VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Similar documents
Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

Ég vil læra íslensku

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd verka: Forleikur: 10 Fimm söngvar: 22 Sinfónía: 28

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

CHEMISTRY. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Kafli 3. Kafli 3. Hlutfallareikningur: AðA. reikna út fnum. Efnajöfnur. Efnajöfnur. Efnajöfnur

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Að störfum í Alþjóðabankanum

Enginn maður hér á landi, annar en ég, hefur rétt til að lesa Der Tod in Venedig

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Chaplin - Modern Times. 8. & 9. maí 2015

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Summer Concerts 2007

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Dystópíur uppgangskynslóðarinnar

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

[fjou:lɪð] mitt er svo [fuŋkt]!

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Tónlistin í þögninni

KVER HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Hljó!færaleikur. Kóngur vill sigla... Benny Goodman og sígilda tónlistin

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Saga fyrstu geimferða

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Íslenzkar Gramóphón-plötur

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, júní 2014

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

Maðurinn í málverki. eftir Ragnar Þórisson. Listaháskóli Íslands Myndlistardeild B.A.-ritgerð (janúar 2010) Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Ed Frumvarp tillaga [143. mál]

Forseti Íslands á. 9. tölublað 2009 Fimmtudagur 14. maí Blað nr. 304 Upplag

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

Nú ber hörmung til handa

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Elítur á Íslandi einsleitni og innbyrðis tengsl

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

2. tölublað, 5. árgangur. Nóvember 2009

EFLA Verkfræðistofa. STUÐLAR UM AFHENDINGU RAFORKU Árin Reykjavík, apríl 2012

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

Brennisteinsvetni í Hveragerði

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

Eftirspennt Brúargólf Klóríðinnihald í nokkrum steyptum brúargólfum

Fyrirkomulag forsjár barna af erlendum uppruna

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 489/2012. frá 8. júní 2012

Menning í Múlakoti. Gróðrarstöð lista á fyrri hluta 20. aldar. Ásta Friðriksdóttir. Lokaverkefni til MA-gráðu Háskóli Íslands Hugvísindasvið

Snemma hafði jeg yndi af óð

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Hlið við hlið. Ástráður Eysteinsson. Tapað-fundið í framandi borgum. Borg ohoj!

Áhrif upplýsingarinnar sem koma fram í völdum ritum um veraldleg efni eftir aðra Íslendinga en Magnús Stephensen frá tímabilinu

Töflur og töflugerð. Með sérstöku tilliti til íslenskra aðstæðna. Inngangur. Upphaf töflugerðar í Bretlandi

Transcription:

OG 11. OKTÓBER 2018

VELKOMIN Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikunum er streymt beint í hljóði og mynd á vef hljómsveitarinnar, www.sinfonia.is. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á Rás 1 og eru aðgengilegir á ruv.is. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka. Áætluð tímalengd tónleika: Candide, forleikur: 5 Fiðlukonsert: 35 Sinfónía: 50 Uppto kur með Sinfóníuhljómsveit I slands má finna á YouTube- og Spotify-rásum hljómsveitarinnar. A Spotify má einnig finna lagalista með allri tónlist starfsársins. Aðalstyrktaraðili :

FIM11 19:30 OKT TÓNLEIKAR Í ELDBORG TSJAJKOVSKÍJ OG SHOSTAKOVITSJ Klaus Mäkelä hljómsveitarstjóri Sayaka Shoji einleikari EFNISSKRÁ Leonard Bernstein Candide (Birtingur), forleikur (1956) Pjotr Tsjajkovskíj Fiðlukonsert í D-dúr, op. 35 (1878) Allegro moderato Moderato assai Canzonetta. Andante Finale. Allegro vivacissimo Hlé Dímítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 10 í e-moll, op. 93 (1953) Moderato Allegro Allegretto Andante Allegro For information in English about tonight s programme, please visit the Iceland Symphony Orchestra website: en.sinfonia.is 3

KLAUS MÄKELÄ @klausmakela HLJÓMSVEITARSTJÓRI Hinn finnski Klaus Mäkelä (f. 1996) er þegar orðinn einn eftirsóttasti hljómsveitarstjóri Norðurlanda þótt hann sé ekki nema rúmlega tvítugur að aldri. Hann tók nýverið við stöðu aðalgestastjórnanda hjá Sænsku útvarpshljómsveitinni auk þess sem hann er staðarlistamaður Tapiola-sinfóníettunnar og mun meðal annars stjórna þar Beethoven-hring sem spannar næstu þrjú starfsár. Hann þreytti nýverið frumraun sína hjá Konunglegu fílharmóníunni í Stokkhólmi og sinfóníuhljómsveitunum í Lahti, Ottawa og Minnesota, auk þess að stjórna Fílharmóníusveitinni í Helsinki og Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg. Á næstunni kemur hann meðal annars fram með Orchestre de Paris, Útvarpshljómsveitinni í Frankfurt og Fílharmóníusveitinni í Bergen. Mäkelä hefur einnig látið að sér kveða sem óperustjórnandi og stýrði til dæmis Töfraflautu Mozarts hjá Finnsku þjóðaróperunni í desember 2017. Mäkelä lærði hljómsveitarstjórn hjá Jorma Panula við Sibeliusar- -akademíuna og stundaði einnig sellónám hjá Marko Ylönen og Timo Hanhinen. Hann hefur komið fram sem einleikari með fjölda hljómsveita og einnig leikið kammertónlist víða um heim. Á næsta ári tekur hann við stöðu listræns stjórnanda tónlistarhátíðarinnar í Turku í Finnlandi, og í síðustu viku var tilkynnt að hann yrði næsti aðalstjórnandi Fílharmóníusveitarinnar í Ósló frá og með haustinu 2020. Mäkelä stjórnar nú fyrstu áskriftartónleikum sínum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, en hann stjórnaði hljómsveitinni á tónleikum á Menningarnótt í ágúst síðastliðnum. 4

SAYAKA SHOJI @SayakaShoji EINLEIKARI Sayaka Shoji (f. 1983) fæddist í Tókýó en ólst upp í Siena á Ítalíu og hóf tónlistarnám fimm ára gömul. Hún lærði hjá Zakhar Bron í Köln frá 15 ára aldri og debúteraði í Musikverein í Vínarborg árið 1997. Árið 1999 hreppti hún fyrstu verðlaun í Paganini-keppninni og um svipað leyti kynntist hún hljómsveitarstjóranum Zubin Mehta sem hefur allar götur síðan verið einn dyggasti stuðningsmaður hennar. Shoji hefur leikið með mörgum helstu hljómsveitum heims, meðal annars Fílharmóníusveitunum í Berlín og New York, Sinfóníuhljómsveit Lundúna og Santa Cecilia-hljómsveitinni í Róm. Hún hefur einnig komið fram á Verbier-hátíðinni, Beethoven-hátíðinni í Bonn og lék nýverið á tónleikum í Wigmore Hall í Lundúnum. Árið 2015 hljóðritaði hún allar sónötur Beethovens fyrir píanó og fiðlu ásamt píanistanum Gianluca Cascioli. Fyrir nokkrum vikum kom út nýjasti geisladiskur hennar hjá Deutsche Grammophon, fiðlukonsertar eftir Beethoven og Sibelius sem hún flytur ásamt Fílharmóníusveit Sankti Pétursborgar. Shoji leikur á Stradivarius-fiðlu frá árinu 1729 sem hún hefur að láni hjá japanska fyrirtækinu Ueno. Sayaka Shoji hefur ekki áður leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands en hún hefur þrívegis áður komið fram á Íslandi, á hátíðinni Reykjavík Midsummer Music í Hörpu árin 2014, 2015 og 2017. 5

LEONARD BERNSTEIN CANDIDE, FORLEIKUR Í ágúst á þessu ári var öld liðin frá fæðingu Leonards Bernstein (1918 1990). Hann var vonarstjarna bandarískrar tónlistar á áratugunum eftir síðari heimsstyrjöldina og bræddi saman djass og alvarlegri músík af kunnáttu sem fáum var gefin. Hann átti það líka sameiginlegt með mörgum helstu snillingum tónlistarinnar að geta unnið að tveimur gjörólíkum verkum á sama tíma. Þannig var það til dæmis með söngleikina Candide og West Side Story, sem báðir urðu til á árunum 1955 57 undir áhrifum frá aldagömlum sögum, en spegla ástandið í Bandaríkjunum hvor með sínum hætti. Í West Side Story er sagan af Rómeó og Júlíu látin ná til innflytjenda á Manhattan um miðja 20. öld; Candide (Birtingur) er byggður á ádeilusögu franska upplýsingarskáldsins Voltaires um ævintýri ungs manns sem telur sig búa í hinum besta heimi allra heima en kemst að því að tilveran er flóknari en svo. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Sinfóníuhljómsveit I slands hefur alloft flutt forleikinn að Candide. Meðal stjórnenda hafa verið þeir Murry Sidlin (1988), Osmo Vänskä (1997), David Charles Abell (2003), Kurt Kopecky á óperutónleikum 2005 og Markus Poschner á Vínartónleikum 2009. Það var ekki tilviljun ein sem réð því að hinn vinstrisinnaði Bernstein tókst slíkt verk á hendur. Textahöfundur var leikskáldið Lillian Hellman sem hafði verið kölluð fyrir Andamerísku nefndina svokölluðu, sem starfaði á vegum Banda ríkja þings undir forystu öldungadeildarþingmannsins Josephs McCarthy og kannaði stjórnmálaskoðanir þeirra sem störfuðu á sviðum lista og menningar. Hellman var um skeið sett út á gaddinn vegna viðhorfa sinna og sama gilti um ýmsa nána vini Bernsteins, meðal annars tónskáldið Aaron Copland. Löngu eftir lát Bernsteins kom líka í ljós að bandaríska leyniþjónustan FBI fylgdist með honum vegna afskipta hans af stjórnmálum. Þrátt fyrir léttúðugt yfirbragð var Candide því beinlínis ádeila á hið ofsóknarkennda ástand sem einkenndi bandarískt stjórnmála- og menningarlíf um þetta leyti. Í West Side Story eru áhrif bandarískrar dægurtónlistar greinileg en í Candide er Bernstein á slóðum hinnar evrópsku óperettu. Verkið fékk fremur dræmar viðtökur við frumsýningu á Broadway árið 1956 og var sýningum hætt eftir aðeins tvo mánuði, en eftir viðamiklar endurbætur árið 1974 komst Candide í flokk vinsælustu sviðsverka af þessum toga. Forleikurinn er glaðværðin uppmáluð og hér fléttar Bernstein saman efni úr þremur lögum söngleiksins. Lúðraþytur upphafstaktanna er sóttur í lagið Best of All Possible Worlds en ljóðrænt seinna meginstefið er úr ástardúettinum sérkennilega Oh, Happy We þar sem elskendurnir Birtingur og Kúnigúnd tala hvort í sína áttina um takmörk sín og þrár. Fjörugir lokataktarnir eru aftur á móti úr frægri flúraríu Kúnigúndar, Glitter and Be Gay. 6

PJOTR TSJAJKOVSKÍJ FIÐLUKONSERT Fiðlukonsert Pjotrs Tsjajkovskíj (1840 1893) er meðal dáðustu tónsmíða hans en hlaut þó dræmar viðtökur í fyrstu. Sama má raunar segja um píanókonsertinn vinsæla sem varð til þremur árum fyrr. Þegar Tsjajkovskíj bað virtúósann Nikolaj Rubinstein að flytja píanókonsert sinn árið 1874 jós sá síðarnefndi úr sér skömmunum og lýsti því yfir að verkið væri óspilandi, klaufalega samið og í alla staði ómögulegt. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Argentínski fiðluleikarinn Ricardo Odnoposoff frumflutti fiðlukonsert Tsjajkovskíjs á I slandi í Háskólabíói í nóvember 1963. Síðan hefur SI flutt konsertinn 19 sinnum og meðal einleikara hafa verið Kyung- Wha Chung og Itzhak Perlman (bæði árið 1970), Boris Belkin (1977), Viktor Tretjakov (1991), Jennifer Koh (1993), Sigrún Eðvaldsdóttir (1994, 1997 og 2017), Elfa Rún Kristinsdóttir (2003), Vadim Repin (2008), Sólveig Steinþórsdóttir (2013) og Páll Palomares (2016). Um ástalíf Tsjajkovskíjs hefur margt verið ritað og líklega að bera í bakkafullan lækinn að bæta nokkru við, en þó tengist það að sínu leyti tilurð fiðlukonsertsins. Tsjajkovskíj hneigðist til karlmanna en snemma árs 1877 barst honum bréf frá ungri stúlku sem hafði numið hjá honum við Tónlistarháskólann í Moskvu. Hún játaði tónskáldinu ást sína og hótaði að binda enda á líf sitt ef hann ekki kvæntist henni. Tsjajkovskíj lét til leiðast en hjónabandið var hreinasta martröð og stóð raunar ekki nema í örfáar vikur. Hann var á barmi taugaáfalls og sá þann kost vænstan að flýja land, dvaldi í Sviss og á Ítalíu um árs skeið á meðan hann náði áttum á ný. Í Sviss fékk hann heimsókn frá ástmanni sínum, rússneska fiðluleikaranum Josef Kotek. Það lifnaði yfir tónskáldinu við komu Koteks og á aðeins ellefu dögum varð til nýr fiðlukonsert. Tsjajkovskíj tileinkaði Kotek þó ekki konsertinn og lét í það skína í bréfi til útgefanda síns að það væri til að ýta ekki undir slúður um samband þeirra. Síðar sama ár heimsótti Tsjajkovskíj fiðluleikarann Leopold Auer, sem þá var prófessor við tónlistarháskólann í Sankti Pétursborg, og færði honum fiðlukonsertinn. Auer lét sér fátt um finnast, kvaðst efast um gildi verksins og að sumir staðirnir hentuðu hljóðfærinu illa. Að lokum var það Adolf Brodsky sem frumflutti verkið í Vínarborg 1881. Viðbrögð áheyrenda voru í dræmara lagi og gagnrýnendur tóku konsertinum með eindæmum illa: Hæfileikar Tsjajkovskíjs eru uppblásnir og orðum auknir. Fiðlukonsert hans er langur og tilgerðarlegur. Hann byrjar að vísu nokkuð vel, en ekki líður á löngu þar til ruddaskapur tekur völdin. Þá er ekki lengur leikið á fiðluna, heldur er hún barin til óbóta. Sá sem ritaði þessi orð var Eduard Hanslick, einn virtasti tónlistargagnrýnandi sinnar tíðar. Sagt er að Tsjajkovskíj hafi allt til dauðadags getað farið með dóm hans orðréttan fyrir hvern þann sem heyra vildi. Fljótt urðu viðtökurnar allt aðrar enda er konsertinn meistaraverk og í honum sameinar tónskáldið dúnmjúkar laglínur og kraftmikið fiðluspil á þann hátt að vart verður betur gert. 7

DÍMÍTRÍJ SHOSTAKOVITSJ SINFÓNÍA NR. 10 Sovéska tónskáldið Dímítríj Shostakovitsj (1906 1975) samdi fimmtán sinfóníur á árunum 1925 til 1971 og eru þær merkur vitnisburður um hina viðsjárverðu tíma sem tón skáldið lifði á. Margir hlustendur heyra í verkum Shostakovitsj trúverðuga lýsingu á hörmungum Stalínstímans, hvort heldur er í manískum scherzóum eða hægum og tregafullum hendingum. Andófsmaðurinn Shostakovitsj hlaut þó ekki uppreisn æru fyrr en eftir lát sitt. Þótt Shostakovitsj væri stundum óstýrilátur gerði hann líka það sem af honum var krafist, samdi kantötur og aðra lofsöngva til kommúnistaflokksins og ættjarðarinnar, og því gátu stjórnvöld hampað honum sem dyggum stuðningsmanni þegar svo bar undir. TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Sinfóníuhljómsveit I slands hefur sjo sinnum leikið tíundu sinfóníu Shostakovitsj. Hljómsveitarstjórar hafa verið þeir Bohdan Wodiczko (1975), Frank Shipway (1986), Stefan Sanderling (1995), Petri Sakari (1999), Rumon Gamba (2006 og 2010) og Gennadíj Rozhdestvenskíj (2013). Ungsveit SI flutti sinfóníuna undir stjórn Eivinds Aadland haustið 2015. Það var ekki fyrr en með bókinni Testimony sem sögð er vera endurminningabók Shostakovitsj, rituð skömmu eftir lát hans af landflótta sovéskum tónlistarfræðingi, Solomon Volkov að nafni að ímynd tónskáldsins tók að breytast. Ýmsum spurningum er enn ósvarað varðandi tilurð bókarinnar en þó eru flestir þeir sem þekktu Shostakovitsj á einu máli um að hún bregði upp trúverðugri mynd af skoðunum hans og aðstæðum. Tónlist er í eðli sínu margræð og erfitt að ákvarða merkingu hennar í eitt skipti fyrir öll. Þetta varð Shostakovitsj vafalaust til lífs. Þó að tónlist hans sé að mörgu leyti hefðbundin má heyra í henni andóf af því tagi sem listamönnum í öðrum greinum hefði varla liðist undir ógnarstjórn Jósefs Stalín. Þegar Stalín lést, hinn 5. mars 1953, bjuggust margir við því að nú myndi Shostakovitsj, sem í nærri tvo áratugi hafði mátt þola kúgun og niðurlægingu af hálfu sovéskra stjórnvalda, loks láta allt flakka. Enn kom Shostakovitsj hlustendum sínum á óvart. Tíunda sinfónía hans, samin síðar sama ár, er sérkennilegt meistaraverk, á köflum innhverf og hæglát en annars staðar brýst fram kaldhæðni og jafnvel heift sem er aðdáendum tónskáldsins vel kunn. Yfirmenn tónlistarmála voru síður en svo ánægðir með þessa nýsmíði og skömmu eftir frumflutninginn efndi Tónskáldafélag Sovétríkjanna til málþings um hina tormeltu sinfóníu. Þar tók Shostakovitsj fyrstur til máls og baðst hreinlega afsökunar á verkinu; hann kvaðst hafa samið sinfóníuna í of miklum flýti, sagði að fyrsti kaflinn væri ófullnægjandi, að annar þáttur væri of stuttur og þar fram eftir götunum. Andstæðingar Shostakovitsj héldu því fram að sinfónían væri í engum tengslum við hina bjartsýnu framtíð sovéskrar alþýðu. 8

Sé endurminningabókin Testimony tekin trúanleg var stirt samband tónskálds og einræðisherra kveikjan að verkinu. Tíunda sinfónían er um Stalín. Ég samdi hana skömmu eftir að Stalín lést, en fram til þessa hefur enginn getið sér þess til að þetta sé yrkisefni mitt. Sinfónían er um Stalín og Stalínstímann. Annar kaflinn, scherzóið, er að vissu leyti mynd af Stalín í tónum, hefur Volkov eftir tónskáldinu. Ef mótífið DSCH (sjá að neðan) á að tákna tónskáldið sjálft, þá er engu líkara en að í verkinu eigist við tvö öfl: Stalín og Shostakovitsj. Sá síðarnefndi ber sigur úr býtum eins og ljóst er af lokatöktunum, þar sem nafn tónskáldsins dynur í pákunum. Fyrsti þáttur er dökkur og íhugull. Strengir hefja leik en í hápunktunum bætist öll hljómsveitin við með sívax andi þunga í hvert sinn. Þegar allt er um garð gengið hljómar upphafsstefið enn á ný. Shostakovitsj hafði líflegt ímyndunar afl þegar kom að nýstárlegum samsetningum hljóðfæra eins og þessir taktar sýna glöggt: dúett fyrir tvær pikkolóflautur við dulúðugan pákuslátt. Annar kafli sinfóníunnar myndin af Stalín er hratt og ofsafengið scherzó. Tónlistin þýtur hjá, ýmist svimandi hröð eða í hnífbeittum marséringarhryn. Þriðji þáttur er einnig hraður en á lágstemmdari nótum; hægur fyrsti þátturinn nægir fyrir verkið allt. Ákveðnum vendipunkti er náð þegar flautur leika stef sem er undirskrift tónskáldsins í tónum: DSCH. Samkvæmt þýskri hefð er eftirnafnið Шостако вич ritað Schostakowitsch og með því að bæta við fornafninu Dmitri má búa til fjögurra tóna stef: D-Es-C-H. Shostakovitsj hafði áður notað þetta mótíf í píanósónötu sinni nr. 2 og fiðlu konserti nr. 1, og það skýtur jafnframt upp kollinum í mörgum seinni verka hans. Nafn tónskáldsins er ekki hið eina sem hljómar í þriðja kafla 10. sinfóníunnar. Um miðbik þáttarins leikur einleikshorn stef sem samanstendur af tónunum E-A-E-D-A, alls tólf sinnum við ólíkan undirleik. Ef notuð eru nótnaheiti úr solfège -kerfinu fyrir miðnóturnar þrjár er útkoman E-la-mi-re-A, eða Elmíra. Elmíra Naziróva var píanóleikari og sótti nokkra tónsmíðatíma hjá Shostakovitsj árið 1947. Sex árum síðar skiptust þau á innilegum bréfum og virðist tónskáldið hafa átt frumkvæðið að þeim. Þegar Naziróva var spurð út í vináttu þeirra síðar á ævinni sagðist hún ekki hafa verið annað en skáldgyðja tónskáldsins við gerð tíundu sinfóníunnar, og þegar verkið hafi verið fullgert hafi bréfasamband þeirra runnið hratt út í sandinn. Lokaþátturinn hefst á hægum inngangi. Fyrr en varir er nýtt stef í burðarliðnum og þegar það sprettur fram fullmótað ríkja gleði og léttleiki um hríð. Þó er ekki öll sagan sögð. Dramatískir hápunktar eru aðalsmerki Shostakovitsj og þá skortir ekki hér. Lokataktarnir, þar sem DSCH-stefið hljómar í síðasta sinn, eru sérlega áhrifaríkir; hér er eins og Shostakovitsj hneigi sig fyrir áheyrendum sínum um leið og hann hrósar sigri yfir sínum forna fjanda í eitt skipti fyrir öll. Árni Heimir Ingólfsson 9

FIM 18 OKT 19:30 LISIECKI SPILAR SCHUMANN Kanadíski píanistinn Jan Lisiecki er rétt rúmlega tvítugur en ferill hans spannar heilan áratug. Hann vakti heimsathygli þegar hann lék píanókonsert Chopins á Chopinhátíðinni í Varsjá árið 2008, tólf ára gamall. Tveimur árum síðar var hann kominn með samning hjá Deutsche Grammophon. Hér leikur hann hinn undurfagra og rómantíska píanókonsert Schumanns. Franski hljómsveitarstjórinn Bertrand de Billy þykir sérlega innblásinn stjórnandi og er með tvö hrífandi en sjaldheyrð verk í farteskinu. Les offrandes oubliées (Gleymdar fórnargjafir) eftir Olivier Messiaen og Pohádka eða Ævintýri eftir tékkneska tónskáldið Josef Suk sem hljómar nú á Íslandi í fyrsta sinn. FIM 25 OKT 19:30 NOBU & ASHKENAZY Í nóvember heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands í tónleikaferð um Japan. Hljómsveitin mun leika á 12 tónleikum víðsvegar um Japan, m.a. í Osaka, Nagoya og Hiroshima og Tókýó. Nú þegar er orðið uppselt á flesta tónleika sveitarinnar. Hljómsveitarstjóri verður Vladimir Ashkenazy, aðalheiðurshjómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hann hefur notið gífurlegra vinsælda í Japan um áratuga skeið. Píanistinn Nobu er einnig stórstjarna í heimalandi sínu og hefur komið fram í öllum helstu tónleikahöllum heims. Hann hefur verið blindur frá fæðingu en lætur það ekki aftra sér og lærir jafnvel erfiðustu verk píanóbókmenntanna eftir heyrn. Áskriftartónleikarnir 25. október eru eins konar upphitun fyrir ferðalagið og er efnisskráin hin sama og flutt verður í Japan. Píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmanínov er eitt vinsælasta tónverk allra tíma sem gefur Nobu óþrjótandi tækifæri til að sýna snilli sína. Sinfónía nr. 2 eftir Sibelius er sömuleiðis mikið meistaraverk enda var það hún sem þeytti tónskáldinu upp á stjörnuhimin sígildrar tónlistar. Jökulljóð samdi Þorkell Sigurbjörnsson árið 1998 sérstaklega að beiðni Ashkenazys og mun það einnig hljóma í Japansferð hljómsveitarinnar til þess að minnast þess að Þorkell hefði orðið áttræður á árinu. 10

SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 11. OKTÓBER 2018 1. fiðla Sigrún Eðvaldsdóttir Vera Panitch Una Sveinbjarnardóttir Laura Liu Olga Bjo rk Ólafsdóttir Lin Wei Laufey Jensdóttir Andrzej Kleina Rósa Hrund Guðmundsdóttir Bryndís Pálsdóttir Zbigniew Dubik Pálína A rnadóttir Margrét Kristjánsdóttir Laufey Sigurðardóttir 2. fiðla Peter Andreas Nielsen Gunnhildur Daðadóttir Dóra Bjo rgvinsdóttir Christian Diethard Ólo f Þorvarðsdóttir Pascal La Rosa Margrét Þorsteinsdóttir Geirþrúður A sa Guðjónsdóttir Þórdís Stross Greta Guðnadóttir Kristján Matthíasson Sigurlaug Eðvaldsdóttir Víóla Þórunn Ósk Marinósdóttir Anton Vilkhov Lucja Koczot Guðrún Hrund Harðardóttir Kathryn Harrison Sarah Buckley Þórarinn Már Baldursson Herdís Anna Jónsdóttir A sdís Hildur Runólfsdóttir Móeiður Anna Sigurðardóttir Selló Sigurgeir Agnarsson Hrafnkell Orri Egilsson Sigurður Bjarki Gunnarsson Bryndís Halla Gylfadóttir Ólo f Sesselja Óskarsdóttir Júlía Mogensen Margrét A rnadóttir Lovísa Fjeldsted Bassi Hávarður Tryggvason Páll Hannesson Gunnlaugur Torfi Stefánsson Jacek Karwan Jóhannes Georgsson Richard Korn Þórir Jóhannsson Flauta Hallfríður Ólafsdóttir A shildur Haraldsdóttir Martial Nardeau Óbó Julia Hantschel Peter Tompkins Clara Pérez Sedano Klarínett Arngunnur A rnadóttir Grímur Helgason Rúnar Óskarsson Helga Bjo rg Arnardóttir Fagott Nikolaj Henriques Bryndís Þórsdóttir Brjánn Ingason Horn Stefán Jón Bernharðsson Asbjørn Bruun Emil Friðfinnsson Joseph Ognibene Frank Hammarin Trompet Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson Guðmundur Hafsteinsson Kasper Knudsen Básúna Sigurður Þorbergsson Oddur Bjo rnsson David Bobroff, bassabásúna Túba Keith Kile Harpa Katie Buckley Pákur Soraya Nayyar Slagverk Steef van Oosterhout Frank Aarnink Eggert Pálsson Pétur Grétarsson Yan Pascal Tortelier aðalhljómsveitarstjóri Vladimir Ashkenazy aðalheiðursstjórnandi Osmo Vänskä heiðursstjórnandi Bjarni Frímann Bjarnason aðstoðarhljómsveitarstjóri Anna Þorvaldsdóttir staðartónskáld Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri A rni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Margrét Sigurðsson fjármálafulltrúi Grímur Grímsson sviðsstjóri Anna Sigurbjo rnsdóttir tónleikastjóri Hjo rdís A stráðsdóttir fræðslustjóri Kristbjo rg Clausen nótna- og skjalavörður Sigþór J. Guðmundsson sviðsstjóri Margrét Ragnarsdóttir markaðs- og kynningarstjóri Jo kull Torfason markaðsfulltrúi Una Eyþórsdóttir mannauðsstjóri Larissa Weidler umsjónarmaður nótna 11

11. DES 19:30 BÍÓTÓNLEIKAR Þessi fyrsta leikna kvikmynd Óskars Gíslasonar var frumsýnd árið 1950 og naut fádæma vinsælda. Tónlistina samdi Jórunn Viðar og var þetta fyrsta kvikmyndatónlist sem samin var á Íslandi við mynd í fullri lengd. Í tilefni af aldarafmæli Jórunnar, sem fæddist 7. desember 1918, verður myndin sýnd við lifandi hljóðfæraleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sinfóníuhljómsveit Íslands Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri Jórunn Viðar / Óskar Gíslason Síðasti bærinn í dalnum Samstarfsverkefni Kvikmyndasafns Íslands og SÍ. Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 12