Greinargerð: Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og tengdra aðila

Similar documents
Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

BS ritgerð. Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum og reikningsskilareglur þeirra

Horizon 2020 á Íslandi:

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Brú II Venture Capital Fund S.C.A., SICAR

Lýsing þessi er dagsett 11. júní Umsjónaraðili almenns útboðs og töku hlutabréfanna til viðskipta: Landsbankinn hf.

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Ég vil læra íslensku

Greiðsluerfiðleikar. Greinargerð um stöðu Landsbankans. Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjórar Landsbanka Íslands

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Fimm með yfir fimm prósent í SPRON

Einkavæðing Landsbankans og Búnaðarbankans: Var verðið rétt?

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Skuldbindingaskrá. Gagnamódel útgáfa 1.5

Reykjavík-Rotterdam, rannsókn á vöruútflutningi til Niðurlands (Hollands) Reykjavík-Rotterdam, a study of exports of goods to the Netherlands

Ný persónuverndarlöggjöf 259 dagar til stefnu Alma Tryggvadóttir

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Nr desember 2014 REGLUGERÐ. um skjölun og milliverðlagningu í viðskiptum tengdra lögaðila.

Viðtakandi: Fjárlaganefnd og Efnahags- og skattanefnd Alþingis Sendandi: Hagfræðisvið og Alþjóða- og markaðssvið Seðlabanka Íslands

Ed Frumvarp tillaga [143. mál]

Íslenskur hlutafjármarkaður

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Skráningarlýsing. Hlutafjáraukning skráð á. Aðallista Kauphallar Íslands

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

STAPI LÍFEYRISSJÓÐUR ÁRSSKÝRSLA 2008

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Í skoðun að rýmka lánskjör bankanna

Eimskip. Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar

MARKAÐURINN. Flugfélögin. á krossgötum EINSTÖK BARNAGLERAUGU FRÁ LINDBERG. »2 WOW skoðar útgáfu breytanlegra skuldabréfa

Sala á sjávarafurðum.l Bandaríkjanna 2016


Vaxtarsaga Marel. Snjólfur Ólafsson og Auður Hermannsdóttir

Að störfum í Alþjóðabankanum

Íslandssjóðir hf. Verðbréfasjóðir Fjárfestingarsjóðir. Ársreikningur Íslandssjóðir hf. Kirkjusandi Reykjavík Kt.

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Námsferð til Ulricehamn Svíþjóð, mars 2013

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 39 ISSN árgangur ESB-STOFNANIR

MARKAÐURINN. gullgæs. Stóru stofurnar. Sjónmælingar eru okkar fag. leita að næstu

Drög að reglum um eiginfjárkröfu og áhættugrunn fjármálafyrirtækja

UM samábyrgð/keðjuábyrgð verktaka í ljósi fyrirhugaðrar innleiðingar á tilskipun 2014/67/EU í íslenskan rétt

Lýsing September 2006

ÁRSSKÝRSLA Kaflatexti kemur hér

Björgvin Guðmundsson skrifar

Samfélagsskýrsla Landsbankans 2015

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

Sjónmælingar í Optical Studio

HVERNIG Á AÐ META ÁHÆTTU?

Saga fyrstu geimferða

ÁRSSKÝRSLA Kaflatexti kemur hér

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Skammtímaáhrif af samrunum og yfirtökum á íslenskum markaði

Markaðurinn. 124 milljarðar. Dýrkeypt forðasöfnun SJÓNMÆLINGAR ERU OKKAR FAG. Heildarkostnaður frá 2014 »10

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur V. Hitabylgjur og hlýir dagar

Evrópskur samanburður á launum 2010 Structure of Earnings Survey 2010

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Laun á almennum vinnumarkaði 2005 Earnings in the private sector 2005

Íslandssjóðir hf. Árshlutareikningur Íslandssjóðir hf. Kirkjusandi Reykjavík Kt

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Ársskýrsla TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf.

Markaðurinn. Sjónmælingar eru okkar fag. í stjórnun fjölgar ekki. 2 Bjarni Ármanns kaupir í skórisa. 4 Keahótel til sölu. 12 Blönduð einkavæðing

Fóðurrannsóknir og hagnýting

Efnisyfirlit. Ársskýrsla Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2012

Flugfélag fangar lærdóm Lággjaldaflugfélögin

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

Efni yfirlitsins að þessu sinni er: HAGTÖLUR VR

Viðauki 5. Birtur með skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

[fjou:lɪð] mitt er svo [fuŋkt]!

Hækkar um 26,5% á árinu þrátt fyrir mótmæli Félags eldri borgara

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar Frambjóðendur. Multicultural Council of Reykjavik Candidates

HAGFRÆÐISTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS

ÁRSSKÝRSLA Ársskýrsla Seðlabanka Íslands Efnisyfirlit

MARKAÐURINN. Smærri fyrirtækjum settur stóllinn fyrir dyrnar

Klakaströnglar á þorra

ÁRSSKÝRSLA FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS 2013 FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Transcription:

Yfirlýsing frá Björgólfi Thor Björgólfssyni Lánin verða gerð upp að fullu Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er á nokkrum stöðum fjallað um lán mín og tengdra aðila. Eins og fram kom í grein sem ég skrifaði og birt var í Fréttablaðinu 15. apríl sl. eru heildarniðurstöður skýrslu rannsóknarnefndarinnar óvéfengjanlegar og í greininni bað ég Íslendinga afsökunar á mínum hlut í hruni fjármálakerfisins. Eitt af því sem er ámælisvert og fram kemur í skýrslunni eru miklar lántökur stærstu eigenda bankanna. Ég er þar ekki undantekning. Umsvif mín sem alþjóðlegs fjárfestis hafa undanfarin ár verið mikil og lengi vel mjög farsæl. Sem lið í því átti ég viðskipti við lánastofnanir, sem í mörgum tilvikum sóttust eftir þeim viðskiptum að fyrra bragði. Þrátt fyrir að stærsti hluti lánaviðskipta minna hafi verið við erlendar fjármálastofnanir, þá sé ég núna að eðlilegra hefði verið fyrir mig sem alþjóðlegan fjárfesti að beina lánaviðskiptum mínum enn frekar frá Íslandi. Eftir stendur að þessi lán voru veitt og vil ég hér greina frá því hvert þessir peningar fóru. Í greinargerð sem fylgir þessari yfirlýsingu geri ég grein fyrir þessum lánum, tilurð þeirra, verkefnum sem fjármunirnir runnu til og stöðu þeirra í dag. Þá leiðrétti ég jafnframt rangfærslur sem finnast í rannsóknarskýrslunni en nefndin óskaði hvorki eftir upplýsingum frá mér, né kallaði mig til viðtals og gaf mér því ekki kost á að svara þeim aðfinnslum eða rangfærslum sem að mér beinast. Sem dæmi má nefna fullyrðingar um að ég hafi tekið lán hjá Landsbankanum vegna Actavis örfáum dögum fyrir fall Landsbankans. Ég hef áður lýst því, að dregið var á þetta lán í áföngum frá apríl fram í september 2008. Fyrir láninu voru fullkomlega eðlilegar viðskiptalegar forsendur, tryggingar voru öruggar og lánið verður gert upp að fullu, líkt og önnur lán mín. Eins og stendur á ég í viðræðum við lánardrottna og stefni ég að því að gera upp allar mínar skuldir við íslenskar lánastofnanir sem og erlendar. Eigur mínar standa að baki því uppgjöri og hef ég afhent lánardrottnum mínum ítarlegt yfirlit allra minna eigna. Ég einbeiti mér að þessu skuldauppgjöri á næstu árum og vil ljúka því með sóma. Björgólfur Thor Björgólfsson Greinargerð: Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og tengdra aðila Hér er gerð grein fyrir þeim lánum í íslenskum bönkum sem tengjast Björgólfi Thor Björgólfssyni og tengdum aðilum skv. töflu á blaðsíðu 6 í viðauka 9 í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Skýrsla rannsóknarnefndar tiltekur eingöngu þá fjárhæð sem hefur verið lánuð en tekur ekkert á hvaða tryggingar standa á móti þeim lánum eða hvenær lánin voru tekin. Þegar farið er yfir töflu rannsóknarnefndar um lánin kemur glöggt í ljós að stærstu einstöku lánin eru bein lán til Actavis eða lán tengd því félagi, sem er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins. Fyrir því voru margvísleg rök að það fyrirtæki beindi viðskiptum sínum að hluta til innlendra fjármálafyrirtækja. Mörg af lánum Björgólfs voru tryggð með handveði í innlánum og því ekki um neina útlánaáhættu að ræða, þ.e. bankinn tryggði að hann myndi ekki verða fyrir tjóni þótt lántakandi gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar með því að hafa fullnægjandi eignir á móti sem tryggingu. Félög tengd Björgólfi

voru með rúmlega 50 milljarða króna (300 milljónir evra) reiðufé í innlánum hjá Landsbankanum við fall hans. Voru það fjármunir sem komu til vegna söluhagnaðar erlendra eigna og vörðuðu að engu leyti íslenskt efnahagslíf. Þá hafa eignir verið seldar og lán, sem tiltekin eru í töflunni, verið endurgreidd, sbr. Novator Finland Oy. Í töflunni hér að neðan, sem fengin er á bls. 6 í viðauka 9 við skýrslu rannsóknarnefndarinnar eins og áður sagði, má sjá yfirlit yfir útlán til félaga tengdum Björgólfi auk þess sem bætt hefur verið við dálki sem sýnir raunverulega útlánaáhættu, lántökudag og hvaða veð liggja á bak við lánin.* Sé tekið tillit til innlána þá kemur einnig fram að áhættuskuldbindingar eru samtals 128.476 milljónir króna en ekki 170.427 milljónir króna eins og segir í skýrslu rannsóknarnefndar. Skeikar þar 41.951 milljón króna. Félag LÍ Straumur Útlánaáhætta Lán/ábyrgð veitt Veð AB Capital ehf. 3.985 3.985 maí 2005 Landareign BeeTeeBee Ltd 26.942 26.942 júní / sept 2008 Hlutafé ACT og innlán Björgólfur T Björgólfsson 2.358 2.358 mars 2005 Landareign Blizzard Capital Ltd 1.679 1.679 mars 2006 Erl. hlutabréf Milburn Global Ltd 18.716 0 nóvember 2007 Innlán Nov. Asset Management 5.660 5.660 nóvember 2005 Hlutabréf Nov. Finance Ltd 9.369 9.369 sept 2006 / 2007 Skuldabréfasjóður Nov. Finland Oy 8.224 0 júlí 2007 Hlutabréf Nov. Int Holding Ltd 6.060 0 janúar 2008 Innlán Nov. Partners ehf 2.961 0 maí 2006 Ábyrgð á leigu Nov. Partn-Prop H 1 ehf 4.800 4.800 mars 2006 Erl hlutabréf Act. Pharma Holding 1 10.075 18.827 28.902 ágúst 2007 Hluta til fjárfesting og hluta til lán Act. Pharma Holding 2 39.462 39.462 ágúst 2007 Rekstrarábyrgð Nov. Prop Sarl 1.282 1.282 júlí 2008 Erl. hlutabréf Nov. Telecom Bulgaria Ltd 5.990 0 desember 2007 Innlán Rosetta Investors Ltd 1.608 1.608 júlí 2007 Hlutabréf Annað 1.096 1.333 2.429 2006-2008 Fasteignir í Reykjavík Samtals 141.482 28.945 128.476 *Hér eru aðeins tilgreind þau lán í töflu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem lánsfjárhæð var yfir 1.000 milljónir króna. Minni lán falla undir liðinn Annað og því eru samtalstölur sambærilegar.

Einnig sést að Björgólfur fékk aðeins eitt lán frá Landsbankanum árið 2008 og eitt lán frá Straumi og voru þau vegna hlutafjáraukningar í Actavis og fasteignaverkefna í Danmörku. Lántökuár þeirra lána sem eru útistandandi í dag sést hér að neðan. Ár Fjárhæð 2005 12.003 2006 13.477 2007 69.972 2008 26.942 Hér á eftir er fjallað um ofangreind lán og verkefni þeim tengd og annað sem máli skiptir. AB Capital ehf. AB Capital ehf. er félag sem stofnað var um landakaup á Spáni. Kaupin voru kynnt fyrir Björgólfi af Róberti Wessman í janúar 2005. Félagið er í meirihlutaeigu Róberts (51%) og er stýrt af honum, en eignarhlutur Björgólfs er 45%. Lánið er frá því í maí árið 2005 en á þeim tímapunkti var Björgólfur ekki í stjórn Straums og átti ekki teljandi hlutabréf í bankanum. Verkefnið hefur mistekist hrapallega þar sem ekki var unnt að fá byggingarleyfi í tæka tíð og fasteignamarkaður á Spáni er nú í mikilli lægð. Umrætt lán í Straumi hefur verið endurfjármagnað nokkrum sinnum á tímabilinu. Lánsfjárhæð Straums til félagsins er 26 milljónir evra og var lánið síðast framlengt í júní 2008 og þá greiddir uppsafnaðir vextir. Veð vegna lánsins er í umræddri landareign á Spáni. BeeTeeBee Ltd. Um er að ræða félag í beinni eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og er helsta eign þess eignarhlutur í Actavis Group hf. Í töflunni koma fram tvö lán að fjárhæð 95 milljónir evra og 90 milljónir evra. Lán að fjárhæð 95 milljónir evra var veitt í september 2007 frá Landsbankanum í Lúxemborg og eru tryggt að fullu með handveði í reiðufé í sama banka. Hér er ekki um útlánaáhættu að ræða hjá Landsbankanum í Lúxemborg, því bankinn getur innheimt lánið að fullu með því að ganga að umræddu reiðufé. Þar til viðbótar er lán að upphæð 90 milljónir evra. Umrætt lán var veitt í nokkrum áföngum og var hlutafé greitt til Actavis frá apríl til september 2008. Við fall Landsbankans stóð þetta lán í 154 milljónum evra og var allt vegna hlutafjáraukningar í Actavis. Vegna rekstrarerfiðleika sem komu upp hjá Actavis vegna tímabundinnar lokunar á verksmiðju í Bandaríkjunum fyrri hluta árs 2008 þurfti félagið rekstrarfjármagn til að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þegar þetta varð ljóst var samið við Landsbankann um fjármögnun á þeirri hlutafjáraukningu sem kæmi í hlut Novator vegna aukningar á hlutafé í Actavis.

Þar sem ekki var þörf á öllu fjármagninu strax inn í Actavis var hlutafjáraukningin fjármögnuð í skrefum. Félög í eigu Björgólfs Thors greiddu fjármuni inn í Actavis í fyrsta skipti í apríl 2008, sem fjármagnað var af Landsbankanum Lúxemborg, og síðan jafn og þétt uns samningar tókust við Deutshe Bank í september 2008 um hlutafjáraukningu gegn endurfjármögnun. Síðasta greiðslan var í lok september og nam hún 64 milljónum evra. Greiðslur voru skv. neðangreindu: EUR Apríl 15 Maí 15 Júní 20 Júlí 20 Ágúst 20 Sept 64 Samtals 154 * * tölur eru í milljónum evra Það er því ekki rétt sem ætla má af umfjöllun skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um lánafyrirgreiðslur til félags Björgólfs Thors frá Landsbankanum í lok september 2008 að um nýtt lán hafi verið að ræða. Þetta var síðasta útborgun á láni sem var samþykkt í mars 2008. Tryggingar voru veð í breytanlegu skuldabréfi í Actavis, sem í raun þýðir að veð er í hlutabréfum Björgólfs Thors í Actavis, auk annarra trygginga sem metnar voru góðar. Lánið er í skilum og verður gert upp að fullu. Björgólfur Thor Björgólfsson Lánið er ekki persónulegt lán til Björgólfs Thors heldur er lán til AB Capital ehf. sem um var getið hér að ofan og var að fjárhæð 35 milljónir evra. Lánið var veitt í mars árið 2005 og tryggingar og veð Landsbankans við lánveitingu voru 150%. Blizzard Capital Ltd. Um er að ræða tvö lán með handveði í hlutabréfum. Fyrra lánið var veitt í mars árið 2006 og er tryggt með handveði í hlutabréfum í félagi sem skráð er á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum. Fjárhæð lánsins er um 8 milljónir evra. Síðara lánið var veitt í júlí 2007 og er tryggt með handveði í hlutabréfum í verðbréfasjóði með eignir í erlendum hlutabréfum. Veðhlutfall var 50% við lánveitingu. Fjárhæð þessa láns er um 4 milljónir evra. Milburn Global Ltd. Lán að fjárhæð 128 milljónir evra sem veitt var af Landsbankanum í Lúxemborg í nóvember 2007. Lánið er að fullu tryggt með handveði í reiðufé í Landsbankanum í Lúxemborg og áhætta bankans vegna útlánsins því engin. Novator Asset Management Ltd. Lán frá Landsbankanum í Lúxemborg frá nóvember 2005 að fjárhæð 18 milljónir evra og síðan til viðbótar 20 milljónir í janúar 2008. Lánið er tryggt með handveði í 20% eignarhlut Björgólfs í eignastýringafélagi í London en það félag er ekki tengt Novator eða Björgólfi með öðrum hætti. Lánið stendur í 39 milljónum evra. Lánið var útistandandi við fall Landsbankans og viðræður standa yfir við skiptastjóra Landsbankans í Lúxemborg. Markaðsverð félagsins var talið um 500 milljónir evra

í ársbyrjun 2007 og er möguleiki á að arðgreiðslur geti verið nægjanlegar til að greiða niður þau lán sem hvíla á félaginu. Novator Finance Ltd. Landsbankinn í Lúxemborg lánaði fjármuni til Novator Finance Ltd. til að kaupa eignarhlut í Novator Credit sjóðnum. Lánið var veitt í september 2006 og september 2007. Veð er í bréfum í skuldabréfasjóðnum en auk þess er bakábyrgð frá BeeTeeBee Ltd. Tryggingar eru því traustar. Verið er að slíta Novator Credit sjóðnum og er reiknað með að það gerist að fullu innan þriggja ára. Novator Finland Oy Novator Finland OY var með lán upp á 212 milljónir evra þegar mest var í febrúar 2008. Lánið var tryggt með veði í skráðum finnskum hlutabréfum. Lánið var greitt að stórum hluta í mars 2008 og að fullu þann 2. júlí 2009 þegar undirliggjandi eignir voru seldar. Við sölu þeirra bréfa þann 2. júlí 2009 var lánið greitt upp að fullu. Novator International Holdings Ltd. Novator International Holdings Ltd. var með lán að fjárhæð 42 milljónir evra sem tryggt var með handveði í peningafjárhæð í eigu félagsins inni á reikningi hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Áhætta bankans vegna útlánsins er því engin. Lánið var veitt í janúar 2008. Novator Partners ehf. Ábyrgð vegna húsaleigusamnings Novator Partners LLP í Bretlandi sem veitt var í maí 2006. Um hefðbundna ábyrgð vegna slíkra samninga er að ræða og fjárhagsstaða umrædds félags var traust og hefur húsaleiga ávallt verið í skilum. Við fall Landsbankans var ábyrgðinni ekki lýst í búið og því reynir ekki á hana. Novator Partners-Properties Holdings 1 ehf. (Hét áður Samson Partners Properties Holdings) Straumur lánaði félaginu 303 milljónir danskra króna í mars 2006 vegna kaupa á hlut í dönsku fasteignafélagi. Þetta lán var greitt niður í 227 milljónir á tímabilinu 2006-2007. Lánaveð var í hlutabréfum í fasteignafélagi í Danmörku. Lán þetta var í skilum. Félagið er, eftir því sem næst verður komist, enn í rekstri. Umrætt félag var, beint eða óbeint, í meirihlutaeigu Samson eignarhaldsfélags ehf sem varð gjaldþrota í október 2008. Í kjölfar gjaldþrots þess hefur skiptastjóri Samson eignarhaldsfélags farið með þennan eignarhlut í gegnum meirihluta sinn í Novator Properties (Kýpur). Novator Pharma Holdings 1 (félagið heitir Actavis Pharma Holdings 1 hf.) Bein fjárfesting Straums og Landsbankans í Actavis Group hf. þegar félagið var skráð af markaði í ágúst 2007. Hér er því ekki um lán að ræða heldur fjárfestingu í hlutafé. Landsbankinn fjárfesti fyrir 50 milljónir evra og Straumur fyrir 80 milljónir evra. Novator Pharma Holdings 2 (félagið heitir Actavis Pharma Holdings 2 ehf.) Lán frá Straumi og Landsbanka til Actavis þegar félagið var tekið af hlutabréfamarkaði í ágúst 2007. Yfirtakan var að stærstum hluta fjármögnuð af Deutsche Bank. Hlutur íslensku bankanna var eingöngu um 6% af heildarfjármögnun og er þá talið bæði hlutafé og lánsfé. Við yfirtökuna fékk Landsbankinn endurgreidd lán frá Actavis að fjárhæð 75 milljarða króna (515 milljón evra) frá

félaginu. Þar til viðbótar fékk bankinn endurgreidd lán frá einstaklingum sem voru með hlutabréf frá Actavis fjármögnuð hjá bankanum og má því gera ráð fyrir að Landsbankinn hafi fengið endurgreidda tæpa 90 milljarða króna (600 milljónir evra) við yfirtökuna. Landsbankinn ákvað að endurfjárfesta innan við helming af þeirri fjárhæð í Actavis í formi láns og hlutafjár. Lánsfjárhæðin, sem er hluti af lánapakka Deutsche Bank, nam 200 milljónum evra frá Landsbankanum og 100 milljónum evra frá Straumi og er í báðum tilvikum um að ræða eingreiðslulán til 11 ára. Lánið er í evrum og ber 23% vexti. Novator Properties Sarl (- hét áður Samson Properties Sarl) Straumur lánaði félaginu 64 milljónir danskra króna í júlí og 52 milljónir danskar í september 2008 vegna þátttöku í fasteignaverkefnum í Danmörku. Veð var tekið í hlutabréfum í fasteignafélögum þeim sem halda utanum verkefnin. Lán þetta var í skilum. Félagið er, eftir því sem næst verður komist, enn í rekstri. Umrætt félag var, beint eða óbeint, í meirihlutaeigu Samson eignarhaldsfélags ehf sem varð gjaldþrota í október 2008. Í kjölfar gjaldþrots þess hefur skiptastjóri Samson eignarhaldsfélags farið með þennan eignarhlut í gegnum meirhluta sinn í Novator Properties (Kýpur). Novator Telecom Bulgaria Ltd. Ábyrgð frá Landsbankanum frá desember 2007 vegna skuldbindinga félagsins Novator Telecom Bulgaria Ltd. til þriðja aðila að fjárhæð 41 milljón evra. Ábyrgðin var tryggð með handveði í reiðufé í Landsbankanum í Lúxemborg og var áhætta bankans því engin. Rosetta Investors Ltd. Lán til félags í eigu Björgólfs Thors frá júlí 2007. Lánið var tryggt með eignum félagsins í Samson Global Holdings Sarl. og með ábyrgð frá móðurfélagi þess Valhamar Ltd. en það félag hafði sterkt eigið fé fram að falli bankanna.