Bubbi Morthens. * Viðkomandi sveit hefur ekki gefið út neitt efni, né eru til hljóðritanir með sveitinni svo vitað sé.

Similar documents
Ritstuldarvarnir. Sigurður Jónsson

Part 66. Requirements for exercising privileges Highlights of New Part 66 rule

Möguleg útbreiðsla trjátegunda með hækkandi hitastigi á Íslandi

OPEN DAYS 2011 LOCAL EVENTS COUNTRY LEAFLET. East Iceland / Austurlands ICELAND / ÍSLAND

Ný tilskipun um persónuverndarlög

Samanburður vindmæla. Samanburðarmælingar í mastri LV v/búrfell 15. ágúst 30.sept 2011

Ég vil læra íslensku

Klettafjöllin, Grand Canyon og Laramide byltingin

Rannsóknarskýrsla í sálfræði 103 á vorönn 2008 um. viðhorf nemenda til nokkurra þátta í skólastarfi ME.

Tilraunahúsið Úrræði fyrir raungreinakennslu

Íslenzkar Gramóphón-plötur

VESTANPÓSTUR. Heimsókn til ísfirskra víkinga í Noregi. Meðal efnis: Janúar 2006 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 18. árg.

10. tbl nr Eymundur Runólfsson forstöðumaður áætlanaog umhverfisdeildar. Viktor Arnar Ingólfsson skrifar: Starfsmaður í nærmynd

Ari Teitsson. (2005, 8. nóvember). Til upprifjunar. Bændablaðið, bls. 6. Berry, T., (1996). Business Plan Pro. Oregon: Palo Alto Software.

SNERTIFLETIR ÍSLANDSSTOFU VIÐ FLUGREKENDUR

Mikilvægi samræmdrar svæðisbundinar kortlagningar Hvað fangar hug og hjarta ferðamannsins

Grafísk hönnun og hip-hop Þróun umslagahönnunar í hip-hop tónlist

Akureyrarbær Starfsmannakönnun 2015

Saga fyrstu geimferða

Könnunarverkefnið PÓSTUR

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Að störfum í Alþjóðabankanum

Mánudaga - föstudaga KEF - Airport» Reykjanesbær» Keilir» Fjörður» Reykjavík/HÍ

Skítsama um allt, frá hægri eða vinstri

Fyrirhuguð heimsókn borgarstjórans í Philadelphia, Pennsylvaníuríki, Bandaríkjunum, til Reykjavíkur dagana 31. maí til 2.

Háskólabrú fjarnám. Bókalisti vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

Fjallkrækill Fyrsta fórnarlamb hlýnandi loftslags á Íslandi?

Sjónarhorn View. Outline view - Yfirlitshamur. Normal view (2000)/Notes Page View (Office97) - minnispunktahamur

Stakerfðavísar hjá sauðfé - ráðstefna í Frakklandi í desember 2003

Kæling uppsjávarfisks fyrir vinnslu?

VESTANPÓSTUR. Munið Sólarkaffið, 25. janúar á Broadway! sjá nánar á bls. 13. Janúar 2008 Útgefandi: Ísfirðingafélagið í Reykjavík 1. tbl. 20. árg.

1. tbl nr Viktor Arnar Ingólfsson skrifar

Listi yfir ferðir kjörinna fulltrúa og embættismanna árið 2017 á skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu

Til að forritið vinni með Word þarf að hlaða niður á tölvuna forritsstubbnum Cite While You Write

Rannsóknarstofa í fjölmenningarfræðum. Raddir fjölbreyttra kennarahópa

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Viðhorf erlendra söluaðila. Spurningakönnun framkvæmd í desember 2016 á meðal erlendra söluaðila á póstlista Íslandsstofu sem telur 4500 aðila.

Power Engineering - Egill Benedikt Hreinsson. Lecture 25. Examples 2. Sýnidæmi 2

Leiðbeiningar um notkun XML-þjónustu Veðurstofu Íslands fyrir norðurljós

Háskólabrú- staðnám. Bókalisti - Vorönn önn. Félagsvísinda- og lagadeild

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Beethoven og tæknikröfur. píanósónötu nr. 26 Les Adieux. Elín Arnardóttir

TÍMARIT UM FUGLA Nr. 5 - nóvember 1986

Hin grátandi kona. Kynjafræðileg aðferðafræði og verk Doru Maar og Picasso. Ritgerð til BA- prófs í listfræði

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Aðalheiður L. Guðmundsdóttir Myndlistardeild, lektor Vegna þátttöku í listfræðiráðstefnunni [no title] í Kaupmannahöfn í október.

Upphitun íþróttavalla árið 2015

Innihaldsyvirlit. til vegleiðing umsiting av kundum í FSL-debitor. seinast dagført 15. aug. 2017

Inngangur og yfirlit yfir rafmagnsvélar

Gengið og verðlagsmælingar til mjög langs tíma

Hugvísindasvið. Gömlu bíóin. Greinargerð um gerð sýningar

ANNUAL SAFETY REVIEW. Þróunar og greiningarstofa Division of Development and Analysis

Dystópíur uppgangskynslóðarinnar

Eftirspennt Brúargólf Klóríðinnihald í nokkrum steyptum brúargólfum

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Viftur. Það borgar sig að nota það besta! Bíla- og vélavörur...sem þola álagið! Höfundar efnis í þessu blaði: Bogi Baldursson.

EES-viðbætir við Stjórnartíðindi EB

FRÍTT EINTAK TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Útvarpssendistaður á Úlfarsfelli Tæknilegar forsendur

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2016

Ársskýrsla Hrafnseyri

Félagsþjónusta sveitarfélaga Municipal social services

Hvaða fjölmiðlar hafa starfað á Akureyri frá afnámi prenteinokunar á Íslandi?

Welcome to Reykjavík Gay Pride 2005 Velkomin á Hinsegin daga í Reykjavík

INNANLANDSFARÞEGAR UM ÍSLENSKA ÁÆTLUNARFLUGVELLI 2014

Skólaskraf. reynsla af skólahaldi í Birkimelsskóla á Barðaströnd Fanney Jónsdóttir. Júní 2017 Lokaverkefni til M.Ed.-prófs Kennaradeild

Áhrif lofthita á raforkunotkun

Maðurinn í málverki. eftir Ragnar Þórisson. Listaháskóli Íslands Myndlistardeild B.A.-ritgerð (janúar 2010) Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir

Leitin að hinu sanna leikhúsi

9. tbl nr Starfsmaður í nærmynd Helgi Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóri. Barnæska á Seyðisfirði

Frímerkjaútgáfur 2010 Íslensk bréfspjöld Heklugosið 1947 Bréfadreifing Helga P. Briem Farseðlar í sérleyfum P&S Verðlaunapeningur verður til Nýlega

Stóra myndin. Uppbygging þekkingarsamfélags. Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Aðalfundur SFS 19. maí 2017

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

Name of the University: Copenhagen University Names of the student: Helga Sæmundsdóttir Exchange semester: Vor 2011

Gleðilega hátíð. JÓNSSON & LE MACKS jl.is SÍA. Landsbankinn landsbankinn.is

Um 220 manna vinnustaður í Mjóddina

EKKI SIRKUS KLÁMSTJARNA KÖRFUBOLTAKONA EINHLEYPUR Á ÍSLANDI TINNA HRAFNS OPNAR KISTUNA LÁRA RÚNARS MEÐ AÐALHLUTVERK Í VEÐRAMÓTUM JOSÉ GONZALES

KYNNINGARBLAÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ Helgin

17. MARS 2006 I 11. VIKA UNG OG ÓHRÆDD

Endurtekin hrygning hjá íslenskum laxastofnum

TÓNLIST, KVIKMYNDIR, SJÓNVARP, LEIKHÚS, LISTIR, ÍÞRÓTTIR, MATUR OG ALLT ANNAÐ

20 ÁRA AFMÆLISRIT FLATAR 2013 / 1 FLATARMÁL

1.3 Jean Luc Nancy um skynjun og tilveru Almennt um innsetningar Judith Rugg um innra og ytra rými... 11

gigtin Það er ástæða til bjartsýni Ráð fyrir aðstandendur Gigt og kynlíf GIGTARFÉLAG ÍSLANDS 2. tölublað 2017

2. tölublað, 5. árgangur. Nóvember 2009

Félags- og mannvísindadeild

DALBJÖRG. Gleðilegt ár! FLUGELDAMARKA UR DALBJARGAR HRAFNAGILSSKÓLA. Hjálparsveitin

Greinargerð Trausti Jónsson. Langtímasveiflur V. Hitabylgjur og hlýir dagar

Blöndulón Vöktun á strandrofi og áfoki

MÁLGAGN OG FRÉTTABRÉF HJARTAHEILLA 26. árg. 2. tbl. nóvember 2014

Inngangur. Í 79% tilvika var lagt hald á ávana- og fíkniefni á heimilum kærðra, á líkama þeirra eða í bifreiðum.

Á VESTFJÖRÐUM. Nýir vegleiðarar á Hnífsdalsvegi og Óshlíð. Skapa mikið öryggi í umferð

Tíu nýsveinar útskrifast úr bókiðngreinum 2011 Tíu nýsveinar fengu afhent sveinsbréf

Reykholt í Borgarfirði

Erlendir ferðamenn í Reykjavík 2016

Horizon 2020 á Íslandi:

Eðli rúms og tíma: Ólafur Dan Daníelsson og greinar hans um afstæðiskenninguna

Hreyfingar ferðaþjónustu: Skipun þróunarverkefnis í ferðaþjónustu á Vestfjörðum

Notkun á dýrum í listsköpun: Dýr sem list og list sem dýr

Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur

Transcription:

Hin og þessi bönd Hér ætlum við að stykkla á stóru um hinar ýmsu sveitir sem Bubbi hefur starfað með, eða þær með honum, um lengri eða skemm Þetta er þó ekki tæmanlegur listi. Því þó Bubbi hafi leikið undir merkjum Vísnavina frá því seinnihluta ársins 1979 er ekki hægt að hljómsveit í því sambandi þar sem Bubbi kom fram á tónleikum samtakana sem trúbador, þ.e.a.s. einn með gítarinn og flutti eigin lög og texta. Þá eru ekki heldur taldar upp þær sveitir sem Bubbi hefur sungið með sem gestur eins og Vinum Dóra og Mannakorni eða KK band svo eitthvað sé nefnt. Ekki verður heldur fjallað um þær sveitir sem Bubbi hefur fengið sér til aðstoðar e og Sierra Mastera frá Kúbu sem vann með honum plötuna Von, eða Ensími og Botnleðja sem unnu með honum efni plötunnar Mér líkar það, þar sem allar áttu þessar sveitir sér líf fyrir daga þess að starfa með Bubba og störfuðu áfram eftir að samstarfinu lauk. En svo byrjað sé á byrjuninni er Gúanóbandið sú sveit sem telst fyrst hljómsveita með liðsmanninn Bubba Morthens. Byrjum á að lista þær sveitir sem hann hefur starfað með. - Gúanóbandið (1979)* - Utangarðsmenn (1980-1981) - Egó (1981-1984, 2003-2009) - Mórall (maí 1983)* - Mögulegt Óverdós (1982)* - Das Kapital (1984-1985) - Sveina Sextettinn (1985)* - MX-21 (1986-1987) - Varnaglarnir (1987) - Blúshundarnir (1987)* - Bubbi og Blómið (1989) - Lamarnir ógulegu (1989) - RASK (1990) - Bubbi & Rúnar / GCD (1991-1995) - Danshljómsveit Bubba Morthens og KK (1997)* - Stríð og friður (2000-2008) - Sólskuggarnir (desember 2010-?) * Viðkomandi sveit hefur ekki gefið út neitt efni, né eru til hljóðritanir með sveitinni svo vitað sé. Hér fyrir neðan fjöllum við stuttlega um þær sveitir sem ekki hafa gefið út plötur undir eigin nafni.

Gúanóbandið nóvember 1979 - desember 1979 Bubbi Morthens: Gítar Gunnar Ægisson Jóhönna Þórhallsdóttir Kristján Sigmundsson Þorleifur Guðjónsson Þorlákur Kristinnson Nóta: Gúanóbandið kom aðeins tvisvar sinnum fram opinberlega að talið er. Fyrst í Vestmanneyjum 30. nóvember 1979 og svo aftur í félagsstofnun Stúdenta 1. desember sama ár. Að því loknu lagði það niður starfsemi. Ekki er vitað til þess að gerðar hafi ve neinar hljóðritanir með sveitinni. (mynd: hluti Gúanóbandsins) Mögurlegt Óverdós (10. febrúar 1983) Mike Pollock: Gítar Rúnar Erlingssson: Bassi Sævar Sverrisson: Trommur Halldór Lárusson: Trommur Nóta: Hér er um að ræða sérstaka uppákomu sem var flutt undir heitinu Gullströndin andar sem haldin var á ónefndum stað í vesturbæ Reykjavíkur, við sjávarsíðuna 10. febrúar 1983. Þeir Sævar og Halldór höfðu þá báðir verið meðlimir hljómsveitarinnar en Bubbi og Svæar áttu síðar eftir að syngja saman bæði inn á plötu Rafns Jónssonar (Rabba) og eins söng Sævar bakrödd inn eina af sólóplötum Bubba. Halldór Lárusson kom fyrir í MX-21 nokkrun árum síðar. Flest dagblaðanna byrtu umsögn um þessa uppákomu og voru nokkuð sammála um að furðulegri gjörning höfðu þeir ekki heimsótt um dagana. (mynd: Bubbi í Mögurlegt Óverdós á umræddri uppákomu) Mórall (1983) Bubbi: Söngur Mike Pollock: Gítar Þorleifur Guðjónsson: Bassi Bergþór Morthens: Gítar Kormákur Geirharðsson: Trommur Ekki er mikið vitað um þessa sveit nema hún kom fram á tónleikum í Austurbæjarbíói 6. maí 1983, á tónleikum þar sem Breska

hljómsveitin The Fall var aðalnúmer kvöldsins. Mórall opnaði þessa tónleika. Aðrar sveitir sem kom fram þetta kvöld voru Iss og Þeysararnir. (Því miður hefur okkur ekki áskortnast mynd af sveitinni. Sveina Sextettinn (23. desember 1985), gítar Sigurgeir Sigmundsson: Gítar Jens Hansson: Saxófónn Guðmundur Ingólfsson: Píanó, orgel Björgúlfur Egilsson: Bassi Nóta: Tímamótatónleikar á ferlinum. Fyrstu þorláksmessutónleikarnir á Hótel Borg. Samkvæmt auglýsingu Morgunblaðsins þá nefndi bandið sig Sveina Sextettinn og kemst þar með í hljómsveitarsögu Bubba Morthens. Ekki er vitað til að sveitin hafi starfað frekar. Varnaglarnir (1987) Egill Ólafsson: söngur Valgeir Guðjónsson: Gítar, raddir Þorsteinn Jónsson: Bassi Þorsteinn Magnússon: Gítar Ragnhildur Gísladóttir: Raddir Aðstoð: Jakob F. Magnússon: Hljómborð, raddir séra Arnfríður Guðmundsdóttir: upplestur ritningagreina. Nóta: Varnaglarnir unnu aðeins saman að gerð lags fyrir Landlæknisembættið sem hafði óskað eftir lagi úr smiðju Valgeirs Guðjó Eina krafan var sú hugmynd að það höfðaði til unga fólksins sem var markhópur þessa átaks. Valgeir taldi lagið líklegt til vinsæld flutningi Bubba. Enda hefi plata hans Frelsi til sölu þá setið á toppi allra vinsældarlista landsins um talsvert skeið. Reyndar flutti sveitin lagið í breyttri textaútgáfu á mótmælafundi á Lækjartorgi þar sem lagið var nefnt Atombomban má ekki vera neitt feimnismál. (mynd: tekin af hluta liðsmanna á mótmælafundi á Lækjartorgi 1987) óvíst er um liðskipan og hlutverk hvers og eins en ofangreindur meðlimalisti er talinn líklegur. Blúshundarnir ( mars 1987 - snemma árs 1988)

, gítar Björgvin Gíslason: Gítar Guðmundur Ingólfsson: Píanó Þorleifur Guðjónsson: Bassi Ásgeir Óskarsson: Trommur Nóta: Blúshundarnir voru fyrst opinberaðir á sérstöku Jass og blúskvöldi á Hótel Borg á vegum Jassvakningar þann 18 mars 1987. Sveitin kom fram á tónleikum í nokkur skipti eftir það. Eins og nafnið gefur til kynnar var markmiðið að flytja landsmönnum Blústónlist af bestu gerð. Þá kom bandið fram á einum tónleikum án Bubba sem var lasinn það kvöld og komst ekki. Guðmundur Ingólfs og félagar brugðu á það ráð í stað þess að aflýsa tónleikunum að koma fram þetta kvöld án Bubba og k sig Blúskvolpana. Bubbi og Blómið (1989) Guðmundur Pétursson: Gítar Ásgeir Óskarsson: Trommur Tómas M. Tómasson: Hljómborð Ásgeir Jónsson: Upptökumaður Nóta: Bubbi og Blómið urðu til við gerð plötunnar Hver er næstur (1989). Líklega hefur sú plata að geyma fyrsta lagið sem gefið v eftir Guðmund Pétursson gítarleikara en hann ásamt Bubba er skráður höfundur lagsins Sumarið í Reykjavík. Lamarnir ógurlegu (1989) Bubbi Morthens Christian Falk Johann Söderberg Hilmar Örn Hilmarsson Ken Tomas Nóta: Lamarnir ógurlegu var sveit sem stóð að baki Bubbi og aðstoðaði hann við gerð plötunnar Nóttin langa (1989). Hluti Þessa vel til Bubba, t.d.. Christian Falk sem hafði fyrst unnið með honum á Svíþjóðarárum 1985-88 og var hann allt í öllu á plötunni Frelsi til sölu (1986). Hilmar Örn hafði þekkt Bubba lengi. Nýir í hópnum voru þeir Ken Tomas og Johann Söderberg. Þessi liðskip var svo orðin önnur þegar að því kom að halda útgáfutónleika Hótel Íslandi 7. desember 1989, enda hafði Christian Falk skapað nafn sem einn besti upptökustjóri í Skandinavíju þegar hér var komið sögu. En á útgáfutónleikunum voru Lamarnir ógurlegu:

Hilmar Örn Hilmarsson: Hljómborð, ásláttur Birgir Baldursson: Trommur Guðlaugur Óttarsson: Gítar Haraldur Þorsteinsson: Bassi Jósep Gíslason: Hljómborð og loks sá Ken Tomas um hljóðblöndun RASK (1990 og 1991) Bubbi Morthen: Söngur KK: Gítar (1990) Þorleifur Guðjónsson: Bassi (1990) Reynir Jónasson: Harmonika Gunnlaugur Briem: Trommur (frá nóvember 1990) Pálmi Gunnarsson: Bassi (frá desember 1991) Tryggvi Hübner: Gítar (frá desember 1991) Nóta: Þessi sveit manna stóð að kynningu og útgáfutónleikum fyrir plötuna Sögur af landi (1990). Nafn sveitarinnar kemur frá vinnuheiti plötunnar sem var RASK. Nafnið fór þó aldrei hátt og hvarf sem slíkt fljótlega. Gullli Briem bættist síðar í hópinn áður en platan Ég er (1991) var hljóðrituð á tónleikum á Púlsinum seint á árinu 1990. Til gamans má geta þess að Beggi bróðir Bubba átti síðar eftir að nota þetta hljómsveitarnafn. Á myndinni sem tekin er á útgáfutónleikum á veitingarstaðnum Ömmu Lú er RASK ásamt einum af sérlegum gesti kvöldsins Rúnar Júl (en þó vantar KK á myndina) sem lék á gítar, þá nýkominn heim frá Svíþjóð. Ári síðar eða í lok árs 1991 byrtist Bubbi á tónleikum á Tvem vinum ásamt nýrri sveit sem kallaði sig RASK þá voru aðeins hann, Reynir og Gunnlaugur Briem eftir af þessu bandi en í stað KK og Þorleifs voru komnir Pálmi Gunnarsson á bassa og Tryggvi Hübner á gítar. Danshljómsveit Bubba Morthens og KK (1997), gítar KK: Gítar, söngur Kormákur Geirharðsson: Trommur Jón Skuggi: Bassi

Nóta: Bubbi starfaði talsvert með KK á þessum tíma og voru þeir að koma fram saman. Í mars 1997 var auglýstur dansleikur í Óperukjallaranum með Danshljómsveit Bubba Morthens og KK þar var komin ný hljómsveit með B.M. innanborðs. Um tíma voru uppi hugmyndir þess efnis að Bubbi og KK ynnu saman að plötu en ekkert varð af þeirri áætlun. Stríð og friður (mitt ár 2000-2008) Guðmundur Pétursson: Gítar Pétur Hallgrímsson: Gítar Jakob Smári Magnússon: Bassi Arnar Geir Ómarsson: Trommur Tobbi: Hljómborð * Nóta: Stríð og friður lék fyrst inn á plötuna Sögur 1990-2000 og má segja að þar með hafi hún komist á legg. Í kjölfarið var rokkað um allar jarðir og var sveitin Bubba innan handar við gerð næstu plötu Nýbúinn (2001). Þó almennt væri það mál manna að Stríð væri eitt albesta rokkband sem Bubbi hefði starfað með fór aðsókn að tónleikum sveitarinnar minnkandi. Aðdáendur virtust frekar sjá Bubba einann með gítarinn. þrátt fyrir að menn mættu á Gaukin og færu þaðan í dúnrandi stemmingu þar sem Stríð & friður m Bubba í fararbroddi rokkaði upp lög á borð við Talað við gluggann og töldu margir að þar með hefði þetta Choen-skotan lag af Konuplötunni öðlast sjálfstæði. Þó Stríð & friður væri horfin sem slýk þegar Bubbi hóf tökur næstu sólóplötu sinnar voru meðlimir innan handar. Tónlistarnálgunin var öll önnur en á Nýbúanum og óþarfi er að nefna það hér að platan Sól að morgni sló rækilega Meðlimir sveitarinnar dvöldu einnig í hljóðverinu með Bubba við gerð plötunnar 1000 kossa nótt sem kom út árið 2003. Þá mætti á stórtónleika í Laugardalshöllinni þann 6.6.2006 og tók fullan þátt í að fagna þar 50. ára afmæli Bubba með því að leika nokkur l var sveitin nokkuð virk á árinu 2007 og í byrjun árs 2008 var hún mætt í hljóðver ásamt Bubba og Pétri Ben við gerð næstu sólóplötu Bubba Fjórir naglar. * Þegar Bubbi ásamt sveitinni kom fram á sérstökum tónleikum 2. október 2008, sem haldnir voru í húsnæði Kassagerðar Reykjavíkur og voru haldnir í boði prentsmiðjunnar Odda vegna sameiningar Odda, Gutenbergs og Kassagerðarinnar og voru að sögn undanfara tónleika sem fóru síðar fram í Kaupmannahöfn var sveitin án Péturs Hallgrímssonar en í hans stað mætti Tob úr Dr. Spock með hljómborðið. Eftir að hafa aðstoðað Bubba við gerð plötunnar Fjórir naglar og fylgt henni eftir lítilsháttar t.d. með útgáfutónleikum var sveitin lög hvíldar, að sinni allavega. Því með nokkrum mannabreytingum var Egóði sett af stað einu sinni enn. Bandið hans Bubba (2008) Vignir Snær Vigfússon Viggi: Gítar Arnar Þór Gíslason Addi: Trommur Jakob Smári Magnússon Jakob Smári: Bassi Þorbjörn Sigurðsson Tobbi: Hljómborð Einar Þór Jóhannsson Einar: Gítar Pétur Örn Guðmundsson Pétur Örn: Gítar, hljómborð, bakraddir

Nóta: Þó hér sé ekki um eiginlega hljómsveit Bubba Morthens að ræða samkvæmt stífustu merkingu þess orðs eins og við höfum hana fyrir þessa síðu þá getum við ekki annað en minnst á þessa sveit hér og haft hana meðal sveita sem starfað hafa með Bubba. Sveitin varð til eins og allir vita fyrir samnefndan sjónvarpsþátt á Stöð 2. og birtist strax í fyrsta úrslitaþættinum sem allir fóru fram í beinni útsendingu. Vignir gítarleikari var einnig hljómsveitarstjóri bandsins. Sveitin sá einnig um undirleik á laginu Ég er kominn heim sem Bubbi og Björn Jr. sungu inn á band og kom út á pottþétt plötu sama ár. Sé til draumasveit rokkarans þá er hún hér. Sólskuggarnir (Demember 2010 -?) Söngur, gítar: Bubbi Morthens Tenorsaxófónn: Jóel Pálson Trompet: Ari Bragi Kárason Barintonsax: Ragnar Árni Ágústsson Trommur: Helgi Svavar Helgason Bassi: Ingi Björn Ingason Gítar: Börkur Hrafn Birgisson Hljómborð: Daði Birgisson Raddir: Íris Hólm Fyrstu fréttir af þessari sveit komu fram á Bubbi.is sama dag og lagið Röðin fór í spilun (10.12.2010) en samkvæmt heimildum hljóðritaði sveitin lagið 6. desember. Það fór svo í almenna spilun 10. s.m. En stór hluti þessa hóps var þá að vinna með Bubba a sem áætlað var að kæmi út að vori. Samantekt, copyright: Bárður Örn Bárðarson