Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Similar documents
Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

Ég vil læra íslensku

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd verka: Forleikur: 10 Fimm söngvar: 22 Sinfónía: 28

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Summer Concerts 2007

Að störfum í Alþjóðabankanum

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Chaplin - Modern Times. 8. & 9. maí 2015

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Áhrif lofthita á raforkunotkun

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Saga fyrstu geimferða

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

Enginn maður hér á landi, annar en ég, hefur rétt til að lesa Der Tod in Venedig

Bubbi Morthens. * Viðkomandi sveit hefur ekki gefið út neitt efni, né eru til hljóðritanir með sveitinni svo vitað sé.

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Íslenzkar Gramóphón-plötur

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

MARKAÐSSETNING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Á ERLENDUM MÖRKUÐUM UNDIR VÖRUMERKINU REYKJAVÍK. Vörumerkið Reykjavík

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Dystópíur uppgangskynslóðarinnar

Menning í Múlakoti. Gróðrarstöð lista á fyrri hluta 20. aldar. Ásta Friðriksdóttir. Lokaverkefni til MA-gráðu Háskóli Íslands Hugvísindasvið

Ársskýrsla 2013 HRAFNSEYRI

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavik Art Museum Hafnarhúsi /

Horizon 2020 á Íslandi:

LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM. Schengen ráðstefna 6. október Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn -

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

Ólafur Björnsson HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON

Ferðalag áhorfandans

Fjölmenning á Íslandi Maí Greinagerð Esja Jeanne Jónsdóttir

Einelti og líðan. Unnið upp úr könnuninni: Heilsa og lífskjör skólanema, HBSC 2013/2014. Tinna Rut Torfadóttir HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

1. Inngangur Listamennirnir, listaverkin og staðsetning þeirra

MENNINGARNÓTT 2016 Í LISTASAFNI ÍSLANDS

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Hvers urðum við vísari og hvað gætum við tileinkað okkur?

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Hugvísindasvið. Gömlu bíóin. Greinargerð um gerð sýningar

Aðalnámskrá leikskóla. (1999). Reykjavík: Menntamálaráðuneytið. Aðalnámskrá leikskóla. (2011). Reykjavík: Mennta- og menningarmálaráðuneytið.

17. MARS 2006 I 11. VIKA UNG OG ÓHRÆDD

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Reykholt í Borgarfirði

Samlistaverk ljóss, lita, hreyfinga og hljóða

FULLKOMINN DAGUR HÁRIN & ÁRIN. Margrét Lára komin á fast! Hreimur giftist æskuástinni. David Beckham:

Áhrif upplýsingarinnar sem koma fram í völdum ritum um veraldleg efni eftir aðra Íslendinga en Magnús Stephensen frá tímabilinu

Transcription:

VELKOMIN Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikarnir eru teknir upp af RÚV og verða sendir út fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Tónleikarnir eru teknir upp af japönsku sjónvarpsstöðinni BS Fuji INC. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka. Áætluð tímalengd verka: Píanókonsert: 33 Sinfónía: 60 Upptökur með Sinfóníuhljómsveit I slands ma finna a YouTube- og Spotify-ra sum hljómsveitarinnar. A Spotify ma einnig finna lagalista með allri tónlist starfsa rsins. Aðalstyrktaraðili :

FÖS20 APR 19:30 TÓNLEIKAR Í ELDBORG ASHKENAZY OG NOBU Vladimir Ashkenazy hljómsveitarstjóri Nobuyuki Tsujii einleikari EFNISSKRÁ Frédéric Chopin Píanókonsert nr. 2 í f-moll, op. 21 (1829 30) Maestoso Larghetto Allegro vivace Hlé Sergej Rakhmanínov Sinfónía nr. 2 í e-moll, op. 27 (1906 7) Largo - Allegro moderato Allegro molto Adagio Allegro vivace For information in English about tonight s programme, please visit the Iceland Symphony Orchestra website: en.sinfonia.is 3

ÁGÆTI TÓNLEIKAGESTUR nóvember 2018 mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda í Í þriggja vikna tónleikaferð til Japans undir stjórn heiðursstjórn anda hljómsveitarinnar, Vladimirs Ashkenazy. Ferðin er farin í þeim tilgangi að kynna land og þjóð og um leið halda upp á og heiðra það farsæla og áralanga samstarf sem hljóm sveitin hefur átt við Ashkenazy, einn virtasta og dáðasta tónlistarmann heims. Framlag Ashkenazys til íslensks tón listar- og menningarlífs er ómetanlegt sem sést best á því að hann er bæði aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og heiðursforseti Listahátíðar í Reykjavík. Í gær, sumardaginn fyrsta, var hann sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands á Bessastöðum fyrir störf sín. Alls heldur hljómsveitin 12 tónleika í Japan, meðal annars í Tokyo, Sapporo, Hiroshima og Osaka. Með í för verður einleikari kvöldsins, Nobuyuki Tsujii. Nobuyuki er stórstjarna í heimalandi sínu. Þrátt fyrir að vera blindur frá fæðingu var hann undrabarn á hljóðfærið og lærir jafnvel erfiðustu verk píanóbókmenntanna eftir heyrn. Í farteskinu verða tvær ólíkar efnisskrár og í kvöld hljómar sú fyrri sem eins konar upphitun fyrir það sem í vændum er. Auk verkanna sem hljóma í kvöld verður leikinn í ferðinni píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmanínov, sinfónía nr. 2 eftir Sibelius auk Jökulljóðs eftir Þorkel Sigurbjörns son. Eins og gefur að skilja er mikil eftirvænting í loftinu fyrir ferðinni sem hefur átt sér langan aðdraganda en segja má að formlegur undirbúningur hefjist í kvöld. Ég bið ykkur vel að njóta. Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri 4

VLADIMIR ASHKENAZY HLJÓMSVEITARSTJÓRI Vladimir Ashkenazy hefur nú í ríflega sex áratugi verið í hópi fremstu píanóleikara, eða allt frá því hann komst á verðlaunapall í þremur virtustu tónlistarkeppnum heims. Hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955 og fyrstu verðlaun bæði í Queen Elisabeth-keppninni í Brussel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962. Ashkenazy á að baki glæsilegan feril í hljóðverinu. Hann hefur hljóðritað flest höfuðverk píanóbókmenntanna og meðal nýlegra hljómdiska hans eru sjaldheyrð einleiksverk eftir Rakhmanínov og Diabelli-tilbrigði Beethovens. Ashkenazy hefur hlotið sex Grammy-verðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit (píanókonsertar Beethovens með Georg Solti, 1974), fyrir bestu kammerhljóðritun (fiðlusónötur Beethovens með Itzhak Perlman, 1979), og besta einleiksdisk (prelúdíur og fúgur Shostakovitsj, 2000). Undanfarna áratugi hefur orðstír Ashkenazys sem hljómsveitarstjóra vaxið stöðugt, allt frá því að hann steig sín fyrstu skref á þeirri braut með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1972. Hann hefur verið aðalstjórnandi hjá virtum hljómsveitum á borð við Konunglegu fílharmóníusveitina í London og Tékknesku fílharmóníusveitina. Árið 2009 tók Ashkenazy við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Sidney í Ástralíu, en hann hefur auk þess starfað með flestum frægustu hljómsveitum heims sem gestastjórnandi. Vladimir Ashkenazy er aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur undanfarin ár stjórnað henni í meistaraverkum tónbókmenntanna, meðal annars Draumi Gerontiusar eftir Elgar, Stríðssálumessu Brittens, 9. sinfóníu Mahlers, 9. sinfóníunni og Missa solemnis eftir Beethoven. Þá flutti hann allar sinfóníur Brahms með hljómsveitinni í sérstökum Brahms-hring á árunum 2014 17. Þrátt fyrir langan starfsferil heldur Ashkenazy fullu starfsþreki. Sem dæmi þá bíða hans sem hljómsveitarstjóra 24 tónleikar með 17 efnisskrám í þremur Evrópulöndum, auk Japan, Kína og Ástralíu, áður en undirbúningur fyrir tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst í nóvember í haust. 5

NOBUYUKI TSUJII EINLEIKARI Japanski píanóleikarinn Nobuyuki Tsujii hreppti gullverðlaun í Van Cliburn-píanókeppninni árið 2009 og er í dag í hópi fremstu píanista samtímans. Hann nýtur virðingar fyrir innblásna og ástríðufulla túlkun, gífurlega tækni og litríkan tón úr slaghörpunni. Hann hefur haldið einleikstónleika í helstu tónleikasölum vestanhafs og austan þar á meðal í New York, Washington D.C., í Boston, Vancouver, London og Berlín. Nobu hefur verið gestur helstu hljómsveita víða um heim, meðal þeirra er Hljómsveit Mariinsky-leikhússins í St. Pétursborg, Philharmonia Orchestra og BBC-fílharmónían í London, Konunglega fílharmóníuhljómsveitin í Liverpool og sinfóníuhljómsveitirnar í Seattle, Baltimore og Basel. Af hljómsveitarstjórum sem hann hefur unnið með má nefna Valery Gergiev, Vladimir Ashkenazy, Vladimir Spivakov, Juanjo Mena, Vasily Petrenko, Thierry Fischer og Yutaka Sado. Þá hefur Nobu komið fram með helstu hljómsveitum heimalands síns - Japönsku fílharmóníunni. NHK-sinfóníunni, Yomiuri Nippon-hljómsveitinni, Tokyosinfóníunni og Orchestra Ensemble Kanazawa. Nobu hljóðritar eingöngu fyrir Avex Classics Internationalútgáfuna og hefur á undanförnum árum leikið þekkt verk inn á nokkrar metsöluplötur, þar á meðal 2. píanókonsert Rakhmanínovs með Þýsku sinfóníuhljómsveitinni í Berlín, 1. píanókonsert Tsjajkovskíjs með Yukata Sado og BBCfílharmóníunni og Keisarakonsert Beethovens með Orpheuskammerhljómsveitinni. Þá leikur Nobu einleiksverk eftir Chopin, Mozart, Debussy og Liszt sem og sínar eigin tónsmíðar á nokkrum geisladiskum. Seinna í þessum mánuði leikur Nobuyuki Tsujii 1. píanókonsert Tsjajkovskíjs í tvígang með Fílharmóníuhljómsveitinni í Liverpool undir stjórn Petrenkos og í júní leikur hann G-dúr píanókonsert Ravels með austurrísku Tonkünstlerhljómsveitinni á nokkrum stöðum í Austurríki, m.a. og í Musikverein-salnum í Vínarborg. Þá leikur Nobu síðsumars fjölbreytt einleiksprógramm á útitónleikum í þýsku borginni Friedrichshafen. Á nýju starfsári bíða hans meðal annars einleikstónleikar í Carnegie Hall og tónleikaferð um Japan með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Vladimir Ashkenazy. 6

FRÉDÉRIC CHOPIN TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Annar píanókonsert Chopins hljómaði fyrst a tónleikum Sinfóníuhljómsveitar I slands í Austurbæjarbíói í október 1958. Einleikari var bandaríski píanóleikarinn Ann Schein en stjórnandi þýski hljómsveitarstjórinn Hermann Hildebrandt. Síðan þa hefur konsertinn hljómað ellefu sinnum a tónleikum hljómsveitarinnar, síðast í desemberbyrjun 2009. Vladimir Ashkenazy hefur tvisvar sinnum a ður komið að flutningi verksins hér heima. Stjórnaði hann flutningnum snemma a rs 1978 en sat sja lfur við slaghörpuna a eftirminnilegum tónleikum í Ha skólabíói a aðventunni 1971 með vin sinn Daniel Barenboim a sviðinu með tónsprotann í hönd. PÍANÓKONSERT NR. 2 Frédéric Chopin (1810 1849) fæddist í pólska smáþorpinu Żelazowa Wola sem liggur í 40 kílómetra fjarlægð vestur af Varsjá. Faðir hans var aðfluttur Frakki en móðirin pólsk. Chopin náði barnungur undraverðum tökum á píanóinu og listinni að spinna tónlist af fingrum fram. Þrettán ára gamall hóf hann nám við Konservatóríið í Varsjá og útskrifaðist þaðan í ágúst 1829. Um haustið hóf hann smíði f-moll píanókonsertsins og lauk verkinu í ársbyrjun 1830. Sat hann sjálfur við slaghörpuna við frumflutning konsertsins í Varsjá 17. mars það ár. Gerði tónsmíðin og flutningurinn hinn unga snilling umsvifalaust að þjóðhetju. Um haustið fór Chopin í tónleikaför til Vínarborgar og átti ekki afturkvæmt til heimalandsins meðan hann lifði. Ástæðan var mislukkuð bylting þar sem Pólverjar risu upp gegn stjórn Rússa og settist Chopin að í París árið 1831. Orðstír undarbarnsins Chopin hafði fyrir löngu borist til Parísar og varð hinn 21 árs píanósnillingur fljótt eftirlæti Parísaraðalsins. Lék hann í salarkynnum á heimilum og hafði auk þess tekjur af nótnaútgáfu. Helsta tekjulind hans var þó kennsla. Réð aðalsfólk hann til að kenna dætrum sínum þótt hann krefðist hærri þóknunar en nokkur annar píanókennari í borginni. Þá komu efnilegir nemendur erlendis frá til að njóta leiðsagnar hans. Með þessu móti gat Chopin framfleytt sér án þess að reiða sig á opinbert tónleikahald sem hann forðaðist eins og heitan eldinn. Píanókonsertarnir tveir, sem Chopin samdi um tvítugt, eru einu hljómsveitarverkin sem hann samdi. Öll hin verkin eru, með örfáum undantekningum, fyrir einleikspíanó. Tónlist Chopins er fáguð og í henni kveður oft við viðkvæman tón. Mörg verka hans hafa þjóðlegt, pólskt svipmót - einkum masúrkarnir og er síðasti kafli píanókonsertsins nr. 2 gott dæmi um það. Annar kaflinn er angurvært næturljóð sem er að yfirbragði ýmist skínandi bjart eða fullt af angurværum trega - svo vitnað sé í Franz Liszt. Fyrsti kaflinn er aftur á móti yfirmáta glæsilegur og píanóparturinn tilþrifamikill og skrautlegur í besta skilningi þess orðs. 7

SERGEJ RAKHMANÍNOV SINFÓNÍA NR. 2 Sergej Vasiljevitsj Rakhmanínov (1873 1943) fæddist í Starorusskíj-héraðinu nálægt Novgorod í Norður-Rússlandi. Tónlistarhæfileikar hans komu fljótt í ljós og réði móðir hans einkakennara til að leiðbeina honum í píanóleik. Árið 1882 flutti fjölskyldan til Sankti Pétursborgar þar sem drengurinn fékk styrk til náms við tónlistarháskóla borgarinnar. Tólf ára gamall var Rakhmanínov sendur til Moskvu þar sem hann gekkst undir strangt tónlistar nám undir handleiðslu Nikolajs Zverev. Í stórborginni sótti Rakhmanínov tónlistarviðburði og kynntist mörgum af helstu tónlistarmönnum landsins, þar á meðal Anton Rubinstein og Pjotr Tsjajkovskíj. Vorið 1892 lauk hann prófi í tónsmíðum frá Tónlistarháskólanum í Moskvu og hlaut hæstu einkunn og æðstu viðurkenningu skólans sem aðeins tveimur öðrum nemendum hafði áður fallið í skaut. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Önnur sinfónía Rakhmanínovs hljómaði fyrst a tónleikum Sinfóníu hljómsveitar I slands í mars 1973 og stjórnaði franski hljómsveitarstjórinn Antonio de Almeida flutningnum. Næst stjórnaði Vladimir Ashkenazy sinfóníunni a tónleikum í janúar 1977. Þa var komið að Petri Sakari sem stýrði flutningi verksins í Ha skólabíói 18. október 1990 og síðan a fernum tónleikum í Finnlandi og Svíþjóð. Osmo Vänskä stjórnaði sinfóníunni svo tvisvar í apríl 1996 - fyrst hér heima og tveimur dögum síðar í Tívolísalnum í Kaupmannahöfn. Ríflega þremur a rum síðar lék Sinfóníuhljómsveitin hljómkviðuna undir stjórn Ricos Saccani en síðast hljómaði hún í Ha skólabíói í janúarlok 2008. Stjónandi var hinn brasilíski John Neschling. Rakhmanínovs beið annasamur ferill þar sem hann deildi kröftum sínum milli píanósins, hljómsveitarstjórapallsins og tónsmíðanna. Eftir að fyrsta sinfónía hans galt afhroð við frumflutninginn í mars 1897 lagðist Rakhmanínov í þunglyndi sem lamaði sköpunarmátt hans í þrjú ár. Aldamótaárið 1900 leitaði hann sér loks hjálpar og eftir fjögurra mánaða dáleiðslu meðferð hjá geðlækni kom andinn yfir hann. Árið eftir frumflutti hann píanókonsertinn nr. 2 og á næstu misserum samdi hann svo píanóverk, sönglög, sellósónötu og tvær óperur. Haustið 1906 dró Rakhmanínov sig í hlé og flutti með fjölskyldu sinni til Dresden með smíði nýrrar hljómkviðu, aðra sinfóníuna, að markmiði. Henni lauk hann sumarið eftir og stjórnaði sjálfur frumflutningnum í Sankti Pétursborg 26. janúar 1908. Önnur sinfónía Rakhmanínovs er ægifagur, síðrómantískur tónbálkur með stórum ávölum línum í tilfinningaríku og oft angurværu tónmálinu. Eru sinfónían og annar píanókonsertinn vinsælustu hljómsveitarverk þessa merka rússneska tónlistarmanns. Rakhmanínov-fjölskyldan flúði land eftir byltinguna í Rússlandi árið 1917 og settist að lokum að í Bandaríkjunum. Þar gerði Rakhmanínov garðinn frægan sem hljómsveitarstjóri og píanóvirtúós en tónsmíðarnar sátu á hakanum. Af þeim 45 verkum sem hann samdi um ævina urðu aðeins þau 6 síðustu til í nýja heimalandinu. Sigurður Ingvi Snorrason 8

Á DÖFINNI FIM26 27 19:30 FÖS APR BÍÓTÓNLEIKAR AMADEUS Leikrit Peters Schaffer um ævi og örlög snillingsins Mozarts vakti heimsathygli þegar það var frumsýnt og nokkrum árum síðar sló kvikmynd Milosar Forman öll met. Myndin Amadeus hlaut átta Óskarsverðlaun árið 1984 og er almennt talin með bestu tónlistarkvikmyndum allra tíma. Sagan segir frá samskiptum þeirra Mozarts og Salieris í Vínarborg, en Salieri tekur sárt að horfa upp á ótvíræða yfirburði Mozarts í tónlistinni og honum þykir Guð hafa svikið sig með því að útdeila snilligáfunni með þessum hætti. Meðal leikara eru Tom Hulce í hlutverki tónskáldsins og F. Murray Abraham sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir ógleymanlega túlkun sína á Salieri. Á þessum tónleikum verður kvikmyndin Amadeus sýnd með lifandi meðleik Sinfóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Ludwigs Wicki. Með nýjustu tækni hefur tónlistin í myndinni verið hreinsuð burt og þannig gefst tækifæri til að upplifa bæði kvikmyndina og stórfenglega tónlist Mozarts með alveg nýjum hætti. Þetta er sannkölluð gæðakvöldstund jafnt fyrir unga sem aldna. MIÐ16 17 18 19:30 FIM FÖS MAI SÝNT Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU STRÍÐ Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands taka höndum saman við uppsetningu á nýstárlegu verki eftir Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson. Í verkinu fá áhorfendur að fylgjast með tilfinningaþrungnu dauðastríði prússnesks 18. aldar hermanns, í rómantískri handmálaðri sviðsmynd og undir dramatískri óperutónlist eftir Kjartan Sveinsson. Ragnar og Kjartan hafa tvívegis áður unnið sviðsverk í sameiningu, en það var í bæði skiptin fyrir Volksbühneleikhúsið í Berlín. Hið fyrra þeirra var Kraftbirtingarhljómur guðdómsins, sem einnig var sýnt í Borgarleikhúsinu, og síðan kom verkið Krieg sem sýningin Stríð er byggð á. Ragnar er frægasti nútímalistamaður Íslands og Kjartan Sveinsson hefur um árabil verið meðal okkar þekktustu tónlistarmanna, fyrst sem hljómborðsleikari í Sigur Rós en undanfarin ár hefur hann starfað að eigin tónsmíðum. Hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason. 9

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 20. APRÍL 2018 1. FIÐLA Sigrún Eðvaldsdóttir Nicola Lolli Vera Panitch Una Sveinbjarnardóttir Bryndís Pa lsdóttir Zbigniew Dubik Pa lína A rnadóttir Margrét Kristja nsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir Rósa Hrund Guðmundsdóttir Helga Þóra Björgvinsdóttir Andrzej Kleina Pascal La Rosa Geirþrúður A sa Guðjónsdóttir 2. FIÐLA Joaquín Pa ll Palomares Ólöf Þorvarðsdóttir Sigurlaug Eðvaldsdóttir Þórdís Stross Kristja n Matthíasson Gróa Margrét Valdimarsdóttir Greta Guðnadóttir Kristín Björg Ragnarsdóttir Margrét Þorsteinsdóttir Dóra Björgvinsdóttir Christian Diethard Hlín Erlendsdóttir VÍÓLA Þórunn Ósk Marinósdóttir Svava Bernharðsdóttir Sarah Buckley Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Guðrún Þórarinsdóttir Þórarinn Ma r Baldursson Herdís Anna Jónsdóttir Kathryn Harrison Vigdís Ma sdóttir A sdís Hildur Runólfsdóttir SELLÓ Sigurgeir Agnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Margrét A rnadóttir Bryndís Björgvinsdóttir Bryndís Halla Gylfadóttir Sigurður Bjarki Gunnarsson Júlía Mogensen Lovísa Fjeldsted BASSI Ha varður Tryggvason Pa ll Hannesson Gunnlaugur Torfi Stefa nsson Richard Korn Þórir Jóhannsson Borgar Magnason FLAUTA A shildur Haraldsdóttir Emilía Rós Sigfúsdóttir Martial Nardeau ÓBÓ Martin Danek Daniel Bogorad Peter Tompkins KLARÍNETT Arngunnur A rnadóttir Grímur Helgason Baldvin Tryggvason FAGOTT Michael Kaulartz Bryndís Þórsdóttir HORN Stefa n Jón Bernharðsson Emil Friðfinnsson Joseph Ognibene Asbjørn Bruun Frank Hammarin TROMPET Einar Jónsson Eiríkur Örn Pa lsson Guðmundur Hafsteinsson BÁSÚNA Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff, bassaba súna TÚBA Nimrod Ron PÁKUR Maarja Nuut SLAGVERK Steef van Oosterhout Frank Aarnink Eggert Pa lsson Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri Vladimir Ashkenazy aðalheiðursstjórnandi Osmo Vänskä heiðursstjórnandi Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri A rni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Margrét Sigurðsson fjármálafulltrúi Grímur Grímsson sviðsstjóri Anna Sigurbjörnsdóttir tónleikastjóri Hjördís A stra ðsdóttir fræðslustjóri Kristbjörg Clausen nótna- og skjalavörður Sigþór J. Guðmundsson sviðsstjóri Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Jökull Torfason markaðsfulltrúi Una Eyþórsdóttir mannauðsstjóri Gísli Magnússon umsjónarmaður nótna 10

Verið velkomin á Reykjavík Konsúlat hótel Í upphafi síðustu aldar setti Ditlev Thomsen, konsúll, kaupmaður og ferðamálafrumkvöðull, sterkan svip á miðbæ Reykjavíkur með atorku sinni og umsvifum fjölskyldufyrirtækisins. Gestrisni hans, framsýni og alþjóðleg hugsun var annáluð. Í anda konsúlsins bjóðum við nú gesti velkomna á nýja og glæsilega Reykjavík Konsúlat hótelið sem er í Hafnarstræti á sama stað og Thomsens Magasín stóð fyrrum. Á hótelinu eru 50 glæsileg herbergi og svítur þar sem gestir hafa aðgang að baðhúsi og líkamsræktaraðstöðu. Einnig er þar veitinga staðurinn Gott Reykjavík sem býður upp á heilnæma og gómsæta rétti frá morgni til kvölds. Reykjavík Konsúlat hótel er hluti af Curio Collection by Hilton, alþjóðlegri keðju einstakra hótela með sögulega skírskotun. Við hlökkum til að vera partur af nýrri ásýnd miðbæjarins. Hafnarstræti 17-19 101 Reykjavík +354 514 6800 reykjavikkonsulathotel.is 11

Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa kvikmyndina Amadeus sem sýnd verður í Eldborg og stórfenglega tónlist Mozarts í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mótettukórs Hallgrímskirkju. Ekki missa af þessum stórbrotna viðburði! MIÐASALA HAFIN Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 12