, 196 265 35 Fjöldi Number Fjöldi Number 7 3 6 25 5 2 4 15 3 1 2 5 1 196 198 2 22 24 26 Konur (vinstri ás) Karlar (hægri ás) Females (left axis) Males (right axis)

1 Íslenska þjóðin ung Lokaorð Þótt þjóðin sé að eldast og fólksfjölgun fremur hæg þá eru Íslendingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evrópuþjóðir. Árið 26 verður meira en þriðjungur Evrópubúa eldri en 65 ára en einungis um fjórðungur Íslendinga. Mikilvægur þáttur sem heldur aftur af öldrun þjóðarnnar er frjósemishlutfall sem heldur áfram að vera hátt í samanburði við önnur Evrópulönd. Árið 214 voru aðeins Frakkland og Írland með hærra frjósemishlutfall en Ísland. Af þessu leiðir að fjöldi fæðinga á Íslandi verður meiri en fjöldi dauðsfalla fyrir miðspá og háspá á árunum 216 265 og mestan hluta þess tíma fyrir lágspána. Þetta er talsvert önnur mynd en blasir við í Evrópusambandinu þar sem því er spáð að náttúruleg fækkun (fleiri dauðsföll en fæðingar) myndi hefjast frá og með árinu 216. Fólksfjölgun verður þó í sumum Evrópulöndum vegna jákvæðs flutningsjöfnuðar en í sumum löndum Evrópu má vænta fólksfækkunar. Viðauki 1: Afbrigði mannfjöldaspárinnar Hin þrjú afbrigði af mannfjöldaspánni eru sett saman eins og hér segir: Skammtíma flutningsjöfnuður og frjósemishlutfall, sem og langtíma dánarlíkur miðast við reiknilíkön fyrir tímaraðargreiningar. Skammtíma flutningsjöfnuður er reiknaður fyrir þrjár mismunandi sviðsmyndir efnahagslegrar þróunar til næstu fimm ára. Miðspá byggist á gildandi þjóðhagsspá Hagstofu Íslands um verga landsframleiðslu (VLF) og þróun atvinnuleysi til næstu fimm ára. Í lágspánni er gert ráð að engum hagvexti og meira atvinnuleysi, en í háspánni tvöföldum hagvexti miðað við þjóðhagsspá og minna atvinnuleysi. Flutningsjöfnuður var látinn falla að gildum til langframa sem sérfræðingar ákváðu fyrir öll spáafbrigðin. Hið sama á við um langtímaforsendur fyrir frjósemisþróunina. Sömu dánarlíkur eru reiknaðar fyrir öll afbrigði spárinnar. Í lágspá mannfjöldans er reiknað með lágri frjósemi og lágum jákvæðum flutningsjöfnuði. Háspáin byggist á hárri frjósemi og hærra spágildi fyrir flutningsjöfnuð en miðspáin. Viðauki 2: Aðferðir Tölfræðilegum aðferðum er lýst í greinargerð Methodology of population projections, https://www.hagstofa.is/media/49266/hag_151118.pdf. Útreikningurinn er í tveimur hlutum: Fyrrri hluti byggist á aðferðum tímaraðagreiningar og tekur tillit til: Gagna frá fyrri árum um búferlaflutninga, fædda og dána. Spár til næstu fimm ára um þróun vergrar landsframleiðslu, atvinnuleysi og fjölda útskriftarnema úr framhaldsskólum og þróun þessara þátta á fyrri árum. Íbúafjölda í upphafi árs. Þessi gögn eru nýtt til að framreikna fæðingar, dauðsföll og búferlaflutninga til næstu fimm ára.

11 Í seinni hlutanum eru ofangreind gildi látin falla að fyrirfram skilgreindum gildum og eftirfarandi jafna notuð til að reikna út fjölda einstaklinga í hverjum aldursárgangi á hverju ári: fjöldi fólks í upphafi árs dánir + aðfluttir brottfluttir = fjöldi fólks í lok árs. Fyrir börn á fyrsta ári fjöldi lifandi fæddra barna á árinu settur í stað fjölda fólks í upphafi árs. Viðmiðunardagur allar talninga er 1. janúar á hverju ári. Notuð eru gögn úr mannfjöldaskýrslum Hagstofunnar. English Summary Statistics Iceland publishes every year updated short (5 years) and long term (5 years) population projections. According to the medium projection variant, the Icelandic population will grow, from 332 to 442 thousand persons during the next 5 years, due to both migration and natural increase. The high variant predicts a population of 523 thousand while the low variant projects to 369 thousand inhabitants. The projection variants are built according to different assumptions about economic growth, fertility and migration levels. The number of births per year will exceed the number of deaths per year during the entire period, for high and medium variants. Life expectancy at birth for both men and women will grow: from 83.6 years in 216 to 88.6 years in 265 for women and from 79.6 to 84.3 years for men. The immigration rates are expected to exceed the emigration rates, which is mainly due to a high level of foreign immigration to Iceland. The number of emigrating Icelandic citizens will continue to be higher than the number of returning citizens. Population structure is predicted to change as follows: a) by 235, 2% of the population will be 65 years and older and by 261 the percentage will be over 25%, b) after 249, the older age population (over 65 years) will become more numerous than the younger (less than 2 years old). Although the population is ageing and the population growth is rather slow, Iceland is and will be younger than most European countries, where more than one third of all people will be over 65 years old in 26, compared with only a quarter in Iceland.

12 Hagtíðindi Mannfjöldi Statistical Series Population 11. árg. 17. tbl. 29. júní 216 ISSN 167-477 Umsjón Supervision Violeta Calian violeta.calian@hagstofa.is Ómar Harðarson omar.hardarson@hagstofa.is Sími Telephone +(354) 528 1 Bréfasími Fax +(354) 528 199 Hagstofa Íslands Statistics Iceland Borgartúni 21a 15 Reykjavík Iceland www.hagstofa.is www.statice.is Um rit þetta gilda ákvæði höfundalaga. Vinsamlegast getið heimildar. Reproduction and distribution are permitted provided that the source is mentioned.