Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

Similar documents
Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

Ég vil læra íslensku

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

Chaplin - Modern Times. 8. & 9. maí 2015

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Summer Concerts 2007

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Könnunarverkefnið PÓSTUR

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Félagsauður á Íslandi Þróun og skýringar á mun milli landa. Efnisyfirlit. Þátttaka í félögum og þjóðmálum. Þróun félagsauðs í grannríkjunum

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Fæðuvenjur á unglingsárum og miðjum aldri og tengsl við áhættu á brjóstakrabbameini

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd verka: Forleikur: 10 Fimm söngvar: 22 Sinfónía: 28

MARKAÐSSETNING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Á ERLENDUM MÖRKUÐUM UNDIR VÖRUMERKINU REYKJAVÍK. Vörumerkið Reykjavík

föstudagur SUMARTILBOÐ VIL GERA HLUTINA Á EIGIN FORSENDUM Fylgir frítt með! HÚN HEFUR ALLTAF VERIÐ SYNGJANDI

Lífið FURÐUVERUR OG BÓNORÐ Í SMS-I. Signý Kolbeinsdóttir. Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur STUNDUM LÍK- AMSRÆKT ÚTI VIÐ Í SÓLINNI 4

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

VESTANPÓSTUR. Munið Sólarkaffið, 25. janúar á Broadway! sjá nánar á bls. 13. Janúar 2008 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 20. árg.

FÖSTUDAGUR. Íslands? best. verst. Hverjir eru. klæddu karlmenn 30. MAÍ 2008 FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS

Lífið KENNDI SJÁLFRI SÉR Á GÍTAR. Ólöf Arnalds. Þóra Kristín og Margrét Ragnars HVAÐ ER HEITAST Í SNYRTIBUDD- UNNI Í HAUST? 2

Að störfum í Alþjóðabankanum

ALLTAF Í VEÐMÁLUM. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Sundráð ÍRB Fréttabréf Ágúst 2011

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Forseti Íslands á. 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag

Félags- og mannvísindadeild

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar og hvernig getur hún verið þungamiðja skólastarfs?

ÆGIR til 2017

Fjölmenning á Íslandi Maí Greinagerð Esja Jeanne Jónsdóttir

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Notkun tíðahvarfahormóna hjá íslenskum konum árin

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Hljó!færaleikur. Kóngur vill sigla... Benny Goodman og sígilda tónlistin

Þegar tilveran hrynur

- Samvinna um tónlistarnám - Kennaralaun í alþjóðlegu samhengi - Something old, something new... Félagsfærni lærist ekki af sjálfu sér

FULLKOMINN DAGUR HÁRIN & ÁRIN. Margrét Lára komin á fast! Hreimur giftist æskuástinni. David Beckham:

Horizon 2020 á Íslandi:

Maðurinn í málverki. eftir Ragnar Þórisson. Listaháskóli Íslands Myndlistardeild B.A.-ritgerð (janúar 2010) Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir

Tónlistin í þögninni

Til að forritið vinni með Word þarf að hlaða niður á tölvuna forritsstubbnum Cite While You Write

17. MARS 2006 I 11. VIKA UNG OG ÓHRÆDD

Transcription:

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á Rás 1 og verða aðgengilegir í tvær vikur á www.ruv.is. Áætluð tímalengd verka: EXPO: 10 00 Concierto Pastoral: 25 00 Sinfónía nr. 1: 36 00 Mynd á kápu: Inga Rós Ingólfsdóttir, selló, Júlía Mogensen, selló, Hávarður Tryggvason, bassi, Richard Korn, bassi. Ari Magg Tónleikarnir eru hluti af alþjóðlegri afmælishátíð en 150 ár eru liðin frá fæðingu tónskáldsins. @icelandsymphony #sinfó www.sinfonia.is

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi Tónleikar í Eldborg 12. mars 2015» 19:30 Tónleikar í Hofi 13. mars 2015» 19:30 Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri Áshildur Haraldsdóttir einleikari Magnus Lindberg EXPO (2009) Joaquín Rodrigo Concierto Pastoral fyrir flautu og hljómsveit (1978) Allegro Adagio Rondo. Allegro Jean Sibelius Sinfónía nr. 1 í e-moll, op. 39 (1898) Andante ma non troppo - Allegro energico Andante (ma non troppo lento) Scherzo: Allegro Finale (quasi una fantasia): Andante - Allegro molto Sinfóníuhljómsveit Íslands 2014/15 3

Anna-Maria Helsing hljómsveitarstjóri Finnski hljómsveitarstjórinn Anna-Maria Helsing er ein skærasta stjarna Sibeliusarakademíunnar. Stuttu eftir að hún hóf nám undir handleiðslu Leifs Segerstam var hún valin til að taka þátt í alþjóðlegu hljómsveitarstjóraakademíunni Allianz í London 2008/09. Þar naut hún leiðsagnar Esa-Pekka Salonen og Gustavos Dudamel og stjórnaði Fílharmóníuhljómsveit Lundúnaborgar. Á árunum 2010-2013 var hún aðalhljómsveitarstjóri Oulu-sinfóníuhljómsveitarinnar, fyrst kvenna til að vera í forsvari finnskrar sinfóníuhljómsveitar. Helsing hefur stjórnað öllum leiðandi hljómsveitum Finnlands ásamt hljómsveitum í Skandinavíu og Eystrasaltsríkjunum. Meðal þeirra eru Sinfóníuhljómsveit finnska útvarpsins, fílharmóníusveitir Helsinki og Tampere, Konunglega fílharmóníuhljómsveitin í Stokkhólmi og sinfóníuhljómsveitir Gautaborgar, Þrándheims og Eistlands. Helsing hefur einnig látið að sér kveða í óperuheiminum sem hljómsveitarstjóri Finnsku þjóðaróperunnar, óperunnar í Tampere ásamt hljómsveit óperunnar í Malmö og á óperuhátíðinni í Savonlinna. Anna-Maria Helsing lauk prófi í fiðluleik frá Pietarsaari konservatoríinu og tónlistarakademíunni í Bydgoszcz. Árið 1999 vann hún til fyrstu verðlauna í alþjóðlegri keppni 20. aldar tónlistar fyrir unga listamenn í Varsjá. Árið 2011 hlaut hún Louis Spohr-viðurkenninguna í Braunschweig en það var í fyrsta sinn sem viðurkenningin var veitt hljómsveitarstjóra. Anna-Maria starfaði sem leiðandi fiðluleikari ýmissa kammerhljómsveita áður en hún gegndi stöðu hljómsveitar stjóra hjá Wegelius-kammerhljómsveitinni og listræns stjórnanda hjá Jakobstad sinfóníettunni. Helsing stjórnar nú Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn en í vor snýr hún aftur og stjórnar frumflutningi nýrrar óperu á Íslandi á Listahátíð í Reykjavík. 4

Áshildur Haraldsdóttir einleikari Áshildur Haraldsdóttir lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík sautján ára gömul. Hún lauk bakkalárprófi með hæstu einkunn í hljóðfæraleik frá The New England Conservatory of Music og meistaraprófi frá Juilliardtónlistarskólanum. Hún varð fyrsti flautuleikarinn til að komast inn í Parísarkonservatoríið í nám í svokölluðum Cycle de Perfectionnement. Áshildur hefur unnið til fyrstu verðlauna í The New England Conservatory Commencement Competition, The Annual James Pappoutsakis Memorial Fund Competition og The International Young Concerts Artists Competition of Royal Tunbridge Wells. Einnig hlaut hún verðlaun í Flute d Or í Frakklandi og Syrinx á Ítalíu. Áshildur var fulltrúi Íslands á Tvíæringi ungra norrænna einleikara. Áshildur hefur leikið einleik með fjölda hljómsveita og má þar nefna Indian Hill kammerhljómsveitina, Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Oskarshamn, Camerata Roman, Umea-sinfóníuhljómsveitina, Fílharmóníusveitina í Bajio, London Region Symphonia, KwaZulu-Natal fílharmóníuna, Musica Vitae, Il Solisti Veneti, Norbottons kammerhljómsveitina og Konunglegu kammer hljómsveitina í Tokyo. Áshildur hefur komið fram á einleikstónleikum í fjórum heimsálfum og leikið í útvarpi og sjónvarpi í Bandaríkjunum, á öllum Norðurlöndunum, í Frakklandi og oftsinnis hjá BBC. Hún hefur margsinnis frumflutt íslensk verk heima og erlendis og eru íslensk verk iðulega á efnisskrá hennar. Áshildur hefur hljóðritað fjóra einleiksgeisladiska fyrir sænska útgáfufyrirtækið Intim Musik og einn einleiksdisk fyrir Spor. Áshildur hefur einnig leikið kammermúsík inn á diska fyrir Íslenska tónverkamiðstöð og franska útgáfufyrirtækið Timpani. Diskurinn Tónamínútur með flaututónlist Atla Heimis Sveinssonar var gefinn út af Smekkleysu og tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Árið 2010 var Áshildur sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar. Áshildur er fastráðin hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sinfóníuhljómsveit Íslands 2014/15 5

Magnus Lindberg EXPO Árið 2009 frumflutti Fílharmóníusveit New York-borgar nýtt verk eftir finnska tónskáldið Magnus Lindberg (1958) sem þá var staðartónskáld hljómsveitarinnar. Verkið sem hann nefndi EXPO var annað samtímaverkið sem Fílharmóníusveitin flutti á opnunartónleikum sínum frá upphafi, hitt var Connotations eftir Copland sem flutt var undir stjórn Leonards Bernstein 1962. Tónlistin á Íslandi Hljómsveitarverkið EXPO hljómar nú í fyrsta sinn í meðförum SÍ. Áður hefur hljómsveitin flutt tvö verk eftir Lindberg: Feria (2003) undir stjórn Elts Olari og Marea (1995) undir stjórn Osmos Vänskä. Hanya Chlala Tónlist Lindbergs þykir mjög litrík og fjölbreytt og hefur mikið aðdráttarafl fyrir hlustandann þar sem hún er auðskiljanleg og heiðarleg. Lindberg telur það ótvíræðan kost að hafa alist upp í Finnlandi í ákveðinni fjarlægð frá meginlandi Evrópu - því slík fjarlægð hafi gefið leyfi á annarskonar nálgun og væntingar. Lindberg hefur ástúð á formi og framsetningu tónlistar sem hann segir sum tónskáld þó álíta sem takmarkandi tímaskekkju. Hljómsveitin er hin fullkomna ritvél segir Lindberg þar sem allt er til staðar til að skrifa verkið. Svo mikið af einkennum ákveðinna verka í sögunni ganga út á sérstaka hljóðfærasamsetningu eða skrýtnar samsetningar, jafnvel útilokun ákveðinna hluta hljómsveitarinnar sem er fínt ef góð músíkölsk ástæða er til. Samt sem áður hefur mér oft fundist þetta auðveldlega geta orðið dálítið yfirborðskennt. Að taka hljómsveitinni opnum örmum, í sínu hefðbundna formi, getur verið uppspretta í sjálfu sér og augnablikin þegar tónskáldið stendur andspænis takmörkunum eru oft kveikja að einhverju. Heitið EXPO er stytting á enska orðinu exposition eða framsögu sem er fyrsti hluti svokallaðs sónötuforms sem var ríkjandi tónlistarform klassíska tímabilsins. Verkið hefst með svipuhöggi og þar með setur Lindberg tóninn fyrir framhaldið. EXPO er sannkallað sýnistykki fyrir möguleika hljómsveitarinnar, fremur stutt og byggir á tveimur hugmyndum; hraða og hæggengi og núningi þeirra á milli þar sem púlsinn er hægur en yfirborðið ólgar af spennu. Með því nær tónskáldið fram miklum ýfingum og krafti úr hljómsveitinni sem ekki linnir fyrr en í undurveikum lokatöktum hljómsveitarinnar. 6

Joaquín Rodrigo Concierto Pastoral fyrir flautu og hljómsveit Þjóðleg spænsk tónlist sem var samofin menningu sígauna og undir sterkum áhrifum frá Márum og Aröbum í sunnanverðu landinu, dafnaði mikið til óáreitt vel fram á 19. öld. Þegar rómantísku tónskáldin uppgötvuðu ósnerta þjóðartónlist Spánar var ekki aftur snúið og má segja að ekkert land, á þessum tíma, hafi haft jafn mikil áhrif á tónskáld utan þess og Spánn. Spænska tónskáldið Joaquín Rodrigo (1901-1999) opnaði gáttir fyrir þjóðartónlist heimalandsins á heimsvísu. Rodrigo sem var blindur frá þriggja ára aldri skrifað tónlist sína með blindraletri sem hann lagaði að eigin þörfum. Þegar raddskráin að verkinu var tilbúin þá las hann hana nótu fyrir nótu og takt fyrir takt fyrir nótnaritara, verk sem tók hann alltaf miklu lengri tíma en að semja verkið sjálft. Hve langan tíma það tók Rodrigo að koma verkum sínum niður á blað er staðreynd sem ég er hrædd um að sé oft óþekkt en gefur verkum hans allt aðra vídd segir Cecilia dóttir tónskáldsins. Rodrigo sagði sjálfur að hægt væri að semja tónlist nokkuð hratt en erfiðleikarnir fælust í afrituninni sem væri leiðinleg og strembinverk fyrir munka. Tónlistin á Íslandi Concierto Pastoral er nú fluttur í fyrsta sinn af Sinfóníuhljómsveitinni. Tveir af gítarkonsertum tónskáldsins hafa hins vegar hljómað alloft í meðförum hljómsveitarinnar. Concierto de Aranjuez alls sex sinnum, fyrst 1980 í flutningi Görans Söllscher undir stjórn Raphaels Frübeck de Burgos og Fantasia para un gentilhombre tvisvar sinnum, undir stjórn Ashkenazys 1974 ásamt John Williams og undir stjórn Shipways 1987 ásamt Pétri Jónassyni. Rodrigo samdi Concierto Pastoral fyrir írska flautuleikarann James Galway. Verkið sýnir tækni- og túlkunarmöguleika hljóðfærisins til fullnustu enda í hópi erfiðustu einleikskonserta sem samdir hafa verið fyrir flautu. Hægi þátturinn adagio er hjarta konsertsins en ytri þættirnir krefjast mikils úthalds. Um konsertinn segir Áshildur Haraldsdóttir einleikari: Í fyrsta kaflanum felst mesta áskorunin, þar þarf maður eiginlega að vera klæddur íþróttagallanum. Annar kaflinn er dreyminn og leiðslukenndur með fallegum suðrænum laglínum. Lokakaflinn er gáskafullur, einskonar skemmtun. Í þeim kafla koma fram sterk höfundareinkenni Rodrigos þar sem tvær tóntegundir eru í gangi samtímis sem setur tónlistina svolítið á skjön en gefur konsertinum stríðnislegan karakter. Sinfóníuhljómsveit Íslands 2014/15 7

Jean Sibelius Sinfónía nr. 1 í e-moll, op. 39 Sibelius (1865-1957) var liðlega þrítugur þegar hann hóf að semja fyrstu sinfóníuna og á góðri leið með að verða þjóðhetja Finna. Sibelius lauk við smíði sinfóníunnar 1898 og stjórnaði flutningi hennar í apríl 1899. Ári síðar stjórnaði vinur og velunnari tónskáldsins, Robert Kajanus, endurgerðri útgáfu verksins í upphafi tónleikaferðar með Fílharmóníusveit Helsinki um Evrópu. Í þeirri tónleikaferð, sem skilaði Sibeliusi velgengni og verðskuldaðri alþjóðlegri athygli, notaði hann fyrstu sinfóníuna til að afla stuðnings við málstað Finna gegn oki Rússa. Þó var haft eftir tónskáldinu að hann hefði ekki samið sinfóníur sínar með svokölluðu prógrammi eða sögulegu inntaki að leiðarljósi því sinfónía á fyrst og fremst að vera tónlist sagði tónskáldið og baðst undan því að sinfóníur hans væru ritrýndar með gleraugum prógrammsins. Tónlistin á Íslandi Sinfónía nr. 1 eftir Sibelius hefur hljómað tæplega 20 sinnum í meðförum SÍ, fyrst á tónleikum sveitarinnar 1965 undir stjórn Tauno Hannikainen. Páll P. Pálsson hefur oftast stýrt flutningi sinfóníunnar en það gerði hann 1981 á tónleikaferðalagi um Austurríki. Árið 1997 hljóðritaði SÍ sinfóníuna fyrir Naxos undir stjórn Petris Sakari en hann stjórnaði jafnframt síðasta flutningi hennar árið 2008. Sibelius var undir áhrifum frá Tsjajkovskíj þegar hann samdi fyrstu sinfóníuna og sagði að það væri margt í þeim manni sem hann þekkti í sjálfum sér. Ásýnd stefjaefnisins sem tónskáldið notar í sinfóníunni er hetjuleg og ólgar af tilfinningum. Í fyrsta kaflanum er helsta yrkisefni sinfóníunnar kynnt til leiks og í upphafstöktunum er klarínettið í forgrunni við undirleik pákanna. Strengirnir taka síðan við með rómantískt aðalstefið. Annar þátturinn er borinn uppi af dempuðum fiðlum og sellóum með hljóðlátri laglínu sem tréblásararnir kinka kolli til og hornin eiga fallega innkomu í sveitastíl. Scherzo þriðja þáttar hefst á þróttmiklum pákuslætti en síðan taka strengir og blásarar við með hviku og tindilfættu stefjaefni. Miðbik kaflans er með rólyndara yfirbragði og aftur hljóma falleg hornaköll sem vísa til sveita stemningarinnar í öðrum þætti. Í lokakaflanum snýr svo klarínettustef fyrsta þáttar aftur til leiks en nú í meðförum strengjanna. Lokaþátturinn er tilfinningaþrunginn og mjög dramatískur og endar, kannske svolítið óvænt, á tveimur pizzicato-hljómum í strengjum. @Sibelius150 Hjördís Ástráðsdóttir 8

Modern Times Bíó með Sinfóníunni Fös. 8. maí» 19:30 Lau. 9. maí» 15:00 Charles Chaplin Modern Times Sinfóníuhljómsveit Íslands Frank Strobel hljómsveitarstjóri Nútíminn eftir Chaplin er eitt af helstu meistaraverkum kvikmyndasögunnar og um leið vinsælasta og fyndnasta kvikmynd hans. Nútíminn segir af baráttu flækingsins við að fóta sig í nýrri iðnvæddri veröld í lok heimskreppu. Tónlist Chaplins er óaðskiljanlegur hluti kvik mynda hans og um leið leiðarstef í verkum hans. @icelandsymphony #sinfó Miðasala» www.sinfonia.is» www.harpa.is» Sími: 528 5050» Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar

Emil Friðfinnsson Nærmynd Emil Friðfinnsson er hornleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur leikið með hljómsveitinni í yfir tvo áratugi. Emil er norðanmaður, fæddur og uppalinn á Akureyri, en ættaður úr Hörgárdal. Hann byrjaði að læra á horn átta ára gamall en hafði lítið um hljóðfæravalið að segja þar sem fyrsti kennarinn valdi hljóðfærið fyrir hann. Þegar Emil var inntur eftir því hverjir væru helstu kostir þess að vera hornleikari þá svaraði hann: Það er að leika fallega tónlist fyrir og með góðu fólki. Nú hefur oft verið rætt um það að hornið sé harður húsbóndi. Hvað er erfiðast við það að leika á horn? Stutta svarið er segir Emil að hornið hefur mjög mikið tónsvið sem gerir það að verkum að hæstu nóturnar eru mjög viðkvæmar. Nú leggja tónskáld frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar mismikla áherslu á ákveðin hljóðfæri. Er eitthvert tónskáld sem skarar fram úr í hæfni sinni að semja fyrir horn? Já, það eru Brahms, Mahler, Wagner og Richard Strauss. Þeir skrifa mjög vel fyrir hornið. Þeir eru þá væntanlega í uppáhaldi hjá hornleikaranum? Jú, mikið af minni uppáhaldstónlist er samin af Mahler og Richard Strauss en Mozart og Beethoven eru líka í miklu uppáhaldi. Hver er þín magnaðasta tónlistarupplifun? Úff, þær eru sem betur fer margar minnisstæðar en ef ég yrði að velja eina væru það Opnunartónleikarnir í Hörpu 4. maí. En hvaða tónlist flytur SÍ best að þínu mati? Það er erfitt að segja. Kannski eitthvað kraftmikið og rómantískt fyrir fullum Eldborgarsal. Hvað gerir hornleikari þegar æfingum á hljóðfærið og tónleikahaldi sleppir? Ég er mikill knattspyrnuáhugamaður og harður stuðningsmaður Liverpool og svo auðvitað KA. Ég hef einnig gaman af skák og er að myndast við að skokka mér til heilsubótar. 10

Rómeó og Júlía Rico Saccani snýr aftur Mið. 13. maí» 19:30 Pjotr Tsjajkovskíj Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur Leonard Bernstein Úr West Side Story George Gershwin Úr Porgy og Bess Rico Saccani hljómsveitarstjóri Tryggið ykkur miða Ástir, átök og örlög á vorkvöldi í Eldborg. Eitt frægasta tónverk Tsjajkovskíjs er byggt á Rómeó og Júlíu Shakespeares. Það á líka við um söngleikinn West Side Story eftir Bernstein en þar eru átökin færð til New York. Smellirnir Summertime og It Ain t Necessarily So úr Porgy og Bess eftir Gershwin öðlast nýtt líf í litríkri útgáfu. Rico Saccani var aðalstjórnandi SÍ á árunum 1998 2002 og snýr nú aftur til að stjórna Sinfóníuhljómsveitinni, í fyrsta sinn um langt skeið. @icelandsymphony #sinfó Miðasala» www.sinfonia.is» www.harpa.is» Sími: 528 5050» Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar

Á döfinni Benedetti leikur Mozart Fim. 26. mars» 19:30 Skosk-ítalski fiðluleikarinn Nicola Benedetti skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún bar sigur úr býtum í BBC Young Musician of the Year aðeins 16 ára gömul árið 2004. Síðan hefur hún leikið m.a. á lokakvöldi Proms-tónlistarhátíðarinnar og er nú samningsbundin Deutsche Grammophon. Hún leikur vinsælasta fiðlukonsert Mozarts, sem hann samdi aðeins 19 ára gamall. Á tónleikunum hljóma einnig tvö áheyrileg verk af svipuðum toga sem samin voru undir áhrifum myndlistar. Austurríski hljómsveitarstjórinn Hans Graf stjórnar. Tónleikakynning Vinfélagsins hefst kl. 18.00 í Hörpuhorninu. Ottorino Respighi Trittico Botticelliano Wolfgang Amadeus Mozart Fiðlukonsert nr. 5 Paul Hindemith Mathis der Maler, sinfónía Meiri Mozart Fim. 9. apríl» 19:30 Píanóleikarinn Shai Wosner nýtur alþjóðlegrar hylli fyrir listfengi og framúrskarandi túlkun. Hann leikur með öllum helstu hljómsveitum Evrópu og Ameríku og debúteraði með Vínarfílharmóníunni í Salzburg á 250 ára fæðingarafmæli Mozarts. Hljómsveitarstjórinn Olari Elts varð í fyrsta sæti í Alþjóðlegu Sibeliusar-hljómsveitarstjórakeppninni í Helsinki árið 2000. Hann var aðalhljómsveitarstjóri Lettnesku þjóðarhljómsveitarinnar og aðalgestastjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Helsinki og Sinfóníuhljóms veitar Eistlands. Tónleikakynning Vinafélagsins hefst kl. 18:00 í Hörpuhorninu. Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 32 Wolfgang Amadeus Mozart Píanókonsert í d-moll Valentin Silvestrov Sendiboðinn Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 40 12

Á döfinni Postnikova og Rozhdestvenskíj Fim. 30. apríl» 19:30 Aufúsugestirnir og Íslandsvinirnir, hjónin Viktoria Postnikova og Gennadíj Rozhdestvenskíj heiðra Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónlistarunnendur enn á ný með nærveru sinni og flutningi á rússneskum öndvegisverkum. Rozhdestvenskíj er einn fremsti hljómsveitarstjóri samtímans og milli hans og Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur myndast náið samband sem kristallast í ógleymanlegum tónlistarupplifunum. Óhætt er að lofa ógleymanlegri stund þegar Gennadíj Rozhdestvenskíj stendur í brúnni á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikakynning Vinafélagsins hefst kl. 18:00 í Hörpuhorninu. Igor Stravinskíj Pulcinella, svíta Sergej Rakhmanínov Píanókonsert nr. 4 Pjotr Tsjajkovskíj Hljómsveitarsvíta nr. 3 Simon Trpčeski Fim. 28. maí» 19:30 Makedóníski píanósnillingurinn Simon Trpčeski hefur verið í hópi fremstu píanóleikara Evrópu síðasta áratuginn en sækir nú Ísland heim í fyrsta sinn. Hér leikur Trpčeski fyrri píanókonsert Chopins, sem tónskáldið samdi aðeins tvítugur að aldri. Árið 2015 verða liðin 150 ár frá fæðingu Carls Nielsen. Sinfóníur þessa þjóðartónskálds Dana eru á efnisskrám hljómsveita um allan heim. Sú fimmta er vinsælust þeirra allra og hljómar hér í túlkun finnska stjórnandans Pietari Inkinen, sem hefur margsinnis stjórnað SÍ við mjög góðar undirtektir áheyrenda. Tónleikakynning Vinfélagsins hefst kl. 18.00 í Hörpuhorninu. Fréderic Chopin Píanókonsert nr. 1 Carl Nielsen Sinfónía nr. 5 Sinfóníuhljómsveit Íslands 2014/15 13

Hljómsveit á tónleikum 1. fiðla Sigrún Eðvaldsdóttir Zbigniew Dubik Hildigunnur Halldórsdóttir Andrzej Kleina Bryndís Pálsdóttir Mark Reedman Ingrid Karlsdóttir Ágústa María Jónsdóttir Martin Frewer Lin Wei Rósa Hrund Guðmundsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Olga Björk Ólafsdóttir Laufey Jensdóttir 2. fiðla Gunnhildur Daðadóttir Helga Þóra Björgvinsdóttir Kristján Matthíasson Christian Diethard Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir Margrét Þorsteinsdóttir Roland Hartwell Sigurlaug Eðvaldsdóttir Ólöf Þorvarðsdóttir Dóra Björgvinsdóttir Hlín Erlendsdótti Þórdís Stross Víóla Þórunn Ósk Marinósdóttir Svava Bernharðsdóttir Þórarinn Már Baldursson Sarah Buckley Kathryn Harrison Guðrún Hrund Harðardóttir Herdís Anna Jónsdóttir Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Guðrún Þórarinsdóttir Sesselja Halldórsdóttir Selló Sigurgeir Agnarsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Júlía Mogensen Inga Rós Ingólfsdóttir Ólöf Sesselja Óskarsdóttir Lovísa Fjeldsted Bryndís Björgvinsdóttir Bassi Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Dean Ferrell Jóhannes Georgsson Richard Korn Þórir Jóhannsson Flauta Hallfríður Ólafsdóttir Melkorka Ólafsdótti Martial Nardeau Óbó Peter Tompkins Össur Ingi Jónsson Eydís Franzdóttir Klarínett Arngunnur Árnadóttir Einar Jóhannesson Rúnar Óskarsson Fagott Michael Kaulartz Brjánn Ingason Rúnar Vilbergsson Horn Joseph Ognibene Emil Friðfinnsson Stefán Jón Bernharðsson Þorkell Jóelsson Lilja Valdimarsdóttir Trompet Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson Ásgeir Steingrímsson Guðmundur Hafsteinsson Básúna Sigurður Þorbergsson Oddur Björnsson David Bobroff, bassabásúna Túba Nimrod Ron Harpa Katie Buckley Pákur Eggert Pálsson Slagverk Steef van Oosterhout Frank Aarnink Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri Árni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Margrét Sigurðsson fjármálafulltrúi Grímur Grímsson sviðsstjóri Anna Sigurbjörnsdóttir tónleikastjóri Hjördís Ástráðsdóttir fræðslustjóri Margrét Ása Jóhannsdóttir nótna- og skjalavörður Sigþór J. Guðmundsson sviðsstjóri Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Greipur Gíslason verkefnastjóri Una Eyþórsdóttir mannauðsstjóri Valgerður Árnadóttir umsjónarmaður 14

REYKJAVÍK 16. 17. APRÍL 2015 Allt sem tónlist getur verið Tectonics Reykjavík hátíðin fer fram í Hörpu í fjórða sinn 16. og 17. apríl næstkomandi. Meðal gesta hátíðarinnar í ár eru Tony Conrad, Robyn Schulkowsky, Alvin Curran, Stephen O Malley, Jon Rose og Joel Stern. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur verk eftir íslensku tónskáldin Áka Ásgeirsson, Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Hlyn Aðils Vilmarsson og Úlf Hansson auk þess sem flutt verður nýtt verk eftir myndlistarmanninn Magnús Pálsson, unnið í samstarfi við Þráin Hjálmarsson. Einnig munu Anna Þorvaldsdóttir og Bergrún Snæbjörnsdóttir flytja eigið efni á hátíðinni. Þetta og fleira til verður í boði á Tectonics 2015. Tónlistarhátíð Listrænn stjórnandi ILAN VOLKOV Miðar fáanlegir WWW.SINFONIA.IS WWW.HARPA.IS WWW.TECTONICSFESTIVAL.COM

Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands Sigrún Eðvaldsdóttir, 1. konsertmeistari, og systir hennar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, eru hluti af fiðlusveitinni. Sigrún: Auðvitað þykir okkur rosalega vænt um fiðluna en þetta er líka stundum svolítið erfitt samband. Hljóðfærið er oft harður húsbóndi. Sigurlaug: Einmitt, en samt er gott samband við góða fiðlu eins og gott ástarsamband, það svarar allt svo vel. Við vitum öll hvað það merkir að stilla saman strengi, en í starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er orð takið notað í bókstaflegri merkingu og í raun er fátt nauðsynlegra. Fagmennska er leiðar stef í öllu starfi hljómsveitarinnar. Sigrún Eðvaldsdóttir er ástríðu fullur tónlistarmaður sem gefur allt í flutninginn á milli þess sem hún leikur angurvært á fiðluna. Sigrún hefur leikið víða um lönd og náð góðum árangri í alþjóð legum fiðlukeppnum. Eldri systir Sigrúnar, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, hefur kennt þeirri yngri allt sem hún kann. Framhaldsnám í fiðlu leik stunduðu þær báðar fyrir vestan haf, Sigurlaug í New York við Manhattan School of Music en Sigrún við hinn sögufræga Curtis tónlistar háskóla í Philadelphiu. Fiðlan ber oftar en ekki uppi laglínur tónbókmenntanna, getur fengið hárin til að rísa og á hug þeirra systra allan. gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. www.gamma.is