Jólatónleikar 2009/ /10

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Ég vil læra íslensku

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Drumming. Slagverkshópurinn Kroumata Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010/11

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

Aðventutónleikar. Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóri Ingibjörg Guðjónsdóttir, einsöngvari Gissur Páll Gissurarson, einsöngvari 2009/10

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Könnunarverkefnið PÓSTUR

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Paul Lewis áritar geisladiska sína í hléi fyrir framan Eldborg á 2. hæð.

Hilary spilar Prokofiev. Benjamin Shwartz, hljómsveitarstjóri Hilary Hahn, einleikari 2009/10

3 Bjarki Már Viðarsson 12 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar NT 1:53,54. 1 Óskar Rafael Karlsson 11 Íþróttabandalag Reykjanesbæjar 1:51,58 1:47,33

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Anna-Maria stjórnar Sibeliusi. 12. mars 2015 í Hörpu 13. mars 2015 í Hofi

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Dafnis og Klói. Eva Ollikainen, hljómsveitarstjóri Hamrahlíðarkórarnir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri 2009/10

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Stríð og friður. Baldur Brönniman, hljómsveitarstjóri Ari Þór Vilhjálmsson, einleikari 2010/11

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

Aðventutónleikar. Nicholas Kraemer, hljómsveitarstjóri Katherine Watson, einsöngvari James Gilchrist, einsöngvari 2010/11

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Tónleikagestir eru beðnir um að klappa aðeins í lok tónverka.

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Sálmasinfónía: 22 Scheherazade.2: 50

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Listaháskóli Íslands Tónlistardeild Tónsmíðar. Tónlist Leifs Þórarinssonar

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Sinfóníuhljómsveit Íslands (IS) Sæunn & Víkingur Eldborg, Harpa 19:30. Efnisskrá / Program. Sebastian Fagerlund Drifts (2017) 11

Ravel og Dvořák. 7. apríl 2016

Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

Skóli Ísaks Jónssonar INNRAMAT Í SKÓLANUM. Skýrsla fyrir skólaárið

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Summer Concerts 2007

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Lengd tónleikanna er um það bil 2 klukkustundir með hléi.

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Fjölmenning á Íslandi Maí Greinagerð Esja Jeanne Jónsdóttir

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur. Áætluð tímalengd: Fyrri hluti: 48 Seinni hluti: 48

VELKOMIN. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum meðan á tónleikum stendur.

föstudagur SUMARTILBOÐ VIL GERA HLUTINA Á EIGIN FORSENDUM Fylgir frítt með! HÚN HEFUR ALLTAF VERIÐ SYNGJANDI

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Ashkenazy á Listahátíð. 25. maí 2016

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

12 Arndís Hilmarsdóttir. Arndís Hilmarsdóttir

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Kvennakór. Reykjavíkur. Vortónleikar

Umhyggja. Afstaða nemenda með sérþarfir til skólans síns. Brýtur þjónustukerfið mannréttindi?

JÓHANNES BJÖRN. Falið vald. Kúnst

2. tölublað, 5. árgangur. Nóvember 2009

Lífið KENNDI SJÁLFRI SÉR Á GÍTAR. Ólöf Arnalds. Þóra Kristín og Margrét Ragnars HVAÐ ER HEITAST Í SNYRTIBUDD- UNNI Í HAUST? 2

10. tbl nr Eymundur Runólfsson forstöðumaður áætlanaog umhverfisdeildar. Viktor Arnar Ingólfsson skrifar: Starfsmaður í nærmynd

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Snælandsskóli Haustönn 2017 Námsgrein Enska Bekkur 10. bekkur Kennari: Hafdís Ágúst ágúst

17. MARS 2006 I 11. VIKA UNG OG ÓHRÆDD

Samstarf heimila og skóla frá sjónarhorni kennara á Íslandi og í Englandi

Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011 Municipal social services 2011

VESTANPÓSTUR. Munið Sólarkaffið, 25. janúar á Broadway! sjá nánar á bls. 13. Janúar 2008 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 20. árg.

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Íslenskukennsla útlendinga við Háskóla Íslands

Snemma hafði jeg yndi af óð

Lífið FURÐUVERUR OG BÓNORÐ Í SMS-I. Signý Kolbeinsdóttir. Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur STUNDUM LÍK- AMSRÆKT ÚTI VIÐ Í SÓLINNI 4

Norrænir músíkdagar. Nordic Music Days

BLAÐ IÐ. sem byrjuðu aldrei að. Valgerður læknir: Meðferð án landamæra. Handboltahetjan í Fjölsmiðjunni. Íslenskar konur hafa aldrei drukkið meira

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Mánudagur 21. desember tbl. 15. árg. Stofnað 14. nóvember 1984 Sími Fax Netfang: Verð kr.

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Háskólaprentun Reykjavík 2015

EKKI SIRKUS KLÁMSTJARNA KÖRFUBOLTAKONA EINHLEYPUR Á ÍSLANDI TINNA HRAFNS OPNAR KISTUNA LÁRA RÚNARS MEÐ AÐALHLUTVERK Í VEÐRAMÓTUM JOSÉ GONZALES

Náttúran og nöfnin okkar

Sundráð ÍRB Fréttabréf Ágúst 2011

Félags- og mannvísindadeild

Tónlistin í þögninni

ALLTAF Í VEÐMÁLUM. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen

Ofurhugi - Nóvember Ellefu titlar á ÍM 25

Enginn maður hér á landi, annar en ég, hefur rétt til að lesa Der Tod in Venedig

Transcription:

Jólatónleikar 2009/10 2009/10

Gjöf sem hljómar vel Gjafakort Sinfóníuhljómsveitar Íslands er tilvalin jólagjöf fyrir tónlistarunnendur á öllum aldri. Tónleikaárið einkennist af mikilli fjölbreytni og því ættu allir að finna tónleika við sitt hæfi. Gjafakortið sjálft er fallegt og hefur ótakmarkaðan gildistíma. Komdu við hjá okkur í Háskólabíói eða hafðu samband í síma 545 2500 og við aðstoðum þig með jólagleði. Einnig er hægt að senda póst á sinfonia@sinfonia.is og fá upplýsingar eða tilboð fyrir stærri pantanir. Athugið! Áskrifendur fá 10% afslátt af gjafakortum Sinfóníunnar.

Tónleikar í Háskólabíói 18. og 19. desember 2009. Bernharður Wilkinson, hljómsveitarstjóri Trúðurinn Barbara, kynnir Rannveig Marta Sarc, fiðluleikari Sólveig Steinþórsdóttir, fiðluleikari Páll Óskar Hjálmtýsson, sögumaður og söngvari Graduale Nobili, kórsöngur Jón Stefánsson, kórstjóri Jólatónleikar Leroy Anderson J.S. Bach Howard Blake Benjamin Britten Jón Ásgeirsson Friðrik Bjarnason Jólaforleikur Konsert fyrir tvær fiðlur Fyrsti kafli, Allegro Snjókarlinn Úr Söngvasveigi (Ceremony of Carols): Apríldögg (As Dew in Aprille) Hinn ungi sveinn (This Little Babe) Katie Buckley, harpa Á jólanótt Jólasveinar ganga um gólf (fjöldasöngur) F. X. Gruber Heims um ból (fjöldasöngur) Á undan tónleikunum leika nemendur Helgu Steinunnar Torfadóttur, Lilju Hjaltadóttur og Þórdísar Stross úr Allegro Suzuki tónlistarskólanum í anddyri Háskólabíós. Tónleikarnir eru hljóðritaðir og verður útvarpað á Rás 1 annan dag jóla. Vinsamlegast hafið slökkt á farsímum á meðan tónleikum stendur. 3

Flytjendur Bernharður Wilkinson, sem stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni í dag, fæddist á Englandi. Þegar hann var smástauli á Englandi söng hann í drengjakór í frægustu dómkirkju Englands, Westminster Abbey, en fór síðan að læra á flautu og var lengi flautuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann var aðstoðarstjórnandi Sinfóníunnar í nokkur ár, auk þess að stjórna m.a. Söngsveitinni Fílharmóníu og Kammersveit Reykjavíkur á fjölda tónleika. Benni hefur stjórnað hljómsveitum og kórum víða um Evrópu, m.a. í St. Pétursborg í Rússlandi, en núna býr hann í Færeyjum. Sólveig Steinþórsdóttir er fædd árið 1995. Hún hóf fiðlunám við Allegro Suzuki tónlistar skólann þriggja ára gömul og var Lilja Hjaltadóttir kennari hennar næstu níu árin. Frá haustinu 2008 hefur hún verið nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur, fyrst í Allegro skólanum og frá því í haust við Tónlistarskólann í Reykjavík. Sólveig hefur sótt mörg fiðlunámskeið, m.a. í Skálholti, í Kópavogi á vegum Tónlistarhátiðar unga fólksins, Bretlandi, Slóveníu, Póllandi og síðastliðið sumar var hún þátttakandi á alþjóðlegu námskeiði í Valdres í Noregi. Hún hefur spilað með Hljómsveit tónlistarskólanna, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Valdres Sommersymfoni og Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sólveig er nemandi í Hagaskóla. Rannveig Marta Sarc, fædd 1995, hóf fiðlunám fjögurra ára gömul við Tónlistarskóla Tartini í Slóveníu undir leiðsögn Vildönu Repse. Ellefu ára gömul flutti hún til Íslands og hóf þá fiðlunám hjá Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzuki tónlistarskólann. Frá haustinu 2008 hefur hún verið nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur, fyrst í Allegro skólanum og frá því í haust við Tónlistarskólann í Reykjavík. Rannveig hefur sótt mörg fiðlunámskeið, m.a. í Skálholti, í Kópavogi á vegum Tónlistarhátiðar unga fólksins, Bretlandi og Slóveníu. Hún hefur spilað með Hljómsveit tónlistarskólanna, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rannveig Marta gengur í Kársnesskóla, dansar jazzballett hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru og syngur með Kársnesskórnum. 4

Páll Óskar Hjálmtýsson hóf feril sinn sem barnastjarna, hljóðritaði fyrstu plötu sína sjö ára gamall og lék í Gúmmí-Tarzan þegar hann var tólf ára. Hann kom fram í söngleiknum Rocky Horror við miklar vinsældir, söng með Milljónamæringunum, og gaf út vinsælar plötur, m.a. Stuð og Palli. Hann tók þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1997, hefur dæmt í Idol Stjörnuleit, kemur oft fram ásamt Moniku Abendroth hörpuleikara og söng í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands í lögum Gunnars Þórðarsonar fyrr á árinu. Haustið 2010 er áformað að Páll Óskar og Sinfónían leiði saman hesta sína á nýjan leik í eftirlætislögum söngvarans ástsæla. Graduale Nobili var stofnaður haustið 2000. Kórinn er skipaður 24 ungum stúlkum, völdum úr hópi þeirra sem sungið hafa með Gradualekór Langholtskirkju. Allir kórfélagar hafa stundað eða lokið tónlistarnámi. Kórinn vakti gífurlega athygli strax og voru umsagnir gagnrýnenda eftir fyrstu sjálfstæðu tónleikana svo lofsamlegar að fátítt má telja. Kórinn hreppti annað sæti í Evrópsku æskukórakeppninni í Kalundborg í Danmörku árið 2001. Kórinn gaf út geisladisk árið 2001 sem tilnefndur var til Íslensku tónlistarverðlaunanna og menningarverðlauna DV og fékk mjög lofsamlega dóma. Árið 2008 gaf kórinn út geisladiskinn In Paradisum en á honum eru eingöngu íslensk verk, sum þeirra samin fyir kórinn. Sumarið 2008 tók hann þátt í alþjóðlegu kórakeppninni í Llangollen í Wales og hreppti silfurverðlaun í flokki kammerkóra og bronsverðlaun í flokki kvennakóra. Stjórnandi kórsins hefur frá upphafi verið Jón Stefánsson. Trúðurinn Barbara hefur verið kynnir á Tónsprotatónleikum Sinfóníunnar undanfarin ár við miklar vinsældir. Barbara hefur einnig gert garðinn frægan í sýningunum Dauðasyndirnar og Litli Jesús í Borgarleikhúsinu. Barbara kemur líka stundum fram undir nafninu Halldóra Geirharðsdóttir, og Halldóra hefur meðal annars leikið Sigurlínu í Sölku Völku hjá Borgarleikhúsinu, og Dollý í kvikmyndinni Djöflaeyjan. 5

Tónlistin á Íslandi Konsertinn fyrir tvær fiðlur eftir Bach var fyrst leikinn á tónleikum í Fríkirkjunni 3. mars 1932. Einleikarar voru ungversku systkinin Margarete og Georg Takacz, en Páll Ísólfsson lék á orgel. Tæpum áratug síðar heyrðist konsertinn með hljómsveitarundirleik; Þórir Jónsson og Þorvaldur Steingrímsson fluttu hann ásamt Strengjasveit Tónlistarskólans í desember 1941 undir stjórn Victors Urbancic. Jólatónar Hvað skyldu margir vita að Leroy Anderson maðurinn sem samdi Sleðaferðina og fjöldan allann af öðrum vinsælum lögum lærði forníslensku í háskóla og gegndi seinna herþjónustu á Keflavíkurflugvelli? Anderson fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1908 og á námsárum sínum í Harvard var hann þegar farinn að semja tónlist og stjórna lúðrasveitum. Hann vann í Keflavík á stríðsárunum en síðan hélt hann aftur til Bandaríkjanna og varð fljótt einn vinsælasti útsetjari síns tíma. Hann lést árið 1975, en Jólaforleikurinn sem Sinfónían leikur í dag er saminn þegar hann var á hátindi ferils síns árið 1950. Hér bregður fyrir öllum uppáhaldsjólalögunum í frísklegum hljómsveitarbúningi: Skreytum hús með greinum grænum, Bjart er yfir Betlehem, Frá ljósanna hásal og ótal mörg fleiri. Johann Sebastian Bach var eitt mesta tónskáld barokktímans en á sinni tíð var hann betur þekktur sem einn fremsti orgelleikari heims. Hann var lengi yfirmaður tónlistar við kirkjurnar í Leipzig í Þýskalandi, en jafnvel þar var lítill áhugi á tónsmíðum hans sem þóttu skrýtnar og erfiðar; þegar Bach var boðið starfið var það aðeins eftir að tvö önnur tónskáld höfðu neitað að taka við því. Í Leipzig samdi Bach mikið af kirkjutónlist en einnig einleiksverk og konserta, sem eru tónverk þar sem einleikari einn eða fleiri á eins konar samtal við hljómsveitina. Í konsertinum fyrir tvær fiðlur leika einleikshljóðfærin hálfgerðan þrautakóng: fyrst byrjar önnur fiðlan og hin hermir eftir, og síðan skipta þær um hlutverk! Howard Blake er enskt tónskáld sem hefur samið kynstrin öll af tónlist píanókonsert, fiðlukonsert, kórverk og margt fleira. Hann er þó aðallega frægur fyrir að hafa samið tónlist við teiknimyndina Snjókarlinn árið 1982. Myndin er byggð á sögu eftir Raymond Briggs og hefur náð gífurlegum vinsældum; nú er til dæmis bæði búið að gera úr henni ballett og leikrit í fullri lengd! Sagan segir frá ungum pilti sem eyðir heilum degi í að gera hinn fullkomna snjókarl. En þegar hann á að fara í háttinn nær eftirvæntingin tökum á honum og hann gægist út um gluggann til að sjá hvort allt sé í lagi. Á miðnætti gerast undrin: skyndilega vaknar snjókarlinn til lífsins! Strákurinn sýnir honum heimili sitt og síðan fer snjókarlinn með hann í flugferð um loftin blá. Þeir ferðast alla nóttina, en þegar birtir þurfa þeir að flýta sér heim,enda er kominn jóladagsmorgunn! 6

TÓNLISTIN Á ÍSLANDI A Ceremony of Carols eftir Britten hljómaði fyrst á Íslandi í flutningi kóranna Lilju og Kammerkórsins, undir stjórn Ruth L. Magnússon í Háteigskirkju skömmu fyrir jól 1967. Upprunaleg gerð verksins fyrir barnakór var fyrst sungin hér á landi á tónleikum Skólakórs Garðabæjar 27. desember 1979. Guðfinna Dóra Ólafsdóttir stjórnaði kórnum en meðal einsöngvara var ellefu ára stúlka að nafni Sigrún Eðvaldsdóttir, sem nú er konsertmeistari SÍ. Benjamin Britten var breskt tónskáld sem lifði á 20. öld. Hann var mikill friðarsinni og þegar Evrópa rambaði á barmi síðari heimsstyrjaldarinnar sigldi hann til Bandaríkjanna. Í miðju stríði snerist honum hugur og hann ákvað að halda heim á leið; í mars 1942 sigldi hann með sænsku fraktskipi og tók ferðalagið heilar fimm vikur. Hann hafði ætlað að semja verk handa klarínettusnillingnum Benny Goodman á siglingunni en tollverðir gerðu handrit hans upptækt; þeir héldu að nóturnar væru leynilegt njósnamál. Svo heppilega vildi til að Britten hafði með sér bók með enskum miðaldaljóðum og ákvað að semja við þau lítið verk fyrir barnaraddir og hörpu, hugleiðingar um jólin og fæðingu frelsarans sem ber nafnið Ceremony of Carols. Verkið nýtur mikilla vinsælda og á tónleikunum í dag syngja Graduale Nobili tvo þætti úr því við undirleik hörpuleikara SÍ. Jón Ásgeirsson er eitt þekktasta tónskáld Íslands og hefur samið margar perlur sem lifa á vörum þjóðarinnar. Líklega er Maístjarnan þekktasta lag hans, og svo útsetti hann líka þjóðlagið vinsæla Augun mín og augun þín. Árið 1987 tók Ríkisútvarpið fyrst þátt í samstarfi um jólalög útvarpsstöðvanna á vegum Sambands evrópskra útvarpsstöðva (EBU). Þá var Jón Ásgeirsson fenginn til að semja fyrsta jólalag útvarpsins, Á jólanótt, við ljóð Gunnars Dal. Síðan hefur það verið nær árviss viðburður að nýtt íslenskt jólalag er frumflutt í hádegisútvarpi á jóladag og hafa margar gullfallegar jólaperlur þannig litið dagsins ljós. 7

Á jólanótt Hver blundar svona blítt í húmi nætur? Ó, barnið mitt þú sefur vært og rótt, því Drottinn sjálfur litla hvarma lætur lokast í hljóðum draumi þessa nótt. Og hjá þér stendur Jesúbarnið bjarta og brosir til þín litli vinur minn, því auðmýktin sem er í þínu hjarta hún opnað getur sjálfan himininn. Þig dreymir barn mitt blika í norðurljósum svo bláar stjörnur næturhimni frá. Það fellur niður regn af hvítum rósum á rúðu litla stokknum þínum hjá. Í dýrð sem aðeins draumalönd þín geyma, þar drottning næturinnar hljóðlát fer og opnar hulda ævintýra heima, sem aðeins voru byggðir handa þér. Hún kemur til þín, hvítar rósir anga og krýpur engilbjört við stokkinn þinn. Hún þrýstir mjúkum koss á munn og vanga og mildar hendur strjúka þér um kinn. Hún hvíslar að þér: Hvíl í örmum mínum, að kynjaströndum nýjum þig ég ber. Ó, barn mitt góða, gleym ei draumum þínum, geym ævintýrið vel í hjarta þér. Íslendingar eiga ótal vísur um jólasveina sem varðveittust mann fram af manni hjá forfeðrum okkar í mörg hundruð ár. Ein þeirra var fyrst skrifuð upp á Hornströndum á miðri 19. öld; önnur birtist fyrst í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar árið 1864. Tónskáldið Friðrik Bjarnason samdi lagið við þessar kunnu vísur sem hvert mannsbarn á Íslandi þekkir. 8

TÓNLISTIN Á ÍSLANDI Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur flutt Snjókarlinn fjórum sinnum áður, síðast árið 2003 þegar Atli Rafn Sigurðarson var sögumaður. Íslensku þýðinguna gerði Þórarinn Eldjárn, en auk þess flytur Páll Óskar í þetta sinn söngtexta Karls Olgeirssonar, Himinganga. Páll Óskar og Monika Abendroth hafa flutt lagið margoft við þennan texta, og það er að finna á jóladiski þeirra frá árinu 2003. Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi. Móðir þeirra sópar gólf og flengir þá með vendi. Upp á stól stendur mín kanna; níu nóttum fyrir jól, þá kem ég til manna. Heims um ból er án efa vinsælasta jólalag allra tíma. Það varð til á örskammri stund á jólum 1818, í smábænum Oberndorf í Austurríki. Þar er kirkja sem heitir Nikulásarkirkjan. Prestinn þar, Jósef Mohr, langaði til að láta syngja nýtt lag í kirkjunni á aðfanga dagskvöld. Hann mundi eftir kvæði sem hann hafði sjálfur ort tveimur árum áður, og bað organistann og vin sinn Franz Xaver Gruber um að semja lag sem hægt væri að syngja við gítarundirleik. Gruber brást fljótt og vel við beiðninni og þeir tveir fluttu lagið í fyrsta sinn nokkrum klukkustundum síðar! Íslenska þýðingin er eftir Sveinbjörn Egilsson, sem var rektor Menntaskólans í Reykjavík um miðja 19. öld. Heims um ból, helg eru jól, signuð mær son Guðs ól, frelsun mannanna, frelsisins lind, frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind :,: meinvill í myrkrunum lá :,: Heimi í hátíð er ný, himneskt ljós lýsir ský, liggur í jötunni lávarður heims, lifandi brunnur hins andlega seims, :,: konungur lífs vors og ljóss :,: Heyra má himnum í frá englasöng: Allelújá. Friður á jörðu því faðirinn er fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér :,: samastað syninum hjá :,: 9

HLJÓMSVEIT Á TÓNLEIKUM 18. og 19. desember 2009 1. fiðla Sigrún Eðvaldsdóttir Sif Tulinius Zbigniew Dubik Margrét Kristjánsdóttir Mark Reedman Sigríður Hrafnkelsdóttir Bryndís Pálsdóttir Martin Frewer Olga Björk Ólafsdóttir Rósa Guðmundsdóttir Júlíana Elín Kjartansdóttir Laufey Sigurðardóttir 2. fiðla Greta Guðnadóttir Ari Þór Vilhjálmsson Ólöf Þorvarðsdóttir Margrét Þorsteinsdóttir Roland Hartwell Christian Diethard Sigurlaug Eðvaldsdóttir Dóra Björgvinsdóttir Pálína Árnadóttir Kristján Matthíasson Víóla Helga Þórarinsdóttir Þórunn Ósk Marinósdóttir Kathryn Harrison Sarah Buckley Guðrún Þórarinsdóttir Þórarinn Már Baldursson Svava Bernharðsdóttir Herdís Anna Jónsdóttir Selló Bryndís Halla Gylfadóttir Sigurgeir Agnarsson Ólöf Sesselja Óskarsdóttir Lovísa Fjeldsted Inga Rós Ingólfsdóttir Bryndís Björgvinsdóttir Bassi Páll Hannesson Jóhannes Georgsson Richard Korn Þórir Jóhannsson Flauta Áshildur Haraldsdóttir Kristjana Helgadóttir Óbó Daði Kolbeinsson Matthías Nardeau Klarinett Einar Jóhannesson Sigurður I. Snorrason Fagott Rúnar Vilbergsson Hafsteinn Guðmundsson Horn Joseph Ognibene Emil Friðfinnsson Þorkell Jóelsson Lilja Valdimarsdóttir Trompet Einar Jónsson Eiríkur Örn Pálsson Guðmundur Hafsteinsson Básúna Oddur Björnsson Jessica Buzbee Jón Halldór Finnsson, bassabásúna Túba Tim Buzbee Harpa Katie Buckley Píanó Anna Guðný Guðmundsdóttir Celesta Valgerður Andrésdóttir Pákur Eggert Pálsson Slagverk Steef van Oosterhout Frank Aarnink Árni Áskelsson samstarfsaðilar

Notalegt jólahlaðborð í Skrúði í hádeginu og á kvöldin PIPAR \TBWA SÍA 92 232 24 Í Skrúði er indælt að setjast niður með góðum vinum og njóta ljúffengra jólakræsinga í hádeginu eða á kvöldin. Jólabrunch alla sunnudaga í desember. Skrúður er vinalegur staður, bókaðu núna á hotelsaga@hotelsaga.is eða í síma 525 9900. Skrúður / Radisson SAS Hótel Saga / Sími: 525 9900 / www.skrudur.is

Heimsókn í dýragarðinn LITLI TÓNSPROTINN Lau. 06.02.10» 14:00 Allir krakkar eru beðnir að koma í dýrabúningum eða með uppáhalds dýrið sitt á tónleikana! Camille Saint-Saëns: Karnival dýranna Francis Poulenc: Sagan af fílnum Babar Öllum krökkum finnst gaman að fara í dýragarðinn og nú breytum við Háskólabíói í einn slíkan á fjölskyldutónleikum. Örn Árnason leiðir okkur í gegnum töfraheim dýranna, fyrst með völdum köflum úr hinu bráðskemmtilega Karnvali dýranna eftir Saint-Saëns. Þar sjáum við meðal annars svaninn fagra, skjaldbökur og fiskabúr. Fíllinn Babar lendir líka í ýmsum ævintýrum og tónlistin er bæði litrík og skemmtileg. Miðaverð: 1.700 kr. Tryggðu þér miða á www.sinfonia.is eða í síma 545 2500