Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Similar documents
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Ársskýrsla Hólaskóla Háskólans á Hólum 2015

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Stefnumótun. tun Rf. Hlutverk (Mission) Why we exist. Gildi (Core values) What we believe in. Framtíðarsýn (Vision) What we want to be

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

FORMÁLI REKTORS. Stjórn

Útgefandi: Háskólinn á Akureyri. Ritstjórn: Guðrún M. Kristinsdóttir. Prófarkalestur: Finnur Friðriksson. Ljósmyndarar: Auðunn Níelsson, Daníel

Rannsóknamiðstöð ferðamála

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Efnisyfirlit. Stjórn bls. 4 Skipurit bls. 4 Reglur og stefnumál bls. 5 Formáli rektors bls. 7 Nemendafjöldi bls. 8 Starfsmenn bls.

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Ársskýrsla Stafsmenn á árinu 2010 voru:

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Ársskýrsla RMF Ársskýrsla, yfirlit yfir útgefið efni, ráðstefnur og fyrirlestra

Viðauki með þjónustusamningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og Háskólans í Reykjavík (HR)

MYND?? Logo skólans DRÖG. Ársskýrsla. Háskólans á Bifröst. Ársskýrsla 2016

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

Horizon 2020 á Íslandi:

Ég vil læra íslensku

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM. Schengen ráðstefna 6. október Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn -

Efnisyfirlit. Stjórn bls. 6 Skipurit bls. 6 Reglur og stefnumál bls. 7 Formáli rektors bls. 9 Nemendafjöldi bls. 10 Starfsmenn bls.

HÁSKÓLINN Á AKUREYRI ÁRSKÝRSLA 2016 EFNISYFIRLIT

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Samstarf HR og IGI. Ólafur Andri Ragnarsson

Rannsókn á Byrjendalæsi: Markmið, snið, gögn og úrvinnsla

HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK

Háskólinn á Akureyri. ársskýrsla

INNFORM rannsóknin: Árangur, stefna og alþjóðavæðing!

Starfsþróun eflir nemendamiðaða faglega forystu. (Professional Development for Student Centered Leadership) Lokaskýrsla Erasmus+ verkefnis

Efnisyfirlit Árið ár skipulagsbreytinga og stefnumótunar...2

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

GÆÐAKERFI HÁSKÓLA ÍSLANDS

Fjölbreyttir kennarahópar og fjölbreyttir nemendahópar

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra Skagaströnd

Hönnunarstefna Hönnun sem drifkraftur til framtíðar

Rannsóknamiðstöð ferðamála, svarandi: Edward H. Huijbens

Verkefnatengt nám. Hentar lögfræði þér? Starfsvettvangur lögfræðinga

Skýrsla. samgönguráðherra um framkvæmd ferðamálaáætlunar. (Lögð fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi )

Svæðisbundin áhrif íslenskra háskóla

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Viðhorfskönnun meðal erlendra söluaðila um íslenska ferðaþjónustu. September 2018

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Þróun kennaramenntunar við Menntavísindavið Háskóla Íslands

Sameining tveggja háskóla í Svíþjóð

Skóli án aðgreiningar

Skýrsla stjórnar starfsárið 2016

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

VIÐSKIPTAFRÆÐI Grunnnám og framhaldsnám BSc MSc PhD

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Þróun kennslu læknanema á síðustu áratugum

Erasmus+ Opnar dyr út í heim!

1. ár Haust. í félagsvísindum. Félagsvísindatorg. Iðnbylting og hnattvæðing. Saga sálfræðinnar. Vinnulag í hug- og félagsvísindum

Sköpun Snerpa Samstarf Mannauður. Ársskýrsla Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

Ársskýrsla. Embættis landlæknis

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

1.UM LISTAHÁSKÓLANN 1

FRAMHALDSNÁM Í STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD

Skemmtiferðaskip við Ísland. Úttekt á áhrifum. Edward H. Huijbens Kristinn Berg Gunnarsson

ÁR SR IT UM FR AMHALDSFRÆÐS LU

FRAMHALDSNÁM Í STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD

Erasmus+ Stefnumiðuð samstarfsverkefni (strategic partnerships) VEFSTOFA UMSÓKNIR SKÓLA / SKÓLASKRIFSTOFA

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands ÁRSSKÝRSLA 2017

Ársskýrsla Hrafnseyri

ANNUAL REPORT 2010 ÁRSSKÝRSLA 2010

Landbúnaðarháskóli Íslands. Ársskýrsla 2012

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

STOÐKERFISVERKIR HJÁ HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRUM OG TENGSL VERKJA VIÐ STREITU

Leiðbeinandi á vinnustað

STÝRING OG GJALDTAKA Á FERÐAMANNASTÖÐUM HÁMARKA UPPLIFUN, VERNDA NÁTTÚRU OG TRYGGJA ÖRYGGI

SEPTEMBER 2010 RÁÐSMIÐJA UM FRÆÐANDI FERÐAÞJÓNUSTU - KIÐAGIL

Ársskýrsla 2013 HRAFNSEYRI

Lög, stefna og úrræði í málefnum háskólanema af erlendum uppruna í þremur háskólum á Íslandi

JANÚAR 2016 Karl Sigurðsson

2013: Supervisor Training Course, Graduate Office, University of Central Lancashire

Könnunarverkefnið PÓSTUR

LEIÐARVÍSIR UM ÞÁTTTÖKUNÁM (Service Learning)

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Transcription:

HÁSKÓLINN Á HÓLUM Ferðamáladeild Háskólans á Hólum Ársskýrsla 2016 Ábyrgðarmaður: Laufey Haraldsdóttir

Efni Nám og kennsla... 2 Ný námsleið við deildina... 2 Mannauður... 3 Stjórnun... 4 Rannsóknir... 5 Birtingar... 6 Kynningar... 7 Styrkumsóknir... 9 Fyrirlestraröð... 11 Afmælisár deildarinnar... 12 Þjónusta og samstarf... 14 Á kápu er mynd af nemendur á þriðja ári í ferðamálafræði að loknum kynningum á BA verkefnum sínum. Forsíðumynd, mynd 3, 6 og 9: Laufey Haraldsdóttir, mynd 1, 5, 7, 8 og 11: Ingibjörg Sigurðardóttir, mynd 4: Aldís Axelsdóttir og mynd 2: Kjartan Bollason. Mynd 10: óþekkt finnst félagsvísindakona í Háskóla Laplands. 1

Nám og kennsla Á árinu var boðið upp á fjórar námsleiðir við deildina: Diplóma í ferðamálafræði, diplóma í viðburðastjórnun, BA í ferðamálafræði og MA í ferðamálafræði. Útskrifaðir voru alls 54 nemendur við tvær athafnir, í júní og október. Í júní útskrifuðust samtals 48 nemendur frá deildinni: 22 með diplómu í viðburðastjórnun, 24 með BA gráðu í ferðamálafræði og tveir með MA gráðu í ferðamálafræði. Í október útskrifuðust sex nemendur frá deildinni: Tveir með diplómu í ferðamálafræði, og fjórir með diplómu í viðburðastjórnun.. Haustið 2016 var 61 nýnemi innritaður við deildina. Þar af voru 32 nýnemar í ferðamálafræði á grunnnámsstigi (FDP og FBA), 28 í diplómunámi í viðburðastjórnun og einn í MA námi í ferðamálafræði. Auk þess einn erlendur skiptinemi á haustönn 2016. Af þessum 61 nýnema við deildina hafa 19 hætt námi. Alls þreyttar einingar við deildina á árinu voru 5094 ECTS, þar af 80 ECTS einingar í gestanámi frá öðrum opinberum háskólum. 15. október 2016 voru innritaðir nemendur í deildinni sem hér segir: Í diplómunámi í viðburðastjórnun: 38 Í diplómunámi í ferðamálafræði: 5 Í BA námi í ferðamálafræði: 77 Í MA námi í ferðamálafræði: 2 Mynd 1: Nýbakaður meistari í ferðamálafræði, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, ásamt Kjartani Bollasyni kennara við deildina. Ný námsleið við deildina Í tilefni af 20 ára afmælisári deildarinnar var tekin ákvörðun um að bjóða upp á nám til BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta (e. hospitality and tourism management). Undirbúningur og þróun námsleiðarinnar fór fram á árinu 2016. Allir fastráðnir kennarar, auk utanaðkomandi sérfræðinga komu að 2

þróun námsleiðarinnar og voru haldnir vinnufundir haustið 2016 sem tileinkaðir voru þeirri vinnu. Að auki var leitað samráðs hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, Starfsgreinaráði o.fl. Tilgangurinn með þessari viðbót við námsframboð deildarinnar er að auka fjölbreytni í námsvali deildarinnar og mæta þörfum atvinnugreinarinnar fyrir menntað starfsfólk og stjórnendur á þessu sviði. Með þessari viðbót verður boðið upp á 5 námsleiðir við deildina. Til að byrja með verður fyrsta árið á nýrri námsleið sameiginlegt með fyrsta ári í BA námi í ferðamálafræði. Tilkynnt var opinberlega um þessa nýjung á afmælisráðstefnu deildarinnar sem fram fór á Grand hótel í Reykjavík 3. október (sjá samantekt á ráðstefnunni síðar í skýrslunni). Mynd 2: Göngustíganámskeið vorið 2016. Mannauður Fastráðið starfsfólk við deildina er (sjá töflu 1) einn prófessor í 50% starfi fyrri hluta árs (jan.-júlí) og 20% starfi seinni hluta árs (ág.-des.), en viðkomandi starfar jafnframt við Háskólann í Suðaustur Noregi, tveir lektorar í 100% starfi, einn lektor í 84% starfi og einn lektor í 15% starfi. Þá voru fastráðnir tveir akademískir starfsmenn við deildina á árinu, annar í febrúar í 50% stöðu og og hinn í ágúst í 100% stöðu. Báðir starfsmenn fóru í gegnum hæfnimat og hlutu starfsheitið lektor skv. reglum HH um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna. Þá voru ráðnir tveir starfsmenn með tímabundinn samning til eins og tveggja ára. Að auki voru sjö sérfræðingar ráðnir til stundakennslu við deildina, allir sem verktakar í einstökum námskeiðum. Fimm starfsmenn annarra deilda háskólans komu að kennslu við Ferðamáladeild á árinu 2016. Tafla 1: Fastir starfsmenn við ferðamáladeild árið 2016. Staða Starfshlutfall Hæfni Kyn Prófessor 50% -> 20% Doktor (PhD) Kona Lektor 100% Í doktorsnámi Kona Lektor og 100% MA þjóðfræði og DVM í Kona deildarstjóri dýralækningum 3

Lektor 100% (lét af störfum 1. maí) Í doktorsnámi Kona Lektor 84% MS umhverfisfræði Karl Lektor 50% (frá 1. febrúar 2016) Doktor (PhD) Kona (50% við Selasetur Íslands) Lektor 100% (frá 1. ágúst 2016) Doktor (PhD) Kona Lektor 15% MS ferðamálafræði Kona Akademísk 100% (tímabundið 2 ár) MS ferðamálafræði Kona staða Akademísk staða 100% (tímabundið 1 ár) MA ferðamálafræði Karl Mynd 3: Nýir starfsmenn Ferðamáladeildar, Jessica Faustini Aquino og Amy Savener. Stjórnun Laufey Haraldsdóttir lektor sinnti deildarstjórastöðu 2016. Fulltrúi deildar í framhaldsnámsnefnd voru Guðrún Helgadóttir prófessor fyrri hluta árs og Anna Vilborg Einarsdóttir aðjúnkt/kennari seinni hluta árs. Fulltrúi deildar í kennslunefnd var Ingibjörg Sigurðardóttir lektor. Fulltrúi deildar í rannsóknarnefnd var Guðrún Þóra Gunnarsdóttir lektor fyrri hluta árs og Amy Sävener lektor seinni hluta árs. Fulltrúar deildar í námsnefnd voru Kjartan Bollason lektor og Laufey Haraldsdóttir. Fulltrúar nemenda á fundum deildarinnar voru, Helga Sigríður Þórarinsdóttir (fulltrúi á deildarfundum) og Hjördís Garðarsdóttir (fulltrúi í námsnefnd). Ekki gekk að fá fleiri nemendur sem fulltrúa þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Laufey Haraldsdóttir sinnti formennsku í Jafnréttisnefnd háskólans. Laufey Haraldsdóttir og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir sátu í stjórn Ferðaþjónustunnar á Hólum, Laufey sem formaður stjórnar. Gríðarleg vinna fór í endurskipulagningu innan Ferðaþjónustunnar árið 2016 og má reikna með að a.m.k. 150 vinnustundir hafi farið í það starf hjá fulltrúum deildar í stjórn. Nánar verður vikið að stjórnunarstöfum starfsmanna deildarinnar undir kaflanum Þjónusta og samstarf. Deildarfundir voru tíu á árinu eða mánaðarlega fyrir utan júlí og ágúst. Í starfsreglum Háskólans á Hólum er tilgangur deildafunda tíundaður. Auk þess sem þar er talið er tilgangur deildarfunda á Ferðamáladeild að vera vettvangur til upplýsingamiðlunar og formlegrar afgreiðslu mála af kennurum og fulltrúum nemenda. Kennarafundir, þ.e. vinnufundir kennara, voru tveir, í apríl og 4

nóvember. Á apríl fundinum var m.a. farið yfir allar námsleiðir deildarinnar og þær skoðaðar m.t.t. stefnu og lærdómsviðmiða deildar, sem og stefnu háskólans. Á nóvember fundinum var unnið að nýrri námsleið við deildina á sviði stjórnunar ferðaþjónustu og móttöku gesta. Rannsóknir Rannsóknaverkefni voru einkum á eftirfarandi sviðum: Félagsleg áhrif ferðaþjónustu, hestatengd ferðaþjónusta, starf leiðsögumanna, áhrif virkjanaáætlana á ferðaþjónustu, siðferði og ábyrgð í ferðaþjónustu og náttúrutengd ferðaþjónusta. Árið 2016 birtu starfsmenn deildarinnar fjórar ritrýndar greinar í tímaritum og stóðu fyrir útgáfu fjögurra rannsóknarskýrslna. Auk þess stóð starfsmaður deildarinnar fyrir útgáfu bókar í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, birt var grein í riti fyrir almenning, tvö veggspjöld kynnt á ráðstefnum og nýr starfsmaður deildarinnar varði doktorsverkefni sitt. Starfsfólk kynnti nítján fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum og tíu fyrirlestra á innlendum ráðstefnum og fundum (tafla 2). Tafla 2: Kynning rannsókna við Ferðamáladeild árin 2011-2016. 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Ritrýnd tímarit 1 0 1 2 4 4 Bók 0 0 0 1 1 1 Bókakaflar 2 0 1 7 3 0 Ráðstefnurit 5 3 1 3 2 0 Skýrslur 3 0 2 0 0 4 Ritgerðir PhD eða MA/MS 1 (MA) 1 (D) Kynningar á alþjóðlegum 0 3 13 17 8 15/4 ráðstefnum/fundum Kynningar á innlendum 3 4 9 15 8 10 ráðstefnum og fundum Veggspjöld 2 Greinar f. almenning 1 Alls 14 10 29 45 26 42 Deildin átti gott samstarf við Landssamband hestamannafélaga og Landsmót ehf um heildstæða rannsókn á Landsmóti hestamanna sem viðburði. Landsmót hestamanna er einhver viðamesti viðburður sem haldinn er reglulega á Íslandi en mótið fór að þessu sinni fram á Hólum. Um 10 manna alþjóðlegt teymi rannsakenda vann að rannsókninni. Verkefnisstjóri var Ingibjörg Sigurðardóttir lektor. Unnið var að gagnaöflun fyrir mót, meðan á mótinu stóð og eftir að mótinu lauk. Samstarfsaðilar deildarinnar í þessu verkefni voru frá Háskóla Íslands auk fræðimanna frá Noregi, Svíþjóð og Bretlandi. Einn meistaranemi deildarinnar tók þátt í rannsókninni auk tveggja, sem nýlokið höfðu BA gráðu í ferðamálafræði við deildina. 5

Mynd 4: Rannsóknarteymi Landsmóts hestamanna 2016, ásamt deildarstjóra Ferðamáladeildar. Birtingar: Anna Vilborg Einarsdóttir. (2016). Starf og starfskjör leiðsögumanna og starfsemi Félags leiðsögumanna. 61 bls. Reykjavík: Félag leiðsögumanna. Aðgengilegt á http://www.touristguide.is/files/583ef2dad9cfb.pdf Burns, G.L. and Haraldsdóttir, L. (2016). Potential Effects of Proposed Power Plants on tourism in Skagafjörður, Iceland. Report for the Ministry for the Environment and Natural Resources. 44p. Hólum: Holar University College, Department of Rural Tourism. ISBN: 978-9935-9316-0-3 Georgette Leah Burns, James Macbeth, and Susan Moore. (2016). Should dingoes die? Principles for engaging ecocentric ethics in wildlife tourism management. D. Fennell (ed.), Tourism Ethics. Critical Concepts in Tourism. Volume 1. Routledge. Guðrún Helgadóttir & Katherine Daspher. (2016). Dear International Guests and Friends of the Icelandic Horse : Experience, Meaning and Belonging at a Niche Sporting Event. Scandinavian Journal of Hospitality and Tourism 16(2). Aðgengilegt á http://www.tandfonline.com/doi/ref/10.1080/15022250. 2015.1112303 Guðrún Helgadóttir, Anna Vilborg Einarsdóttir, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Jóhanna M. E. Matthíasdóttir & Georgette Leah Burns. (2016). Félagsleg áhrif ferðamennsku og ferðaþjónustu. 130 bls. Reykjavík: Ferðamálastofa. ISBN 978-9935-9317-0-2. Aðgengilegt á https://www.ferdamalastofa.is/is/tolur-ogutgafur/utgefid-efni/umfang-og-ahrif/felagsleg-ahrif-ferdamennsku-ogferdathjonustu 6

Guðrún Þóra Gunnarsdóttir. (2016). Flippaðar hugmyndir sem virka: Frásagnir af Bræðslunnni og samfélagslegum áhrifum hennar. 37 bls. ISBN: 978-9935-437-57-0. Akureyri: Rannsóknamiðstöð ferðamála. Paula-Marie Lewis, Georgette Leah Burns and Darryl Jones. (2016). Response and responsibility: Humans as apex predators and ethical actors in a changing societal environment. Food Webs. Aðgengilegt á http://dx.doi.org/10.1016/ j.fooweb. 2016.09.001 Savener, A. M. (2016). Being in time: Heideggerean existential authenticity and imperialist nostalgia in tourists to Guna Yala, Panamá (Doctoral dissertation, Indiana University). Sigurðardóttir, I. (2016a). Lífstíll verður ferðavara; þróun fyrirtækja í hestamennsku á Íslandi [e. Lifestyle as a tourism product - Development of equestrian businesses in Iceland]. Tímarit um viðskipti og efnahagsmál, 13(2), 1-16. Sigurðardóttir, I. (2016b). Stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu afþreying á sjó og vatni [Managing tourism businesses Water based tourism]. Hólum: Háskólinn á Hólum, Ferðamáladeild. 146p. Sigurðardóttir, I. (2016c). Alþjóðleg rannsókn á Landsmóti hestamanna sem viðburði. Íþróttaviðburður og mannfagnaður. Eiðfaxi, 11. tbl., 66-68. Kynningar á alþjóðlegum og innlendum ráðstefnum: Amy Miller Savener Veggspjald: Existential Transformation or Tourist Fantasy? Þjóðarspegillinn, Reykjavík. 27. október. Ingibjörg Sigurðardóttir. With Steinþórsson, R.S. Hýruspor klasaframtak ( Hýruspor a cluster initiative). Þjóðarspegillinn, Reykjavík. 27. október. Landsmót hestamanna sem viðburður - heildstæð viðburðarannsókn (Landsmót hestamanna as an event). Þjóðarspegillinn, Reykjavík. 27. október. Wellness and equestrian tourism - innovation and product development. EAAP 2016 Annual meeting of the European Federation of animal science, Belfast, Írlandi. 28. ágúst 2. september. With Steinþórsson, R.S. Cluster development and innovation in equestrian tourism in Northwest of Iceland. EAAP 2016 Annual meeting of the European Federation of animal science, Belfast, Írlandi. 28. ágúst 2. september. With Steinþórsson, R.S. Entrepreneurship in Northwest of Iceland; development of a regional equestrian cluster. 4th Nordic Conference for Rural Research, Akureyri. 22-24 maí. Equestrian tourism in Iceland - rural entrepreneurship and innovation. Fræðslufundur fyrir erlenda gesti að Borgum á Akureyri. Rannsóknamiðstöð ferðamála. 13. september. 7

Guðrún Helgadóttir: Social sustainability of tourism: A qualitative study in Iceland. World VIU points lecture series. Vancouver Island University, Centre of excellence World Leisure Organization. Nanaimo, BC, Kanada. 20 október. Kvinner og turisme, presentasjon i seminarserien Kvinner og bærekraftig utvikling, Partnership for change. Literaturhuset, Oslo. 13. september. 20 years of teaching cultural tourism. Teaching and learning cultural entrepreneurship. University College of Southeast Norway, campus Bø. 25-26 ágúst. Communities of practice: Tourism and tourist experiences in the experience economy. Nordic research network and seminar within experience economy research, Kaupmannahöfn. 21-22 júní. You must be tired of all the tourists? Nordic Ruralities, The University in Akureyri, Akureyri. 22-24 maí. Félagsleg áhrif ferðamennsku og ferðaþjónustu. [Social impacts of tourists and tourism services, Iceland Tourist Board conference on tourism impacts] Ráðstefna Ferðamálastofu um þolmarkarannsóknir, Grand hótel, Reykjavík. 25. maí. Georgette Leah Burns: Tourism in Iceland: A tale of three research projects and thoughts on a sustainable future. Public lecture. University Centre of the West Fjords, Ísafirði. 25. nóvember. Searching for a Wildlife Tourism Ethic. Invited keynote. Wildlife Tourism Australia Conference. Adelaide, Australia. 6-10. nóvember. Seeing Seal Signs: Using interpretation to modify visitor behaviour at a seal watching site in Iceland. Wildlife Tourism Australia Conference. Adelaide, Australia. 6-10. nóvember. Co-authors: Sarah Marschall and Sandra Granquist Diving into a Continental Rift. Tourism Naturally Conference, Alghero, Italy. 2-5. október. Co-authors: Jóhann Garðar Þorbjörnsson, Catherine P. Chambers, Jónína Herdís Ólafsdóttir, Bjarni K. Kristjánsson. When the wildlife you watch becomes the food you eat: Exploring ethical boundaries and decision making at the interface of consumptive and nonconsumptive tourism. Tourism Naturally Conference, Alghero, Italy. 2-5. október. Co-authors: Elin Lilja Öqvist, Sandra Granquist. Diving Between Continents: Visitor motivations, disturbance e and management implications for Silfra, Iceland. MMV8 conference, Novi Sad, Serbia. 26-29. september. Co-authors: Jóhann Garðar Þorbjörnsson, Catherine P. Chambers, Jónína Herdís Ólafsdóttir, Bjarni K. Kristjánsson. I Saw The Sign: Modifying visitor behaviour at a Seal Watching Site. Wildlife Tourism Australia workshop. Binna Burra, Australia. 16. september. Co-authors: Sarah Marschall and Sandra Granquist. Dam(n) the rivers or blow the highlands? Finding sustainable pathways for balancing resource use and protection and other adventures in Iceland. Griffith 8

University, Australia. 13. maí. Sustainable Wildlife Tourism? Exploring ethical approaches to managing interactions between tourists and wildlife. Public Symposium. Wakayama University, Centre for Tourism Studies, Japan. 8. mars. Laufey Haraldsdóttir: Expressing local identity through stories of food and rurality. 4th Nordic Conference for Rural Research. University of Akureyri, 22-24. maí. Með Guðrún Þóru Gunnarsdóttur. Matarferðaþjónusta - tækifæri og skapandi vöruþróun til sveita. Landsýn 2016. Hvanneyri. 4. mars. Tourism, food and place. Fræðilegt erindi f. framhaldsnema og kennara í University of Lapland, Roveniemi. 4. nóvember. Innleiðing lærdómsviðmiða í námi og kennslu - Háskólinn á Hólum Ferðamáladeild. Vinnustofa á vegum Kennslumiðstöðvar HÍ um kennsluþróun í háskólum. Fulltrúar innlendra háskólar. 11-12. apríl. Að setja sálina í pottana. Ferðaþjónusta, staður, matur og marbreytileiki. Opin fyrirlestur hjá Akureyrarakademíunni boðið. 5. mars. Matur og ferðaþjónusta í Eyjafjarðarsveit. Fyrirlestur fyrir félag ferðaþjónustuaðila í Eyjafjarðarsveit. 15. maí. Anna Vilborg Einarsdóttir: Félagsleg áhrif ferðamennsku og ferðaþjónustu. Kynning við háskólann í Lapplandi í Roveniemi, Finnlandi. 4. nóvember. Starf og starfskjör leiðsögumanna og starfsemi Félags leiðsögumanna. Kynning á niðurstöðum rannsóknar á opnum fundi Félags leiðsögumanna. 22. nóvember. Veggspjald: Félagsleg áhrif ferðaþjónustu og ferðamennsku. Þjóðarspegillinn. Reykjavík. 27. október. Styrkumsóknir: Tafla 3: Styrkumsóknir 2016. Nafn umsækjanda í deildinni Jessica Faustini Aquino Heiti verkefnis og sjóður Sustainable Tourism and Responsible Practices of Arctic Coastal Communities and Seascapes Sjóður: Arctic Research and Studies Fund. Rannsóknarverkefni Samvinna við/milli Hólar University College department of Rural Tourism; the Icelandic Seal Center, Icelandic Tourism Research Center (RMF); Marine and Freshwater Research Institute; Griffith University; Sótt um 10.050 evrur sept. 2016 Styrk ur já 9

Guðrún Helgadóttir Laufey Haraldsdóttir Dynamic relationship between human activity and ecosystem changes in the arctic: The case of tourism Sjóður: Arctic Research and Studies Fund. Rannsóknarverkefni the Arctic Universtiy of Norway. Háskólinn á Hólum og University of SouthWest Norway. 23.000 evrur sept. 2016 Já Guðrún Helgadóttir Anna Vilborg Einarsdóttir Industrial Heritage as a catalyst for rural regeneration Sjóður: EU H2020 SC5-21-2016-2017 Rannsóknarverkefni Ýmsir aðilar í 11 löndum Evrópu. 10.000. 000 evrur sept. 2016 Nei Guðrún Helgadóttir Ingibjörg Sigurðardóttir The Horse and European Equestrian heritage as Resource for a Sustainable Europe- Participatory approaches and social innovation culture. Sjóður: EU H2020 Work Programme 2016-2017 Europe in a changing world inclusive, innovative and reflective Societies CULT-COOP-06-2017: Participatory approaches and social innovation in culture. Rannsóknarverkefni 13 aðilar frá 9 löndum. 10.000. 000 evrur Sep 2016 Nei Ingibjörg Sigurðardóttir og Jessica Aquino Biophilic Tourism: Sustainable Tourism progress Through Bioeconomy Strategies Sjóður: NordForsk Rannsóknarverkefni Rannsóknarteymi í fjórum mismunandi löndum: Íslandi, Finnlandi, Noregi og Danmörku. 19.244. 737 NOK Nei Ingibjörg Sigurðardóttir Heritageled rural regeneration Sjóður: EU H2020 Call: SC5-21-2017 Ýmsir aðilar í 8 löndum. 10.000. 000 evrur Nei 10

Rannsóknarverkefni Ingibjörg Sigurðardóttir Landsmót hestamanna, heildstæð viðburðarannsókn Sjóður: Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið Rannsóknarverkefni 5 háskólar á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og UK, og Landsmót hestamanna ehf. 500.00 0 ISK Já 200.0 00 Ingibjörg Sigurðardóttir Landsmót hestamanna, heildstæð viðburðarannsókn Sjóður: Framleiðnisjóður landbúnaðarins Rannsóknarverkefni HH, USN, Dalarna, UiT og Leeds Beckett 3.000.0 00 ISK Nei Anna Vilborg Einarsdóttir Starf og starfskjör leiðsögumanna og starfsemi Félags leiðsögumanna. Sjóður: Félag leiðsögumanna Spurningakönnun ----------- 329.00 0 ISK já Fyrirlestraröð Ferðamáladeildar Fyrirlestraröð Ferðamáladeildar, Vísindi og grautur, hófst árið 2007. Hún samanstendur af u.þ.b. mánaðarlegum opnum fyrirlestrum um rannsóknir á ferðaþjónustu/ferðamennsku eða tengdu efni. Árið 2016 voru haldnir sex opnir fyrirlestra r, þar af komu fjórir fyrirlesarar erlendis frá: 10. febrúar. Dr. Guðrún Helgadóttir prófessor við Háskólann í Suðvestur Noregi í Bö og Háskólann á Hólum: Samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu, þrjú tilvik úr dreifbýli. 16. mars. Dr. Jessica Aquino lektor við Ferðamáladeild HH: Upplifun sjálfboðaliða af áhrifum þeirra á berskjölduð samfélög í Brasilíu. 11. maí. Dr. Agata Stefanowska og Dr. Agnieszka Bołdak frá Józef Piłsudski University of Physical Education in Warsaw, Faculty of Tourism and Recreation: Outdoor recreation at AWF Josef Pilsudski - University of Physical Education in Warsaw. 26. september. Dr. Mats Urde dósent við háskólann í Lundi í Svíþjóð, og ráðgjafi í vörumerkjastjórnun. Place Branding with a Heritage. 12. október. Dr. Keith Dewar professor í ferðamáladeild við Háskólann í New Brunswick, Saint John. Holar Tourism or Not? What are the strange Canadian s doing here? 9. nóvember Dr. Amy Savener, Mass Tourism Invasion to an Indigenously- Governed (Rural) Archipelago in the Caribbean, byggði hún á doktorsrannsóknum sínum á eyjunni Guna Yala í Panama. 11

Mynd 5: Frá fyrirlestraröð Ferðamáladeildar, Vísindi og grautur 2016. Afmælisár deildarinnar Ferðamáladeildin átti 20 ára afmæli á árinu og var þess minnst með afmælisráðstefnu á Grand hótel í Reykjavík þann 3. október og afmælisveislu á Hólum í tengslum við brautskráningu þann 14. Október. Veitingar voru að hætti Hólaeldhússins. Mynd 6: Kaffihlaðborðið var veglegt í afmælisveislu Ferðamáladeildar 14. október 2016. Yfirskrift ráðstefnunnar 3. október var Menntun framtíðarleiðtoga í ferðaþjónustu. Ráðstefna á vegum Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum í tilefni af 20 ára afmæli deildarinnar. Auk þess að vekja athygli á starfsemi deildarinnar og þessum tímamótum, var ráðstefnunni ætlað að vera innlegg í þá umræðu sem átt hafði sér stað í samfélaginu um menntun í ferðaþjónustu á Íslandi. 12

Mynd 7: Ráðherra ferðamála Ragnheiður Elín Árnadóttir ávarpar ráðstefnugesti 3. október. Helga Árnadóttir framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sá um fundarstjórn. Auk rektors, Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur, ávörpuðu Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála, Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra samkomuna. Framsögur áttu Laufey Haraldsdóttir deildarstjóri, Þórir Erlingsson kennari við Michel A. Leven School of Culinary Sustainability and Hospitality við Kennesaw State University í Bandaríkjunum, Reidar J. Mykletun prófessor við ferðamáladeild háskólans í Stavanger í Noregi, Jónas Guðmundsson ferðamálafræðingur hjá SafeTravel og brautskráður nemandi deildarinnar, Erna Dís Ingólfsdóttir starfsþróunar- og gæðastjóri hjá Íslandshótelum, Ágúst Elvar Bjarnason sölustjóri hjá Arctic Adventures og Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri hjá Radisson Blue Hotel Saga. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála stjórnaði pallborðsumræðum í lokin með yfirskriftinni Háskólamenntun í ferðaþjónustu á Íslandi hvert viljum við stefna? Í þeirri umræðu tóku þátt Gunnar Þór Jóhannesson frá Land- og ferðamáladeild HÍ, Ingibjörg Sigurðardóttir frá HH, Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála, María Guðmundsdóttir frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Baldur Sæmundsson frá Grunndeild matvæla- og ferðagreina í Menntaskólanum í Kópavogi. Um 90 manns tóku þátt í ráðstefnuna sem þótti takast afar vel. Í máli fundarmanna kom skýrt fram þörf ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar fyrir menntað og vel þjálfað starfsfólk og stjórnendur. Áhersla var lögð á að samhliða hinum gríðarlega vexti greinarinnar yrði að efla færni og þekkingu starfsmanna til að mögulegt væri að tryggja gæði og fagmennsku í þjónustu við gesti. Var í því sambandi litið til eflingar náms í ferðatengdum greinum á öllum skólastigum og aukins samstarfs milli þeirra sem koma að menntun í ferðaþjónustu. 13

Mynd 8. Reidar J. Mykletun frá Hótelskóla Háskólans í Stavanger í Noregi var frummælandi á ráðstefnunni. Þjónusta og samstarf Starfsfólk Ferðamáladeildar veitir ýmiskonar þjónustu til atvinnugreinarinnar, vísindasamfélagsins og stjórnsýslunnar. Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) er samstarfsverkefni þriggja háskóla: Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum. Ferðamáladeildin tekur eftir sem áður virkan þátt í því samstarfi, þar sem deildarstjóri á sæti í stjórn. Haldnir voru fimm stjórnarfundir á árinu 2016, auk þess sem RMF stóð fyrir fimm málstofum og ráðstefnum á árinu sem stjórnarmenn komu beint og óbeint að. Ferðamáladeild á líkt og áður í formlegu samstarfi við Selasetur Íslands með sameiginlegum starfsmanni stofnananna, sem stundar kennslu og rannsóknir. Nýr starfsmaður, Jessica Faustini Aquino, hóf störf í febrúar 2016. Starfsfólk Ferðamáladeildar tekur þátt í ýmsum samvinnuverkefnum: Ferðamáladeild á fulltrúa í stjórn Fornverkaskólans sem er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Tréiðnaðardeildar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Ferðamáladeildar. Ferðamáladeild á fulltrúa í stjórn Matarkistu Skagafjarðar sem hýst er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og þá situr starfsmaður deildarinnar í stjórn Menningarráðs Norðurlands vestra sem og í dómnefnd RMF um lokaverkefnisverðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni á sviði ferðamála. Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði kom í heimsókn heim að Hólum í mars til að kynna sér starfsemi Ferðamáladeildarinnar. Ferðamáladeild nýtir sér sam- 14

Mynd 9. Úr sameiginlegri vettvangsferð í námskeiðunum Menningararfur er auðlind, Matur og menning og Minjagripir og alþýðulist. starfsvettvang opinberu háskólanna til að auka fjölbreytni og gæði í kennslu með gestafyrirlesurum og miðla þannig sérfræðiþekkingu markvisst til nemenda. Frá upphafi hefur Ferðamáladeildin lagt áherslu á tengsl og samvinnu við stofnanir ferðaþjónustunnar, atvinnugreinina og samfélagið í heild. Þessi tengsl verða meðal annars til í gegnum kennslu í formi vettvangsferða með nemendur og nemendaverkefni þar sem nemendur vinna raunveruleg verkefni um og fyrir fyrirtæki og stofnanir í greininni. Þá er samvinna við Nýsköpunarmiðstöð um kennslu, vinnusmiðjur og nýsköpunarverkefni ýmiskonar. Í fagráði deildarinnar sitja fulltrúar frá Ferðamálastofu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Ferðamálasamtökum Íslands og Ferðaþjónusta bænda, ásamt deildarstjóra. Fagráðinu er ætlað að veita ráðgjöf um framboð námsleiða, kennslu og rannsóknir, frá sjónarhóli atvinnugreinarinnar og stofnana hennar. Ferðamáladeild og Landsmót hestamanna ehf. undirrituðu sameiginlega viljayfirlýsingu um rannsóknir á Landsmóti hestamanna 2016 sem heildstæðum viðburði. En í þeirri rannsókn tóku þátt fræðimenn frá fjórum löndum og sex háskólum. Mynd 10: Starfsmenn Ferðamáladeildar ásamt samstarfsfólki frá Háskólanum í Laplandi, Háskóla Íslands og Rannsóknarmiðstöð ferðamála, á vinnufundum í Rovaniemi í Finnlandi 2016. 15

Í umfjöllun um rannsóknir hér að framan kemur fram að starfsfólk deildarinnar hefur viðamikið net samstarfsaðila erlendis í rannsóknum; greinaskrifum og umsóknavinnu. Þá hefur deildin tvíhliða samstarfssamninga við fjölda erlendra háskóla bæði gegnum Nordplus og Erasmus+ áætlanirnar. Auk þess deilir deildin starfsmanni með Háskólanum í Suðaustur Noregi, sem tók til starfa 1.1. 2016 með sameiningu Háskólans í Telemark og Háskólans í Buskerud og Vestfold. Allnokkrir erlendir gestafyrirlesarar og rannsakendur sóttu Ferðamáladeildina á Hólum heim á árinu. Má þar nefna Dr. Keith Dewar og Wanmei Li sem komu frá Viðskiptafræðideild New Brunswick háskólans í Saint John í Kanada. Dvöldu þau hjón hér í rannsóknarleyfi Keiths. Agnieszka Bołdak og Agata Stefanowska frá ferðaþjónustu- og útivistardeild AWF háskólans í Varsjá, heimsóttu deildina í maí og í september heimsótti deildina Dr. Mats Urde dósent við háskólann í Lundi í Svíþjóð. Þá dvöldu lektorarnir Kari Jæger og Ragnhildur Ásvaldsdóttir frá Norges Arktiske Universitet, prófessorarnir Susanna Heldt Cassel og Tobias Heldt frá Dalarna Universitet, Svíþjóð og Dr. Katherine Dashper frá Leeds Beckett University, Bretlandi hér við rannsóknir á Landsmóti hestamanna. Nokkuð var um að kennarar Ferðamáladeildar færu erlendis með það að markmiði að stofna til eða styrkja alþjóðlegt samstarf deildarinnar. Má þar nefna ferð til Multidimentional Tourism Institute í Roveniemi í Finnlandi, þar sem tveir fulltrúar deildarinnar funduðu ásamt fleiri íslenskum aðilum með fulltrúum frá háskólanum í Laplandi og fagháskólanum í Laplandi. Mynd 11: Þórir Erlingsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson á afmælisráðstefnu deildarinnar á Grand Hotel. 16